Morgunblaðið - 22.08.2005, Page 27
að baka og hafði af því mikla ánægju.
Hún blandaði sér í umræðurnar eink-
um þegar þær snerust um þjóðmálin.
En þrátt fyrir langan vinnudag tók
hún drjúgan þátt í félagslífinu og var
hún félagi í kvenfélaginu Von og
starfaði bæði á Siglufirði og hér syðra
að málefnum skátahreyfingarinnar.
Meðan þau Jónas bjuggu í Hlíð bjó
Sigfús afi hennar þar með þeim og
henni var það ljúft og skylt að annast
hann. Því var hann eitt af áhyggjuefn-
um hennar þegar þau urðu að hætta
rekstri verslunarinnar eftir mörg
síldarleysisár og flytja suður. Henni
var það þvert um geð að þurfa þá að
yfirgefa æskustöðvar sínar sem hún
unni. En þá var enga vinnu að hafa
svo að nauðug viljug fluttu þau suður
eins og æði margir aðrir höfðu orðið
að gera. Þegar þangað kom urðu þau
að byrja með tvær hendur tómar.
Unnu stíft og lifðu spart og reyndi þá
á ráðdeild og sparsemi Möggu. En
hvenær sem okkur bar að garði töfr-
aði hún fram gómsætan og bragðgóð-
an mat eða kaffimeðlæti. Þau keyptu
sér fljótlega íbúð í Vesturbergi 8 og
leið þar vel og síðar þegar á ævikvöld-
ið leið fluttu þau á Kópavogsbraut 1
B, þjónustuíbúð við Sunnuhlíð.
Við Magga náðum fljótt mjög góðu
sambandi og á það bar aldrei skugga.
Á seinni árum eftir að hún var orðin
ein tók ég að mér ýmis viðvik fyrir
hana. Hún var kröfuhörð um flest og
nákvæm í öllu er peningamál varðaði
og fylgdi þeim fast eftir allt fram á
seinasta ár. En það var fleira en fjöl-
skyldan sem tengdi okkur Möggu því
við vorum miklir samherjar í pólitík-
inni og gjarnan sammála um róttæk
mál enda höfðum við sama skilning á
mikilvægi þess að launafólk stæði
saman um kjör sín og nauðsyn þess að
velja þá fulltrúa til forystu sem
studdu þetta sjónarmið og sýndu mál-
efnum lítilmagnans skilning.
Að leiðarlokum vil ég þakka þér
áhuga, umhyggju og hvatningu sem
þú sýndir okkur, dætrunum og barna-
börnunum okkar. Með áhuga þínum á
velferð okkar allra veittirðu okkur
hvatningu til að meta það góða í lífinu.
Ef til vill lýsir þú lífshlaupi þínu og
eigin glímu við lífið í kveðjunni sem þú
sendir börnum þínum í kvæði
Tryggva Þorsteinssonar þar sem seg-
ir:
Já – gakk til þíns heima, þótt húsið sé lágt,
því heima er flest, sem þú hjartfólgnast átt.
Ef virðist þér örðugt og viðsjált um geim,
þá veldu þér götu sem liggur heim.
Margrét Ólafsdóttir
Ó himins blíða hjartans tár
er hjúpar sorg, þótt blæði sár,
þín miskunn blíð, hún mildar barm,
hún mýkir tregans sára harm.
Þú ert það ljós, það lífsins mál,
er ljúfur drottinn gefur sál.
Nú hljóð er stund, svo helg og fríð
að hjarta kemur minning blíð.
Hún sendir huga bros þitt bjart,
blessar, þakkar, þakkar allt.
Hún minnir sál á sorgaryl,
sendir huggun hjartans til.
(Steinunn Þ. Guðm.)
Blessuð sé minning Möggu
frænku.
Guðbjörg Baldursdóttir
og fjölskylda.
