Morgunblaðið - 02.08.2005, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2005 13
ERLENT
á ferðamannastöðum í Taba á Sínaí-
skaga í fyrra. Í yfirlýsingu innan-
ríkisráðuneytisins í gær sagði að
lögreglan hefði ætlað að girða af
felustað Flayfils í Ataqaa-fjöllum
þegar skotið var á hana. Þeirri
skotárás hefði verið svarað, með
fyrrgreindum afleiðingum.
Flayfil var bróðir Suleimans
Flayfil, eins af meintum árásar-
mönnum í Sharm el-Sheikh, en talið
er að Suleiman hafi dáið í einni
árásanna. Staðfest tala látinna í
hryðjuverkunum er 64 en talið er
að heildartala látinna sé 88.
Kaíró. AP. | Lögreglan í Egyptalandi
skaut til bana einn af meintum höf-
uðpaurum hryðjuverkanna í Sharm
el-Sheikh 23. júlí sl. er hún gerði
áhlaup gegn honum á felustað hans
í Ataqaa-fjöllunum. Eiginkona
mannsins, Mohammeds Saleh Flay-
fil, dó einnig í aðgerðunum og fjög-
urra ára gömul dóttir þeirra særð-
ist.
Lögreglan í Egyptalandi hafði
leitað Flayfils, sem var þrítugur, í
tengslum við hryðjuverkin í Sharm
el-Sheikh en hann var einnig grun-
aður um aðild að sprengjutilræðum
Meintur höfuð-
paur drepinn
Leiðtogar helstu ríkjaheimsins vottuðu í gærFahd konungi í Sádi-Arabíu virðingu sína en
Fahd andaðist í fyrrinótt, 84 ára að
aldri, að því er talið er. Fahd ríkti
sem konungur í Sádi-Arabíu frá
árinu 1982 en hefur þó aðeins stjórn-
að landinu að nafninu til síðustu ár-
in, vegna veikinda Fahds hefur það
fallið í hlut hálfbróður hans, Abdul-
lahs krónprins, að fara með daglega
stjórn mála.
Abdullah hefur verið útnefndur
nýr konungur og mun hann verða
krýndur á morgun, miðvikudag, en
útför Fahds fer eftir því sem næst
verður komist fram í dag, þriðjudag.
Valdatími Fahds bin Abdel Aziz í
Sádi-Arabíu einkenndist af miklu
umróti sem raunar er ekki enn séð
fyrir endann á. Sádi-Arabía er
mesta olíuframleiðsluríki heimsins
en árlegar tekjur af olíu höfðu þó
tekið að falla nokkuð þegar Fahd
erfði krúnuna 1982 og hann þurfti að
beita sér fyrir aðhaldsaðgerðum á
fyrstu árum sínum í stóli konungs.
Almennt er talið að honum hafi tek-
ist vel upp í efnahagsstjórn landsins
og velmegun er almenn meðal
heimamanna. En mannréttinda-
samtök hafa hins vegar gagnrýnt
hversu hart „sharia“ (lögum kórans-
ins) er þar fylgt eftir og mannrétt-
indi lítt virt, aftökur eru algengar í
Sádi-Arabíu og landið þykir bæði
lokað og íhaldssamt.
Sádi-Arabía er hins vegar mik-
ilvægt ríki og ekki aðeins sökum
þeirra olíulinda sem landið býr yfir.
Þar er nefnilega einnig að finna
tvær helgustu borgir íslams, Medina
og Mekka; þ.e. fæðingarstað og dán-
arstað Múhameðs spámanns. Spilar
Sádi-Arabía sérstakt hlutverk í ísl-
am sökum þessa og milljónir músl-
íma flykkjast til Mekka ár hvert í
pílagrímsferðir til dánarstaðar spá-
mannsins.
Glaumgosi á sínum yngri árum
Fadh konungur var einn sjö sona
Abdel-Aziz konungs, stofnanda
Sádi-Arabíu. Móðir hans hét Hassa
og var í uppáhaldi hjá Abdel-Aziz
sem átti margar eiginkonur, tryggði
einmitt völd sín með því að giftast
inn í ættir mikilvægra ættarhöfð-
ingja.
Fahd hafði á sínum yngri árum
orð á sér fyrir að vera glaumgosi og
sú saga er sögð af honum, að hann
hafi eitt sinn tapað sex milljónum
Bandaríkjadala á einu kvöldi í spila-
víti í Mónakó. Eftir að hann tók sæti
í ríkisstjórn á sjötta áratugnum ró-
aðist hann hins vegar nokkuð, þó að
hann hafi ætíð haft orð á sér fyrir að
vera unnandi vestrænna lifn-
aðarhátta, talað er um að hann hafi
drukkið áfengi í höllum sínum og
þannig brotið lög, sem annars gilda í
þessu íhaldssama landi.
