Morgunblaðið - 02.08.2005, Page 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn er fullur af frábærum hug-
myndum í dag. Innblástur að miklum
listaverkum býr í brjósti þér. Tjáskipti
við smáfólkið og í tilhugalífinu eru
ruglingsleg.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vertu skýr í tjáskiptum í dag. Sam-
ræður við fjölskyldumeðlimi, ekki síst
foreldra, valda auðveldlega misskiln-
ingi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ekki áfellast sjálfa/n þig þótt dag-
draumar hafi tekið völdin. Þú getur
ekki að því gert. Hugurinn þarf að fá
að reika stundum. Sinntu geðheilbrigði
þínu í dag.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú
eyðir peningum í dag og farðu varlega
í fjármálaákvörðunum í vinnunni eða
einkalífinu. Ekki er víst að þú sjáir
heildarmyndina.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Merkúr (hugsun) er í þínu merki í dag
og beint á móti hinum óræða Neptún-
usi. Það hjálpar ekki upp á sakirnar í
samtölum við maka og nána vini. Vertu
viss um hvað þú ert að segja.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Merkúr (hugsun) stýrir meyjarmerk-
inu og er beint á móti brellumeist-
aranum Neptúnusi. Rökhugsunin er
veik fyrir vikið en innsæið að sama
skapi frábært. Hlustaðu á þína innri
rödd.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ekki láta vin koma þér úr jafnvægi í
dag. Samræður við aðra, hópa eða vini,
leiða mjög sennilega til misskilnings
og óvissu. Reyndu að vera rödd skyn-
seminnar meðan á þessu stendur.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Stjórnendur, yfirmanneskjur, kenn-
arar og foreldrar rugla þig hugsanlega
í ríminu í dag (reyndar ekki af ásettu
ráði). Láttu vita ef þú veist ekki til
hvers er ætlast af þér.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ekki láta hópáróður tengdan stjórn-
málum, trúmálum eða einhverju nýju
og spennandi hlaupa með þig í gönur í
dag. Nú er auðvelt að láta blekkjast.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin er full samúðar gagnvart
einhverjum sem þarfnast hjálpar í dag.
Það er af hinu góða, en ekki afsala þér
öllu. Hugsaðu þig tvisvar um áður en
þú ákveður að gefa eitthvað sem þú
átt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Eitthvað óvænt og snúið gæti komið
upp í samræðum við fólk á förnum
vegi, maka eða nána vini í dag. Ef þú
áttar þig ekki á því hvað er á ferðinni
er best að bregðast ekki við. Segðu
ekkert.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Aðstæður í vinnunni eru óljósar og
ruglingslegar og hugsanlega er eitt-
hvað laumuspil á ferðinni. Einhver er
ekki að segja allan sannleikann. Fólki
hættir til þess að blekkja í dag.
Stjörnuspá
Frances Drake
Ljón
Afmælisbarn dagsins:
Þú sýnir oft leikræna tilburði og hefur
gaman af því að gera hlutina með
pomp og prakt. Þú þarft að passa jafn-
vægið milli vinnu og frítíma, það er
þér lífsnauðsyn. Árið í ár gæti verið
eitt hið besta í lífi þínu. Vertu stór-
huga.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 karp, 4 stilltur, 7
ryskingar, 8 þakin ryki, 9
væn, 11 numið, 13 kven-
fugl, 14 sammála, 15 þrí-
hyrna, 17 handleggja, 20
títt, 22 misteygir, 23 bætt,
24 þreyttar, 25 hinn.
Lóðrétt | 1 þægilegur við-
ureignar, 2 fiskar, 3 lítið
skip, 4 ómjúk, 5 byssu-
bógs, 6 staðfest venja, 10
margt, 12 blekking, 13
saurga, 15 afdrep, 16 ilm-
ur, 18 auðugan, 19 nabb-
inn, 20 eirðarlaus, 21 hey.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 auðsveipt, 8 lagin, 9 doppa, 10 nei, 11 narra, 13
róaði, 15 hvarf, 18 gassi, 21 lóu, 22 rugga, 23 leiti, 24 ónytj-
ungs.
