Morgunblaðið - 07.08.2005, Page 40
40 SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Sigurður Gunn-arsson húsa-
smíðameistari fædd-
ist í Beinárgerði á
Völlum 19. ágúst
1923. Hann lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 15. júlí
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Gunnar Sigurðsson,
bóndi í Beinárgerði
á Völlum, f. 1891, d.
1942, og Guðlaug
Sigríður Sigurðar-
dóttir, húsfreyja í
Beinárgerði á Völlum, f. 1890, d.
1964. Sigurður var fimmti í röð
systkina sinna. Hin eru Malen, f.
1918, d. 1994, Ragnhildur, f. 1919,
d. 1994, Jón Baldur, f. 1920, d.
1974, Þórhallur, f. 1922, d. 1950,
Magna Jóhanna, f. 1926 og Hjört-
ur, f. 1934, d. 1988. Sigurður
kvæntist fyrsta vetrardag ársins
1950 Öldu Jónsdóttur húsmóður, f.
í Vestmannaeyjum 17. apríl 1923.
Dætur þeirra eru Eydís Rós, f. 2002
og Telma Lind, f. 2004, b) Sigurð-
ur, rafvirki og tæknifræðinemi, f.
1980, og c) Davíð, prentsmiður og
grafískur miðlari, f. 1982. 3) Sig-
ríður Jóna hjúkrunarfræðingur,
búsett í Noregi, f. 1959, gift Jan
Philip Eikeland, háls-, nef- og
eyrnalækni, f. 1956. Börn þeirra
eru: a) Sandra Rut lyfjafræðinemi,
f. 1984, b) Eydís Alda nemi, f. 1988,
og c) Sindri Philip nemi, f. 1992. 4)
Örn, tæknifræðingur, f. 1964,
kvæntur Fanneyju Kristjánsdótt-
ur, bókara, f. 1963. Börn þeirra
eru: a) Þóra Hafdís, nemi, f. 1989,
b) Fannar Örn, nemi, f. 1993, og c)
Elfar Snær, nemi, f. 1999.
Sigurður og Alda hófu búskap
sinn á Egilsstöðum og ólu þar upp
öll sín börn. Sigurður starfaði sem
húsasmíðameistari og byggingar-
fulltrúi staðarins um árabil. Árið
1971 fluttust þau til Reykjavíkur
og bjuggu þar til dauðadags Sig-
urðar. Sigurður starfaði þá fyrst
hjá Smíðaverkstæði Völundar og
síðar sem húsvörður í Menntaskól-
anum við Sund, þar til hann komst
á eftirlaunaaldur.
Útför Sigurðar fór fram frá
Fossvogskapellu 25. júlí síðastlið-
inn í kyrrþey.
Foreldrar hennar
voru Jón Auðunsson,
skósmiður í Vest-
mannaeyjum, f. 1891,
d. 1975, og Sigríður
Jónsdóttir, húsfreyja
í Vestmannaeyjum, f.
1888, d. 1980. Börn
Sigurðar og Öldu eru:
1) Berglind svæfinga-
hjúkrunarfræðingur,
f. 1950, gift Helga
Hjálmarssyni raf-
virkja, f. 1947, d.
1993. Börn þeirra
eru: a) Arnar Sigurð-
ur, nemi í sjónvarpsþáttagerð, f.
1973, b) Íris Alda, starfsmaður
Hrafnistu í Reykjavík, f. 1978, og c)
Helgi Steinar arkítektúrnemi, f.
1982. 2) Gunnar Hilmar rafvirkja-
meistari, f. 1954, kvæntur Kristínu
Hálfdánardóttur, grafískum hönn-
uði, f. 1954. Börn þeirra eru: a)
Hálfdán, prentari og grafískur
miðlari, f. 1976, kvæntur Ásdísi
Björgu Kristinsdóttur, f. 1975.