Nú hefur blessunin hún tengda-
móðir mín kvatt þennan heim. Stór-
lynd, heilsteypt mannkostamann-
eskja sem var alin upp ásamt Baldri
bróður sínum hjá afa sínum og ömmu
í Hlíð, þeim Sólveigu Jóhannsdóttur
og Sigfúsi Ólafssyni. Samband þeirra
systkina var mikið og gott og ekki leið
sá dagur að Baldur liti ekki inn í kaffi
hjá systur sinni. En auk þeirra Bald-
urs ólst Steingrímur frændi þeirra
upp í Hlíð og hún nefndi hann í mín
eyru aldrei annað en Steina bróður
sem segir hversu kært var með þeim.
Snemma hefur hún þurft að taka til
hendinni á heimilinu því þótt Sigfús í
Hlíð hafi alla tíð unnið sem verkamað-
ur þá höfðu þau hjón nokkrar skepn-
ur, bæði hesta, kýr og kindur, m.a. til
að fæða heimilið en eins og margir
eldri Siglfirðingar vita fengu ýmsir
fleiri en heimilisfólkið að njóta rausn-
arskapar þeirra. Allan sinn búskap
saumaði hún og bakaði eins og þá
tíðkaðist þrátt fyrir að hún ynni alla
sína tíð meira utan heimilisins en al-
mennt var hjá húsmæðrum. Fyrst hjá
Sjúkrasamlaginu og síðar í búðinni
með manni sínum þar sem hún af-
greiddi og færði bókhald. Varð þá
vinnudagur þeirra oft langur einkum
meðan síldin var og hét. Og þegar
heim kom voru það skyldur húsmóð-
urinnar sem biðu hennar. Marg-
mennt var gjarnan við eldhúsborðið
hjá Möggu í Hlíð og Jónasi og oft
gestkvæmt. Margt bar þar á góma,
bæði þjóðmál og þó einkum íþróttir.
Þá var betra að eiga eitthvað með
kaffinu. Magga töfraði fram heima-
bakaðar kökur en hún var snillingur
✝ Margrét Ólafs-dóttir fæddist í
Hlíð í Siglufirði 1.
september 1921.
Hún lést 12. ágúst
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Þorfinna Sigfús-
dóttir og Ólafur
Vilhjálmsson og eru
þau bæði látin.
Margrét ólst upp
hjá ömmu sinni og
afa, þeim Sólveigu
Jóhannsdóttur og
Sigfúsi Ólafssyni
sem bjuggu mestallan sinn bú-
skap í Hlíð. Einnig ólu þau upp
albróður hennar, Baldur, f. 1925,
d. 1967, og fósturbróður, Stein-
grím Magnússon, f. 1918, d. 1987.
Hann var bróðursonur Sigfúsar
afa hennar og var kvæntur Ester
Sigurðardóttur. Margrét átti átta
hálfsystkini. Sammæðra eru:
Bragi Dýrfjörð, f. 1929, d. 2004,
maki Sigrún Kristinsdóttir, Frið-
rik Jón Dýrfjörð, f. 1931, maki
Erla Eymundsdóttir, Guðmundur
Skarphéðinn Dýrfjörð, f. 1933, d.
1935, Birgir Dýrfjörð, f. 1935,
maki: Kristín Viggósdóttir. Sam-
feðra eru Vilhjálmur, f. 1926,
maki Hjördís Þórðardóttir, Þóra,
f. 1935, maki Gústaf Nilsson,
Guðrún, f. 1937, maki Ólafur
Nilsson, og Jóhann, f. 1943.
Hinn 13. júní 1945 giftist Mar-
grét Jónasi Þ. Ásgeirssyni, f.
25.10. 1920, d. 14. 6. 1996, fyrr-
um kaupmanni á Siglufirði og
síðar sölumanni í
Reykjavík og eign-
uðust þau tvö börn.
Þau eru:1) Sólveig
Helga, myndlistar-
og sérkennari, f.
12. apríl 1945.