Fahd varð krónprins Sádi-Arabíu
þegar Faisal konungur var ráðinn af
dögum 1975. Stjórnaði Fahd sem
slíkur landinu næstu sjö árin þar
sem Khaled konungur sýndi dag-
legri stjórn landsins lítinn áhuga.
Við andlát Khaleds 1982 varð Fahd
síðan sjálfur konungur.
Verndari helgu moskanna
Rök hafa verið færð fyrir því að
ýmsar gjörðir Fahds hafi stuðlað að
því mikla umróti, sem nú ríkir í
Sádi-Arabíu og múslímaheiminum
almennt.
Eftir íslömsku byltinguna í Íran
1979 hafði hann áhyggjur af því að
hún breiddist út, enda
virtist þar vera orðið til
ríki sem héldi grund-
vallargildi íslams enn
frekar í heiðri en sjálft
fæðingarland spá-
mannsins. Studdi Fahd
konungur Íraka dyggi-
lega í stríði þeirra við
Íran á níunda áratugn-
um. Fahd beitti sér
jafnframt fyrir ýmsum
breytingum sem hann
vonaðist til að yrðu til
þess að Sádi-Arabía stæði undir
nafni sem vagga íslamskrar menn-
ingar; þ.e. hann kom til móts við
ýmsar kröfur íhaldsaflanna heima-
fyrir, trúarlögregla var t.a.m. sett á
laggirnar til að tryggja að farið væri
eftir ýmsum samfélagslegum
reglum, s.s. þeim sem
skipa svo fyrir að konur
beri slæður á almanna-
færi.
Tók hann sér síðan
titillinn Verndari helgu
moskanna tveggja árið
1986 til að minna á að
sem konungur í Sádi-
Arabíu héldi hann
verndarhendi fyir helg-
um íslömskum stöðum í
Medina og Mekka.
En á sama tíma leitaði
Fahd bandalags við Bandaríkja-
menn og sú ákvörðun hans að leyfa
Bandaríkjamönnum að setja upp
herstöðvar í Sádi-Arabíu eftir innrás
Íraka í Kúveit 1990 reytti íhaldsöflin
mjög til reiði. Margir Sádar og raun-
ar múslímar víðar í heiminum töldu
það brjóta beint gegn boðorðum
spámannsins að hermenn af annarri
trú en íslam skyldu vera staðsettir í
fæðingarlandi íslams. Þurfti stjórn
Fahds að berja niður mótmæli gegn
þessari ákvörðun. Segja margir að
þessi ákvörðun Fahds hafi skapað
Osama bin Laden, sem fæddist í
Sádi-Arabíu, og hreyfingu hans.
Bandalagið við Bandaríkin hefur
haldið þrátt fyrir að árásirnar á
Bandaríkin 11. september 2001 hafi
augljóslega valdið vandamálum,
enda voru fimmtán af þeim nítján
mönnum sem réðust á Bandaríkin
sádí-arabískir ríkisborgarar. Sádi-
arabísk stjórnvöld voru þó andvíg
innrásinni í Írak 2003 og bandarísk-
um herstöðvum í landinu hefur verið
lokað.
Valdabarátta í vændum?
Fahd konungur fékk heilablóðfall
árið 1995 og hefur verið veikur alla
tíð síðan. Er alkunna að Abdullah,
hálfbróðir hans, hefur í reynd stýrt
Sádi-Arabíu síðustu fimm árin
a.m.k. Er Abdullah sagður heilinn á
bak við ýmsar aðgerðir síðustu ár er
miða í umbótaátt, s.s. að halda sveit-
arstjórnarkosningar fyrr á þessu
ári, og tilraunir til að ráða nið-
urlögum öfgahópa er taldir eru
tengjast al-Qaeda og hafa staðið fyr-
ir hryðjuverkum í Sádi-Arabíu.
Abdullah, hinn nýi konungur
Sádi-Arabíu, er á níræðisaldri. Það
er einnig nýr krónprins landsins,
hálfbróðir Abdullahs, Sultan bin Ab-
dul Aziz prins. Þeir eru báðir sagðir
heilsuhraustir en óhjákvæmilegt er
talið, að nú hefjist kapphlaup um
það meðal yngri manna að koma ár
sinni vel fyrir borð, þannig að við-
komandi geti gert kröfu til krún-
unnar að þeim Abdullah og Sultan
gengnum.
AP
Fahd konungur ásamt Ronald Reagan í Hvíta húsinu 1985.
