Morgunblaðið - 02.08.2005, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
á Grenivík.
Verður að hafa
bíl til umráða
Upplýsingar gefur
Ólöf Engilberts-
dóttir í síma
569 1376.
enivík.
ur að hafa
umráða
lýsingar gefur
Engilberts-
ir í síma
1376.
Nánari upplýsingar hjá
Írisi í símum 483 3214
og 848 214.
Blaðber vant r í
Þorlákshöfn.
Þarf að geta byrjað
sem fyrst.
Stykkishólmur | „Það er mikill feng-
ur fyrir Golfklúbbinn Mostra að fá
KB-banka til samstarfs, því að mikill
kostnaður fylgir því að byggja upp
golfvöll og reka hann,“ segir Rík-
harður Hrafnkelsson, formaður golf-
klúbbsins, í tilefni af styrktarsamn-
ingi við KB banka.
Samningurinn er til þriggja ára og
felst í honum að KB banki veitir
klúbbnum fjárstuðning og á móti
lætur Mostri í té ýmsa þjónustu við
bankann. Meðal annars fær starfs-
fólk KB banka sem spilar golf ókeyp-
is afnot af vellinum. Þá er árlega
haldið opið KB-golfmót í samstafi við
Vestarr í Grundarfirði. Leiknar eru
18 holur á hvorum velli sama daginn,
sem gefur mótinu mikla sérstöðu.
Ríkharður var að vonum ánægður
með samninginn þegar hann hafði
undirritað hann ásamt Kjartani Páli
Einarssyni útibússtjóra.
„Samningurinn léttir okkur róð-
urinn og er KB banki stærsti styrkt-
araðili klúbbsins fyrir utan Stykk-
ishólmsbæ,“ segir Ríkharður
formaður. Hann segir aðsókn að vell-
inum hafi aukist gífurlega síðustu ár
og að ferðamenn séu alltaf stærri og
stærri hluti þeirra sem komi að spila.
„ Mikið er um það að gestir haldi
til á tjaldsvæðinu, sem er við hliðina á
golfvellinum. Þar leggja þeir bílum
sínum og þurfa ekki að setja þá í
gang fyrr en heim er haldið, því öll
þjónusta er í gönguleið, eins og völl-
urinn, sundaðstaða og verslun, og
þetta tel ég mestu sérstöðu vallarins
okkar,“ segir Ríkharður.
Í sumar starfa tveir fastir starfs-
menn við slátt og viðhald. Auk þess
fer mikið sjálfboðaliðastarf fram, því
klúbbfélagar sjá um rekstur fé-
lagsaðstöðunnar þar sem spilurum er
boðið upp á veitingar. Í undirbúningi
er að ljúka uppbyggingu vallarins.
Ríkharður segist nánast mæta á
hverjum degi á völlinn í golf og vill
hann ekki þræta fyrir það að hann sé
forfallinn golfari. Flestir hans fé-
lagar og kona hans eru sammála því
og því til staðfestingar var hann að
fara í hálfsmáðarsumarfrí og stoppin
miðast við það hvar golfvelli er að
finna.
KB banki styrkir
Golfklúbbinn Mostra
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Golf Ríkharður Hrafnkelsson og Kjartan Páll Einarsson undirrituðu sam-
starfssamning milli Golfklúbbsins og KB banka.
Hellissandur | Þjóðgarðurinn
Snæfellsjökull og Hollvina-
samtök Þórðar á Dagverðará
efndu til gönguferðar í blíðviðri
26. júlí sl., á fyrrum slóðir Þórð-
ar undir Jökli.
Þátttakendur mættu niðri við
ströndina sunnan Hólahóla og
gengu flestir þaðan í Gáluvík en
sumir allt suður á Járnbarða.
Sæmundur Kristjánsson, sem er
bæði landvörður og í stjórn holl-
vinasamtakanna, var göngu-
stjóri og sagði skemmtilegar
sögur af Þórði og tengdi sög-
urnar svæðinu og landslaginu.
Komið var að skotbyrgi sem talið
var víst að Þórður hefði legið í
fyrir rebba.
Tókst Sæmundi mætavel að
gera fólki grein fyrir hversu
draugalegt gæti verið þarna í
hrauninu á vetrarnóttum.