Hennar maður er
Einar Long Sigur-
oddsson, aðstoðar-
skólastjóri. Þeirra
börn eru Margrét,
myndlistarmaður
og kennari, f. 3.
maí 1967, í sambúð
með Guðmundi
Ragnarssyni bónda, og Fanney
Long, nemi, f. 27. júlí 1974, maki:
Eggert Gíslason verslunarstjóri,
börn Fanneyjar eru: Katrín
Björg, f. 29. júní 1998, og Gísli, f.
6. mars 2003. 2) Ásgeir, verk-
stjóri, f. 26. ágúst 1948. Hans
kona er Ásdís Hinriksdóttir
hjúkrunarfræðingur. Sonur
þeirra er Jónas Ásgeir, f. 2. júlí
1993.
Margrét vann í tíu ár á skrif-
stofu Sjúkrasamlags Siglufjarð-
ar. Þau hjónin ráku verslunina
Ásgeir á Siglufirði í 11 ár eða
allt til þess að þau fluttu til
Reykjavíkur 1968. Þar sem hún
vann við ýmis verslunar- og
skrifstofustörf. Síðustu 19 starfs-
árin, vann Margrét á læknastofu
hjá Birni Þórðarsyni háls-, nef-
og eyrnalækni.
Margrét verður jarðsungin frá
Vídalínskirkju í Garðabæ í dag
og hefst athöfnin klukkan 15.
Blessuð sé minning þín og þökk
fyrir samfylgdina.
Einar Long Siguroddsson.
Amma mín. Ég held að ég hafi
strax unnið happadrættisvinning í
æsku því að ég eignaðist bestu ömmu
sem hægt er að hugsa sér að eiga.
Hún amma vandaði vel til allra
verka og ömmuhlutverkið var þar
engin undantekning nema síður sé.
Ég er líka heppin að vera elst og hafa
fengið mestan tíma með henni. Hún
var kletturinn í fjölskyldunni og ég
gat alltaf leitað til hennar. Því er mér
ekkert nema þakklæti í huga þegar
ég minnist nöfnu minnar á himnum.
Nú á ég fjársjóð í hjarta mér sem mun
endast mér út lífið hennar vegna.
Amma var kona sem helst vildi
greiða reikningana áður en þeir bár-
ust inn um lúguna. Kona sem gaf öll-
um sömu upphæðina í afmælis- eða
fermingargjafir því að hún vildi ekki
gera upp á milli fólks. Kona sem sveið
allt óréttlæti og þoldi alls ekki ójöfn-
uð. Kona sem var sjálfstæð og hafði
allt sitt á hreinu. Amma var því ein-
staklega góð fyrirmynd fyrir unga
konu eins og mig og ekki var verra að
við áttum margt sameiginlegt og gát-
um alltaf talað saman um heima og
geima. Ömmu fannst gaman að miðla
mér úr viskubrunni sínum og ekki var
verra ef ég leitaði til hennar með við-
fangsefni því þá naut hún sín út í ystu
æsar.
Ekkert hálfkák gætu vel hafa verið
einkunnarorð ömmu.
Síðan þú fórst hef ég fundið svo
sterkt fyrir þér og það er yndisleg til-
finning. Takk fyrir allt gamalt og gott,
amma mín.
Kveðja.
Þín
Margrét.
Elsku amma mín, hún Magga í
Hlíð, kjarnakona frá Siglufirði, er lát-
in.
Í huga mér er þakklæti fyrir um-
hyggju og hlýhug. Þú varst kona með
ríka og einarða réttlætiskennd og
fylgdist vel með þjóðmálunum. Ef
mig vantaði upplýsingar varst þú
rétta manneskjan til að leita til hvert
sem erindið var, ef þú varst ekki full-
komlega viss gekkstu einfaldlega úr
skugga um að það væri rétt.