Lóðrétt | 2 uggur, 3 senna, 4 endir, 5 pipra, 6 flón, 7 bali, 12
rýr, 14 ósa, 15 hóra, 16 augun, 17 flatt, 18 guldu, 19 sting,
20 iðin.
Ávegum Íþrótta- og tómstundaráðsReykjavíkur er starfrækt verkefniðSérsveitin. Um er að ræða sérúrræðifyrir fötluð ungmenni og hafa í sumar
115 börn og unglingar á aldrinum 6 til 20 ára
tekið þátt í starfi Sérsveitarinnar.
Heiður Baldursdóttir er umsjónarmaður Vest-
urhlíðar, eins af undirhópum Sérsveitarinnar:
„Meginmarkmið okkar er að styrkja hinn fatlaða
til sjálfstæðis, bæði sem einstakling og í sam-
skiptum við aðra. Við einbeitum okkur að þrem-
ur meginþáttum: eflingu sjálfstrausts, eflingu
sjálfstæðis og eflingu samkenndar með öðrum.“
Starfsemi Sérsveitarinnar skiptist í Vesturhlíð,
Regnbogann og Texas.
„Í Vesturhlíð starfrækjum við sumarnámskeið.
Þetta er þriðja sumarið sem sú starfsemi er í
gangi og fer hún fram eins og önnur hefðbundin
sumarnámskeið hjá ÍTR en er þó sniðin eftir
þörfum barna með fötlun. Við förum í vettvangs-
ferðir, sundferðir, siglingar og klifur og erum
alltaf með föstudagsgrillskemmtun. Dagskráin er
skipulögð eftir veðri og vindum og áhugasviði
hvers og eins enda reynum við alltaf að líta til
þess hvað einstaklingurinn getur í stað þess að
einblína á hvað hann getur ekki,“ segir Heiður.
„Regnboginn og Texas eru atvinnutengd tóm-
stundaúrræði fyrir ungt fólk með fötlun og starfa
í samvinnu við Vinnuskóla Reykjavíkur. Þar eru
unglingarnir metnir til háfsdagsvinnugetu. Eftir
hálfan vinnudag koma unglingarnir í Regnbog-
ann og/eða Texas þar sem fram fer alls kyns list-
sköpun, bæði við myndir og tónlist. Þar fá ung-
lingarnir líka að prufa draumastörf. Einn
langaði, til dæmis að vera dýralæknir og fékk að
vinna á dýraspítalanum á meðan annar vildi vera
mjólkurbílstjóri og fékk að prufa það.
Krakkarnir eru yfir sig ánægðir og spenntir
alla daga enda fá þau að ráða hvað þau gera.
Enginn er píndur til nokkurs og við reynum að
hafa dagskrána sem fjölbreyttasta og ævintýra-
legasta.“
Skjólstæðingar Vesturhlíðar eru á aldrinum 6
til 12 ára. Regnboginn þjónar unglingum í 8. til
10. bekk á meðan í Texas koma ungmenni á
menntaskólaaldri.
„Það stendur upp úr um þessar mundir að við
erum á fullu við að skipuleggja sumarhátíðina
okkar. Ótrúlega mikið er af hæfileikaríku fólki
hjá okkur og við erum að undirbúa skemmti-
atriði, bæði dans, söng og ýmiss konar uppi-
stand. En ekki vilja allir koma fram og voru því í
fyrra t.d. starfræktar hárgreiðslustofur og sýnd-
ur afrakstur sumarsins, enda erum við að föndra
heilmikið þegar eru rigningardagar. Fyrst og
fremst ætlum við að koma saman og hafa gam-
an.“
Sumarhátíð Sérsveitarinnar verður í Hátíð-
arsal Hlíðaskóla kl. 13 til 14.30 miðvikudaginn 3.
ágúst.
