Morgunblaðið - 21.08.2005, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 29
verða heimreiðina. Hún varð eftir. Þegar ég var
kominn heim og hafði farið í sturtu og var sestur
í sólkrókinn heima til að njóta lífsins var hringt
af næsta bæ og mér sögð þau sorgartíðindi að
ekið hefði verið á hund niðri á Dalvíkurvegi.
Ökumaður hafði ekki gefið sig fram eða ekki
tekið eftir slysinu. Táta var ekki illa farin en
hafði látist samstundis og var jörðuð samdæg-
urs, en heimilið hefur ekki verið samt síðan.
Mörg tár féllu það kvöld í einrúmi og kona mín
var rauðeygð nokkra næstu daga, en ég karl-
maðurinn lét á engu bera fyrr en núna að ég
minnist þessarar vinkonu minnar hennar Tátu.
Þá komst ég að því að enginn veit hvað átt hefur
fyrr en misst hefur.
Slátrið fór í hundana
Auðvitað hafði ég áður átt hund að vini,
Spora, þegar ég var sendur í sveit vestur í Dali.
Þegar ég kynntist Spora fyrst var ég borgar-
barnið hálfsmeykt og reyndi að bægja honum
frá með priki, en hann bara espaðist og snerist
urrandi í kringum mig og gerði mig enn hrædd-
ari. Þetta lagaðist og urðum við perluvinir. Mó-
rauði íslenski hundurinn er fallegur, en mér hef-
ur aldrei líkað við gjammið í honum. Hann er
dæmigerður varðhundur sem má ekkert kvikt
sjá án þess að gelta og hann er afar gjarn á að
elta bíla, sem er í mínum augum afar mikill galli.
Hundar eiga helst heima í frelsinu úti í sveit.
Þeir eru ágætis félagar og skil ég vel að mörgum
einmana bæjarbúanum þyki góður félagsskapur
að hundum. Hundahald gefur líka ágætis tilefni
til hreyfingar þegar menn þurfa að viðra hund-
inn. Svo hafa hundar verið tamdir til ákveðinna
nauðsynjaverkefna svo sem að smala sauðfé,
leiðsegja blindum, leita í snjóflóðum og leita eit-
urefna. Þar vinna þeir gott starf. Hundar nýta
ágætlega ýmsan heimilisúrgang, og kjötbeinin
eru þeim kærkomin. Í flestum tilvikum nægir
heimilisúrgangurinn þeim ekki og menn útbúa
annaðhvort hundamat eða kaupa hann í búðum.
Hundar geta orðið aðgangsharðir, til dæmis er
ekki langt síðan nágrannahundur komst í slát-
urtunnuna okkar, sem hafði verið sett í kælingu
út fyrir dyr. Má segja að þá hafi slátrið okkar
farið í hundana í orðsins fyllstu merkingu.
Það var áberandi að Táta þekkti dýralæknana
og umhverfðist um leið og hún sá þá þegar þeir
komu með hundahreinsunarlyfið eða getnaðar-
varnarsprautuna. Þá guggnaði ég, hugleysing-
inn, á að taka hana, en Pálína kona mín gekk
ákveðið til verks og tók hana föstum tökum. – Þá
dáðist ég að frú Pálínu (og ekki í fyrsta sinn).
Einhverju sinni að vetri gerðist það að ná-
grannahundur, sem líklega hafði heimsótt Tátu,
ætlaði að stökkva yfir gaddavírsgirðingu sem
var hálfpartinn á kafi í snjó. Hann dreif ekki yfir,
en hékk ýlfrandi á kviðnum þvert yfir efsta
strenginn. Ég ætlaði að bjarga greyinu, en í
hvert sinn sem ég nálgaðist sýndi hann mér
tennurnar og urraði, þannig að ég lagði ekki í
björgunaraðgerðina. Þórður nágranni minn
kom þarna að, gekk ákveðnum skrefum að
hundinum, óhræddur við tennur og urr, tók í
hnakkadrambið á honum og svipti honum af
girðingunni. – Þá dáðist ég, hugleysinginn, að
Þórði (og ekki í síðasta sinn).
Þá greip frú Pálína gamalt kústskaft
Eðli Tátu sagði til sín með jöfnu millibili; hún
varð lóða. Og þá brást það ekki að hóp hunda af
næstu bæjum dreif að; þeir voru á lóðaríi. Ég
veit enn ekki hvernig þeir gátu vitað að nú var
Táta í þessu ástandi. Skilaboðin hlutu annað-
hvort að berast með lykt í loftinu eða að einn
hundur segði öðrum frá, sem mér þykir reyndar
fremur ótrúlegt því yfirleitt vilja karldýr sitja
ein að kvendýrinu.
