Morgunblaðið - 22.08.2005, Blaðsíða 26
26 MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
KOLBRÚN SIGURÐARDÓTTIR,
Álftamýri 2,
Reykjavík,
sem andaðist á heimili sínu mánudaginn 15. ágúst,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju fimmtudaginn
25. ágúst kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
hinnar látnu er bent á heimahlynningu Krabbameinsfélagsins.
Höskuldur Elíasson,
Sigrún Höskuldsdóttir, Antonio Cavaleiro,
Elías Höskuldsson, María Carolina Skackauskaite,
Sigurður Höskuldsson, Dagbjört Edda Barðadóttir,
Linda Rut, Telma Rós, Alexander Freyr, Ragnar Már,
Lilja Björk, Ragnhildur Sara og Vigdís Karólína.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR BENEDIKTSSON,
fyrrverandi ráðuneytisstjóri,
lést laugardaginn 20. ágúst.
Kristín Claessen,
Ragnheiður Margrét Guðmundsdóttir,
Soffía Ingibjörg Guðmundsdóttir, Þorsteinn Einarsson,
Solveig Lára Guðmundsdóttir, Gylfi Jónsson,
Eggert Benedikt Guðmundsson, Jónína Lýðsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÁSTA BALDVINSDÓTTIR,
Sólvangsvegi 3,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
miðvikudaginn 24. ágúst kl. 13.00.
Stefán Thorarensen, Ástríður Thorarensen,
Baldvin Thorarensen, Ásta Michaelsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝ Lilja Sigfinns-dóttir fæddist í
Seldal í Norðfirði
21. nóvember
1924. Hún lést á
St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði 15.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Sig-
finnur Þorleifsson,
bóndi í Grænanesi
í Norðfirði, og Sig-
ríður Friðriksdótt-
ir húsfreyja, sem
bæði eru látin. Þau
eignuðust 12 börn og var Lilja
elst þeirra.
Lilja giftist árið 1953, Pétri
Valdimarssyni bílstjóra frá
Hraunsholti í Garðabæ, þau slitu
samvistir árið 1971. Börn þeirra
eru: a) Guðmundur Helgi, f.
1954, maki Sigríður Sch. Guð-
björnsdóttir, börn
þeirra Albert
Snær, Sigurlaug
Maren, Sara
Petra, Tjörvi, og
eitt barnabarn,
Sóldís Birta. b)
Hrönn, f. 1959,
maki Óskar Páls-
son, börn þeirra
Pétur Elvar og
Unnar Freyr. c)
Hildur, f. 1962,
maki Steinþór
Stefánsson, börn
þeirra Hrannar og
Andrea.
Lilja flutti ung suður og vann
hin ýmsu störf en lengst af var
hún forstöðukona á Fitjavelli í
Garðabæ.
Hún verður jarðsungin frá
Garðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Elsku mamma, nú ert þú horfin á
braut úr þessum heimi, og eru þær
margar minningarnar sem streyma
um huga minn. Þú varst mikil
kjarnakona og var lífsgleðin og bar-
áttuviljinn einkennandi fyrir þig.
Við mamma vorum miklir vinir og
leit ég ávallt upp til hennar.
Skrítið er nú til þess að hugsa að
nú er ekki lengur hægt að hringja í
þig eða koma heim til þín, mamma
mín, heyra hlátur þinn, sjá brosið
þitt og fá góð ráð hjá þér um hina og
þessa hluti, af þínum lífsins brunni.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Ég mun sakna þín, mamma mín,
en ég veit það að þú verður ekki ein.
Takk fyrir allt og allt, Guð geymi þig
Þín dóttir
Hrönn Pé.
Maður sest niður og lætur hugann
reika um móður sína sem alltaf hefur
verið til staðar. Var hún frekar
stjórnsöm kona eins og litla dóttir
mín ráðskona í sér, enda elst í tólf
systkina hópi. Alltaf var hún tilbúin
að hjálpa og ekki síst með börnin.
Naut sonur minn þess, var aldrei hjá
dagmömmu bara hjá ömmu sinni,
forréttindi það! En dóttir mín er ell-
efu árum yngri, þá snerist dæmið
við, og við fórum að hlúa betur að
henni mömmu. Hún hafði gaman af
dulrænum málum og trúði á líf eftir
dauðann. Mátti aldrei aumt sjá, svo
ég er viss um að vel hefur verið tekið
á móti henni hinum megin, hafðu
þökk fyrir allt og allt elsku mamma.
Minning þín verður ávallt ljós í mín-
um huga.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífs-
ins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleym-
ist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast
þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Þín dóttir
Hildur.
Þótt ég sé látinn, harmið mig
ekki með tárum, hugsið ekki um
dauðann með harmi eða ótta. Ég er
svo nærri, að hvert eitt tár ykkar
snertir mig og kvelur, þótt látinn
mig haldið. En þegar þið hlæið og
syngið með glöðum hug, lyftist sál
mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð
og þakklát fyrir allt sem lífið gefur
og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði
ykkar yfir lífinu.
(Kahlil Gibran.)
Elsku amma.
Með þessum orðum langar mig að
segja þér hve kær þú ert mér og hve
mikils virði þú hefur verið mér.
Ég tel mig mjög lánsama að hafa
fengið að kynnast þér, ég væri ekki
sú sem ég er í dag nema vegna þín.
Þú hafðir stórt hjarta, fullt af visku.
Ég vildi að þú hefðir haft þann eig-
inleika að sjá þig eins og þú ert í aug-
um mínum, þá myndir þú sjá hversu
sérstök þú í rauninni ert.
Þeir segja mig látna, ég lifi samt
og í ljósinu fæ ég að dafna.
Því ljósi var úthlutað öllum jafnt
og engum bar þar að hafna.
