Morgunblaðið - 02.08.2005, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Séreignalífeyrissparnaður lands-
manna nam samanlagt 110,5 millj-
örðum króna um síðustu áramót.
Stærstur hlutinn, eða tæpir 68 millj-
arðar króna, var í vörslu lífeyris-
sjóða sem áður störfuðu sem sér-
eignasjóðir, en í vörslu banka og
sparisjóða og samtryggingarlífeyr-
issjóða var viðbótarlífeyrissparnað-
ur að upphæð tæpir 43 milljarðar
króna og hefur sá sparnaður marg-
faldast síðustu árin.
Viðbótarlífeyrissparnaður í vörslu
banka, sparisjóða og líftrygginga-
félaga óx um 12,3 milljarða króna á
síðasta ári og nam 28,6 milljörðum
króna í árslok. Sparnaðurinn hefur
fjórtánfaldast frá árslokum 2000
þegar rúmir tveir milljarðar króna
voru í vörslu banka og sparisjóða
vegna viðbótarlífeyrissparnaðar.
Stærstur hluti sparnaðarins eða
rúmir 21,5 milljarðar króna var í
vörslu banka, tæpur 5,1 milljarður
var í vörslu sparisjóðanna og 2 millj-
arðar í vörslu líftryggingafélaga.
Þriðjungsaukning í fyrra
Viðbótarlífeyrissparnaður í vörslu
samtryggingarlífeyrissjóða nam
tæpum 14 milljörðum króna um síð-
ustu áramót og óx um 4,5 milljarða
króna á árinu.
Rúmlega 91 þúsund manns átti
meiri eða minni rétt vegna séreign-
ar- eða viðbótarlífeyrissparnaðar og
fjölgaði þeim um rúmlega 18 þús-
und milli ára.
Í skýrslu fjármálaeftirlitsins um
rekstur lífeyrissjóðanna á síðasta
ári kemur fram að uppsafnaður
séreignasparnaður hefur vaxið að
meðaltali um 21% á ári frá árinu
1999, en jókst í fyrra um 33% eða
þriðjung.
Um síðustu áramót námu heildar-
eignir lífeyrissjóðanna 977 milljörð-
um króna. Eignirnar hafa vaxið
hratt síðustu mánuðina. Í lok maí
voru þær komnar upp í 1.046 millj-
arða.
Séreignalífeyrissparnaður
nemur 110,5 milljörðum
Tæplega 43 milljarðar króna í viðbótarlífeyrissparnaði landsmanna
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
!
## $"
" %#&
TUTTUGU og tvær hrefnur
hafa nú veiðst við Íslands-
strendur en alls verða 39 dýr
felld í vísindaskyni í júlí og
ágúst.
Halldór Sigurðsson ÍS hefur
veitt sjö hvali, Njörður KÓ
fimm og Dröfn RE hefur fellt
tíu skepnur. Að sögn Davíðs
Tómasar Davíðssonar, starfs-
manns hvaladeildar Hafrann-
sóknastofnunar, ganga veið-
arnar samkvæmt áætlun en
veðurskilyrði hafa þó ekki verið
hagstæð. Góð skilyrði þarf til
veiða á hrefnu því erfitt er að
koma auga á hana ef vatnsborð
er gárað af vindi.
Aðspurður segir Davíð að
samskipti við hvalaskoðunar-
fyrirtæki hafi verið góð að und-
anförnu.
Búið er að
veiða 22
hrefnur af 39
FONS, félag í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhann-
esar Kristinssonar, hefur fest kaup á tæplega 11%
hlut í sænska lágfargjaldaflugfélaginu FlyMe, sem
er stærsta lágfargjaldaflugfélag Svíþjóðar. Þeir
Pálmi og Jóhannes eiga fyrir, eins og kunnugt er,
lágfargjaldaflugfélögin Sterling, Maersk, sem sam-
einað hefur verið Sterling, og Iceland Express.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins ráða
Fons og fjárfestar vinveittir félaginu, eins og
Cognition, nú yfir um 30% atkvæða í FlyMe, sem er
með áætlunarflug innan Svíþjóðar og flýgur auk
þess til Helsinki í Finnlandi, Lundúna og Nice í
Frakklandi.
Boðað hefur verið til hluthafafundar í FlyMe
hinn 15. ágúst nk. vegna þessara kaupa Fons og á
þeim fundi munu þeir Einar Þór Sverrisson lög-
maður, fyrir hönd Fons, og Björn Olegaard, fyrir
hönd Cognition, taka sæti í stjórn félagsins.
