Morgunblaðið - 02.08.2005, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2005 9
FRÉTTIR
Þri. 3/8: Dahl og litlar samósur
m. tveimur salötum og
hýðishrísgrjónum.
Mið. 4/8: Afrískur pottréttur
og steiktir bananar m. tveimur
salötum og hýðishrísgrjónum.
Fim. 5/8: Hummus m steiktu
grænmeti og buff m. tveimur
salötum og hýðishrísgrjónum.
Fös 6/8: Sumarbakstur m.
valhnetudressingu m. tveimur
salötum og hýðishrísgrjónum.
Helgin 7/8 - 8/8: Próteinbollur
m. cashewhnetusósu m. tveimur
salötum og hýðishrísgrjónum.
Laugavegi 4, sími 551 4473
• www.lifstykkjabudin.is
Nú í stærri stærðum
Þú minnkar um 1 númer
Póstsendum
Allar gerðir
Saumlaust
Opið frá 10-22
alla daga vikunnar
Verið velkomin
GEFÐU ÞÉR BLÓM
Lagersölu lýkur
föstudag
40-70% afslátturHverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
H Æ Ð A S M Á R A 4 • S Í M I 5 4 4 5 9 5 9
H V E R A F O L D 1 - 3 , G R A F A R V O G I
• S Í M I 5 7 7 4 9 4 9
Ú T S A L A
50-70%
A F S L Á T T U R
undirfataverslun, Síðumúla 3, sími 553 7355.
Lokað í dag og á morgun
Útsalan hefst fimmtudag 4. ágúst
Opið virka daga frá kl. 11-18, laugardaga frá kl. 11-15.
Laugavegi 54,
sími 552 5201
Pantanir óskast
sóttar
Leðurjakkar
áður 14.990
nú 11.990
Litir: svart - brúnt
hvítt - rautt
Útsala
Ný sending
7 d
ag
ar
í tó
nle
ika
bobby@visindi.is
VEÐURSPÁR fyrir verslunar-
mannahelgina sem komu fram um
miðja síðustu viku stóðust að mestu
leyti en þær spár sem komu fyrr
fram voru ekki eins nákvæmar.
Þetta er mat Einars Sveinbjörns-
sonar, veðurfræðings á Veðurstofu
Íslands, en hann tók ekki þátt í að
spá fyrir um veðrið um síðastliðna
helgi heldur setti sig í spor annarra
landsmanna og fylgdist með spá-
dómum veðurfræðinga um „versl-
unarmannahelgarveðrið“. Þeir aðil-
ar sem túlka tölvuspárnar eru
Veðurstofa Íslands, veðurfræðingar
RÚV og Veðurþjónustan ehf.
Þrýstingurinn er óþægilegur
„Það tókst nokkuð vel til að spá
fyrir um veðrið síðastliðna helgi. Þó
var heldur mikið gert úr úrkomu á
Norður- og Vesturlandi samfara
skilunum á laugardaginn en þar
rigndi nánast ekki neitt. Þá hefði
verið hægt að spá frekar fyrir um
þá vætu sem varð Suðvestanlands á
sunnudeginum en það var gert
fremur lítið úr henni,“ segir Einar
en það sem honum finnst mest um
vert hvað spárnar varðar er að far-
ið var að spá fyrir um „verslunar-
mannahelgarveðrið“ nokkuð
snemma.
„Strax á mánudegi, þriðjudegi
var farið að þrýsta á veðurspáfólk
að gefa nokkuð greinagóða spá fyr-
ir helgina og þá voru menn […] úti
að aka. Á þeim tímapunkti er ekki
rétt að segja fyrir um spárnar –
þær eru ekki það góðar að það sé
hægt að greina upp á milli lands-
hluta og daga. Menn ættu heldur að
segja almennt fyrir um það hvernig
horfurnar eru.“
Einar segir það ekkert nýtt að
veðurfræðingar séu beittir þrýst-
ingi á þessum tíma og hvattir til
þess að gefa út spár langt fram í
tímann.
„Það er verið að reyna að greina
nákvæmlega á milli daga, lands-
hluta og svæða sem er ekki hægt
að gera með góðu móti nema þegar
nær dregur,“ segir Einar og bætir
við: „Þessi þrýstingur er óþægileg-
ur fyrir veðurfræðinga sem eru að
túlka tölvuspár.“
Veðurfræðingar undir pressu um verslunarmannahelgi
Spárnar um helgina
gengu flestar eftir