Morgunblaðið - 02.08.2005, Qupperneq 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
„ÉG hef sjaldan séð eins mikla samkennd í að klappa
upp band,“ sagði Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir tónlist-
arnemi í samtali við Morgunblaðið, aðspurð um stemmn-
inguna hjá hljómsveitinni Blonde Redhead á sunnudags-
kvöldið.
Sandra var ein þeirra fyrirhyggjusömu sem keyptu
miða á innihátíð allra (a.m.k. margra) Reykvíkinga í
tæka tíð en margir þurftu frá að hverfa þar sem miðarnir
á þetta tveggja daga tónleikamaraþon þóttu ódýrir og
dagskráin skotheld.
Innipúkinn var sumsé haldinn í fjórða skiptið um
verslunarmannahelgi en hátíðin byrjaði sem lítið partí
borgarbúa sem ekki nenntu á útihátíð. Þá var hún haldin
í Iðnó en var nú færð á NASA og orðin að veglegum tón-
listarviðburði þar sem Blonde Redhead var aðeins eitt
númer af mörgum stórum. Í ár stóð hátíðin yfir laug-
ardag og sunnudag en dagskráin hófst klukkan þrjú
báða dagana og stóð stuðið langt fram á nótt.
Svo dæmi sé tekið úr stemmningunni mun sjarma-
tröllið Jonathan Richman hafa plantað stjörnum í augu
allra gesta, en flestir þekkja hann líklega sem syngjandi
gaurinn uppi í tré í kvikmyndinni Something About
Mary.
Síðust á svið í gærmorgun var hljómsveitin Trabant
sem að sögn fékk svitann til að renna og bleytti þar að
auki í „krádinu“ með því að hella kampavíni yfir liðið.
Að því búnu sameinuðust innipúkar útipúkum bæj-
arins og þeim sem ekki fengu miða – en tryggja sér hann
örugglega næst.
Rennsveittur
Innipúki á NASA
Morgunblaðið/Eggert
Jóhanna Helga Þorkelsdóttir, Kolbrá Bragadóttir,
Birna Bryndís Þorkelsdóttir og Sara Axelsdóttir.
Morgunblaðið/Sigurjón Guðjónsson
Gríðarstemning meðal áhorfenda.
Morgunblaðið/Sigurjón Guðjónsson
Blonde Redhead spilaði á Íslandi í þriðja sinn.
Óttar Proppé, sögvari Dr. Spock, sem kom fram á
sunnudag.
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurjón Guðjónsson
Sýnd bæði
með íslensku
og ensku tali.
Létt og skemmtileg rómantísk
gamanmynd með óskarsverðla-
unaleikkonunni, Kim Basinger og
hinum kynþokkafulla John Corbett
úr „Sex and the City þáttunum.“
með ensku tali
DARK WATER kl. 5.50 - 8 og 10.15 b.i. 12
Madagascar enskt tal kl. 6 - 8 og 10
Elvis has left the building kl. 8 og 10
Batman Begins kl. 6 og 8.30 b.i. 12
Voksne Mennesker kl. 5.45
MEÐ ÓSKARSVERÐLAUNAHAFANUM
JENNIFER CONNELLY
MAGNAÐUR OG SÁLFRÆÐILEGUR
DRAUGATRYLLIR FRÁ
MEISTARALEIKSTJÓRANUM WALTER
SALLES (MOTORCYCLE DIARIES)
-KVIKMYNDIR.IS
-Steinunn/Blaðið
ÞAU VORU EKKI FÆDD Í ÓBYGGÐUM...
ÞAU VORU FLUTT ÞANGAÐ
-S.V. Mbl.
-KVIKMYNDIR.IS
SUMAR
RÁÐGÁTUR
BORGAR
SIG EKKI
AÐ UPPLÝSA
I I
FRÁ JOEL ZWICK LEIKSTJÓRA
´MY BIG FAT GREEK WEDDING´
Nýjasti teiknimyndasmellurinn frá höfundum
og framleiðendum „Shrek“ og „Sharktale“
Ekki missa af einni skemmtilegustu mynd
sumarsins. Sýnd með ensku tali.
Nýjasti teiknimyndasmellurinn
frá höfundum og framleiðendum „Shrek“ og „Sharktale“
Ekki missa af einni skemmtilegustu mynd sumarsins.
MAGNAÐUR OG SÁLFRÆÐILEGUR DRAUGATRYLLIR
FRÁ MEISTARALEIKSTJÓRANUM WALTER SALLES
(MOTORCYCLE DIARIES)
ÁTTA ÞÚSUND manns „Stuðmenntu“ í Laugardalinn á laugardags-
kvöldið til að berja augum Stuðmenn í ýmsum myndum en farið var „um-
hverfis Stuðmannasöguna á 80 mínútum“. Stuðmennirnir Hildur Vala,
Eyþór, Ásgeir, Egill, Tómas, Þórður og Jakob komu fram ásamt Val-
geiri Guðjónssyni sem Rytmakónginum Lars Himmelbjerg, Gylfa Krist-
inssyni sem Elvis Eyþórssyni og Ragnari Danielsen sem Leó Löve.
Hinir upphaflegu meðlimir Stuðmanna, Valgeir Guðjónsson, Gylfi
Kristinsson, Ragnar Danielsen og Jakob Frímann Magnússon hófu leik-
inn áður en núverandi hljómsveitarmeðlimir komu fram, með Egil Ólafs-
son og Hildi Völu fremst í flokki.
Óhætt er að segja að fólk á öllum aldri hafi skemmt sér hið besta í
útihátíðarstemmningu en vitað var til þess að einhverjir hefðu tjaldað í
garðinum. Undir lok tónleikanna tilkynnti söngvarinn Egill Ólafsson að
liðsaukans væri óskað á Þjóðhátíð í Eyjum þar sem stuðið væri einfald-
lega ekki nóg. Mannskapurinn tók þeirri hugmynd fagnandi og söng há-
stofum undir með Valgeiri Guðjónssyni í lokalaginu „Popplag í G-dúr.“
Útihátíð í Fjölskyldugarðinum | „Umhverfis St
Engin leið
að hætta
Áhorfendur voru af öllum stærðum og gerðum og tóku vel undir með
Stuðmönnum í þekktari lögunum.
JIMI Hendrix kom sér hjá her-
skyldu með því að ljúga því til að
hann væri samkynhneigður, ef
marka má nýja ævisögu um kappann
sem væntanleg er í næsta mánuði.
Samkvæmt þessu tjáði Hendrix
sálfræðingi hersins að hann teldi sig
ástfanginn af einum herbergisfélaga
sinna og fékk hann fljótlega lausn
frá frekari herskyldu. Fimm árum
síðar náði hann lagi inn á vinsælda-
lista.
Hendrix var einungis 19 ára þegar
þetta var. Þegar hann hlaut lausn
frá hernum tók hann á ný til við tón-
listariðkun, sem hann hafði lagt nið-
ur þegar hann var kvaddur í herinn.
Hann náði lagi inn á vinsældalista
fimm árum síðar.
Ævisagnahöfundar Hendrix hafa
hingað til greint frá því að hann hafi
fengið lausn frá frekari herskyldu
eftir að hann braut ökkla við fallhlíf-
arstökk.
Charles Cross, höfundur nýju
ævisögunnar, sem heitir Room Full
of Mirrors, segir hins vegar að
læknaskýrslur bandaríska hersins
Hendrix sagðist
samkynhneigður