Morgunblaðið - 02.08.2005, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LEGGJA TIL SAMEININGU
Stjórnir Burðaráss hf., Lands-
banka Íslands hf. og Straums Fjár-
festingarbanka hf. hafa samþykkt að
leggja fyrir hluthafafundi félaganna
sameiningu Burðaráss við Lands-
bankann annars vegar og Straum
Fjárfestingarbanka hins vegar. Gert
er ráð fyrir að nafn félagsins verði
Straumur-Burðarás Fjárfesting-
arbanki hf. Þetta er í fyrsta skipti
sem skráð félag í Kauphöll Íslands
sameinast tveimur félögum. Mark-
miðið er að mynda enn stærra og öfl-
ugra fjármálafyrirtæki, að því er
fram kemur í tilkynningu til fjöl-
miðla.
Kaupa hlut í FlyMe
Fons, félag í eigu Pálma Haralds-
sonar og Jóhannesar Kristinssonar,
hefur fest kaup á tæplega 11% hlut í
sænska lágfargjaldaflugfélaginu
FlyMe, sem er stærsta lágfargjalda-
flugfélag Svíþjóðar.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins ráða Fons og félaginu vin-
veittir fjárfestar, eins og Cognition,
nú yfir um 30% atkvæða í FlyMe,
sem er með áætlunarflug innan Sví-
þjóðar og flýgur auk þess til Helsinki
í Finnlandi, Lundúna og Nice í
Frakklandi.
Skaftá enn í vexti
Skaftárhlaup er enn í vexti, nokk-
uð hægum þó. Sverrir Óskar Elefsen
hjá Vatnamælingum Orkustofnunar
segir erfitt að spá fyrir um hvenær
hlaupið nái hámarki en það kom fyrst
fram á mælistöðinni við Sveinstind
seint aðfaranótt sunnudagsins. Odd-
steinn Kristjánsson, bóndi í Hvammi
í Skaftártungu, segir að mikið hafi
verið í ánni og býst hann við að
hlaupið verði stærra en síðast.
Bush setti Bolton í embætti
George W. Bush Bandaríkjaforseti
hefur sett John Bolton í embætti
sendiherra Bandaríkjanna hjá Sam-
einuðu þjóðunum. Bolton hóf þegar
störf í gær. Hann hefur ekki enn
hlotið náð fyrir augum öldunga-
deildar Bandaríkjaþings vegna emb-
ættisins en Bush notaði tækifærið til
að setja hann tímabundið í embættið
nú þegar þegar þingið er í sum-
arleyfi.
Fadh konungur látinn
Fadh konungur í Sádi-Arabíu er
látinn, talið er að hann hafi verið 84
ára gamall. Abdullah krónprins, sem
í reynd hefur stýrt landinu sökum
veikinda Fahds síðustu tíu árin, hef-
ur verið útnefndur arftaki hálfbróður
síns. Útför Fadhs fer fram í dag.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Bréf 17
Úr verinu 10 Minningar 20/23
Viðskipti 11 Dagbók 28
Erlent 13 Víkverji 26
Úr Vesturheimi 15 Velvakandi 27
Daglegt líf 14 Staður og stund 27
Menning 29 Menning 29
Umræðan 16/17 Ljósvakamiðlar 34
Forystugrein 18 Veður 35
Staksteinar 35
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráð-
herra segir að ferðin til Manitoba í
Kanada um helgina hafi verið gagn-
leg. Forsætisráðherra Kanada hafi
lýst því yfir að lokið yrði við fríversl-
unarsamninginn við EFTA og lofað
að greiða fyrir loftferðasamningi milli
Íslands og Kanada.
Paul Martin, forsætisráðherra
Kanada, kom gagngert til Winnipeg
til að hitta íslenskan starfsbróður
sinn. ,,Það var mjög gagnlegt að hitta
Paul Martin, forsætisráðherra Kan-
ada,“ segir Halldór Ásgrímsson. ,,Það
sem fyrst og fremst kom út úr þeim
fundi var yfirlýsing hans um að ljúka
fríverslunarsamningnum við EFTA.
Það hefur staðið á Kanadamönnum í
því máli og við höfum gengið mikið á
eftir þeim en ég tel að þessi yfirlýsing
sé það afdráttarlaus að farið verði í að
ljúka málinu.“
Að sögn Halldórs Ásgrímssonar
hafa íslensk stjórnvöld lagt áherslu á
að fá loftferðasamning við Kanada.
,,Hann [Paul Martin] lofaði að greiða
fyrir því máli,“ segir Halldór.
Fyrir fundinn með Paul Martin átti
Halldór Ásgrímsson fund með Gary
Doer, forsætisráðherra Manitoba.
,,Mér finnst ánægjulegt hvað hann
hefur mikinn áhuga á að efla sam-
skiptin milli Íslands og Kanada. Það
er auðvelt að gera það á menning-
arsviðinu og í samskiptum Íslendinga
og fólks í Manitoba. Jafnframt á sviði
menntunar og vísinda, bæði að því er
varðar háskólana og samstarf eins og
á sviði vetnismála. Hvað varðar við-
skiptin þá eru þessir markaðir langt
hvor frá öðrum en ég varð var við það
í Gimli að þar telja menn sig geta lært
mikið af okkur í sambandi við sjávar-
útveginn og sérstaklega á tæknisvið-
inu. Mér fyndist mjög ánægjulegt ef
við gætum komið þeim til aðstoðar á
því sviði vegna þess að frystitæknin
sem þekkist á Íslandi í dag kom í
reynd með Íslendingi sem kom héð-
an. Þeir urðu fyrri til að taka upp
þessa tækni en við.“
Heimsókn Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra í Kanada
Kanadamenn tilbúnir að ljúka frí-
verslunarsamningnum við EFTA
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra ræðir við Robert T. Kristjanson
fiskimann, Peter Bjornson, menntamálaráðherra Manitoba, og Gary Doer,
forsætisráðherra Manitoba, en Halldór hefur verið í heimsókn í Kanada.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steg@mbl.is
SJÖ voru handteknir við Kára-
hnjúka í gær eftir að þeir fóru í óleyfi
inn á stíflusvæðið og hengdu þar upp
borða. Að sögn lögreglunnar á Egils-
stöðum er vitað að hinir handteknu
tilheyra hópi mótmælenda sem stað-
ið hafa fyrir aðgerðum við virkjunina
að undanförnu. Hópurinn var í haldi
lögreglu í gærkvöldi en ekki var bú-
ist við því að honum yrði haldið í
nótt. Þá átti lögregla ekki von á að
löggæsla yrði aukin eða hópnum
gert að færa sig enn frekar, enda
væri hann nú í um 100 kílómetra
fjarlægð frá virkjuninni.
