Morgunblaðið - 21.08.2005, Síða 50
50 SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Í dag kl. 14 örfá sæti laus
10. sýn. sun. 28/8 kl. 16 nokkur sæti laus
11. sýn. fim. 1/9 kl. 19 sæti laus
Kabarett
í Íslensku óperunni
Næstu sýningar
Föstudaginn 19. ágúst - UPPSELT
Laugardaginn 20. ágúst kl. 20.00
Föstudaginn 26. ágúst kl. 20.00
Laugardaginn 27. ágúst kl. 20.00
Sunnudaginn 28. ágúst - Örfá sæti laus
Miðar í síma 511 4200, og á www.kabarett.is
Leikhópurinn Á senunni í samstarfi við SPRON
“Söngur Þórunnar
er í einu orði sagt
stórfenglegur...”
SH, Mbl.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
Laugarnestanga 70, 105 Rvík.
www.lso.is - lso@lso.is
Þriðjudagstónleikar
23. ágúst kl. 20.30
Stríð og friður
Sónata í F-dúr op. 8 eftir Grieg
og Sónata nr. 1 í f-moll
op. 80 eftir Prokofiev.
Auður Hafsteinsdóttir fiðla og
Anna Guðný Guðmundsdóttir
píanó.
Boekie Woekie er heiti afarsérstæðrar bókabúðar íAmsterdam. Verslunin sér-
hæfir sig í sölu bókverka; það er að
segja bóka sem eru myndlistarverk.
Þessi óvenjulega verslun hefur í
sumar rekið útibú í forsal Listasafns
Reykjavíkur, Hafnarhúsi, í
tengslum við sýningu á verkum
Dieters Roths, Lest, en hann er einn
þeirra listamanna sem Boekie
Woekie hefur á sínum snærum og
eru þar seld bæði bókverk og graf-
íkverk úr hans smiðju. „Ég var ekki
ýkja bjartsýnn á þetta til að byrja
með,“ segir Jan Voss, einn þriggja
eigenda verslunarinnar, þegar ég
kem að máli við hann niðri í Hafn-
arhúsi. „En síðan hefur þetta gengið
bara vel eftir allt saman. Við höfum
selt ágætlega, nóg til að standa und-
ir ferðinni hingað að minnsta kosti.“
Ferðin hingað frá Hollandi varekkert smámál. Alls flutti
Boekie Woekie hingað um 3.500
titla af bókum, nokkur eintök af
sumum, í 137 kössum. Tollskýrslan
var um 200 blaðsíður að lengd.
„Maðurinn sem sá um flutninginn til
Íslands fyrir mig sagðist myndu
hafa verið fljótari að koma til mín í
Amsterdam og sækja hana en að
láta mig faxa hana til Rotterdam,“
segir Voss og hlær.
Boekie Woekie var stofnuð fyrir
þó nokkrum árum af hópi myndlist-
armanna, sem áttu það sameiginlegt
að telja bókina geta hentað sem mið-
il til myndlistarsköpunar. Eftir
standa núna þrír úr upphaflega
hópnum, auk Jans Voss eru það
Rúna Þorkelsdóttir og Hetti van
Egten, en umfang verslunarinnar
hefur að sama skapi aukist. Því
gegnum tíðina hafa bæst í hópinn
aðrir myndlistarmenn, sem hafa
fengið Boekie Woekie til að sjá um
að koma bókverkum sínum á fram-
færi. Þeirra á meðal er Dieter Roth,
og fjöldi erlendra sem og íslenskra
myndlistarmanna á borð við Krist-
ján Guðmundsson, Magnús Pálsson,
Birgi Andrésson og Tuma Magn-
ússon. „Það er fullt starf hjá okkur
þremur að halda utan um rekstur
verslunarinnar í Amsterdam,“ segir
Voss. „Umfangið er mikið og versl-
unin nokkuð vinsæl.“
Bækurnar sem eru til sölu í búð-inni eru eins ólíkar og þær eru
margar. Voss byrjar á því að sýna
mér eina þá óhefðbundnustu; bók
sem hann hefur sjálfur gert úr ryk-
sugupoka. Inni í pokanum/bókinni
er fullt af ryki, en afar merking-
arhlöðnu ryki. „Þetta er ryk af hin-
um bókunum sem við erum að selja,
sem við höfum ryksugað í búðinni,“
útskýrir Voss.
Hann sýnir mér næst nokkrar af
bókum Dieters Roths sem eru til
sölu. Ókjör af bókum hans eru til
sölu í búðinni, stærri og smærri,
hefðbundnari og óhefðbundnari.
Þar er til dæmis að finna dag-
bókasafn hans í tugum binda, einnig
stutta ritgerð sem leitast við að
svara spurningunni um hver Mozart
var. Svarið er mjög sérkennilegt!
Við skoðum líka bækur eftir eig-
endur búðarinnar, Voss sjálfan og
Rúnu Þorkelsdóttur, sem margar
hverjar innihalda þrykkimyndir.
Bók eftir Kristján Guðmundsson
sem heitir Saumasjór og í eru saum-
aðar með bláum tvinna nokkrar öld-
ur.
Það eru þó ekki allar bækurnar íbúðinni handgerðar, þótt þær
eigi það allar sameiginlegt að vera
gerðar í takmörkuðu upplagi. Sum-
ar eru prentaðar í prentsmiðju og
notast jafnvel við texta einhvers
annars, í hluta eða heild. Það sem
þær eiga fyrst og fremst sameig-
inlegt er að vera miðill til myndlist-
arsköpunar allra þeirra myndlist-
armanna sem heiðurinn eiga af
þeim. „Ég er í raun hissa á að bóka-
formið skuli aldrei hafa náð meiri
vinsældum en svo sem listmiðill,“
segir Voss. „Því það er bæði fjöl-
breytt og aðgengilegt að mörgu
leyti.“
Aðgengilegt er það vissulega,
ekki síst fyrir áhorfandann. Að
ganga inn í þessa búð er eins og að
ganga inn á risastóra, þó ekki í fer-
metrum, samsýningu og fá að hand-
leika öll verkin. Jafnvel taka þau
með sér heim, fyrir viðunandi verð.