Mannfagnaðir | Sérsveit ÍTR heldur árlegan sumarfagnað á miðvikudag
Heiður Baldursdóttir
er fædd 14. júní 1979 í
Reykjavík. Hún lauk
stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í
Hamrahlíð og útskrif-
aðist sem tækniteikn-
ari frá Iðnskólanum í
Reykjavík og einnig af
listnámsbraut frá sama
skóla. Heiður hefur
starfað hjá Sérsveit
Hins hússins í starfi með fötluðum frá sumr-
inu 2002.
Sjálfstraust, sjálfstæði, samkennd
Lightner-dobl.
Norður
♠KD86
♥G7 S/Enginn
♦K943
♣K76
Vestur Austur
♠Á72 ♠G109543
♥8 ♥932
♦10765 ♦ÁG82
♣G10532 ♣--
Suður
♠--
♥ÁKD10654
♦D
♣ÁD984
Árið 1929 skrifaði Theodore Lig-
htner grein í The Bridge World þar
sem hann setti fram hugmyndina um
útspilsdobl á slemmum. Allar götur
síðan hafa spilarar notað (og misnot-
að) Lightner-dobl. Hér er nýlegt
dæmi frá sumarleikunum í Altanta:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 2 lauf *
Pass 2 tíglar * 2 spaðar 3 hjörtu
3 spaðar 3 grönd 4 spaðar 6 hjörtu
Pass Pass Dobl Allir pass
Mark Horton var með spil austurs
og hann greinir fá spilinu í mótsblaði
leikanna. Opnun suðurs er geimkrafa
og svar norðurs á tveimur tíglum bið-
sögn, en lofar ekki tígli. Síðan taka við
eðlilegar sagnir og Horton doblaði
lokasögnina í viðleitni til að fá út lauf.
Ein af reglum Lightners hljóðar
svo: „Hafi blindur sagt lit, biður dobl
um útspil þar.“ Þetta er einföld regla,
en kannski ekki alveg skýr. Hvað ef
blindur segir lit, sem er gervisögn? Er
reglan þá í gildi?
Makkers Hortons taldi svo vera og
kom út með tígul – „lit“ blinds. Það
var betra en spaðaás, en ekki nógu
gott samt. Horton drap á tígulásinn og
skipti yfir í spaðagosa. Sagnhafi
trompaði, tók öll trompin, fór inn í
borð á laufkóng og spilaði tígulkóng.
Við það þvingaðist vestur með spaðaás
og valdið á laufinu. Tólf slagir.
Önnur af reglum Lightners er svo-
hljóðandi: „Hafi hvorugur andstæð-
inganna sagt frá hliðarlit, biður dobl
um útkomu í lengsta lit.“ Vestur átti
að fylgja þessari reglu og spila út
laufi.
Lightner vissi hvað hann söng.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. Rc3 d6 4. Be2
c6 5. h4 h5 6. Rf3 Rf6 7. Bf4 Da5 8.
Dd2 b5 9. Rg5 b4 10. Rd1 0–0 11.
Re3 Ba6 12. 0–0 Bxe2 13. Dxe2
Rbd7 14. b3 Rb6 15. Bg3 Rfd7 16.
Had1 c5 17. e5 e6 18. d5 Rxd5 19.
Rxd5 Rxe5 20. Re7+ Kh8 21. Hxd6
Rg4
Sigurbjörn Björnsson (2.346) stóð
sig með mikilli prýði á Politiken
Cup, alþjóðlegu skákmóti, sem lauk
fyrir skömmu í Kaupmannahöfn.
Þegar sex umferðum var lokið af tíu
hafði hann fjóra vinninga og hefur
hafnfirski keppnismaðurinn þá sjálf-
sagt verið minnugur orðatiltækisins
betur má ef duga skal þar eð í loka-
umferðunum fjórum halaði hann inn
þrjá og hálfan vinning. Þetta tryggði
honum 2.–13. sæti sem er dágóður
árangur á jafn sterku móti. Vel-
gengni Sigurbjörns hófst í sjöundu
umferð þar sem hann hafði hvítt í
stöðunni gegn Dennis Jørgensen
(2.168). Daninn hafði leikið af sér
manni snemma í skákinni og lét Sig-
urbjörn nú kné fylgja kviði. 22.