Greint hefur verið frá því hér í Morgunblaðinu að
Burðarás keypti í byrjun maímánaðar um 6% hlut í
FlyMe fyrir 60–70 milljónir króna. Samkvæmt því
er hér um fjárfestingu að ræða hjá Fons upp á 120
til 130 milljónir króna.
Pálmi Haraldsson vildi ekkert segja um það, þeg-
ar Morgunblaðið hafði samband við hann í gær,
hver áform hans og Jóhannesar með þessari fjár-
festingu væru. „Það er seinni tíma mál, hver okkar
áform eru með þessari fjárfestingu, en við erum
vissulega ánægðir með að vera komnir inn á
sænska markaðinn með þessari fjárfestingu og ekki
síður ánægðir með að í samvinnu við vinveitta fjár-
festa komum við til með að ráða yfir um 30% hlut í
félaginu,“ sagði Pálmi og benti um leið á að sá hlut-
ur sem Fons og Cognition hefðu keypt, tæp 11%
hvor, væru allt A-bréf félagsins, sem eru rétthærri
bréf en svokölluð B-bréf. Þeir hefðu keypt öll A-
bréf félagsins.
FlyMe er ungt flugfélag, með fimm Boeing 737-
300-vélar í rekstri, sem hver um sig tekur 136 far-
þega.
Fons ehf. kaupir tæplega
11% í flugfélaginu FlyMe
Eigendur Fons ráða núna, með vinveittum fjárfestum, um 30% í félaginu
Boðað hefur verið til hluthafafundar hjá FlyMe um miðjan mánuðinn
eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
EIN stærsta útihátíð helg-
arinnar fór fram innan borg-
armarkanna en átta þúsund
manns á öllum aldri sáu
Stuðmenn spila á laug-
ardagskvöldið. Upprunalegir
meðlimir sveitarinnar hófu
leikinn með gömlum slög-
urum á borð við Honey Will
You Marry Me og She Broke
My Heart, sem Long John
Baldry söng með Stuðmönn-
um. Hann lést á dögunum og
voru tónleikarnir helgaðir
minningu hans. Hér sést Val-
geir Guðjónsson brýna raust-
ina með félaga sínum Agli
Ólafssyni.Morgunblaðið/ÞÖK
Valgeir
með
Stuð-
mönnum
MARGT hefur komið upp úr dúrn-
um við fornleifarannsóknir á Hólum
í Hjaltadal, sem staðið hafa yfir síð-
ustu árin. Nú síðast fannst mynd-
arlegur leðurskór, í skóstærð nr. 43.
Alls hafa fundist yfir 30 þúsund
munir. Má þar nefna prentstafi úr
Hólaprenti, krítarpípur, leirker,
margs konar vefnað, hnappa og
smáhluti, auk skordýra og plantna.
Ragnheiður Traustadóttir forn-
leifafræðingur segir að á bæjar-
hólnum þar sem meginuppgröftur-
inn fer fram hafi verið fjölmörg hús,
langhús, skólahús, prenthús og
fleira. Hún segir líka ljóst að mikið
hafi verið lagt í húsin. /18
Morgunblaðið/Einar Falur
Yfir 30 þús-
und munir
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF-
LÍF, var kölluð út seint í gærkvöldi
til að sækja áhöfn íslensku skútunn-
ar Svölunnar sem var í vandræðum
um 130 sjómílur út af Suðaustur-
landi. Samkvæmt upplýsingum
Gæslunnar voru fjórir um borð, allt
Íslendingar. „Skútan missti segl í
allhvössum vindi og var orðin olíu-
lítil,“ sagði Dagmar Sigurðardóttir,
fjölmiðlafulltrúi Landhelgisgæsl-
unnar. „Ástandið var orðið þannig að
áhöfnin óskaði eftir því að þyrlan
sækti þau.“
Þyrlan lagði af stað frá Reykjavík
um korter fyrir ellefu og var áætlað
að hún yrði komin á vettvang um
hálftvöleytið í nótt. Þá var áætlað að
hún yrði komin til baka til Reykja-
víkur um klukkan fjögur til hálffimm
í nótt. Skútan var á leið frá Fær-
eyjum.
Þyrlan sækir
fjögurra
manna áhöfn
♦♦♦