Kær faðir minn er látinn eftir
erfið veikindi, sem staðið hafa í
raun mörg undanfarin ár með
hléum þó. Hann hafði sig svo oft
upp úr þeim með þvílíkum dugnaði
og kjarki að undrum sætti og átti
þá góða tíma á milli, sem hann
reyndi að nýta vel. Stundaði sund
og göngur eins og heilsan leyfði, en
nú var þrekið á enda og hann
greinilega tilbúinn og sáttur að yf-
irgefa þetta líf. Hann lést hinn 15.
júlí síðastliðinn á Landspítala v/
Hringbraut þar sem hann hafði svo
oft legið í veikindum sínum. Faðir
minn var duglegur og ósérhlífinn
maður – féll sjaldan verk úr hendi.
Handlaginn mjög og eftir hann
liggja margir fallegir munir úr tré
og gleri, einnig hús sem hann
byggði og tók þátt í að byggja áður
fyrr heima á Egilsstöðum, þar sem
hann starfaði sem byggingameist-
ari. Gott var að biðja hann um að-
stoð þegar eitthvað þurfti að laga
eða endurbæta á mínu heimili. Ófá
verk á hann þar og kominn var
hann strax – ekki á morgun eða
hinn. Allir hlutir áttu að gerast
helst í gær og óstundvísi var hon-
um mjög á móti skapi. Heiðarleiki
og rík réttlætiskennd var honum í
blóð borin, en að sama skapi var
hann ákveðinn og skoðanafastur og
var þar af leiðandi ef til vill ekki
allra. Allir hans góðu eiginleikar
sýndu sig þegar hann aðstoðaði mig
og börnin mín svo eftirminnilega
þegar sorgin knúði dyra hjá okkur
fyrir 12 árum. Fæ ég það seint full-
þakkað. Margar góðar stundir höf-
um við átt í Sælukoti – sumarhúsi
okkar í Vatnaskógi – húsi sem hann
byggði með fjölskyldu minni fyrir
rúmlega tuttugu árum. Ég held að
hvergi hafi hann unað sér betur en
þar við að gróðursetja og dytta að
húsinu og umhverfinu. Hann unni
skógrækt og gleymdi sér löngum
stundum úti í skógi við að auka fjöl-
breytni þeirra trjáa sem fyrir voru.
Við munum ávallt minnast hans
þegar við virðum fyrir okkur öll fal-
legu trén sem hann kom í jörðu á
sínum tíma. Börnunum mínum var
hann góður afi og vildi veg þeirra
sem bestan og aðstoðaði þau á
margan hátt svo og alla aðra í fjöl-
skyldu sinni. Nú þegar faðir minn
er kominn þangað sem við öll lend-
um fyrr eða síðar vil ég þakka hon-
um fyrir allt það sem hann var mér
og mínum. Bið honum Guðs bless-
unar og bið góðan Guð að líta til
með mömmu og styrkja hana.
Berglind.
Elsku afi, sárt er að hugsa til
þess að samveru okkar með þér hér
á jörðu sé lokið. En um leið getum
við ekki annað en glaðst yfir því að
nú er bundinn endi á þín miklu
veikindi sem þú hefur þurft að
berjast við, með hléum, síðustu
tuttugu árin eða svo. Oft höfum við
börnin þín og barnabörn talað um
að þú hafir haft níu líf eins og kett-
irnir. Þrátt fyrir að útlitið um bata
hafi oft verið svart náðir þú alltaf á
einhvern undraverðan hátt að koma
þér á lappir aftur. Þú gast aldrei
setið auðum höndum enda sýndi
það sig svo vel hversu erfitt þú átt-
ir þitt síðasta ár og varst ósáttur
við sjálfan þig því þú hafðir ekki
krafta í að vinna eitthvað eða
dunda þér.
