Morgunblaðið - 02.08.2005, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2005 15
ÚR VESTURHEIMI
7 d
ag
ar
í tó
nle
ika
bobby@visindi.is
HALLDÓR Ásgrímsson forsætis-
ráðherra og Sigurjóna Sigurð-
ardóttir, eiginkona hans, tóku þátt
í hátíðahöldum í Mountain í Norð-
ur-Dakóta og Gimli í Manitoba um
helgina.
„Það hefur verið afskaplega
ánægjulegt fyrir okkur hjónin að
vera hérna,“ segir Halldór Ás-
grímsson. „Við höfum hitt marga
vini og marga ættingja. Við eigum
bæði stóran frændgarð hér og það
hefur verið tekið afskaplega vel á
móti okkur. Það er í raun ótrúlegt
hvað þetta samfélag í Vesturheimi
er sterkt og það er enn að eflast.“
Leslie Gudmundson frá Lundar
er frændi forsætisráðherra. Afi
hans, Guðmundur Guðmundsson,
flutti til Kanada en hann var bróð-
ir Ásgríms Guðmundssonar, lang-
afa Halldórs. Fjórir bræður Ás-
gríms fluttu til Kanada en auk
þess fluttu margir sem tengjast
Halldóri í móðurætt. „Leslie hefur
vakið sérstaka eftirtekt mína
vegna þess að hann líkist svo föður
mínum og bræðrum hans í útliti.“
Um 500 frá Íslandi
Um 50.000 manns tóku þátt í Ís-
lendingadagshátíðinni í Gimli um
helgina. Þar af voru um 500 manns
frá Íslandi og meðal annars þrír
kórar, Söngsveit Hveragerðis,
Karlakór Selfoss og Grund-
artangakórinn. Veðrið lék við gest-
ina alla vikuna en hátíðin hófst
fyrir viku með Kvikmyndahátíð
Gimli. Síðan var styrktargolfmót
Lögbergs-Heimskringlu, „The Ice-
landic Open“, og að vanda náði há-
tíðin hámarki í gær. Eins og und-
anfarin ár ók löng bílalest um
bæinn og tók aksturinn um tvo
tíma. Robert T. Kristjanson, fiski-
maður í Gimli, flutti minni Íslands
og Halldór Ásgrímsson minni Kan-
ada. „Íslendingadagshátíðin er ein
af þessum öflugu samtökum í
Norður-Ameríku sem vinna að því
að treysta böndin við Ísland,“
sagði Sandra Sigurdson, forseti Ís-
lendingadagsnefndar, í ávarpi sínu
í gær.
„Það er mikill heiður fyrir mig
sem forsætisráðherra Íslands að
ávarpa ykkur hér í dag á Íslend-
ingadeginum og flytja minni Kan-
ada,“ sagði Halldór Ásgrímsson í
ræðu sinni í gær en þetta er þriðja
heimsókn hans til Manitoba. Hann
kom sem sjávarútvegsráðherra
1985 og sem utanríkisráðherra
1998.
„Ég sé mikinn mun á samfélag-
inu frá því ég kynntist því fyrst,“
segir hann. „Áður hafði ég kynnst
Ted Árnasyni (fyrrverandi bæj-
arstjóra Gimli) í gegnum fjöl-
skyldu Sigurjónu því hann heim-
sótti þau í hvert skipti sem hann
kom til Íslands. Þá notaði ég tæki-
færið til þess að heimsækja marga
ættingja mína og síðan voru fleiri í
fjölskyldunni sem gerðu það, með-
al annars systir mín sem var við
nám í Kanada.“
Íslendingadagshátíðin í Gimli er
ein fjölmennasta hátíð sinnar teg-
undar í Kanada. „Mér finnst hún
alveg stórkostleg,“ segir Halldór.
„Maður finnur svo mikla sam-
kennd með fjölskyldunum og hér
ríkir svo mikil gleði. Það er líka
ótrúleg samsetning á skrúðgöng-
unni og ég held að okkur tækist
ekki á Íslandi að koma saman
svona skrúðgöngu.“
Markvisst starf í áratug
Íslensk stjórnvöld hafa unnið
markvisst að því að efla sam-
skiptin við Kanada undanfarinn
áratug. „Eftir að ég kom í utanrík-
isráðuneytið 1995 ákváðum við að
efla þessi samskipti og setja upp
ræðismannsskrifstofu í Winnipeg,
sem varð til þess að stofna sendi-
ráð í Kanada og Kanadamenn
stofnuðu sendiráð á Íslandi. Það
var ekki síst fyrir tilstilli Lloyds
Axworthys, þáverandi utanrík-
isráðherra, sem var þá þingmaður
fyrir Winnipeg og þekkti Íslend-
ingasamfélagið mjög vel. Ég hef
haft mikla ánægju af þessum sam-
skiptum í tuttugu ár.“
Öflugt starf í Mountain
Innan við 100 manns búa í
Mountain en hátíð Íslendinga-
félagsins á svæðinu vekur stöðugt
meiri athygli og að þessu sinni dró
hún að um 5.000 gesti og þar á
meðal fyrrnefnda þrjá kóra frá Ís-
landi. „Við erum fá en sameinuð
leggjum við mikið á okkur til að
þessi hátíð geti orðið sem
skemmtilegust fyrir alla,“ sagði
Curtis Olafson, formaður félags-
ins, í ávarpi sínu.
Forsætisráðherrahjónin heim-
sóttu nú Norður-Dakóta í fyrsta
sinn. Halldór hafði á orði að það
væri ótrúlegt að í ríkinu, sem væri
helmingi stærra en Ísland að flat-
armáli, byggju aðeins um 600.000
manns. Víðáttan kæmi sér líka á
óvart. „Það vakti líka aðdáun og
undrun hvað Íslendingasamfélagið
er sterkt þar miðað við hvað í
raun fáir hafa komið þessu fé-
lagsstarfi í gang. En það sýnir
hvað fólkið er stolt af sínum upp-
runa og vill rækta þessi sam-
skipti.“
Curtis Ólafson sagði að það væri
mikill heiður að fá íslensku for-
sætisráðherrahjónin í heimsókn.
Félagið hefði sett sér það mark-
mið að verða fjölmennasta deild
Þjóðræknisfélagsins og heimsókn
sendinefndarinnar frá Íslandi og
annarra Íslendinga væri mjög
uppbyggjandi fyrir félagið og sam-
félagið.
„Það skiptir okkur mjög miklu
máli að fá alla þessa góðu gesti frá
Íslandi á hátíðina okkar,“ sagði
hann.
Forsætisráðherrahjónin hitta
frændur sína í Vesturheimi
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Sendiherrahjónin í Washington,
Helgi Ágústsson og Heba Jón-
asdóttir, Curtis Olafsson, formaður
Íslendingafélagsins í Mountain,
Björk Eiríksdóttir Olafson, Halldór
Ásgrímsson og Sigurjóna Sigurð-
ardóttir í Mountain.
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Víkingarnir voru á sínum stað í Gimli.
Bjarni Tryggvason geimfari og Loren, dóttir hans, tóku á
móti póstlestinni í Gimli.
Gary Doer, forsætisráðherra Manitoba, Jenna Kristjansson,
Robert T. Kristjansson og Peter Bjornson í hátíðargöngu í gær.
Sigurjóna Sigurðardóttir, Halldór Ásgrímsson og Magnús Olafson á hátíð-
inni í Mountain.
Halldór Ásgrímsson á marga ættingja í Kanada og þar hitti hann meðal
annars frændann Leslie Gudmundson frá Lundar.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steg@mbl.is