Morgunblaðið - 02.08.2005, Page 1
STOFNAÐ 1913 205. TBL. 93. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Sjóferð um
Bjarkarhöf
Bergþóra Jónsdóttir fjallar um
nýja listreisu Bjarkar | Menning 29
Fasteignir og Íþróttir
Fasteignir | Á rölti með augun opin Dalshverfið í
Reykjanesbæ Íþróttir | Hannes ekki strax til Stoke
Norðurlandamót drengjalandsliða hefst í dag
STJÓRNIR Landsbankans, Burðaráss og
Straums fjárfestingarbanka samþykktu í gær-
kvöldi að leggja til við hluthafafundi í félögun-
um að Straumur yfirtæki rekstur Burðaráss
og meirihluta eigna þess félags en þó að und-
anskildum nokkrum stórum eignum Burðar-
áss, sem ganga inn í Landsbankann.
Með þessum hætti verður til öflugur fjár-
festingarbanki, sem mun nefnast Straumur-
Burðarás fjárfestingarbanki. Þær eignir sem
renna inn í Landsbankann leiða til þess að
hann eflist einnig mjög. Verði þessar tillögur
samþykktar verður Kaupþing banki eftir sem
áður stærsti banki landsins, ef miðað er við eig-
ið fé, Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki
verður næststærsti bankinn miðað við sama
blasa,“ sagði Björgólfur Thor Björgólfsson,
stjórnarformaður Burðaráss, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi. Að öðru leyti væri
ótímabært að tjá sig um stöðu mála.
Þórður Már Jóhannesson, forstjóri
Straums, vildi í gærkvöldi ekki tjá sig um mál-
ið.
Í frétt frá Burðarási frá í gærkvöldi segir
m.a.: „Stjórnir Burðaráss hf., Landsbanka Ís-
lands hf. og Straums fjárfestingarbanka hf.
hafa samþykkt að leggja fyrir hluthafafundi fé-
laganna sameiningu Burðaráss við Lands-
bankann annars vegar og Straum fjárfesting-
arbanka hins vegar. Gert er ráð fyrir að nafn
félagsins verði Straumur – Burðarás fjárfest-
ingarbanki hf. …“
mælikvarða. Landsbankinn verður í þriðja
sæti og Íslandsbanki í því fjórða.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
verða Landsbankinn, Fjárfestingarfélagið
Grettir og fleiri tengdir aðilar stærstu hlut-
hafar Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka
með um 37% eignaraðild.
Meðal annarra stórra hluthafa í sameinuð-
um fjárfestingarbanka verða Magnús Kristins-
son, útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, með
um 11% og fyrirtæki og einstaklingar sem
tengjast H. Ben hf. með um 9%.
Hér mun vera um að ræða stærsta samruna
fyrirtækja á Íslandi og sennilega mestu við-
skipti sem fram hafa farið á markaðnum hér.
„Við erum bara að nota þau tækifæri sem við
Burðarási skipt upp á milli Straums og Landsbankans
Stærsti fyrirtækjasam-
runi á Íslandi til þessa
Washington. AFP. | George W. Bush Bandaríkja-
forseti setti í gær John Bolton, fyrrverandi að-
stoðarutanríkisráðherra, í embætti sendiherra
Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum.
Leiddi Bush þar með hjá sér afstöðu Banda-
ríkjaþings, en þar hafði skipan Boltons ekki
enn fengist samþykkt í atkvæðagreiðslu þegar
þingið fór í sumarfrí í júlíbyrjun.
„Þetta er of mikil-
vægt embætti til að
hægt sé að láta það vera
ómannað lengur, eink-
um þar sem nú geisar
stríð og fram fer mik-
ilvæg umræða um end-
urbætur á starfsemi
SÞ,“ sagði Bush þegar
hann tilkynnti ákvörð-
un sína.
Demókratar í öld-
ungadeild Bandaríkja-
þings töldu Bolton
óhæfan í starfið og
beittu þeir því málþófi
til að koma í veg fyrir að
eiginleg atkvæða-
greiðsla færi fram um skipan hans, en fullyrða
má að meirihluti repúblikana á þinginu hefði
samþykkt hana.
Sagði öldungadeildarþingmaðurinn Chris
Dodd í gær að Bush hefði gert þjóð sinni „veru-
legt ógagn“ er hann skipaði mann í embættið
„sem skorti trúverðugleika til að sinna hags-
munum Bandaríkjanna hjá SÞ“. Og John
Kerry, annar demókrati í öldungadeildinni,
sagði að sú staðreynd, að Bolton fer til New
York án þess að hafa hlotið til þess umboð frá
Bandaríkjaþingi, gerði það að verkum að hann
yrði veikur fulltrúi Bandaríkjanna hjá SÞ.
