Morgunblaðið - 07.08.2005, Page 50
50 SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
SKEMMTILEGASTA STÓRMYND SUMARSINS.
FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM!
Sýnd kl. 4 og 10.20 B.i 16 ára
Miðasala opnar kl. 13.00
Sími 564 0000
Sýnd í Smárabíói kl. 2.40, 5.20, 8 og 10.30
Sýnd kl. 1.50 og 8
Nú eru það fangarnir gegn vörðunum!
„…mynd sem hægt er að líkja við
Die Hard, spennandi og skemmtileg…”
ÓÖH DV
„þrusuvel heppnuð
spennumynd”K & F
Sýnd kl. 2, 4 og 6.10 Í þrívídd
kl. 2.40, 5.20, 8 og 10.30
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i 16 ára Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 Sýnd kl. 10.15 B.i 16 ára Sýnd kl. 2 B.i 10 ára
Sýnd kl. 1.30, 3.40, 5.50 og 8 Í þrívídd
„…mynd sem hægt er að líkja við
Die Hard, spennandi og skemmtileg…”
ÓÖH DV
GEGGJAÐASTA GRÍNMYND ÁRSINS
Sýnd í Borgarbíói kl. 5.45, 8 og 10.20
VINCE VAUGHN
TILBOÐ400 KR.
REGLA #
27:
EKKI DRE
KKA YFIR
ÞIG,
TÓLIN VE
RÐA AÐ V
IRKA
REGLA #10:BOÐSKORT ERUFYRIR AUMINGJA!
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU
KVIKMYNDIR.IS
I I .I
„STUNDUM er fólk einfaldlega fast
í kringumstæðum sem það ræður
ekki sjálft og á erfitt með að sjá út
úr,“ segir Lou. Hann kom til Íslands
um verslunarmannahelgina til að
tala á samkomu sjöunda dags að-
ventista í Hlíðardalsskóla. Hann
segist hafa haft margt að segja fólk-
inu.
„Ég talaði um þann boðskap Bibl-
íunnar að það skiptir ekki máli
hvaða bakgrunn þú hefur. Til dæmis
voru margar konur í lífi Krists sem
hvað samfélagið varðaði voru útlag-
ar en Guð leit fram hjá því og beint
inn í hjörtu þeirra.“
Hvað með Torres sjálfan, spyr
blaðamaður, sem hefur haft veður af
erfiðri æsku hans.
„Ég ólst upp við nokkuð erfiðar
aðstæður í New York, meðal inn-
flytjenda frá Puerto Rico. Móðir mín
var afar fátæk og faðir minn
drykkjumaður. Mér fannst ég ekk-
ert geta gert með líf mitt.
En það er hægt að komast úr
slæmu aðstæðunum. Rut, ein af kon-
unum í lífi Krists, sem var vænd-
iskona, varð til dæmis langamma
Davíðs konungs af Ísrael. Sjálfur hef
ég slæman bakgrunn en komst til
þess að spila með Bill Hailey and the
Comets. Það sem skiptir máli er
hvað maður gerir sjálfur við líf sitt.“
Hætti við heimsreisu
„Tónlistarferill minn byrjaði þeg-
ar ég var þrettán ára. Ég hafði
snemma áhuga á tónlist og tók upp á
að spila plötur á mjög hægum snún-
ingi til að geta greint einstaka tóna.
Svo reyndi ég að spila tónlistina á lít-
inn gítar sem mamma gaf mér í jóla-
gjöf.“
Lou byrjaði svo að spila á klúbb-
um New York-borgar og þá undir
verndarvæng mafíunnar. Síðar lék
hann meðal annars með bandi sem
kallaði sig Vampires og náði tals-
verðum vinsældum í New York.