Við systkinin erum að stórum
hluta til alin upp undir þinni hand-
leiðslu í sumarbústaðnum okkar í
Svarfhólsskógi. Það var paradísin
þín enda er ekki hægt að ganga þar
um húsið eða það fallega land sem
það stendur á, án þess að rekast á
hvern hlutinn á fætur öðrum sem
er verk þitt. Við eigum þar með
stóran fjársjóð sem segir sögu
dugnaðarmanns og lofum því að
varðveita hann sem best. Þú varst
tvímælalaust hjálparhella númer
eitt enda alltaf boðinn og búinn til
að smíða eitthvað eða laga fyrir
okkur. Það var alveg sama hvers
eðlis verkið var eða hversu mikið
vesen það var, þér tókst alltaf með
þínu sterka jafnaðargeði að finna
lausn á öllu.
Elsku afi, ástarþakkir fyrir allar
þær góðu stundir sem við áttum,
alla þá trú og traust sem þú sýndir
okkur. Við búum ævilangt að
sterkri og heiðarlegri fyrirmynd
þinni.
Þín heittelskandi barnabörn,
Helgi Steinar, Íris Alda
og Arnar Sigurður.
SIGURÐUR
GUNNARSSON
✝ GuðmundínaSigurey Sigurð-
ardóttir fæddist á
Eyjum, Kaldrana-
neshreppi í
Strandasýslu 1. jan-
úar 1929. Hún and-
aðist á Landspítal-
anum hinn 19. júlí
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Sigurður Hólm Sig-
urðsson bóndi á
Eyjum, Kaldrana-
neshreppi og kona
hans Guðrún Ingi-
björg Benjamínsdóttir. Systkini
Guðmundínu voru Ingibjörg, f.
1913 (látin), Sigþrúður Jónína, f.
1915 (látin), Benjamín Magnús, f.
1917 (látinn), Bernódus, f. 1920,
Andrés, f. 1924 (látinn), Guð-
mundur, f. 1927 (dó frumvaxta)
og Þóra Svanhildur, f. 1932 (lát-
in).
Maður Guðmundínu er Snorri
Árnason, f. á Drangsnesi í Kaldr-
ananeshreppi 31. janúar 1927.
Þau slitu samvistir. Börn þeirra:
1) Guðrún Hólm, f. 22. október
1949. Var gift Einari H. Sigurðs-
syni (skilin). Börn þeirra eru Val-
ur Þór, Sigurður Oddur og Eva
Nína. 2) Þuríður Árný, f. 8. sept-
ember 1952. Var
gift Sigurði Bald-
urssyni (skilin).
Börn þeirra eru
Kristín Sigurey,
Baldur Reynir og
Guðmundur Snorri.
Þuríður Árný er í
sambúð með Stein-
ari Gunnbjörnssyni.
3) Erla Hrönn, f.
16. febrúar 1954,
gift Jóhanni Steins-
syni. Börn þeirra
eru Rúnar Már, Íris
Ósk og Steinunn
Ragna. 4)Árni Ómar, f. 1. sept-
ember 1956, kvæntur Sigurlaugu
Ingvarsdóttur. Börn þeirra eru
Snorri Freyr, Telma Dögg og
Sigríður Tinna. 5) Þórir Svanur,
f. 7. september 1958, lést af slys-
förum 14. júní 1963). Barna-
barnabörnin eru 19.
Guðmundína ólst upp á Eyjum
í Kaldrananeshreppi. Eftir að
hún stofnaði sitt eigið heimili var
hún um tíma búsett á Drangsnesi
og á Hólmavík, á Akranesi, en
lengst af í Keflavík, þar sem hún
starfaði lengi hjá Íslenskum að-
alverktökum.
Útför Guðmundínu fór fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Elsku hjartans amma.
Ég á svo bágt með að trúa því
að þú sért búin að kveðja okkur
um sinn, en það veitir mér huggun
að vita það að nú líður þér betur
og getur svifið yfir okkur öll og
fylgst vel með, einsog þú talaðir
svo oft um.