Abdullah krónprins
Konungur á miklum umrótatímum
Fadh konungur í Sádi-Arabíu er látinn, Abdullah krónprins útnefndur konungur í hans stað
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
Nairobí. AFP, AP. | Óttast er að andlát
Johns Garang, varaforseta Súdans
og fyrrverandi leiðtoga skæruliða-
sveita Suður-
Súdana, verði til
þess að ófriður
blossi upp að nýju
í landinu en
skammt er síðan
skrifað var upp á
friðarsamkomu-
lag sem binda átti
enda á átök í Suð-
ur-Súdan.
Óeirðir brutust
út í Khartoum, höfuðborg Súdans, og
í Jubu, höfuðstað Suður-Súdan, eftir
að fréttist um andlát Garangs í gær,
þúsundir manna frá suðurhluta
landsins þustu út á götur Khartoum
og voru sumir vopnaðir byssum og
hnífum. Óttast er að margir hafi beð-
ið bana.
Samið um frið í janúar
Útgöngubann gekk í gildi klukkan
15 að staðartíma í Khartoum og
sagði í frétt BBC að ró hefði þá færst
yfir borgina. Ljóst er þó að brugðið
getur til beggja vona, um fjórar
milljónir Suður-Súdana búa í
Khartoum og harma þeir mjög leið-
toga sinn. Omar al-Bashir, forseti
Súdans, hefur hins vegar látið hafa
eftir sér að hann voni að friðarsam-
komulagið haldi.
Yfirvöld í Súdan hafa fyrirskipað
að landsmenn skuli virða þriggja
daga þjóðarsorg vegna andláts Gar-
angs. Garang dó í þyrluslysi er hann
var á leið heim frá Úganda. Þrettán
aðrir biðu bana en vondu veðri er
kennt um slysið. Garangs hafði verið
saknað yfir helgina en ekki var
greint frá andláti hans fyrr en árla í
gærmorgun.
Garang hafði verið leiðtogi upp-
reisnarmanna í Suður-Súdan – þar
sem flestir eru kristinnar trúar – í
þrjá áratugi en þeir hafa háð blóðugt
stríð við íslömsku stjórnina í Kharto-
um sem hefur kostað a.m.k. 1,5 millj-
ónir manna lífið. Samið var um frið í
janúar og varð Garang þá varaforseti
Súdans í einingarstjórn stríðsaðil-
anna. Í gærkvöldi var búið að skipa
Salva Kiir, næstráðanda Garangs í
uppreisnarsveitunum, varaforseta
Súdans í hans stað. Mikil óvissa leik-
ur þó um framhaldið og óttast menn
að átök blossi upp að nýju.
Talin hætta á að átök
blossi upp að nýju
Leiðtogi Suður-
Súdana fórst
í þyrluslysi
Reuters
Suðursúdanskar konur syrgja John Garang, leiðtoga S-Súdana um áratugaskeið, í gær.
John Garang
Hryðjuverkin í Sharm el-Sheikh
Brieskow-Finkenheerd. AFP. | Lög-
reglan í Þýskalandi yfirheyrir
nú 39 ára gamla konu sem talin
er hafa myrt níu kornabörn
skömmu eftir að hún bar þau í
þennan heim. „Við stöndum
frammi fyrir glæp sem er þess
eðlis að ég man ekki til þess að
annað eins þekkist í sögu
Þýskalands,“ sagði Jörg Schön-
bohm, innanríkisráðherra í
Brandenborg, einu sam-
bandslandi Þýskalands.
Lík barnanna fundust í skúr í
litlum bæ, Brieskow-Finken-
heerd, 10 km suður af borginni
Frankfurt-an-der-Oder við
landamæri Póllands. Hafði lík-
unum verið komið fyrir í fiska-
búri, blómapottum og nokkur
hafði móðirin grafið í sand-
hrúgu. Virðist sem börnin hafi
öll verið myrt skömmu eftir að
þau fæddust.
Talið er að morðin hafi átt sér
stað á sextán ára tímabili, 1988–
2004. Móðirin, sem grunuð er
um verknaðinn, hefur verið
handtekin en hún á fjögur börn
á lífi. Ekki hefur verið staðfest
að hún hafi játað verknaðinn á
sig við yfirheyrslur.
Ekki er algerlega óþekkt að
mæður deyði eigin börn
skömmu eftir fæðingu. Í októ-
ber 2003 viðurkenndi 38 ára
gömul kona frá Czerniejow í
Póllandi að hún hefði myrt fimm
barna sinna strax eftir fæð-
inguna. Og í júní 1999 viður-
kenndi 70 ára gömul bandarísk
kona að hafa myrt átta af tíu
börnum sínum í mánuðinum eft-
ir að þau fæddust.
Sögð hafa myrt
níu barna sinna