Morgunblaðið - 21.08.2005, Side 52
52 SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
GOSPELKÓR Reykjavíkur blæs
til mikillar gospelveislu í Laug-
ardalshöllinni laugardaginn 3.
september næstkomandi. Þar mun
kórinn koma fram undir stjórn
Óskars Einarssonar ásamt fjölda
tónlistarmanna. Sérstakur gesta-
söngvari á tónleikunum verður
Páll Rósinkrans. Hljómsveitina
sem leikur undir skipa þeir Jó-
hann Ásmundsson, Eyþór
Gunnarsson, Halldór G. Hauks-
son, Agnar Smári Magnússon,
Ómar
Guðjónsson, Sigurður Flosason,
Óskar Guðjónsson, Kjartan Há-
konarson, Samúel Samúelsson,
Einar St. Jónsson og Jóhann
Hjörleifsson.
Það er tónleikafyrirtækið Con-
cert sem sér um framkvæmd tón-
leikanna í samvinnu við Gospel-
kórinn.
Miðasala er hafin og hefur farið
afar vel af stað, að sögn Einars
Bárðarsonar hjá Concert. Áhuga-
samir geta enn nálgast miða á
vefnum concert.is og í verslunum
Skífunnar í Reykjavík og BT á
Akureyri, Selfossi og Egilsstöðum.
Gospelkór Reykjavíkur var
stofnaður í tilefni Kristnihátíðar á
þingvöllum árið 2000. Stofnandi
kórsins, Óskar Einarsson tónlist-
arstjóri Fíladelfíu, var tónlistar-
stjóri Gospeltónleikanna á Þing-
völlum. Kórinn hefur síðan haldið
fjölmarga tónleika bæði í Reykja-
vík og úti á landi og komið fram í
sjónvarpi, útvarpi og sungið inn á
geisladiska.
Allur ágóði sem kórinn vinnur
sér inn hvort sem er með tónleika-
haldi eða öðrum uppákomum
rennur til góðgerðamála ýmiss
konar og hefur það verið markmið
hans frá upphafi.
Meðlimir í kórnum voru í upp-
hafi átján talsins en eru nú um
þrjátíu og koma úr hinum ýmsu
kirkjudeildum á Reykjavíkur-
svæðinu.
Tónlist | Gospelveisla í Laugardalshöllinni
Morgunblaðið/Kristinn
Gospelkór Reykjavíkur á æfingu.
Miðasala fer vel af stað
BRESKA sendiráðið við Laufásveg í Reykjavík bauð til veislu síðastliðinn
fimmtudag fyrir IFAW, Alþjóðlegu dýraverndunarsamtökin.
Opnuð var ljósmyndasýning að viðstöddum gestum en margt var um
manninn í boðinu.
Meðal þeirra sem létu sjá sig var breski leikarinn Terence Stamp.
Morgunblaðið/Jim Smart
Clare Sterling, Robbie Marsland, Ellie Dickson og Joth Singh.
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, Loretta Michaels, Clive Crook, Robert Wade,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Alpher Mehmet, sendiherra Breta á Íslandi.
Dýravernd í sendiráðinu