Mig langar að þakka þér fyrir
allar góðu stundinar sem við áttum
saman á Hringbrautinni; allir
páskarnir og sumur sem við
frænkunar fengum að koma til
ömmu, ég, Eva, og Thelma, við
vorum dekraðar á allan hátt,
skemmtum okkur alltaf svo vel,
sungum með Dúmbó og Steina eða
fórum í búðó með gömlu myntinni
þinni. Við vorum líka svo lánsamar
að fá að fara með þér á samkomu
hjá Hvítasunnusöfnuðinum og er
það mér svo minnistætt hvað það
var alltaf tekið vel á móti þér,
enda mjög virk í athöfninni. Þess-
ar ferðir voru alltaf skemmtilegar
og lærdómsríkar.
Ég gæti skrifað endalaust um
þig elsku amma, en læt þessi fáu
orð nægja um hve yndisleg kona
og amma þú varst og hve lánsöm
ég var að eiga þig að.
Ég kveð þig um stund þar til við
hittumst aftur og þakka þér fyrir
tímann sem við áttum hér.
Þú skilar kveðju til Matta.
Margt er í minninga heimi
mun þar ljósið þitt skína,
englar hjá guði þig geymi
við geymum svo minningu þína.
(Höf. ók.)
Guð geymi þig, elsku amma.
Kveðja,
Íris Ósk.
Okkur systkinin langar að minn-
ast með fáeinum orðum elskulegr-
ar móðursystur okkar, Guðmund-
ínu Sigurðardóttur. Í systkinahópi
Mundu var hún yngst að undan-
skilinni Þóru, sem dó ung, en móð-
ir okkar var elst. Aldursmunur var
því verulegur með þeim systrum.
Þær voru engu að síður mjög nán-
ar og samrýmdar. Lífsbarátta
þeirra var oft á tíðum hörð, m.a.
vegna langvarandi veikinda sem
báðar þurftu við að stríða. Í þess-
um erfiðleikum aðstoðuðu þær
hvorar aðrar eftir bestu getu og af
mikilli fórnarlund. Meðal annars
bjuggu fjölskyldurnar um tíma
undir sama þaki, fyrst á Drangs-
nesi og síðar á Akranesi.
Munda eignaðist fimm börn með
manni sínum Snorra Árnasyni, en
hjónin slitu samvistir þegar börnin
voru ung. Hún varð einnig fyrir
því mikla áfalli að yngstabarn
hennar, Þórir, drukknaði, aðeins
fimm ára gamall. Munda lét þó
mótlæti lífsins ekki buga sig.
Börnum sínum fjórum kom hún
upp ein, af miklu harðfylgi og
dugnaði. Afkomendur hennar eru
hátt á fjórða tug, allt mikið mynd-
ar- og dugnaðarfólk. Heimili henn-
ar og öll hennar framganga bar
þess glöggt vitni að hún lét sér
mjög annt um afkomendur sína.
En hlýja hennar og væntumþykja
náði jafnt til okkar og annarra
systkinabarna hennar og fjöl-
skyldna okkar. Munda var mjög
hreinskilin í framkomu. Hún sagði
okkur til syndanna, ef hún taldi
þess þurfa. Öllum var þó ljóst að
slíkar umvandanir voru vel meint-
ar og aðeins ætlaðar okkur til
góðs.
Munda frænka skipar sérstakan
sess i hjörtum okkar vegna þess
hve vel hún reyndist okkur. Hún
var okkur ekki aðeins venjuleg
frænka, heldur i raun sem móðir
þegar á þurfti að halda. Hún sýndi
okkur einstaka hlýju og væntum-
þykju alla tíð, sem værum við
hennar eigin börn. Hið sama gilti
um maka okkar, börn og barna-
börn. Gestrisni hennar var einstök
og fórnarlund ótakmörkuð. Við
munum sakna hennar sárt.
Við vottum frændsystkinum
okkar, Gunnu Hólm, Addý,
Hrönný, Óma og fjölskyldum
þeirra okkar dýpstu samúð. Bless-
uð sé minning Mundu frænku.
Sigurður Hólm Sigurðsson,
Kristjana Guðjónsdóttir.
GUÐMUNDÍNA
SIGUREY
SIGURÐARDÓTTIR
Elsku langamma. Okkur
langar að þakka þér fyrir
þann tíma sem við áttum
með þér. Við yljum okkur við
hlýju og góðu minningarnar
um þig.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Guð geymi þig, elsku
amma.
