Morgunblaðið - 02.08.2005, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
RÆKJUBÁTURINN Sæþór EA 101 frá Ár-
skógssandi landaði á Húsavík nú í vikunni. Sæ-
þór leggur jafnan upp hjá Samherja, Strýtu.
Þar er nú sumarfrí og munu einhverjir þeirra
báta sem leggja þar upp landa á Húsavík í
þessari viku.
Að sögn Heimis Hermannssonar, stýri-
manns á Sæþóri, voru aflabrögðin léleg eða
um 15 tonn eftir þrjá sólarhringa.
Þrír bræður eru á Sæþóri, auk Heimis skip-
stjórinn Arnþór og loks Guðmundur, en þeir
eru synir Hermanns Guðmundssonar, útgerð-
armanns á Árskógssandi.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Lélegt
á rækjunni
Á FYRSTU fjórum mánuðum
ársins 2005 var aflaverðmæti ís-
lenskra skipa af öllum miðum
25,9 milljarðar króna sam-
anborið við 24,9 milljarða á
sama tímabili 2004. Aflaverð-
mæti hefur því aukist um 4,1%
frá fyrra ári eða um 1 milljarð
króna.
Frá þessu var greint á heima-
síðu Hagstofu Íslands. Verð-
mæti botnfiskaflans var rúmir
18,6 milljarðar og jókst um ríf-
lega 530 milljónir króna (2,9%).
Verðmæti þorsks var tæpir 10,9
milljarðar og dróst saman um
tæplega 1,2 milljarða króna
(-9,7%). Verðmæti ýsuaflans
nam 3,5 milljörðum króna og
jókst um tæpar 770 milljónir
(28%). Verðmæti karfa var 2,3
milljarðar króna og er það
aukning um tæpar 610 milljónir
frá fyrra ári (36%).
Meira fyrir loðnuna
Lítið var veitt af loðnu í apr-
ílmánuði enda vertíð í raun lok-
ið. Verðmætið á loðnuvertíðinni
nam rúmum 4,7 milljörðum
króna sem er rúmlega 1,1 millj-
arði meira miðað við sama tíma-
bil í fyrra (32%). Aflaverðmæti
kolmunna jókst á milli ára um
rúmar 100 milljónir króna og
nam tæpum 350 milljónum á
tímabilinu janúar til apríl 2005
(43%). Þá var verðmæti skel- og
krabbadýraafla tæpar 240 millj-
ónir en var rúmlega 670 millj-
ónir á sama tímabili 2004.
Meira fryst um borð
Verðmæti afla í beinni sölu
útgerða til vinnslustöðva var
tæpir 12,3 milljarðar króna en
það er nánast sama verðmæti
og fékkst í slíkum viðskiptum á
fyrstu fjórum mánuðum ársins
2004 (-0,3%). Verðmæti sjó-
frysts afla var tæpir 7 millj-
arðar króna en nam ríflega 5,9
milljörðum 2004 og hefur því
aukist um tæp 18% á milli ára.
Töluverð aukning var einnig í
útflutningi á ferskum fiski í
gámum, en flutt var út fyrir
tæpa 2,4 milljarða sem er 18%
aukning frá fyrra ári. Dregið
hefur hins vegar úr verðmæti
þess afla sem seldur er á mark-
aði til vinnslu innanlands, það
var 3,9 milljarðar 2004 en 3,7
milljarðar króna 2005 (-5%).
Á Suðurnesjum var unnið úr
afla að verðmæti 5 milljarðar
króna sem er samdráttur um
105 milljónir eða 2% frá fyrra
ári. Á höfuðborgarsvæðinu
námu verðmætin 4,2 milljörðum
króna sem er 613 milljóna
króna aukning frá árinu 2004
(17%). Á Suðurlandi varð mesta
aukningin milli ára, 611 millj-
ónir eða 26%. Mesti samdráttur
var hins vegar á Vesturlandi,
680 milljónir króna eða sem
nemur 37%.
Aflaverðmætið hefur aukizt um 4,1%
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Fiskveiðar Verðmæti fiskaflans jókst á fyrstu 4 mánuðum ársins.
ÚR VERINU
Áreiðan-
leikinn
ræður
úrslitum
Úr verinu á morgun
„HÉR var rosaveiði í síðustu viku,“
sagði Fannar Freyr Bjarnason, leið-
sögumaður við Selá í Vopnafirði.
„Hollið var með 250 laxa á sex dög-
um.“ Um mánaðamótin höfðu þannig
veiðst um 650 laxar í Selá, sem er
mun meira en á sama tíma í fyrra,
þegar um 350 laxar höfðu veiðst. Þá
var metveiði í ánni, veiddust tæplega
1.700 laxar.
Fannar Freyr sagði veiðimenn
ekki hafa séð mikið af fiski en mikið
væri samt af honum í ánni.
„Mjög mikið veiðist á hits, þetta
síðasta holl veiddi þannig ekkert á
túpur, þetta kom allt á smáar flugur –
mjög skemmtileg veiði.
Síðustu dagar hafa gefið aðeins
minna, við bíðum eftir næstu göngu. Í
gær veiddust sex laxar við efri foss-
inn, þar af einn lúsugur. Það er ferð á
þessum fiskum, þetta eru einir 30 km.
Þeir bruna þetta í einum grænum.“
761 lax í vikunni
Gríðargóð veiði er áfram í Eystri-
Rangá, en í hádeginu í gær höfðu
veiðst 1.785 laxar.
