Morgunblaðið - 02.09.2005, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2005 57
KRINGLAN AKUREYRI KEFLAVÍK
STRÁKARNIR OKKAR kl. 11.30
DUKES OF HAZZARD kl. 6.30 - 8.30 - 10.40
RACING STRIPES m/ísl.tali kl. 4.20 - 6
HERBIE FULLY LOADED kl. 4.20 - 6.30 - 8.30
DECK DOGZ kl. 8.30
MADAGASCAR m/ísl.tali kl. 4
BATMAN BEGINS kl.10.30 B.i. 12 ára.
DUKES OF HAZZARD kl. 8 - 10
RACING STRIPES m/ísl.tali. kl. 6
HERBIE FULLY LOADED kl. 6 - 8
SKELETON KEY kl. 10
DÝRLEGT GRÍN
OG GAMAN OG
FRÁBÆR
SKEMMTUN
FYRIR ALLA.
DÝRIN TALA OG ÞAÐ MEÐ STÆL.
SEBRAHESTUR ER ÁKVEÐINN AÐ
GERAST VEÐHLAUPA HESTUR
HVAÐ SEM TAUTAR. FRÁBÆR
DÝRLEGT GRÍN OG GAMAN OG FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR ALLA. DÝRIN TALA OG ÞAÐ
MEÐ STÆL. SEBRAHESTUR ER ÁKVEÐINN AÐ GERAST VEÐHLAUPAHESTUR HVAÐ SEM
TAUTAR.
SÝND BÆÐI
MEÐ ENSKU
OG
ÍSLENSKU
TALI
SÝND MEÐ ENSKU TALI
THE ISLAND kl. 8 - 10.30 B.i. 16 ára.
THE ISLAND VIP kl. 3.30
MADAGASCAR m/ensku tali kl. 6
MADAGASCAR m/ísl.tali kl. 4
HANN ER RÖNG HESTATEGUND... EN MEÐ RÉTTU SAMBÖNDIN! ... I !
DUKES OF HAZZARD kl. 8 - 10
RACING STRIPES m/ísl.tali. kl. 6
HERBIE FULLY LOADED kl. 6
BÍTLABÆRINN KEFLAVÍK kl. 8
HOSTAGE kl. 10
NÝ GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA ÍSLENSKA
DRAUMSINS OG MAÐUR EINS OG ÉG
S.V. / Mbl.. . / l.
ATH
!
MIÐN
ÆTU
RSÝ
NING
Í KR
INGL
UBÍÓ
KL.
23.3
0
Í KVÖLD verður kvikmyndin
Strákarnir okkar frumsýnd.
Myndin fjallar um Óttar Þór, að-
alstjörnu KR sem veldur miklu
írafári þegar hann játar fyrir liðs-
mönnum sínum á miðju leik-
tímabili, að hann sé hommi. Í
framhaldinu leggur hann í innri
leiðangur til að finna sjálfan sig
og gengur þá til liðs við áhuga-
mannafélag manna í svipaðri
stöðu; homma sem vilja spila fót-
bolta, í veröld þar sem allt snýst
um karlmennsku og testósteron.
Strákarnir okkar fjallar um Ótt-
ar Þór og samskipti hans við fyrr-
verandi eiginkonu sína, fjórtán ára
son, samfélag samkynhneigðra,
foreldra og nýja kærastann á
mannlegan og gamansaman hátt.
Myndin var tekin upp í Reykjavík
og nágrenni síðastliðið sumar.
Með helstu hlutverk fara Björn
Hlynur Haraldsson, Helgi Björns-
son, Sigurður Skúlason, Lilja
Nótt, Arnmundur Ernst, Björk
Jakobsdóttir og fleiri.
Björn Hlynur Haraldsson sem
leikur Óttar Þór segist spenntur
fyrir frumsýninguna en hann hef-
ur ekki séð myndina ennþá. „Ég
sé hana bara í kvöld eins og aðrir
frumsýningargestir. Ég er hins
vegar með miklar væntingar til
myndarinnar og hef alltaf haft
mikla trú á henni, allt frá því að
ég sá handritið fyrst fyrir um
tveimur árum.“
Aðspurður hvort það hafi verið
öðruvísi að leika samkynhneigða
persónu segir Björn ekki hafa
kannast við það. „Það er helst að
maður lærði hvernig á að líma
liminn aftur fyrir rass.“
Frumsýning | Strákarnir okkar
Björn Hlynur leikur knattspyrnumanninn Óttar sem kemur út úr skápnum.
Hommabolti
Strákarnir okkar verður frumsýnd
í Háskólabíói og Sambíóunum í
Reykjavík, Keflavík og Akureyri í
kvöld.
BENNI Hemm Hemm leikur í Tjarnarbíói í kvöld en til-
efni er útkoma fyrstu sveitarinnar. Platan samanstendur
af 12 lögum, sem tekin voru upp í Sundlauginni, Mos-
fellsbæ og Klink og Bank. Smákökurnar gefa plötuna út,
en dreifing er í höndum 12 Tóna.
Hljómsveit Benna Hemm Hemm er skipuð 13 hljóð-
færaleikurum: Leifur Jónsson og Finnur Ragnarsson
leika á básúnur, Sturlaugur Björnsson leikur á horn,
Ingi Garðar Erlendsson leikur á alt-horn, Elsa Kristín
Sigurðardóttir leikur á kornett, Áki Ásgeirsson og Eirík-
ur Orri Ólafsson leika á trompeta, Helgi Svavar Helga-
son leikur á trommur, Davíð Þór Jónsson leikur á bassa-
gítar, Gestur Guðnason og Róbert Sturla Reynisson
leika á gítara og Ólafur Björn Ólafsson leikur á klukku-
spil og rhodes, en Benedikt Hermann Hermannsson
syngur og leikur á gítar. Ragnar Kjartansson kemur
fram sem sérstakur gestur sveitarinnar. Einnig kemur
fram á tónleikunum Stórsveit Nix Noltes
Tónlist | Benni Hemm Hemm gefur út breiðskífu
Tónleikar í
Tjarnarbíói
Hljómsveit Benna Hemm Hemm er fjölmenn.
Forsala aðgöngumiða fer fram í 12 Tónum. Húsið verður
opnað klukkan 21.
DESTINY’S Child var valin
besta poppsveit heims á Heims-
tónlistarverðlaunahátíðinni 2005,
sem haldin var í Los Angeles í
fyrradag. Pamela Anderson af-
henti Beyoncé Knowles, Kelly
Rowland og Michelle Williams
verðlaunin.
Þá hlaut Mariah Carey verð-
launin sem vinsælasti r&b lista-
maðurinn og rapparinn The
Game var valinn besti nýliðinn í
karlaflokki. Snoop Dogg var
krýndur konungur r&b lista-
manna. Á meðal annarra verð-
launahafa voru Gwen Stefani,
fyrir plötu sína Love.Angel.-
Music.Baby. og á meðal frægra
gesta voru tennisstjarnan Anna
Kournikova, Alanis Morrisette
og Sharon Osbourne. Kynnar
voru Carmen Electra og James
Denton, sem leikur í þáttunum
um Aðþrengdar eiginkonur.
Electra notaði tækifærið til að
fara úr öllum fötum nema nær-
fatnaði.
Destiny’s Child besta poppsveit veraldar
Reuters
Pamela Anderson afhenti stúlkunum verðlaunin.