Hann ákvað að hætta í þeirri
hljómsveit og var í kjölfarið fenginn
til að spila á bassa með rokk-
goðsögninni Bill Hailey and the Co-
mets, í lögum á borð við Rock
Around the Clock og Shake Rattle
and Roll. Þetta var á árunum 1967-
68. Til stóð að Lou spilaði með Com-
ets í heimsreisu sem farinn var m.a.
til höfuðs Bítlunum, sem Lou segir
að hafi farið háðulegum orðum um
sveitina. „Þeir sögðu reyndar að
hljóðfæraleikararnir væru ekki nógu
góðir,“ segir hann og glottir út í ann-
að.
Hann beið þess að túrinn hæfist
en af einhverjum ástæðum var túrn-
um frestað um einhvern tíma. Á
meðan heimsótti Lou bræður sína
tvo. Annar þeirra hafði áður stýrt
mafíu í New York sem kallaðist
Drekarnir og var stærsta gengi inn-
flytjenda frá Púertó Ríkó.
„Ég fann að bræður mínir voru af
einhverjum ástæðum mjög breytt-
ir,“ segir hann. Þeir höfðu þá kynnst
sjöunda dags aðventisma en Lou
varð vitni að skírn annars bræðra
sinna til þeirrar trúar. „Hann kom
grátandi upp úr vatninu og það
skildi ég ekki.“ Lou bætir því við að
sjálfum hafi sér alltaf fundist eitt-
hvað vanta í líf sitt. Hann hafi haldið
að það sem vantaði væri meiri
frægð, meira fjör, fleiri konur og
meiri víma. Það hefði þó aldrei skilað
sér.
„Á þessum tíma meðan ég beið
eftir heimstúrnum fór ég á stórt ball
þar sem fjöldi hljómsveita spilaði.
Fólk steig trylltan dans á gólfinu og
þar var ég venjulega fremstur í
flokki að taka „kjúklinga-“ eða „apa-
dansinn“. En ég fór upp á aðra hæð
á staðnum, horfði yfir gólfið og fann
til fjarlægðar. Ég bað Guð um að
láta mig vita ef hann væri þarna ein-
hvers staðar.“
Lou fann það sem hann leitaði að
og hætti við að túra með Bill Haley
and the Comets. Í dag starfar hann
sem aðventistaprestur og hefur
ferðast víða til að predika trú sína
auk þess sem hann hefur skrifað
margar bækur og kemur reglulega
fram á gervihnattastöðinni 3ABM.
Hann og konan hans, sem var áður
konsertfiðluleikari, hafa haldið
áfram tónlistariðkun en þau sneru
sér að klassískri, trúarlegri tónlist.
Ein spurning hefur brunnið á
vörum blaðamanns meðan á viðtal-
inu stendur. Gat Lou ekki bara spil-
að með Bill Haley and The Comets
áfram þótt hann hafi frelsast?
„Nei, þetta er spurning um lífsstíl
og ekki síst hvað þú vilt hvetja ungt
fólk til að gera. Rokkhljómsveitinni
fylgdu vímuefni og kvennafar og það
sem meira var, við vorum að hvetja
ungt fólk til að fara illa með líf sitt.
Það að spila með rokkhljómsveit er í
raun bara egóismi og hefði snúist
um hvað ég var að fá út úr því en
ekki hvað ég var að gefa öðrum.“
Louis Torres ólst upp í New York meðal fátækra innflytjenda, spilaði með hljómsveitum undir verndarvæng
mafíunnar og seinna með rokkgoðinu Bill Haley og hljómsveitinni Comets. Anna Pála Sverrisdóttir ræddi við Lou
sem ákvað að skipta út kynlífinu, dópinu og rokkinu þegar hann frelsaðist til aðventisma.
Vampírurnar. Frá New York, ekki Transylvaníu. Torres stendur.
Blaðagrein frá Comets-tímabilinu.
Frelsaðist frá
Bill Haley and
the Comets
Morgunblaðið/ÞÖK
Louis Torres spilar nú trúarlega
tónlist.
aps@mbl.is