Trygg varstu og trú öllum þínum,
hvort sem það voru ættingjar eða vin-
ir. Börnin ykkar afa, barnabörn og
barnabarnabörn voru ykkur allt. Fyr-
ir okkur vilduð þið og gerðuð allt sem
þið gátuð, hvatning og stuðningur
hvenær sem var. Hjá þér, amma mín,
lærði ég svo margt nytsamlegt eins
og bakstur, heimilisstörf, fjármál og
stærðfræði. Ég er viss um að ef þú
hefðir verið ung í dag þá værirðu orð-
in milljónamæringur á verðbréfa-
markaðnum, því þú varst svo akkúrat,
fylgdist vel með öllu og ákveðin í því
sem þú tókst þér fyrir hendur.
Mikið þykir mér vænt um þig,
amma mín, ég er ánægð og stolt yfir
að hafa átt þig að og er ríkari fyrir
vikið. Þakka þér samfylgdina og allt
sem þú hefur gefið mér og fjölskyldu
minni. Blessuð sé minning þín.
Fanney Long Einarsdóttir.
Í dag kveðjum við hinstu kveðju
sæmdarkonuna Margréti Ólafsdóttur
frá Siglufirði, hana Möggu í Hlíð eins
við kölluðum hana. Lengst af bjó hún í
Hlíð við Hlíðarveg á meðan hún var á
Siglufirði, þar sem þau hjónin Jónas
Ásgeirsson áttu fallegt heimili með
börnum sínum Ásgeiri og Sólveigu.
Það var skemmtilegt að alast upp í
Reitnum á Siglufirði í næsta nágrenni
við Hlíð og kynnast þeim Möggu og
Jónasi mjög náið, Möggu, sem síðar
varð mágkona mín og alltaf var boðin
og búin til að taka á móti okkur skíða-
gaurum sem vildu ræða við skíða-
kappann Jónas Ásgeirsson. Jónas var
nokkru eldri en við bræður, en samt
áttum við samleið bæði á skíðum og í
fótbolta. Heimili þeirra hjóna stóð
okkur alltaf opið þar sem fram fóru
fjörugar umræður um íþróttamálin,
bæjarmálin, landsmálin og stjórnmál
almennt. Magga tók að sjálfsögðu
þátt í umræðunum um leið og hún bar
í okkur góðgerðirnar. Sjaldnast voru
allir sammála, sérstaklega þó um
bæjarmálin og urðu samkomurnar í
Hlíð oft ærið hávaðasamar. Ekki áttu
þau samleið í pólitík Magga og Jónas
þótt maður yrði þess ekki var í sam-
skiptum, en Jónas hafði einhverntíma
á orði að það væri engin leið að snúa
henni Möggu, það yrði sennilega að
skipta um blóð í henni ef það ætti að
takast.
Á Siglufirði ráku þau Magga og
Jónas lengst af verslunina Ásgeir þar
sem selt var allt milli himins og jarðar
eins og gerist í slíkum verslunum í
dreifbýlinu. Í þeim rekstri er óhætt að
segja að Magga hafi verið kjölfestan,
sá um fjármál og reikningshald jafn-
framt því að taka þátt í daglegum
störfum í versluninni, en Jónas ann-
álaður sölumaður sem m.a. var sagt
um að engum sleppti út úr búðinni án
viðskipta því ef hlutur var ekki til sem
um var spurt þá tókst honum yfirleitt
að selja eitthvað annað.
Þau hjónin hættu verslunarrekstri
og fluttu suður á árinu 1967 eftir
mörg mögur síldarár á Siglufirði.
Fyrstu árin í Reykjavík starfaði
Magga við verslunar- og skrifstofu-
störf en gerðist síðan læknaritari og
vann alla tíð hjá sama lækni þar til
hún hætti störfum fyrir nokkrum ár-
um, en Jónas lést á árinu 1996.
Það eru margar ánægjustundir
sem við hjónin höfum átt með þeim
Möggu og Jónasi á liðnum árum, á
heimilum okkar, í ferðalögum, á skíð-
um og víðar. Það eru yfir 60 ára kynni
og samvera sem aldrei hefur borið
skugga á. Nú er samferð okkar lokið í
þessum heimi, en minningin lifir um
trausta og dugmikla konu.