Jóhann Ás og
Kristján Steinn.
HINSTA KVEÐJA
✝ Anna ÞuríðurGeorgsdóttir
fæddist í Stapakoti
í Innri-Njarðvík 24.
september 1949.
Hún lést á gjör-
gæsludeild á Land-
spítala – háskóla-
sjúkrahúss við
Hringbraut 9. júlí
síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Georg Sig-
hvatur Sigurðsson,
f. 29. maí 1922 og
Ólöf Egilsdóttir, f.
7. júlí 1926, d. 30. september
1989. Systkini hennar eru Sig-
urður Ingi, f. 5. nóvember 1944,
Róshildur Agla, f. 12. maí 1946
og Jóna Margrét, f. 29. maí 1951.
Anna Þuríður giftist Haraldi
Stefánssyni 1968. Þau skildu
1988. Börn þeirra eru: 1) Guðrún
Ólafía, f. 15. októ-
ber 1969. Börn
hennar eru Elísa
Sjöfn, f. 4. maí
1989, Ragnar Har-
ald, f. 6. ágúst 1990
og Steinun Lilyan,
f. 28 september
1992. 2) Ólöf Fjóla,
f. 27. ágúst 1970,
börn hennar eru
Þurí Ósk, f. 8. febr-
úar 1989 og Lelíta
Rós, f. 24. nóvem-
ber 1995. 3) Stefán
Már, f. 2. ágúst
1979.
Anna Þuríður ólst upp á Akra-
nesi. Hún bjó í Grindavík frá
1970 til 1988 og fluttist þá til
Reykjavíkur og bjó þar til dán-
ardags.
Útför Önnu Þuríðar fór fram
frá Fossvogskirkju 19. júlí.
Elsku mamma mín, núna fékkst
þú loksins hvíldina sem þú þráðir
svo heitt þegar veikindin voru að
buga þig. Þegar þú tókst þá
ákvörðun að fara í aðgerðina, sem
allir vonuðust til að ætti eftir að
hjálpa þér að öðlast betra líf,
studdum við þig þó svo að við viss-
um að það gæti orðið erfitt og gæti
brugðið til beggja vona. Þú fórst í
aðgerðina 8. febrúar og alveg síðan
þá var það mikil barátta í von og
óvon. Allir reyndu sitt en nátt-
úrulögmálin tóku yfirhöndina. Á
þessu tímabili gengum við öll gegn-
um margskonar tilfinningar og þú
líka. Þegar ég vissi að það var
kominn tími til að sleppa og leyfa
þér að fara á guðs vegum var það
erfiðasta að vita að ég ætti aldrei
eftir að heyra rödd þína, sjá bros
þitt, hlusta á hlátur þinn og bara
að geta verið með þér. Enn það var
búið að leggja nóg á þig, það var
kominn tími til að þú fengir frið.
Ég mun ávallt vera þakklát lækn-
unum og hjúkrunarfólkinu sem
studdi okkur í veikindum þínum og
var með okkur við andlát þitt. Við
fengum ekki mikinn tíma til að
kveðja, en að hafa fengið að vera
hjá þér þangað til að þú kvaddir
þennan heim og vita með vissu að
þú fórst með friði mun ég ávallt
geyma í hjarta mínu og huga. Þín
er sárt saknað elsku mamma mín,
þú varst svo ung og við bjuggumst
við að eiga mörg ár eftir með þér,
þú varst ávallt sú sem hélst okkur
saman. Þú lést okkur aldrei gleyma
því að sama hversu slæmir hlut-
irnir væru þá væri í lagi að hafa
húmor og gantast með þá, en guð
hafði önnur áform fyrir þig.
Elsku mamma, ég veit að þér líð-
ur vel núna og er það mín eina
huggun í hjarta mínu. Ég elska
þig.
Þín dóttir
Ólöf Fjóla.
ANNA ÞURÍÐUR
GEORGSDÓTTIR