Morgunblaðið - 23.07.2005, Side 15

Morgunblaðið - 23.07.2005, Side 15
HNLFÍ 50 ÁRA | 15 Sigríður Eysteinsdóttir næringar- fræðingur veitir einstaklingum á Heilsustofnun viðtöl og er með fyrirlestra og hópfræðslu. Flestir fá ráðgjöf um mataræði til að léttast. Næringarráðgjöf er einnig veitt vegna sykursýki, há- þrýstings, hárrar blóðfitu, lyfjameðferðar, eftir ýmsa upp- skurði og vegna vannæringar. „Um það bil 500 viðtöl eru veitt árlega og eru um 70% þeirra vegna megrunar og for- varnarstarfs,“ segir Sigríður. Sigríður segir að gert sé ráð fyrir fjórum 10–12 manna hóp- um í offitumeðferð á ári hjá Heilsustofnuninni, svokallaðir O- hópar. Hver þátttakandi gerir samning um ársmeðferð sem hefst á fjögurra vikna innlögn, vikulöng endurinnlögn er tvisvar á tímabilinu, sú fyrri eftir hálft ár en sú seinni hálfu ári síðar. Þess á milli eru þátttakendur boðaðir á staðinn einu sinni í mánuði í fræðslu, stuðning og hreyfingu að eigin vali. Markmið meðferðar vegna of- fitu er að stuðla að varanlegri þyngdarstjórnun með lífsstíls- breytingum sem taka á matar- æði, hugsun, hegðun og hreyf- ingu. Meðferðin felst aðallega í fræðslu, umræðufundum, mark- vissri þjálfun og einstaklings- ráðgjöf, sem læknir, hjúkrunar- fræðingur, næringarfræðingur, sjúkraþjálfari, sálfræðingur og íþróttakennari sjá um. Mat- reiðslumeistari sér um sýni- kennslu í gerð hollra grænmetisrétta. Sigríður segir að einstaklingsmeðferð henti þeim dvalargestum sem geta ekki nýtt sér hópmeðferðina eða koma til dvalar af öðrum ástæðum en vilja nota tækifær- ið og fræðast um hvernig þeir geta grennst og bætt líkamlegt ástand sitt. Meðferðin felst að- allega í vigtun og viðtölum hjá hjúkrunarfræðingi, fræðslu og einstaklingsráðgjöf hjá næring- arfræðingi ásamt þjálfun og fræðslu hjá íþróttakennurum og sjúkraþjálfurum. „Við setjum fólk ekki á sér- fæði og erum ekki með neinar allsherjar töfralausnir, heldur vinnum við út frá mataræði hvers og eins. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir að lífsstíls- breytingar verða að fá að taka sinn tíma,“ segir hún. „Almennt má segja að mikilvægast sé að borða reglulega, hreyfa sig 60– 90 mínútur á dag og fylgjast vel með þyngdinni og mataræðinu. Ef fólk borðar of lítið á daginn, þá hættir því til að borða of mikið á kvöldin,“ segir hún. Ráðgjöf um mataræði til að léttast Borða reglulega og hreyfa sig 60–90 mínútur á dag Sigríður Eysteinsdóttir, næringarfræðingur. Í notalegu skoti með borði og stólum sitja Jó- hanna Guðnadóttir, Gyða Sveinbjörnsdóttir og Jóhanna Heiðdal að spjalli. „Ég kom hing- að fyrst fyrir 20 árum og hef komið hingað endrum og eins síðan, lömuð og fötluð, en alltaf útskrifast endurnærð,“ segir Jóhanna Guðnadóttir. „Ég tek dvöl hér á Heilsustofn- un fram yfir sólarlandaferð og fimm stjörnu hótel,“ segir hún og stöllur hennar taka und- ir það. „Það er alveg meiriháttar að fara í leir- bað, húðin verður eins og silki á eftir og svo fer maður í algjöra slökun,“ segir Jóhanna G. Gyða segist hafa verið á Heilsustofnun fyr- ir 8 árum og líkar vistin mjög vel. „Ég er hins vegar hér í fyrsta sinn en á örugglega eftir að koma aftur,“ segir Jóhanna Heiðdal. „Margir efast um matinn fyrst, en það líður ekki á löngu þar til þeir verða aðdáendur. Það er fiskur tvisvar í viku, en aldrei kjöt,“ segir hún. „Þetta er allra meina bót, maður sefur bet- ur, borðar ávexti, drekkur heilsute og kaffi- þörfin hverfur,“ segir Jóhanna G. og Gyða segir að starfsfólkið sér alveg sérstaklega gott. Þær segjast allar fá stundatöflur og fara eftir þeim, þótt það sé ekki skylda. Þær fara í sund og í tækjasalinn. „Við erum einnig með kvöldvökur sem dvalargestir sjá um, og auk þess fáum við stundum gesti sem koma með atriði,“ segja þær og nefna einnig að kapella sé á staðnum og messur á sunnudögum. Jóhanna Guðnadóttir, Gyða Sveinbjörnsdóttir og Jóhanna Heiðdal. Betra en sólarlandaferð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.