Ég bið Möggu blessunar og votta
börnunum Ásgeiri og Sólveigu og fjöl-
skyldum þeirra samúð okkar hjóna.
Ólafur Nilsson.
Margar af mínum fyrstu minning-
um í lífinu snerta þá gesti sem voru
hvað tíðastir í Smáratúninu hjá ömmu
og afa þegar ég var að alast upp. Af
öllum þessum gestum voru Magga
frænka og Jónas alltaf í miklu uppá-
haldi. Þau komu iðulega á sunnudög-
um, uppáklædd í sitt fínasta púss og
alltaf voru þau jafn hress og skemmti-
leg. Það er ekki hægt að segja að fjöl-
breytileikinn hafi ráðið ríkjum þegar
þau hjónin tóku sunnudagsrúntinn
sinn til Keflavíkur. Amma hafði alltaf
safnað Víkurfréttum fyrir Jónas sem
hann las svo spjaldanna á milli líkt og
innfæddur Keflvíkingur og reykti
pípuna sína með góðu lyktinni, á með-
an afi sat hjá honum í stofunni og las
sunnudagsmoggann. Amma og
Magga sátu hins vegar við borðstofu-
borðið, hlaðið kræsingum, og var um-
ræðuefnið nánast alltaf hið sama,
Siglfirðingar nær og fjær, lífs eða
liðnir. Þær voru sem betur fer líklega
sammála um að umræðuefnið væri
óþrjótandi brunnur, enda hefur það
enst þeim hingað til. Þessar frænkur
og vinkonur gátu setið klukkustund-
um saman og rætt þann undraheim
sem Siglufjörður var á þeirra upp-
vaxtarárum og sagt okkur hinum sög-
ur hvor af annarri sem voru þó mis-
jafnlega sannar. Þær áttu stundum til
að vera ósammála um atburðarásir
þess sem um var rætt eða jafnvel
skyldleika milli bæjarbúa og þá urðu
oft læti. Stundum var barið í borð þar
til önnur gaf eftir, þó alltaf væri það
gert meira í gríni en alvöru og aldrei
varð þeim sundurorða.
Þessar samverustundir sem við
fjölskyldan áttum með Möggu og
Jónasi eru ómetanlegar enda voru
þau einstök bæði tvö og þeirra verður
lengi minnst. Um leið og ég votta fjöl-
skyldunni samúð mína, fyrir hönd
okkar frændfólksins í Keflavík, vil ég
þakka Möggu frænku fyrir allar
skemmtilegu stundirnar.
Júlía Jörgensen.
Fyrstu kynni mín af Möggu Ólafs,
eins og hún var alltaf kölluð, voru þeg-
ar ég var níu eða tíu ára gamall. Ég
var að keppa á gönguskíðamóti sem
Jónas heitinn Ásgeirsson, maður
Margrétar, stjórnaði af sinni alkunnu
snilld og dugnaði.
Kappið í mér var það mikið að ég
kom stafalaus í mark vegna þess að
mér þótti óþægilegt að hafa ólarnar
um úlnliðinn eins og gera átti.
„Komdu niður í búð til mín í fyrra-
málið og ég skal kenna þér að halda á
stöfunum,“ sagði Jónas við mig ný-
kominn í mark og lafmóðan eftir
keppnina.
Ég mætti um leið og skóla lauk í
verslunina Ásgeir, eins og búð þeirra
hjóna hét, og þurfti Jónas fyrst að
skreppa niður á Hafnarbryggju að
sækja vörur sem þá voru fluttar sjó-
leiðis til Siglufjarðar, smjörlíkiskass-
ar voru teknir í þessari ferð og bíllinn
fylltur. Ég fékk að bera kassa með
Jónasi í bílinn og úr honum inn á lager
í búðinni.
Þetta var upphafið að göngu minni í
einum af skólum lífsins, „Verslun-
arháskóla Möggu og Jónasar á Siglu-
firði“.
