Morgunblaðið - 26.08.2005, Síða 1

Morgunblaðið - 26.08.2005, Síða 1
STOFNAÐ 1913 229. TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Þungarokk í Neskaupstað Eistnaflug 2005 — Metalfest hald- ið næstkomandi laugardag | 51 Bílar og Íþróttir í dag Bílar | Askja ekur B-línunni af stað  Dísilvél sem kem- ur á óvart Íþróttir | Breiðablik meistari í 1. deild karla  Mainz lagði Keflavík 2-0 í UEFA-bikarnum Bagdad. AFP, AP. | Þriðji frestur íraska þingsins til að ljúka samn- ingaviðræðum um drög að nýrri stjórnarskrá rann út í gærkvöldi og var framlengdur um einn sólarhring þar sem fulltrúar súnníta neituðu enn að samþykkja drögin. Stjórn- arskrárdrögin voru því ekki borin undir atkvæði á þinginu í gær eins og stefnt var að en haft var eftir samningamönn- um í gærkvöldi að þeir vonuðust enn eftir sam- komulagi. Hajim al-Hassani, for- seti þingsins, sagði að stjórnar- skrárdrögin yrðu borin undir þjóð- aratkvæði 15. október þótt fulltrúar súnníta samþykktu þau ekki. Upphaflega var gert ráð fyrir því að stjórnarskrárdrögin yrðu lögð fyrir þingið 15. ágúst en samninga- viðræðurnar hafa dregist á langinn vegna deilna um nokkur mikilvæg mál, meðal annars ákvæði um að Írak eigi að vera sambandsríki, hlut- verk íslam og skiptingu olíuauðsins. Vona að súnnítar gefi eftir Þingmenn íraskra sjíta og Kúrda, sem eru í meirihluta á þinginu, náðu samkomulagi um ófullgerð stjórnar- skrárdrög sem lögð voru fyrir þingið á mánudag. Þeim hefur hins vegar ekki tekist að fá súnní-araba til að samþykkja drögin en samninga- mennirnir vonuðu þó enn í gær- kvöldi að fulltrúar súnníta gæfu eft- ir. Þingmenn sjíta og Kúrda eru nógu margir til að samþykkja drög- in með tilskildum þingmeirihluta en sameinist súnnítar gegn þeim geta þeir fellt drögin í þjóðaratkvæða- greiðslunni í október. Þriðji frest- ur íraska þingsins rennur út  Blóðug átök | 16 Hajim al-Hassani SIGURJÓN Sighvatsson, kvik- myndaframleiðandi, mun að öllum líkindum kaupa verk Ólafs Elías- sonar, Blinda skálann, sem staðið hefur í Viðey í sumar en Menning- ar- og ferðamálaráð Reykjavíkur samþykkti á miðvikudaginn að ganga til samninga við Sigurjón um kaup á sýningarrétti til tveggja ára í viðbót. Minnihluti ráðsins sat hjá við ákvörðunina. Stefán Jón Hafstein, formaður ráðsins, segir að ekki hafi enn ver- ið gengið frá formsatriðum varð- andi málið en að borgin sé tilbúin að greiða Sigurjóni eina milljón króna á ári næstu tvö ár, ásamt tryggingakostnaði. Ólafur lánaði verkið endurgjaldslaust í vor, en borgin greiddi tæpar tvær millj- ónir króna fyrir flutning og upp- setningu verksins. Sýn á framtíð Viðeyjar „Samkvæmt samningi átti að taka verkið niður í vikunni en Sig- urjón spurði hvort okkur væri akkur í að hafa verkið áfram í Við- ey. Við vorum tilbúin að athuga málið í samhengi við ýmislegt ann- að sem við erum að gera,“ segir Stefán. „Við viljum leggja okkar af mörkum til að verkið verði þarna áfram og við ætlum að kynna bet- ur verk Richards Serra sem hefur verið í eynni í fimmtán ár, en hann og Ólafur eru meðal stærstu núlif- andi myndlistarmanna. Næsta sumar munu myndhöggvarar sýna útiverk í eynni í tengslum við al- þjóðlegt verkefni og grunnskóla- börn munu koma að því. Okkar sýn er að Viðey verði aðlaðandi ferðamannastaður með menning- artengdu ívafi.