Morgunblaðið - 22.08.2005, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2005 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• sími 581 2141
Glæsilegir stakir jakkar
Opið virka daga frá kl. 10-18 • Laugardaga frá kl. 10-15
Lene Bjerre • Bæjarlind 6, Kópavogi • 534 7470 • www.feim.is
Útsala
10-70 %
afsláttur
AWACS-ratsjárflugvél Atlantshafsbandalags-
ins, NATO, var hér við land á dögunum m.a. til
að prófa nýtt samskipta- og upplýsingakerfi
milli flugvéla og stjórnstöðva á jörðu niðri. Vél-
arnar koma reglulega hingað til lands til æfinga
með flugmönnum frá Varnarstöðinni í Keflavík
en á árum áður voru slíkar vélar með bækistöð
hérlendis. Kerfið nýja sem nú var einkum verið
að prófa er nefnt Link 16. Hefur bandaríski
herinn annast umsjón með hugbúnaðargerð-
inni og íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Kögun
séð um aðlögun þess að íslenska loftvarnakerf-
inu.
Kerfið er notað við hvers kyns samskipti
stjórnstöðva á jörðu niðri við flugvélar, bæði
orrustuflugvélar og AWACS-ratsjárvélar sem
annast stjórnun aðgerða þegar á þarf að halda.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu fyrir
skemmstu er gert ráð fyrir að prófunum á kerf-
inu ljúki í þessum mánuði.
Þrjú þúsund manna sveit
NATO rekur sveit 17 AWACS-véla sem hef-
ur bækistöð í Geilenkirchen í Þýskalandi, rétt
við landamæri Hollands. Henni tilheyra að auki
þrjár sams konar þotur sem eru fraktvélar en
einnig notaðar til farþegaflutninga. Þá eru þær
einnig notaðar til að þjálfa flugmenn AWACS-
vélanna við eldsneytistöku á lofti. Sveitin er
eina sameiginlega flugsveitin sem NATO ríkin
reka en að henni standa 13 af af 26 aðild-
arþjóðum og eru starfsmenn í sveitinni frá 12
löndum. Hún telur alls um þrjú þúsund manns
og segir Johan Hijmenberg, upplýsingafulltrúi
sveitarinnar, að um 1.600 séu borgaralegir
starfsmenn en 1.400 eru frá herjum aðild-
arlandanna sem leggja sveitinni liðsinni sitt.
Segir hann störfin hjá sveitinni nokkuð eft-
irsótt. Auk aðalstöðvanna í Þýskalandi hefur
sveitin aðstöðu í Tyrklandi, Grikklandi, Ítalíu
og Noregi og eru þaðan stundaðar ákveðnar
æfingar.
AWACS-ratstjárflugvélar bandaríkjahers
sem eru Boeing 707-320-þotur, höfðu á árum
áður bækistöð hérlendis og héldu uppi eftirliti
með ferðum flugvéla við landið þegar ratsjár-
stöðva naut ekki við á Norðurlandi. Þoturnar
eru sérbúnar til þessa verkefnis, bæði er
skrokkurinn styrktur hjá Boeing vegna hins
mikla loftnetsdisks sem trónir ofan á skrokki
vélarinnar og tæknimenn NATO hafa síðan séð
um að fylla vélina hvers kyns ratsjár- og tölvu-
búnaði sem gerir kleift að sinna verkefninu.
