Morgunblaðið - 07.08.2005, Side 4
4 SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.ibudalan.is
Einfaldari leið
að íbúðakaupum
Að fjármagna íbúðakaup hjá Íbúðalán.is er einfalt,
fljótlegt og þægilegt. Þú ferð einfaldlega inn á
vefslóðina www.ibudalan.is og gengur frá þínum
málum í tveimur einföldum skrefum
- greiðslumatinu og lánsumsókninni.
Fasteignasalinn sendir síðan kauptilboðið
rafrænt til Íbúðalán.is
SKIPULAGSSTOFNUN hefur haf-
ið matsferli á umhverfisáhrifum
vegna framkvæmda Alcoa Fjarðaáls
í Reyðarfirði eftir að Hæstiréttur
Íslands ógilti í byrjun júní úrskurð
umhverfisráðherra frá 15. apríl 2003
varðandi ákvörðun Skipulagsstofn-
unar frá 20. desember 2002 um að
ekki þyrfti umhverfismat vegna ál-
vers Alcoa í Reyðarfirði. Tillagan
var send Skipulagsstofnun í lok júlí
og hefur stofnunin frest til 29. ágúst
til ákvörðunar. Allir hafa rétt til að
kynna sér tillöguna og leggja fram
athugasemdir. Athugasemdir skulu
vera skriflegar og berast eigi síðar
en 15. ágúst 2005 til Skipulagsstofn-
unar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Tillagan var unnin af verkfræð-
ingum HRV sem er samstarfsvett-
vangur Hönnunar, Rafhönnunar og
VST.
Um tímaáætlun matferlisins segir
í tillögunum að gert sé ráð fyrir að
endanlegri matsskýrslu verði skilað
til Skipulagsstofnunar í nóvember
2005 og að álit stofnunarinnar liggi
þá fyrir snemma árs 2006.
Fyrirhugað er að framkvæmdir
nái hámarki árið 2006 og að allt að
1.600 starfsmenn muni þá dvelja í
vinnubúðum. Stefnt er að því að
framleiðsla í álverinu hefjist í apríl
árið 2007.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Framkvæmdir við álver Alcoa á Reyðarfirði eru í fullum gangi.
Tillaga að mats-
áætlun send til
Skipulagsstofnunar
Umhverfismat hafið á Alcoa Fjarðaáli
færa til skýrslutöku þegar blaðið fór í
prentun.
Rannsókn málsins er á frumstigi en
lögreglan í Keflavík fer með rann-
sóknina og nýtur aðstoðar tækni-
deildar lögreglunnar í Reykjavík.
Þá voru Brunavarnir Suðurnesja
kallaðar út í fyrrakvöld vegna bíl-
bruna við gatnamót Básvegar og
Hrannarvegar þar sem fólksbíll stóð í
ljósum logum. Vel gekk að slökkva
eldinn en samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu var enginn í bílnum. Talið er
líklegt að bílnum, sem var nýkominn
úr viðgerð, hafi verið ýtt niður brekk-
una þar sem eldur hafi verið borinn að
honum.. Þeir sem geta gefið frekari
upplýsingar er bent á að hafa sam-
band við lögregluna í Keflavík.
STARFSMAÐUR varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli hlaut skurðsár
eftir að hópslagsmál brutust út á
Hafnargötu í Keflavík í fyrrinótt.
Samkvæmt upplýsingum lögreglunn-
ar í Keflavík er maðurinn ekki talinn í
lífshættu en hann var farinn af vett-
vangi þegar lögregla kom á staðinn.
Maðurinn hélt rakleiðis á sjúkrahúsið
á svæði varnarliðsins eftir að hafa
hlotið áverkana. Hins vegar er ekki
vitað hvar hann var sár en lögregla
segir mikið hafa blætt úr honum og
því ljóst að þetta hefði getað farið illa.
Fimm aðilar voru handteknir
vegna málsins, fjórir íslenskir ríkis-
borgarar og einn erlendur maður.
Þeir gistu fangageymslur lögreglu
aðfaranótt laugardags og þá átti að
Hlaut skurðsár í
hópslagsmálum
GISTINÆTUR á hótelum í júní
árið 2005 voru 121.900 en voru
113.300 árið 2004 (8%). Kemur
þetta fram í frétt Hagstofunnar.
Hlutfallslega varð mesta aukn-
ingin á Suðurnesjum, Vesturlandi
og Vestfjörðum þar sem gistinæt-
ur fóru úr 10.150 í 12.450 (23%).
Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði
gistinóttum úr 71.100 í 79.480
(12%) milli ára og á Austurlandi
úr 4.760 í 4.900 (3%). Gistinóttum
á hótelum í júní fækkaði hins-
vegar á Norðurlandi (-4%) og á
Suðurlandi (-11%).
Í júní sl. voru gistinætur Ís-
lendinga á hótelum 18.740 á móti
14.680 árið á undan, sem er tæp-
lega 28% aukning. Gistinóttum
útlendinga á hótelum fjölgar
hlutfallslega minna eða um 5%
milli ára, úr 98.620 í júní árið
2004 í 103.170 í júní árið 2005.