“ Stefán segir tryggingaverð verksins vera 225.000 evrur en markaðsvirðið hljóti þó að vera tugir milljóna króna. Hann segir óvenjulegt að greiða fyrir sýning- arrétt til skamms tíma en segir verð listaverksins mun hærra en svo að borgin geti keypt það. Þá telur hann kostnað við sýningar- réttinn ekki mjög háan. Verkið hafi verið sýnt á Feneyjatvíær- ingnum og hlotið mikla athygli. Ólafur Elíasson selur Sigurjóni Sighvatssyni Blinda skálann Borgin greiðir fyrir sýn- ingarrétt í Viðey í tvö ár Eftir Hrund Þórsdóttur hrund@mbl.is VERKTAKAR á vegum Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar unnu að því í gærkvöldi að setja upp ný umferðarljós á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Nýju ljósin eru á sérstökum umferðarljósabrúm, eins og sjá má á myndinni, og var stefnt að því að ljúka uppsetningu þeirra í nótt. Neðri mörk brúnna eru í 5,25 metra hæð. Nýju ljósin verða þó ekki tekin í notkun fyrr en á sunnudaginn, að sögn Dagbjarts Sigur- brandssonar hjá framkvæmdasviði Reykja- Með breytingunum verða sérstök umferðar- ljós fyrir beygjuumferð annars vegar og sér- stök ljós fyrir umferð beint yfir gatnamótin hins vegar. Dagbjartur segir að með þessu verði unnt að taka í notkun svonefnd fjögurra fasa gatnamót en í því felst að sérstök beygju- ljós verða á öllum beygjuakreinum á gatnamót- unum. Fram að þessu hafa ljós á beygjuakrein- um frá Kringlumýrarbraut inn á Miklubraut einungis verið virk frá kl. 19.30 á kvöldin til 7.00 á morgnana. víkurborgar. Hann segir að slökkt verði á um- ferðarljósum við gatnamótin frá klukkan átta um morguninn og fram eftir degi á sunnudag meðan unnið er að breytingunum. Dagbjartur segir að einnig verði slökkt á ljósunum í nokkrar klukkustundir á mánudagsmorgni vegna enduruppsetningar á stýrisbúnaði ljós- anna. Ekki þurfti að slökkva á ljósunum í gær- kvöldi vegna uppsetningarinnar, en umferð var stöðvuð í stutta stund á meðan brýrnar voru hífðar upp og þeim komið fyrir. Morgunblaðið/Júlíus Nýjum umferðarljósum komið fyrir Fjögurra fasa gatnamót tekin í notkun á sunnudag Tókýó. AFP. | Reykingafólki hefur fækkað svo stórlega í Japan á síð- ustu árum að eina tóbaksfyrirtæki landsins hefur brugðið á það ráð að bjóða reykingamönnum gull, sjón- varpstæki og miða á forsýningu kvikmyndar frá Hollywood. Reykingamennirnir þurfa að senda fyrirtækinu póstkort þar sem þeir svara nokkrum léttum spurn- ingum um nýja sígarettutegund og lýsa því yfir að þeir reyki. Einn reykingamannanna fær gullstangir að andvirði 4,6 milljóna króna, hundrað fá hágæðasjónvarpstæki og 75 fá tvo miða á forsýningu vin- sællar bandarískrar kvikmyndar. Nýleg könnun bendir til þess að 29,4% fullorðinna Japana reyki og að reykingamennirnir hafi ekki verið jafnfáir í áratugi. Bjóða gull og græna skóga ♦♦♦ SIGURJÓN segir um mjög athygl- isvert verk að ræða og að fengur sé í að hafa það á landinu. „Ólafi bauðst að selja það til Ameríku en hann vildi það ekki. Honum fannst spennandi að hafa það einhvern tíma í Viðey, og nálægðin við Serra er ekki verri,“ segir Sigurjón. „Við Ólafur höfum ákveðnar hugmyndir um framhaldið og verkið verður örugglega á áhugaverðum stöðum á landinu í ákveðinn tíma í senn.“ Blindi skálinn er fyrsta stóra úti- verkið sem Sigurjón kaupir og stað- festir hann að kaupverðið hlaupi á tugum milljóna. Hann segir gott að verkið sé umdeilt. „Þá fara vonandi fleiri til að sjá það,“ segir hann. „Þetta er spurning um hvernig við sjáum umhverfið og hægt er að skoða það út frá sjónarhorni verks- ins hverju sinni. Þetta er líka inn- legg í umræðuna um Viðey, en ég er alveg á móti byggð þar.“ Ákveðnar hugmyndir um framhaldið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.