Frá litlu hjarta berst lítil rós,
því lífið ég þurfti að kveðja.
Í sorg og í gleði ég senda mun ljós,
sem að mun ykkur gleðja.
(Höf óþ.)
Takk fyrir að hafa verið til staðar í
hjarta mínu, takk fyrir allt elsku
amma mín, hvíldu í friði.
Þín
Sigurlaug Maren.
Elsku amma mín, núna ertu farin
frá okkur og engin orð geta lýst
hversu sárt ég sakna þín. Hálfa ævi
mína hefur þú verið daglegur partur
af lífi mínu og eru minningarnar því
margar. Eins og alltaf þegar ég kom
úr skólanum sast þú í sætinu þínu við
eldhúsborðið og um leið og maður
kom inn fórstu að bjóða manni eitt-
hvað að borða. Þegar ég var búin að
borða var kveikt á sjónvarpinu og
beðið eftir Leiðarljósi. Svona var
þetta á nánast hverjum degi þessi ár
sem ég var hjá þér. Það á eftir að
verða stórt tómarúm í lífi mínu núna
fyrst þú ert farin en ég á allar minn-
ingarnar sem ég get yljað mér við.
Þegar þú kenndir mér að baka
pönnukökur og öll skiptin sem við
fórum í bingó, þú varst farin að velja
spjöld eins og ég kenndi þér og alltaf
sátum við við sama borðið í sömu
sætunum. Svo í hléinu fórum við upp
til þín þar sem kræsingar biðu okkar.
En ein minning er mér þó efst í huga,
þegar þú varst orðin lasin og ég var
að hjálpa þér í rúmið, þá tókstu utan
um mig og kysstir mig. Þá vissi ég að
það færi að koma að því að þú myndir
fara frá okkur en ég veit að nú líður
þér vel, komin til Gísla þíns sem þú
saknaðir svo. Einhvern tímann munu
leiðir okkar liggja saman á ný.
Sara Petra.
Elsku Lilja amma, ég finn fyrir
sárum söknuði nú þegar þú ert farin
frá okkur en einnig þakklæti yfir öll-
um þeim góðu árum sem ég fékk að
njóta með þér.
Við systurnar hittum þig fyrst
þegar ég var sjö ára og Rakel þriggja
ára og þú tókst okkur strax eins og
við værum ömmubörnin þín þú varst
alltaf svo yndisleg og góð við okkur.
Þegar ég og Rakel komum síðast
til þín sagðir þú við okkur að þér
fyndist þú alltaf eiga eitthvað í okkur
systrum og þótti mér vænt um að
heyra það því að ég leit alltaf á þig
sem ömmu mína.
Þú varst yndisleg kona og ég
þakka fyrir að hafa fengið að kynnast
þér.
Ég kveð þig með tárum og vona að
þú vitir hvað mér þótti vænt um þig.
Kveðja
Karitas.
Minningarnar um hana ömmu
mína eru með þeim elstu sem ég hef.
Ekki finnst mér það þó skrítið þar
sem hún ól mig upp að miklu leyti frá
ungbarnsaldri, en báðir foreldrar
mínir voru útivinnandi. Það er að
stórum hluta henni að þakka að ég er
sú manneskja sem ég er í dag og ég
gæti ekki hafa fengið betri lífsleið-
beinanda. Þar sem það var ekki mik-
ið um önnur börn í götunni minni var
hún amma mín minn besti vinur svo
árum skipti, og við tvö ásamt henni
Boggu, sem var eldri kona sem bjó á
efri hæðinni í húsinu sem við bjugg-
um í, áttum aldrei í erfileikum með
að eyða dögunum saman. Þeir vinir
mínir sem hitt hafa ömmu mína vita
að hún var hörkutól, og hræddi hún
þá oft með ákveðni sinni, sem var af
eintómri góðmennsku að sjálfsögðu
og maður lítur um öxl og brosir að
þessu öllu saman. Ég getur ekki ver-
ið annað en þakklátur fyrir allar
góðu minningarnar.
Þitt barnabarn
Hrannar.
Fallin er frá elsku amma mín.
Ég á gríðarlegt magn af góðum
minningum um þig og mun alltaf
bera þær í brjósti mér. Ferðirnar
með þér vestur í sveitina til Gísla
voru alltaf frábærar, ég var 5 ára
þegar ég byrjaði að fara og eftir það
hófst gríðarlegur áhugi á sveit hjá
mér. Enda var mikil spenna fyrir
hverju sumri.
Alltaf hringdi líka amma í mig
þegar hún var með kjötsúpu í mat-
inn, því hún vissi hvað mér þótti hún
svakalega góð. Enda mætti ég nær
undantekningarlaust, stundum tvo
daga í röð.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Guð geymi þig að eilífu, elsku
amma mín, með þökk fyrir allt sam-
an.
Pétur Elvar.
Elsku amma, árin sem ég átti með
þér voru nú ekki mörg, þau hefðu
mátt vera miklu fleiri og ég hefði vilj-
að eiga fleiri stundir með þér.
Mun ég aldrei gleyma vöfflulykt-
inni góðu sem tók oft á móti manni
þegar maður kom í heimsókn og
þetta voru sko ekta vöfflur, engin
pakkavara.
Amma, þú varst mikil nútímakona
og gekkst með gsm-síma eins og við
unglingarnir. Við áttum saman
margar góðar stundir sem ég mun
geyma í hjarta mínu, mér leið alltaf
vel í návist þinni, amma mín.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma kæra.
Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá
í hljóðri sorg og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Guð og englar vaki yfir þér, elsku
amma.
Unnar Freyr.
LILJA
SIGFINNSDÓTTIR
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
LEGSTEINAR
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is