Að sögn sjónarvotta var enginn
texti á borðanum sem mótmælendur
strengdu upp á stífluvegginn en á
hann var teiknuð lína sem vísaði nið-
ur á við og er talið að myndin hafi átt
að vera af sprungu.
Mótmælendum var vikið af tjald-
stæði við Kárahnjúka á miðvikudag-
inn í síðustu viku og færðu þeir sig
þá um set yfir á bæinn Vað í Skriðdal
sem er skammt frá Egilsstöðum.
Hópurinn sló upp tjaldbúðum í
túninu á Vaði.
„Á sömu bylgjulengd“
Gréta Ósk Sigurðardóttir mynd-
listarkona er búsett á Vaði og hefur
ásamt manni sínum, Guðmundi Ár-
mannssyni, gefið hópnum leyfi til að
tjalda í túninu. Í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi sagðist Gréta
styðja málstað umhverfisverndar-
sinna. „Við erum á sömu bylgjulengd
með að vilja vernda þetta svæði
þarna upp frá.“ Hún sagði um 30–40
manns vera í tjaldbúðunum og að
lögregla hefði daglegt eftirlit með
þeim, keyrði meðal annars upp að
bænum og sneri svo við.
Aðspurð hvort þau hjónin styddu
aðgerðir hópsins sagði Gréta að erf-
itt væri að ná eyrum ráðamanna á
annan hátt. Þegar meint eignaspjöll
sem aðilar í hópnum eiga að hafa
unnið voru borin undir hana sagðist
hún ekki hafa séð hópinn vinna hin
meintu eignaspjöll en sagðist hins
vegar hafa heyrt að verkamönnum á
svæðinu væri stundum svo uppsigað
við yfirmenn sína að þeir færu sjálfir
og ynnu spjöll á eignum.
Sjö handteknir fyrir að fara
í óleyfi inn á virkjanasvæði
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Torfason
Mótmælendur hafa mótmælt byggingu Kárahnjúkavirkjunar í sumar.
Sjálfstæðisflokkurinn er með
48% fylgi í Reykjavík, R-listinn
47% fylgi og Frjálslyndi flokk-
urinn tæplega 5%, ef marka má
niðurstöðu Gallup-könnunar á
fylgi flokkanna í Reykjavík dag-
ana 6. til 27. júlí sl.
Þetta er í fyrsta sinn sem
fylgi Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík mælist meira en R-
listans í þeim Gallup-könnunum
sem gerðar hafa verið frá síð-
ustu borgarstjórnarkosningum
2002. Þess ber þó að geta að
vikmörk í könnuninni eru 2 til
5%.
Fylgi flokkanna í Reykjavík
hefur breyst umtalsvert frá því
Gallup kannaði það síðast í nóv-
ember 2004. Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur bætt við sig sex pró-
sentustigum og R-listinn tapað
sex prósentustigum. Fylgi
Frjálslynda flokksins stendur
nánast í stað frá síðustu mæl-
ingu Gallups.
Úrtakið í könnun Gallups í
júlí sl. var 1.219 Reykvíkingar á
aldrinum 18 til 75 ára. Svarhlut-
fall var 60%.
R-listinn fékk 8 borgarfull-
trúa í síðustu kosningum, Sjálf-
stæðisflokkurinn fékk 6 og F-
listinn einn mann.
Fylgi flokkanna
nánast jafnt í
Reykjavíkurborg
JARÐSKJÁLFTAHRINA varð um
sextán kílómetra austur af Grímsey í
gærmorgun. Skjálftarnir byrjuðu á
sunnudagskvöldið en mest var
virknin á milli klukkan fimm og sjö
um morguninn. Stærsti skjálftinn
mældist rúmlega 4 á Richter og varð
hann um klukkan hálfsjö. Næst-
stærstu skjálftarnir voru um 2,8 á
Richter og urðu kl. rúmlega fimm.
Steinunn S. Jakobsdóttir, deild-
arstjóri eftirlitsdeildar Veðurstofu
Íslands, sagði í gær að ennþá mæld-
ust skjálftar en virknin hefði dregist
mikið saman. Hún sagði að hrinur
yrðu oft á þessu svæði og að hún
byggist ekki við neinu sérstöku í
framhaldi af þessari.
Skjálftahrina
við Grímsey
EINN hlaut minniháttar meiðsl
þegar tveir bílar skullu saman til
móts við Ásvelli á Reykjanesbraut á
sjöunda tímanum í gær, að sögn
lögreglunnar í Hafnarfirði.
Aðrir sem í bílunum voru sluppu
án meiðsla, að sögn lögreglu. Ann-
ar bíllinn endaði utan vegar. Bíl-
arnir skemmdust töluvert.
Árekstur
við Ásvelli