Fylgjast með flugumferð
Aðalverkefni AWACS-vélanna er að fylgjast
með flugumferð og láta miðstöðvar á jörðu
niðri vita ef ókennilegar vélar eru á ferð. Í
áhöfn eru 17 manns, fjórir í stjórnklefa, tveir
flugmenn, flugvélstjóri og siglingafræðingur,
og síðan þrettán tæknimenn sem sitja við skjái
sína, rýna í upplýsingarnar og annast samskipti
við flugvélar eða stjórnstöðvar og stjórna loft-
varnarðgerðum. Fleiri eru stundum um borð,
t.d. þegar þjálfun nýrra manna stendur yfir, og
getur vélin alls tekið 35 manns í sæti. AWACS-
vélarnar geta með sífellt endurbættum sam-
skiptakerfum eins og Link 16 stýrt aðgerðum
orrustuvéla eða skipa enda nær ratsjársvið
þeirra mun víðar en svið ratsjárstöðva á jörðu
niðri. Má segja að með breyttu hlutverki
NATO hafi slík verkefni orðið fyrirferðarmeiri,
þ.e. að vélarnar eru eins konar fljúgandi stjórn-
stöðvar. Hafa vélar sveitarinnar m.a. verið not-
aðar í Persaflóastríðinu, á Balkanskaga og í
stríðinu í Írak.
Johan Hijmenberg, sem er frá Hollandi og
segir því aðalstöðvarnar á mjög hentugum stað
fyrir sig, segir að sveitinni hafi einnig verið fal-
in ýmis önnur verkefni á síðustu árum sem séu
utan við það hefðbundna. „Þar má til dæmis
nefna að eftir hryðjuverkin í Bandaríkjunum
voru nokkrar véla sveitarinnar lánaðar þangað
til eftirlits í sex mánuði. Voru þær á ferð 24
tíma á sólarhring og þá gat hver vél stundum
verið á lofti í 12 til 15 tíma í senn.“ Þá segir
hann vélarnar hafa verið notaðar við eftirlit í
kringum ýmsa atburði svo sem leiðtogafundi
stórveldanna, við Ólympíuleikana í Aþenu og
innsetningu páfa svo dæmi séu nefnd.
Upplýsingafulltrúinn segir hvert land sem
styður rekstur sveitarinnar eiga ákveðinn
kvóta starfsmanna og þegar starfsmaður hætt-
ir er fenginn annar frá sama landi í staðinn.
Rafmagn fyrir lítið þorp
Flugstjóri AWACS-vélarinnar í ferðinni á
dögunum var Kanadamaðurinn Bill Canaham,
majór frá Íslendingabyggðunum við Winnipeg.
Hann hefur starfað í kanadíska flughernum í 26
ár en síðasta hálfa annað árið hjá AWACS-
sveitinni og kveðst kunna vel við verkefnin og
flugið á Boeing-þotunni. Hann segir að vegna
alls tæknibúnaðarins í vélinni séu tveir rafalar
tengdir við hvern hinna fjögurra hreyfla þot-
unnar. Segir hann afl þeirra nægilegt til að
anna rafmagnsnotkun lítils þorps.
Yfirmaður flugsins að þessu sinni var Þjóð-
verjinn Rainer Roedel. Sagði hann tilganginn
hafa einkum verið að prófa Link 16-búnaðinn
og þjálfa samskiptin við flugmenn á F-15-
þotum Varnarliðsins. Hann segir verkefnin yf-
irleitt þríþætt; þjálfun áhafnarinnar og kennsla
vegna nýjunga sem teknar eru upp, æfingar á
aðgerðum og síðan aðgerðir ef vá er fyrir dyr-
um. Hann segir búnað AWACS-vélanna geta
numið flugumferð nánast alveg frá jörð og upp
í fulla flughæð og meira en það en yfirleitt
fljúga þoturnar í um 20 til 30 þúsund feta hæð.
Meiri fyrirvari en fyrr
Eric Jones frá Bandaríkjunum, sem stýrði
æfingunum með F-15-þotunum, sagði fjórar
þotur hafa tekið þátt í æfingunni. Þær skiptu
sér í tvö lið og tveir samstarfsmenn Erics Jones
sinntu hvoru liði og stýrðu aðgerðum þeirra.
Ekki fór sögum af því hvort liðið „vann“ en
Jones sagði að Link 16-kerfið gerði það kleift
að sjá óvininn með mun meiri fyrirvara en fyrr
og það gæfi betra ráðrúm til að bregðast við.