Hjá þeim hjónum var ég síðan
sendill í mörg ár og met það sem mik-
ið happ fyrir mig. Bæði að kynnast
starfinu og ekki síður að njóta sam-
vista við þetta sómafólk.
Jónas var skemmtilegur og uppá-
tækjasamur grallari. Möggu haggaði
fátt og hún var stoð og stytta Jónasar,
oft inni á skrifstofu að vinna í papp-
írum og halda þeim í röð og reglu.
Mér er það minnisstætt hvað Magga
hafði fallega rithönd og að mánaðar-
kúnnar búðarinnar þurftu aldrei að
velkjast í vafa um neitt þegar Magga
færði vörukaupin í reikningabókina,
hver hlutur var skrifaður niður ásamt
upphæð, síðan lagt saman og rukkað
einu sinni í mánuði.
Magga var mér í raun og veru á
þessum árum sem önnur móðir, sífellt
að segja mér til og veita leiðsögn bæði
hvað varðaði viðskipti svo og almenn-
ar reglur sem börn og unglingar eiga
að læra á mótunarárum sínum. Hún
var mjög brosmild, annað var nátt-
úrlega ekki hægt í þessu umhverfi
sem búðin þeirra og lífið á Sigló var á
þessum árum, alltaf mikið um að vera,
fjölmargir kúnnar og stöðugur
straumur fólks í bænum. Búðin þeirra
var miðsvæðis og miklu stærri og
mikilvægari heldur en Kaupfélagið,
sem þó var stærra í fermetrum.
Verslunin Ásgeir var í raun og veru
aðalbúð og félagsmiðstöð bæjarins á
þessum árum.
En síldin hvarf og margir Siglfirð-
ingar þurftu að flytja suður. Jónas og
Magga þurftu þess líka – því miður.
Enginn getur ímyndað sér hversu
mikil blóðtaka það var fyrir Siglufjörð
að sjá á eftir öllu þessu góða fólki sem
fór vegna þess að vinna dróst saman.
Allt hélt það þó áfram að vera góðir
Siglfirðingar þótt það settist að víðs
vegar um landið. Jónas og Magga
settust að í höfuðborginni og Jónas
vann sem bílasali hjá Sveini Egilssyni
en Magga starfaði sem læknaritari.
Mannkostir Möggu nutu sín vel í því
starfi. Hún var lipur í samskiptum,
mannglögg og samviskusöm og áfram
róleg og brosmild.
Ég naut þess að koma í heimsókn
til þeirra í Reykjavík og rifja upp
gömlu góðu dagana, fá góðar sögur og
svara fyrirspurnum þeirra hjóna um
fólk og málefni heima á Siglufirði, því
alltaf fylgdust þau vel með öllu þar og
þurftu að fá allar nýjustu upplýsing-
arnar.
Síðasta heimsókn mín og konu
minnar til Möggu á heimili hennar í
Kópavogi var rétt fyrir síðustu jól og
var þar mikið rætt um m.a. landsmál-
in og Siglufjörð. Á borðinu við hliðina
á hægindastól hennar var merkilegt
plagg, manntal fyrir Siglufjörð árið
1963. Magga sagðist oft fletta upp í
þessu riti til að rifja upp rifja upp nöfn
manna og um leið gamla atburði
tengda þeim. Við vorum sammála um
að þetta voru góðir tímar á Siglufirði.
Við flettum líka upp ýmsum húsum á
Siglufirði í manntalinu og alveg sér-
staklega þessum sem voru með 10 og
jafnvel fleiri íbúa skráða. Þá var oft
þröngt setið.
Hið mikla geymir minningin
en mylsna og smælkið fer.
(J. Þ.)
Minningar mínar um Möggu og
MARGRÉT
ÓLAFSDÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2005 27
MINNINGAR
LEGSTEINAR
Englasteinar
Helluhrauni 10
220 Hfj. S. 565-2566