Ein mynd er í huga mér frá lóðatíma Tátu.
Hún var lokuð inni í þvottahúsi, en utandyra
voru margir hundar að snuðra. Mér er enn í
minni að frú Pálína greip þá gamalt kústskaft og
elti hundana á harðahlaupum langt niður eftir
túni og rak þá þannig heim. Þá varð mér að orði
að væntanlegir tengdasynir okkar ættu ekki von
á góðum móttökum þegar dætur okkar þrjár
yrðu gjafvaxta.
Úr dýraríkinu eftir Bjarna E. Guðleifsson náttúrufræð-
ing er 126 bls. Bókaútgáfan Hólar gefur út bókina, sem
er sú fyrsta af fjórum í bókaflokknum Náttúruskoðar-
inn, en þeim er ætlað á aðgengilegan og skemmtilegan
hátt að fræða almenning um sitt nánasta umhverfi.
STJÓRN Sambands ungra fram-
sóknarmanna fagnar því að borg-
arfulltrúar Framsóknarflokksins
leggist geng tillögum Stefáns Jóns
Hafstein um hækkun á leik-
skólagjöldum hjá þeim fjölskyldum
þar sem annað foreldrið er í námi.
„Tillaga Stefáns Jóns gengur í
berhögg við stigbundna niður-
fellingu leikskólagjalda sem þegar
er hafin. Gjaldfrjáls leikskóli er
stefnumál sem Halldór Ásgrímsson,
formaður Framsóknarflokksins,
hefur sett á oddinn og er óþolandi til
þess að vita að Samfylkingin, með
Stefán Jón í broddi fylkingar, hafi
ætlað að eigna sér niðurfellingu leik-
skólagjalda en setja svo þessa mót-
sagnakenndu hækkun fram. Það er
ekki síst borgarfulltrúum Fram-
sóknarflokksins að þakka að þessi
óhæfa verður ekki að veruleika.“
Ekki rétt að
hækka gjöldin
SAMBAND ungra framsókn-
armanna (SUF) fagnar heilshugar
þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar
undir forystu Halldórs Ásgríms-
sonar að tryggja samkynhneigðum
jafnan rétt á við aðra þegna þessa
lands.
„Hér er um löngu tímabæra leið-
réttingu að ræða þar sem öll mis-
munun er bönnuð í (65. gr.) stjórn-
arskrár lýðveldisins. Því er það
mikið fagnaðarefni að forystumenn
Framsóknarflokks taki þetta frum-
kvæði enda hafa mannréttindi og
velferðarmál alltaf verið ofarlega á
baugi hjá flokknum.“
Tímabær breyt-
ing að mati SUF
STJÓRN Reykjavíkurfélags Ungra
vinstri grænna skorar á borgaryf-
irvöld í Reykjavík að draga til baka
ákvörðun sína um gjaldskrárbreyt-
ingu leikskóla borgarinnar. Þetta
kemur fram í ályktun frá félaginu.
„Það er með öllu óásættanlegt að
fjölskyldur þar sem annað foreldri
stundar nám verði með þessari
breytingu fyrir verulegri út-
gjaldaaukningu en sú aukning nem-
ur allt að 81.180 krónum á árs-
grundvelli. Með þessu er verið að
ganga þvert gegn yfirlýstri stefnu
borgaryfirvalda um að gera
Reykjavíkurborg að fjölskyldu-
vænu samfélagi. Það má teljast í
hæsta máta óeðlilegt að Reykjavík-
urlistinn, sem kennir sig við fé-
lagshyggju, standi á þennan hátt að
málum.
Það er til skammar fyrir borg-
aryfirvöld ef þessi áform ná fram
að ganga. Stjórn Ungra vinstri
grænna í Reykjavík mótmælir slík-
um vinnubrögðum harðlega og
hvetur borgaryfirvöld til að endur-
skoða tafarlaust þessar breyt-
ingar.“
Á móti hækkun
leikskólagjalda
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 16. ágúst var spilað á
12 borðum. Meðalskor var 216. Úr-
slit í N/S:
Rafn Kristjánss. - Oliver Kristóferss. 248
Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 242
Ágeir Sölvason - Guðni Ólafsson 232
A/V
Guðm. Árnason - Maddý Guðmundsd 256
Kristrún Stefánsd. - Sverrir Gunnarss. 238
Jón Gunnarss. - Sigurður Jóhannsson 235
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111