Auk Sæmundar voru í hópnum
þrír landverðir. Einn af þeim
heitir Karl og tókst honum
ásamt Sæmundi að útskýra þá
erfiðleika sem refaveiðimenn
þurftu og þurfa að yfirstíga í
sambandi við mjög svo breytilegt
tungumál tófunnar eftir lands-
hlutum. Margt fleira markvert
mátti heyra í þessari ferð. Tal
fólks heyrðist langan veg. Logn
og kyrrð var yfir landi og sjó. Úr
Gáluvíkinni var haldið upp í
Beruvíkurhraunið upp á svokall-
aða Miðleið að Hólahólum frá
Dritvík. Það var þreytt en ánægt
göngufólk, tæplega 30 manns,
sem settist í bíla sína sunnan
Hólahóla upp af Flæðivík eftir
tæplega þriggja stunda göngu
og hélt síðan hvert til síns heima.
Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir
Gönguferð Hluti hópsins við skotbyrgið.
Á slóðum Þórðar á
Dagverðará
Stykkishólmur | Í fjölmiðlum er
rætt um aðsóknarmet hér og þar um
verslunarmannahelgina. Engar slík-
ar tölur koma frá Stykkishólmi þetta
árið. Helgin var mjög róleg og að
sögn umsjónarmanns tjaldsvæðisins
dvöldu fáir gestir á tjaldsvæðinu og
þessi helgi var sú rólegasta í sumar.
Það sem veldur því að ferðamenn
hafa kosið aðra landshluta til að
heimsækja um helgina er að stærst-
um hluta veðurspáin. Veðurspáin
fyrir Snæfellsnes var ekki spenn-
andi, en þar var spáð úrkomusömum
dögum og fæstir sækjast eftir slíku
veðri í útilegu, þrátt fyrir góðan að-
búnað. Engar útihátíðir voru aug-
lýstar á Snæfellsnesi.
Um helgina var gott veður í
Stykkishólmi. Það sást ekki til sólar,
en hægvirði var og hlýtt og ekki er
hægt að hafa orð á nokkrum dropum
sem féllu til jarðar á laugardag.
Þrátt fyrir þetta fóru nokkrar fjöl-
skyldur á móti straumnum og gistu
á tjaldsvæðinu. Þær kusu rólegheit-
in fram yfir fjölmennið. Þar áttu þær
góða daga, því fjölbreytt afþreying
er í Stykkishólmi og margt að skoða
í nágrenninu og veðrið reyndist mun
betra en útlit var fyrir.
Rólegt á
tjaldsvæð-
inu í Stykk-
ishólmi
Ljósmynd/Gunnlaugur Árnason
Kolbeinn Sveinbjörnsson, Tryggvi Kolbeinsson, Kristín Sveinbjörnsdóttir
og Borghildur Guðmundsdóttir völdu að tjalda í Stykkishólmi um versl-
unarmannahelgina og áttu þar rólega daga.
Borgarnes | Í anddyri Hyrnutorgs hefur undanfarið verið hægt að
gera sannkölluð reyfarakaup, en þar eru til sölu gamlir reyfarar og
alls kyns bækur frá Héraðsbókasafni Borgarfjarðar. Þetta eru bæk-
ur sem til eru í mörgum eintökum og þarf að losna við. Verðið gerist
ekki betra því stykkið kostar 100 krónur og ef keyptar eru fimm fást
tvær í kaupbæti.
Margir hafa nýtt sér tækifærið og gripið með sér lesefni í sum-
arfríið. Ef menn hafa séróskir má hafa samband við Héraðsbóka-
safnið og láta athuga hvort hægt sé að uppfylla þær. Krakkar úr ung-
lingavinnunni hafa skipst á að selja bækurnar, en nú er hún Bergrún
Sandra Húnfjörð tekin við og verður næstu tvær vikurnar. Aðra bók-
sölubása er að finna á Hvanneyri og á Indriðastöðum í Skorradal.
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Bækur Bergrún Sandra Húnfjörð í sölubásn-
um á Hyrnutorgi.
Bókasafnið
selur bækur
VESTURLAND