„Síðasta vika gaf 761 lax, sem er al-
gjört met hérna,“ sagði Einar Lúð-
víksson. „Til þessa var besta veiðin á
þessum tíma árið 2000, þá komu upp
544 – og það var eftir að áin var óveið-
andi fyrir gruggi. Göngurnar voru
ótrúlega stífar í síðustu viku, 110 til
120 laxar veiddust á dag, eða um sex
laxar á stöng, sem er býsna góð með-
alveiði.“
Einar sagði frá svissneskum feðg-
um sem veiddu á þessum tíma, þeir
hafa veitt í ánni frá 1998 og þekkja
hana vel; þeir fengu nú 110 laxa á
tvær stangir á sex dögum.
„Þeir voru mjög duglegir en veiðin
er annars ótrúlega jöfn, milli stanga
og milli svæða, þótt yfirleitt séu ein-
hver svæði aðeins betri en önnur.“
Einar segir ána hiklaust stefna í
3.500 laxa með þessu áframhaldi ef
veður verður sæmilegt og fáir grugg-
dagar koma með haustinu.
Ytri-Rangá er heldur hægari til
þetta sumarið. Þar hafa veiðst rúm-
lega 800 laxar en nú eru teknir að
veiðast 25 til 50 á dag.
Bara smápöddur sem gefa
„Veiðin datt alveg niður í gær, þá
veiddust ekki nema þrír laxar, en svo
kom gott skot í morgun og bjargaði
málunum, þá komu 18 upp,“ sagði
Gunnar Örn Petersen, leiðsögumaður
við Laxá í Leirársveit, en þar hafa nú
veiðst 550 laxar.
„Það er betra en í fyrra. Hollið fyr-
ir tveimur vikum veiddi 170 laxa, í
síðustu viku komu upp 85 en þetta
verður alltaf erfiðara, vatnið er orðið
lítið. En við sjáum mjög mikið af laxi,
Laxfoss og Miðfellsfljótið eru pökkuð
af fiski. Það verður veisla þegar rign-
ir.“
Hann sagði veiðina alla vera á
örsmáar flugur, í stærðum 12 til 16.
„Fyrir tveimur vikum var mikið á
hitsið en þegar lækkar svona í ánni
verður það hálfgroddalegt ef menn
kunna það ekki mjög vel. Það eru
bara smápöddur sem gefa núna og
fínleg veiðimennska.“
Laxá í Kjós hefur gefið 640 laxa og
ágætisgangur er í veiðinni, um alla á,
að sögn heimildamanns.
Frést hefur af mjög góðri veiði í
Miðá í Dölum í sumar, en hún hefur
nú gefið um 130 laxa á stangirnar
þrjár. Þá hafa komið upp um 200
bleikjur.
Um 120 laxar hafa veiðst í Fnjóská
og vó sá stærsti 18 pund.
Veiðimenn sem veiddu svæði I og
II í Stóru-Laxá um helgina náðu níu
löxum á tveimur vöktum. Rétt eins og
dagana áður, þegar vel hafði veiðst,
komu flestir upp í Gvendardrætti,
Námustreng, Stekkjarnefi og við
Laxárholt, sem hefur gefið marga
fiska síðustu daga. Flestir tóku litlar
rauðar Frances-keilur. Svæðið er nú
komið með 105 laxa sem er afar gott á
þessum tíma. Laxinn er samt smærri
en margir eiga að venjast í Stóru-
Laxá. „Þetta er hálfgerð hörmung,“
sagði bóndi einn úr sveitinni sem
fylgdist með blaðamanni landa fjög-
urra punda laxi í Laxárholtshylnum;
ekki vanur að sjá svo smáa laxa í ánni.
Lengi í gang
Á sama tíma og vel veiðist í Stóru-
Laxá er rólegra yfir Soginu. Þó ekki
eins rólegt og við greindum frá fyrir
helgi, að fjórir laxar væru komnir úr
ánni; fyrir mistök í vinnslu fréttarinn-
ar féll út að það væri á veiðisvæðinu
við Syðri-Brú, þar sem veitt er á eina
stöng. Samkvæmt heimildum veiðive-
fjarins votnogveidi.is er ekki einleikið
hvað áin er lengi í gang þetta sum-
arið, þótt hún sé síðsumarsá. Fyrir
helgi voru komnir upp 43 laxar, þar af
35 af Ásgarðssvæðinu.
Full ástæða er til að minna á fisk-
ræktarátak SVFR og veiðifélaga í
Stóru-Laxá og Sogi, en reyna á að ná
sem flestum löxum í kistur og efla
snemmgenga stofninn. Aðeins fjórir
Sogslaxar hafa verið fluttir í klak-
húsið en ellefu úr Stóru-Laxá, en við
veiðihúsin eru rör undir fiskana sem
veiðimenn geta haft með sér að veiði-
stöðum og ef þeir setja í laxa, og sér-
staklega hrygnur, eru þeir hvattir til
að koma þeim í klak. Stjórn SVFR
verðlaunar þá veiðimenn sem koma
hrygnum í klak með veiðidegi á sama
svæði og fiskurinn veiddist á.
Rosaveiði í Selá
Morgunblaðið/Einar Falur
Helgi Þorgils Friðjónsson þreytir lax í Fornastreng í Flekkudalsá.
STANGVEIÐI
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Stefán Þórsson með þrjá laxa sem
hann veiddi á svæði I og II í Stóru-
Laxá á dögunum.
veidar@mbl.is
Kristján Þ. Davíðsson, fram-
kvæmdastjóri Iceland Sea-
food International, í viðtali