AWACS-ratsjárvélar NATO í margs konar verkefnum í öllum heimshlutum
Fylgjast með
flugumferð og
æfa viðbrögð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Johan Hijmenberg, upplýsingafulltrúi sveitarinnar, segir hana ráða yfir 17 AWACS-þotum og þremur að auki sem
notaðar eru til flutninga. Flugsveitin hefur bækistöðvar í Þýskalandi, en flugvélarnar koma reglulega til Íslands.
Ratsjárflugvélar NATO eru sautján talsins og
hafa bækistöð í Þýskalandi. Leið þeirra
liggur annað veifið til Íslands til þjálfunar.
Árni Sæberg og Jóhannes Tómasson fóru með
í slíka æfingaferð á dögunum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rainer Roedel, frá Þýskalandi, stjórnaði æfingunum hér við land á dögunum.
joto@mbl.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
ELDUR kom upp í svefnherbergi í
fjölbýlishúsi í Vesturbænum að-
faranótt sunnudags í kjölfar þess að
maður kveikti í flugeldi í rúminu.
Hlaust af þessu nokkur reykur
og er rúmið talsvert skemmt en
ekki er vitað hvað skotmanninum
gekk til með tiltækinu. Slökkviliðið
var kallað út til að reykræsta íbúð-
ina en engum varð þó meint af.
Stuttu síðar var slökkviliðið kall-
að út aftur að húsi við Bergstaða-
stræti þar sem eldur hafði kviknað
út frá potti á eldavél. Hlúa þurfti að
íbúa og reykræsta húsið en engin
alvarleg meiðsl hlutust af.
Sjúkrabílar í 38 útköll
Þriðja útkallið kom um hálf-
tíuleytið um morguninn en þá fór
slökkviliðið að Seljaskóla þar sem
kveikt hafði verið í dekki sem vafið
var um ljósastaur nálægt skólanum.
Einhverjar skemmdir urðu á
staurnum.
Nóttin var afar erilsöm í sjúkra-
flutningum og var alls farið í 38 út-
köll frá laugardagskvöldi fram á
sunnudagsmorgun.
Er það um tvöfalt fleiri útköll en
á venjulegu föstudags- eða laug-
ardagskvöldi, samkvæmt upplýs-
ingum frá slökkviliðinu á höf-
uðborgarsvæðinu.
Kallaður var til aukamannskapur
fyrir kvöldið auk þess sem bætt var
við tækjabúnað. Þá voru sjúkra- og
slökkvibifreiðar við höfnina meðan
á tónleikum og flugeldasýningunni
stóð og voru meðal annars kafarar
til taks. Enn fremur hafði verið
komið upp lítilli bækistöð við
menntamálaráðuneytið og var
hægt að færa slasaða þangað til að-
hlynningar.
Erill hjá sjúkra- og slökkviliði um helgina
Skaut upp flugeldi
í svefnherberginu
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
Vagnstjórar
styðja starfs-
bróður sinn
VAGNSTJÓRAR hjá Strætó bs.
hafa ákveðið að sýna starfsbróður
sínum, sem lenti í alvarlegu slysi á
mótum Kringlumýrarbrautar og
Suðurlandsbrautar við Laugaveg sl.
föstudag, samhug í verki með fjár-
söfnun, honum og fjölskyldu hans til
styrktar.
Hefur undirskriftalistum verið
komið upp á nokkrum stöðum hjá
Strætó og einnig Hagvögnum, Allra-
handa og Teiti Jónassyni, sem sinna
akstri í verktöku fyrir Strætó, sem
og á bæjarskrifstofum á höfuðborg-
arsvæðinu.
Við árekstur við vörubíl, sem ekið
var gegn rauðu ljósi á gatnamótun-
um, kastaðist vagnstjórinn út úr
strætisvagninum og hlaut mikla
áverka. Eftir skurðaðgerðir á Land-
spítalanum er hann kominn af gjör-
gæsludeild á bæklunardeild. Hann
missti annan fótinn við hné og miklir
áverkar eru á hinum fætinum. Vagn-
stjórinn starfar hjá Hagvögnum og
er á sextugsaldri.