Hxe6! Bd4 22. … fxe6 hefði leitt rak-
leiðis til máts eftir 23. Rxg6+ Kg8
24. Dxe6+. 23. Ha6 Dd8 24. Rc6 og
svartur gafst upp. Evrópukeppni
landsliða í skák er nú hafin í Gauta-
borg í Svíþjóð og geta áhugasamir
fylgst daglega með gangi mála á vef-
síðunni www.skak.is.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Verslunarferð á
morgun í Hagkaup kl. 10. Farið frá
Aflagranda og Grandavegi. Skráning
á Aflagranda.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handa-
vinna kl. 9–16.30, leikfimi kl. 9,
boccia kl. 9.30, gönguhópur kl.
13.30, púttvöllur kl. 10–16.30.
Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, Kl. 9–16.45 hárgreiðslu-
stofan opin, kl. 11.15–12.15 matur, kl.
14–16 félagsvist, kl. 14.30–15.30
kaffi.
FEBÁ, Álftanesi | Púttæfingar fyrir
eldri borgara hefjast miðvikudaginn
3. ágúst kl. 11 á púttvellinum hægra
megin við Haukshús. Gréta býður
upp á kaffi að loknum æfingum.
Fjölskylduhjálp Íslands | Tökum á
móti matvælum, fatnaði og leik-
föngum alla miðvikudaga frá kl. 13
til 17. Úthlutun matvæla er alla mið-
vikudaga frá kl. 15 til 17 að Eskihlíð
2– 4 við Miklatorg. Þeir sem vilja
styðja starfið fjárhagslega, vinsam-
legast leggi inn á reikning 101–26–
66090, kt. 660903–2590.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, kl. 9
hárgreiðsla frí til 16. ágúst, kl. 10
boccia og pútt, kl. 12.15 ferð í Bón-
us, kl. 15 kaffi. Þórsmerkurferð: 10.
ágúst verður farið í Þórsmörk. Leið-
sögumaður: Hólmfríður Gísladóttir.
Þátttakendur hafi með sér nesti til
dagsins, klæði og skói sig vel eftir
veðri. Verð 3000 kr. Brottför kl. 10
frá Hraunbæ 105. greiða þarf ferð-
ina í síðasta lagi föstudaginn 5.
ágúst.
Hvassaleiti 56–58 | Böðun alla
daga fyrir hádegi. Hádegisverður.
Dagblöðin liggja frammi til aflestrar.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Betri stofa og Lista-
smiðja kl. 9–16, gönguhópurinn
Sniglarnir kl. 10–11, Bónus kl. 12.40,
bókabíll kl. 14.15–15.00. Skráningu á
námskeið haustsins lýkur kl. 16
föstudag 5. ágúst. Dagblöðin liggja
frammi. Hádegisverður og síðdeg-
iskaffi alla daga. Uppl. í síma 568–
3132.
Norðurbrún 1, | Hárgreiðlsustofan
verður lokuð frá 12. júlí til 8. ágúst.
Fótaaðgerðastofan lokuð frá 27. júlí
til 8. ágúst. Vinnustofur lokaðar til
15. ágúst.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9–15.30 handa-
vinna. Kl. 13–16 postulínsmálun
(júní). Kl. 13–16 frjáls spil. Sumarferð
Miðvikudaginn 3. ágúst. Farið frá
Vesturgötu kl. 9, Strandakirkja og
Gallerý Sigurbjargar í Selvogi heim-
sótt. Hádegismatur í Hafinu bláa.
Veiðisafnið á Stokkseyri skoðað. Ek-
ið um Selfoss og Ölfus á heimleið
með viðkomu í Eden. Upplýsingar og
skráning í síma 535–2740.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl.
9. Bæn, ritningarlestur og söngur.