Morgunblaðið - 02.08.2005, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2005 17
UMRÆÐAN
MÉR blöskrar málatilbúnaður mót-
mælenda við Kárahnjúka og ég vil
kalla þá Íslendinga sem stefna hing-
að erlendum spellvirkjum til að
trufla framkvæmdir, sem hafa feng-
ið lögformlega afgreiðslu í anda þess
lýðræðis sem við búum við, land-
ráðamenn.
Ég las í einhverju blaði að það
skorti lagaheimildir til að vísa þrem-
ur erlendum spellvirkjum, sem
handteknir hafa verið, úr landi. Mér
þykir alveg vafalaust að þau mót-
mæli sem felast í skemmdarverkum
og töfum á framkvæmdum séu ský-
laus lögbrot.
Mér þykir alveg nóg að við þurf-
um að auka löggæslu til að hafa
hemil á þessum skríl, þótt við förum
ekki líka að fæða þá í íslenskum
fangelsum. Þess vegna legg ég til að
ríkisstjórnin komi strax saman og
setji bráðabirgðalög, sem heimili
okkur að losa okkur við þessa
óværu. Ég er viss um að þeir níu
þingmenn, sem greiddu atkvæði
gegn virkjuninni, eru mér sammála,
annars eiga þeir betur heima við
Kárahnjúka en á þingi.
ÞÓRHALLUR
HRÓÐMARSSON
Bjarkarheiði 19, Hveragerði.
Landráða-
menn og er-
lendur skríll
Frá Þórhalli Hróðmarssyni:
BRÉF TIL
BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103
Reykjavík Bréf til blaðsins |
mbl.is
ÉG UNDIRRITAÐUR get ekki lát-
ið vera að tjá mig um skemmtilegar
móttökur sem við hjónin fengum í
sumarfríi á Akureyri 8.-13. júlí sl.
Þannig var að við höfðum velt fyr-
ir okkur að skipta um bíl. Einn dag-
ur var sólarlaus. Því var ákveðið að
fara og skoða bílakaup. Akureyr-
ingar tóku okkur mjög vel en þó al-
veg einstaklega hjá Toyota-
umboðinu. Tekið var á móti okkur
með bros á vör, svörin skýr og ein-
föld, við verðmetum bílinn ykkar og
eftir það getum við átt viðskipti.
Markaðsstjórinn Ellert Guðmunds-
son stóð við allt sem talað var. Hann
bauð upp á að við gætum sótt nýjan
bíl til Toyota í Kópavogi eftir ½
mánuð (óskaliturinn var ekki til).
Þar tók á móti okkur Guðmundur H.
Friðbjarnarson með ljúfu viðmóti og
afgreiddi bílinn á skemmtilegan hátt
með góðri kynningu til okkar hjóna.
Eftirfylgni Ellerts var þannig að
hann hringdi og spurði hvort allt
væri eins og um var talað. Svona
þjónusta er frábær og ber að þakka
og er hér með gert.
GÍSLI S. EINARSSON,
Esjubraut 27, Akranesi.
Frábær þjón-
usta Toyota –
skemmtileg
framkoma
Frá Gísla S. Einarssyni:
mbl.is
smáauglýsingar
MARÍA Markan söngkona var sá
listamaður sem bar hróður Íslands
hvað víðast. Hún hlaut þó ómildar
viðtökur hjá embættismönnum Rík-
isútvarpsins á ferli sínum og ekki
síður nú er 100 ár voru liðin frá fæð-
ingu hennar.
Boðaður samtalsþáttur hennar og
Sveins Einarssonar, fyrrverandi
þjóðleikhússtjóra, var ekki fluttur á
Rás 1. Þess í stað voru flutt sópr-
anverk þar sem karlmenn sungu
fyrsta hálftímann. María komst
fyrst af stað um kl. 11:30.
Ég átti á sínum tíma viðtal í þætti
sem fluttur var í sjónvarpi. Þá bað
María um að fá að syngja 2–3 lög.
Kvaðst ekki hafa haldið kveðjukons-
ert. Hún fékk Ólaf Vigni Albertsson
til að leika. Flygill var á staðnum.
Óskar Gíslason tók ljósmynd þessa í
virðingarskyni. María fékk ekki af-
not af hljóðfærinu svo ekkert varð af
söng hennar.
Pétur Pétursson
þulur.
100 ár frá fæðingu
Maríu Markan