Morgunblaðið - 02.08.2005, Qupperneq 26
Mímí og Máni
Kalvin & Hobbes
ÉG GLEYMDI AÐ KAUPA
GJÖF HANDA ÞÉR HOBBES.
ÉG GERÐI EKKI EINU SINNI
JÓLAKORT
ÉG ÆTLAÐI EKKI AÐ
GLEYMA GJÖFINNI ÞINNI
EKKERT MÁL, ÉG ER
HELDUR EKKI MEÐ
GJÖF HANDA ÞÉR...
EN HÉRNA ER
TÍGRISDÝRAKNÚS FYRIR AÐ
VERA BESTI VINUR MINN
EKKI SVONA FAST, ÞÚ ERT
AÐ KREYSTA TÁRIN ÚR MÉR
GLEÐILEG
JÓL
Risaeðlugrín
EN HVAÐ ÞETTA ER
FALLEGT
© DARGAUD
MÁ ÉG
LÍKA!
VÁÁ, ALGJÖRT ÆÐI!! ÞETTA VERÐUR
NÆSTA TÍSKUBYLGJA
ÚÚ, ALVEG RÉTT! MÉR FINNST ÞÚ
VERA MEÐ YNDISLEG AUGU SVONA
LÍKAR YKKUR ÞETTA STELPUR! Í RAUN ER ÉG
AÐ PRÓFA NÝTT TÆKI SEM GERIR OKKUR
KLEIFT AÐ SJÁ BETUR
JÁ! MEÐ ÞVÍ AÐ NOTA BETUR PUSSAÐA KRISTALLA
ER HÆGT AÐ BÆTA SJÓNINA EN BETUR
AUÐVITAÐ ER ÞETTA EKKI ALVEG TILBÚIÐ, EN
ÍMYNDIÐ YKKUR HVAÐ ÞETTA GETUR HJÁLPAÐ
MÖRGUM SEM SJÁ ILLA
EN DÍNÓ ERT ÞÚ EKKI MEÐ
AFBRAGÐS SJÓN!
ÁN ÞESS AÐ HAFA ÞESSA
FJÁRANS KRISTALLA FYRIR
AUGUNUM, ... JÁ!!
Dagbók
Í dag er þriðjudagur 2. ágúst, 214. dagur ársins 2005
Nú þegar versl-unarmannahelgin
er nýafstaðin getur
Víkverji ekki staðist
þá freistingu að
kvarta enn og aftur yf-
ir staðsetningu þess-
arar helgar á dagatal-
inu.
Hér er um áratuga
langa hefð að ræða, að
frídagur verslunar-
manna sé fyrsti mánu-
dagur í ágústmánuði
og líklega erfitt að
snúa því hjóli til baka.
En nú telur Víkverji
að rétt sé að gera bylt-
ingu og færa verslunarmannahelg-
ina aftur um einn mánuð, taka fyrstu
helgina í júlí undir þessi hátíðarhöld.
Með þessu vinnst margt. Fyrir það
fyrsta ætti veðrið að vera betra og
birtan meiri. Víkverji hefur sjaldan
skilið af hverju Íslendingar flykkjast
í tjaldútilegu einmitt þegar farið er
að rökkva, í stað þess að nýta betur
bjartar sumarnætur í júlíbyrjun.
Í annan stað myndi sumarvertíðin
í ferðaþjónustunni lengjast með því
að færa þessa helgi til. Eftir versl-
unarmannahelgi finnst mörgum sem
sumarið sé hreinlega búið og farið að
hausta í huga fólks. Þetta er í raun
hin mesta firra því oft vill veðrið í
ágústmánuði vera
virkilega gott. Hver
man ekki eftir hita-
bylgjunni í höfuðborg-
inni í fyrra á þessum
árstíma? Með flutningi
helgarinnar, og þar-
með frídegi versl-
unarmanna, ætti þessi
þankagangur að vera
úr sögunni og sumarið
sjálfkrafa lengjast í
huga okkar.
Í þriðja lagi ætti
flutningur á helginni
ekkert að vera tiltöku-
mál í ljósi allra þeirra
bæjar- og héraðs-
hátíða sem fram fara um hverja ein-
ustu helgi allt sumarið. Verslunar-
mannahelgin er ekki lengur það
aðdráttarafl sem hún var hér áður,
þegar vegakerfið var þannig að fólk
ferðaðist sem minnst og styst. Nú
eru vegirnir smekkfullir um hverja
helgi og allir að sýna sig á jeppunum
með „skuldahalana“ í eftirdragi.
Verði ekki undirtektir fyrir flutn-
ingnum aftur í júlí leggur Víkverji
fram aðra tillögu til vara. Að hátíða-
höldin verði með sanni á þeim tíma
þegar sumarið er búið, í ágústlok,
þannig að hægt verði að kveðja það
með stæl úti í rökkrinu undir flug-
eldahimni.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Mývatnssveit | Nítjánda starfsári sumartónleika við Mývatn lauk nú um
helgina með þremur samkomum. Í Skútustaðakirkju voru orgeltónleikar þar
sem Wolfgang Tretsch orgelleikari frá Berlín flutti fjölbreytta efnisskrá með
orgelverkum. Í Reykjahlíðarkirkju flutti kirkjukór Áskirkju dagskrá með sí-
gildum íslenskum lögum og nokkra sálma undir stjórn Kára Þormar.
Í þriðja lagi var helgistund í Dimmuborgum undir stjórn sr. Örnólfs J.
Ólafssonar. Það er í sjötta sinn sem helgistund er þar haldin um versl-
unarmannahelgi. Fjölmenni eða yfir 150 manns var þar nú saman komið í
fegursta veðri til að njóta stundarinnar. Að athöfn lokinni var kleinukaffi í
fögru rjóðri skammt frá kirkjunni.
Morgunblaðið/BFH
Helgistund í Dimmuborgum
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Látið fætur yðar feta beinar brautir,til þess að hið fatlaða vindist ekki
úr liði, en verði heilt. (Hebr. 12, 13.)