Þar sem Bolton er skipaður í embættið án
þess að hafa hlotið blessun þingsins gildir ráða-
hagurinn aðeins þar til nýtt þing kemur saman
eftir kosningar í Bandaríkjunum haustið 2006.
Bolton fer til
starfa hjá SÞ
John Bolton
mættur til starfa í
New York í gær.
SKAFTÁRHLAUP var ennþá í stöðugum
vexti í gærkvöldi en upptök þess voru óljós.
Gífurlegt rennsli er í Skaftá í Skaftárdal og
Hundafossar ólga í vatnavöxtunum. Kvíslin
sem sjá má hægra megin á myndinni er venju-
lega aðeins lítill lækur. Ólöf Rún Sigurð-
hvenær hlaupið nái hámarki en það kom fyrst
fram á mælistöðinni við Sveinstind seint að-
faranótt sunnudagsins. Oddsteinn Kristjáns-
son, bóndi í Hvammi í Skaftártungu, segir að
mikið hafi verið í ánni og býst við að hlaupið
verði stærra en síðast /4.
ardóttir, Petra Ingibjörg Eiríksdóttir, Rúna
Björg Vilhjálmsdóttir og Helgi Kristjánsson
virtu fyrir sér sjónarspilið á sunnudags-
kvöldið.
Sverrir Óskar Elefsen hjá vatnamælingum
Orkustofnunar segir erfitt að segja fyrir um
Morgunblaðið/ÞÖK
Hlaupið vex stöðugt í Skaftá
London. AFP. | Yfirvöld á Ítalíu lögðu í gær
fram ákærur á hendur Osmain Hussain en
hann er grunaður um að hafa verið einn fjög-
urra manna sem gerðu tilraun til að fremja
hryðjuverk í London 21. júlí sl. Og í gær-
kvöldi handtók breska lögreglan tvo menn til
viðbótar í tengslum við
rannsókn málsins.
Osman Hussain er sak-
aður um að tengjast al-
þjóðlegum hryðjuverkum
og fyrir að hafa ferðast
undir fölsku flaggi. Ákær-
urnar gera ítölsku lögregl-
unni kleift að hafa Hussa-
in, sem einnig gengur
undir nafninu Ramdi
Isaac, áfram í varðhaldi.
Bresk stjórnvöld hafa farið fram á framsal
hans en lögmaður Hussains hefur gefið til
kynna að hann muni berjast fyrir því að
þeirri beiðni verði hafnað.
Mikill viðbúnaður
Breska lögreglan viðhafði mikinn viðbúnað
í London í gær. Breska blaðið The Times
sagði að talið væri að þriðja sellan af hryðju-
verkamönnum undirbyggi nú af kappi enn
eitt hryðjuverkið í borginni, í kjölfar hinna
tveggja fyrri, en fulltrúar Scotland Yard
sögðu hér aðeins um getgátur að ræða.
Grunaður
sprengjumað-
ur ákærður
Osman Hussain
London. AFP. | Sömu aðilar og reka
lágfargjaldaflugfélagið easyJet –
sem nú er að hluta til í eigu FL
Group – hafa nú opnað fyrsta hót-
elið í nýrri hótelkeðju, easyHotel.
Það er í Kensington í Vestur-
London og verður hægt að fá þar
þrjár tegundir hótelherbergja: lítil
herbergi, mjög lítil og agnarlítil.
Eru stærstu herbergin 7,2 fer-
sakna þeirra, hann vilji enga dags-
birtu til að trufla sinn svefn. Eng-
inn bar er á hótelinu, aðeins einn
starfsmaður í anddyrinu og borga
verður sérstaklega fyrir afnot af
sjónvarpi. Vonast forsvarsmenn til
að laða til sín viðskiptavini sem
vilja spara hótelkostnað. Í bígerð
er að opna annað easyHotel í Basel
í Sviss í haust.
Herbergi á easyHotel munu
kosta á bilinu 20 til 45 pund,
2.200–5.000 ísl. krónur, og fer
verðið eftir stærð herbergja og
fer hækkandi í samræmi við eft-
irspurn; en pantanir fara fram á
netinu eins og tíðkast hjá easyJet.
34 herbergi eru í nýja hótelinu
og aðeins þrjú þeirra hafa glugga.
Sjálfur segist Haji-Ioannou ekki
metrar, síðan 6,3 fm og loks 5,4
fm. „Þetta hljóta að vera minnstu
hótelherbergi í Evrópu,“ sagði
Stelios Haji-Ioannou, stofnandi
easyGroup-keðjunnar á blaða-
mannafundi. „En Marriott-
hótelið hér við hliðina myndi láta
þig borga a.m.k. 80 pund fyrir
hótelherbergi í kvöld,“ sagði
hann.
Agnarsmá herbergi og engir gluggar
♦♦♦