„Bækurnar hérna eru misdýrar.
Þær geta kostað allt frá 500 krónum
upp í 6.000 evrur eða meira. En þær
eru allar til sölu,“ segir Voss kank-
vís.
Í versluninni eru líka til sölu graf-
íkverk eftir Dieter Roth, fáeinir
stuttermabolir, nokkrir geisla-
diskar og svo póstkort. Ég gríp með
mér nokkur slík, til minningar um
þessa skemmtilegu verslun, sem
verður – því miður – lokað í dag. En
lofa að heimsækja frumútgáfuna
þegar ég legg leið mína til Amst-
erdam næst.
Bókin sem
listaverk
’Voss byrjar á því aðsýna mér eina þá óhefð-
bundnustu; bók sem
hann hefur sjálfur gert
úr ryksugupoka. Inni í
pokanum/bókinni er
fullt af ryki, en afar
merkingarhlöðnu ryki.‘
AF LISTUM
Inga María Leifsdóttir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mörg bókverk eftir Dieter Roth eru til sölu í Boekie Woekie.
ingamaria@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Ég var ekki ýkja bjartsýnn á þetta til að byrja með,“ segir Jan Voss, einn þriggja eigenda bókabúðarinnar Boekie
Wokie, sem hefur haft útibú í Listasafni Reykjavíkur í sumar. „En síðan hefur þetta gengið bara vel.“
VERKIÐ Frozen ground eftir Þóru
Marteinsdóttur tónskáld var frum-
flutt á dögunum í Gautaborg af lúðra-
sveitinni Västsvenska Ung-
domsblåsorkestern. Flutningurinn
var liður í dagskrá Gautaborgarveisl-
unnar svokölluðu sem er árviss við-
burður í ágúst og var verkið flutt á
stóru sviði sem komið var fyrir á
Götaplatsen í miðborg Gautaborgar.
Verkið var pantað af sænsku sam- tökunum Musik i Väst sl. vetur sem
var lokaár Þóru í tónsmíðanámi við
Tónlistarháskólann í Gautaborg.
Markmið Musik i Väst er að styðja og
örva tónlistarlíf í Vestur-Svíþjóð og
verður Frozen ground lag samtak-
anna veturinn 2005–2006.
Verkið er samið fyrir allt tónlist-
arfólk sem vinnur fyrir Musik i Väst í
vetur en hugmyndin er að ná til sem
flestra með tónlistinni. Þannig verða
flytjendur margir og mismunandi,
t.d. kúbversk kvennaslagverks-
hljómsveit, blúsband, klassískt píanó-
tríó, sænsk þjóðlagahljómsveit, popp-
söngkona og gítar og sinfóníu-
hljómsveit.
Þóra var viðstödd frumflutninginn.
Hún var ánægð með flutning lúðra-
sveitarinnar á Frozen ground og
hlakkar til að heyra hvernig lagið á
eftir að hljóma í flutningi annarra
flytjenda en á vissan hátt verður það
nýtt verk sem flutt verður í hvert
skipti þar sem flytjendur eru ólíkir og
útsetningar einnig. Til stendur að
flytja Frozen ground á bilinu 300 til
1000 sinnum í vetur en Musik i Väst
mun þá standa fyrir um 40 tónleikum.
Þóra samdi lagið, sem er þrjár
mínútur að lengd, sl. vor en textinn er
eftir vin hennar, fjöllistamanninn
Einar Val Bjarnason Maack. Í vetur
mun Þóra stunda kennaranám við
Listaháskóla Íslands auk þess að
stjórna barnakór Háteigskirkju. Um
þessar mundir er hún að semja verk
fyrir barnakór Dómkirkjunnar ann-
ars vegar og norskan hörpuleikara
hins vegar.
Tónlist| Nýtt íslenskt tónverk frumflutt í Gautaborg
Marg-
breytilegt
verk fyrir
lúðrasveit
Morgunblaðið/Steingerður
Þóra Marteinsdóttir tónskáld var ánægð með flutninginn í Gautaborg.
Eftir Steingerði Ólafsdóttur
steingerdur@mbl.is
EYGLÓ Aradóttir heldur í dag fyr-
irlestur um sjálfsmorð STK-fólks
(samkynhneigðra, tvíkynhneigðra,
kynskiptinga) í litlum samfélögum.
Fyrirlesturinn er haldinn í Hinu
húsinu, Pósthússtræti 3–5, í fund-
arherberginu á 2. hæð. Eygló er á
leið til Færeyja á ráðstefnuna Can-
aries in Coalmines og var fyrirlest-
urinn sérstaklega undirbúinn fyrir
þá ráðstefnu. Rannsóknir hafa sýnt
að tíðni sjálfsmorða og sjálfsmorð-
stilrauna er há meðal STK-
einstaklinga og koma þar til ýmsir
áhrifaþættir. Eygló fer yfir það
helsta sem vitað er um þessi mál og
fjallar sérstaklega um aðstæður á
íslensku landsbyggðinni.
Fyrirlestur Eyglóar hefst kl. 15
og eru allir velkomnir.
Fyrirlestur um sjálfs-
morð samkynhneigðra