Fjölgun um 4% fyrstu
sex mánuði ársins
Gistinóttum á hótelum fjölgaði
um rúm 4% fyrstu sex mánuði
ársins. Gistinætur á hótelum
fyrstu 6 mánuði ársins 2005 voru
439.960 en voru 421.040 árið 2004
(4%). Á Suðurnesjum, Vestur-
landi og Vestfjörðum fjölgaði
gistinóttum úr 31.650 í 37.180
(17%) milli ára og á Norðurlandi
úr 30.770 í 32.610 (6%). Gistinæt-
ur á höfuðborgarsvæðinu fyrstu 6
mánuði ársins voru 312.260 en
voru 296.730 fyrir sama tímabil
árið 2004 (5%). Á sama tíma
fækkaði gistinóttum á Austur-
landi um 12%, úr 15.070 í 13.320
og á Suðurlandi um 5%, úr 46.820
í 44.580.
Í frétt Hagstofunnar er athygli
vakin á því að hér er átt við gisti-
nætur á hótelum eingöngu, þ.e.
hótelum sem opin eru allt árið.
Tölur fyrir 2005 eru bráða-
birgðatölur, segir í frétt Hagstof-
unnar.
Gistinætur og gestakomur á hótelum í júní 2005
Gistinóttum á hótelum
fjölgaði um tæp 8%
TVEIR miklir kappar, Chris Bonington og Robin
Knox-Johnston, sem eru frægir fyrir afrek í fjalla-
mennsku og siglingum, voru á Ísafirði í vikunni. Ann-
ar er að nálgast sjötugt og hinn er nokkru eldri og er
leitun að mönnum sem bera aldurinn betur.
Rúnar Óli Karlsson, ferðamálafulltrúi á Ísafirði, og
vinur hans Sigurður Jónsson rákust á kappana í Ísa-
fjarðarhöfn þar sem þeir dvöldu um borð í skútu
Knox-Johnstons. Þeir voru þá, ásamt sjö öðrum, að
koma úr fýluferð til Grænlands þar sem þeir ætluðu
að reyna að klífa tindinn Cathedral í Kangerlussuaq-
firði en urðu frá að hverfa vegna hafíss. Að sögn Rún-
ars sögðust þeir félagar hafa reynt við tindinn áður
en einnig orðið frá að hverfa, í það skiptið vegna snjó-
flóðahættu. Bonington var samt ansi sáttur við að
snúa við í þetta skiptið því það virtist hafa gleymst að
taka klifurlínur með í leiðangurinn.
„Þegar Bonington var að skipuleggja hina stóru
bresku leiðangra í Himalajafjöllunum á 8. og 9. ára-
tugnum hafði hann það orð á sér að vera mjög ná-
kvæmur. Nú var hann í sumarfríi og hafði á orði eftir
nokkra bjóra og ginsopa, að þessi Grænlandsleið-
angur væri sá óskipulagðasti sem hann hefði nokkurn
tíma farið í og fannst það bara fyndið,“ sagði Rúnar.
Fyrir hina óvígðu má m.a. taka fram að Knox-
Johnston hefur unnið sér það til frægðar að verða
fyrstur til að sigla skútu einn síns liðs viðstöðulaust í
kringum hnöttinn.
Að sögn Rúnars vantaði Bonington og Knox-
Johnston hugmyndir um hvernig best væri að verja
fríinu og komu þeir Sigurður og Rúnar með ýmsar
hugmyndir. Úr varð að þeir fengu lánaðar klifurlínur
og mannbrodda og síðan var siglt af stað inn í Jök-
ulfirði. „Við byrjuðum á Hesteyri í hinni árlegu kjöt-
súpuferð sem er heljarinnar veisla og þeir sungu svo
mikið að röddin var ansi döpur daginn eftir. Síðan
sigldum við inn í Hrafnfjörð og þaðan var gengið á
Drangajökul til að taka myndir fyrir styrktaraðila,“
sagði Rúnar. Bonington, Knox-Johnston og hinir sigl-
ararnir í hópnum voru afar ánægðir með dvöl sína á
Ísafirði og nágrenni og sögðu að vel væri inni í mynd-
inni að koma aftur að ári.
Þekktir fjallgöngumenn á
ferðalagi um Ísafjarðardjúp
Ljósmynd/Sigurður Jónsson
Chris Bonington (í rauðum stakk) ásamt Michael, einum
klifraranna sem með var í för. Alls voru níu manns í áhöfn.
Robin Knox-Johnston og Chris Bonington að snæðingi í
skútunni Clipper-Venture. Á milli þeirra er Charles Clarke. Meira á mbl.is/ítarefni
ÞRIGGJA bíla árekstur varð á Sæ-
braut til móts við Kleppsspítala um
fimmleytið í gærmorgun þegar
ökumaður missti stjórn á bifreið
sinni sem var ekið í austurátt. Bif-
reiðin rakst aftan á aðra bifreið
sem var kyrrstæð á gatnamótum en
hún kastaðist yfir á öfugan veg-
arhelming og á þriðju bifreiðina
sem var á leið vestur Sæbraut.
Þrír voru fluttir á slysadeild til
aðhlynningar eftir áreksturinn en
meiðsli þeirra voru ekki talin alvar-
leg.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Reykjavík leikur grunur á
að ökumaðurinn sem missti stjórn á
bifreið sinni hafi verið ölvaður.
Málið er enn í rannsókn.
Þriggja bíla
árekstur á
Sæbraut
Ljósmynd/Baldur Ágústsson
Þrír bílar komu við sögu í árekstri við Kleppsspítala í gærmorgun.