Morgunblaðið - 18.09.2005, Page 6

Morgunblaðið - 18.09.2005, Page 6
6 SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N /S IA .I S LY F 29 50 6 09 /2 00 5 www.lyfja.is - Lifið heil Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að kynna sér upplýsingar um notkun í fylgi- seðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun, varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingumumlyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf nema að ráði læknis. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar. Nýtt í Lyfju Nicorette Freshmint 210 stk. 20% afsláttur í september LÁTTU REYKLAUSA DRAUMINN RÆTAST AFSLÁTTURINN GILDIR AF FRESHMINT 210 STK. 2 MG og 4 MG. GUÐLAUGUR Þór Þórðarson, þingmaður og borgarfulltrúi í Reykjavík, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins vegna borgarstjórnar- kosninganna í vor. Í viðtali við Morgunblaðið segir hann þetta hafa verið erfiða ákvörð- un, sem hafi annaðhvort snúist um að gefa kost á sér í fyrsta sæti í próf- kjörinu eða sækjast eftir einu af for- ystusætum í Reykjavík fyrir næstu alþingiskosningar. Hann valdi síðar- nefnda kostinn. Guðlaugur Þór lýsir jafnframt yfir stuðningi við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson í fyrsta sætið í kom- andi prófkjöri. Guðlaugur Þór segir að ákvörðun- in hafi af mörgum ástæðum verið erf- ið. Hann hafi í átta ár starfað á vett- vangi borgarinnar og lagt mikið af mörkum. Á sama hátt hafi sér verið treyst til að vera þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík fyrir síðustu þingkosningar. „Val mitt stóð á milli þess að bjóða mig fram í fyrsta sætið í prófkjörinu, eða sækjast eftir aukinni ábyrgð á vettvangi landsmála. Eftir að hafa farið gaumgæfilega yfir málin, er það niðurstaðan að ég ætla að sækjast eftir auknum áhrifum á vettvangi landsmála, þrátt fyrir að mörg tæki- færi séu á vettvangi borgarinnar. Ég er vongóður um að við munum vinna kosningarnar í vor. Á sama hátt eru mikil tækifæri í landsmálunum. Ég er í 2. sæti fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavíkurkjördæmi norður og stefni að því að vera í forystusveit flokksins á landsvísu,“ segir Guð- laugur Þór. Hann segir marga hafa hvatt sig til að skella sér í slaginn um oddvita flokksins í borgarstjórn, jafnt vinir, kunningjar sem ókunnugt fólk. Af þeim sökum hafi hann tekið sér góð- an tíma í umhugsun. Spurður hvort eitthvað hafi ráðið ákvörðun sinni öðru fremur segir Guðlaugur Þór að í raun hafi verið um „lúxusvandamál“ að ræða, ef svo megi að orði komast. „Ég er þakklátur fyrir tækifærin bæði í borgarstjórn og á Alþingi og hef notið þess að vera á báðum þess- um stöðum. Ég hef náð árangri í ýmsum mikilvægum málum fyrir borgarbúa. Stundum fékk ég reynd- ar á mig gagnrýni fyrir of harða stjórnarandstöðu. Sú gagnrýni heyr- ist ekki lengur, þar sem komið hefur í ljós að allt sem ég var að benda á reyndist rétt. Hvort sem um var að ræða lóðaskort, fjármál borgarinnar eða málefni Línu.nets. Þegar ég lít til baka sé ég að barátta mín skilaði ár- angri á mörgum sviðum. Mörg minna baráttumála hafa náð fram að ganga,“ segir Guðlaugur Þór og nefnir þar m.a. tillögu um að nýta slippsvæðið undir blandaða byggð, flutning olíutanka úr Örfirisey, breytta nýtingu á Miklatúni, bætta samkeppnisstöðu einkarekinna leik- skóla og björgun Laugardalsins frá malbiki og stórhýsum. „Verkinu er alls ekki lokið. Mik- ilvægt er að sjálfstæðismenn taki við stjórn borgarinnar, hefji þar upp- byggingu á nýjan leik og sjái til þess að tækifærin í borginni verði nýtt.“ Vilhjálmur getur leitt flokkinn til sigurs í borginni Guðlaugur Þór er sannfærður um að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, odd- viti sjálfstæðismanna í borgarstjórn í dag, muni leiða flokkinn til sigurs í kosningunum í vor, fái hann til þess tækifæri. Vilhjálmur hafi þann kost að hann hlusti á fólk og beri virðingu fyrir því. Hann hafi traust borgarbúa og búi yfir mikilli reynslu og þekk- ingu til að takast á við erfið en um leið spennandi verkefni, að koma Reykjavíkurborg aftur í fremstu röð á sem flestum ef ekki öllum sviðum. Guðlaugur Þór er spurður hvort framboð Gísla Marteins Baldursson- ar í fyrsta sætið í borginni hafi haft áhrif á hans ákvörðun. Hann segir svo ekki hafa verið. Hins vegar muni hann styðja Gísla Martein í efstu sætin í prófkjörinu. „Þar fer efnilegur sóknarmaður sem mikilvægt er að hafa framarlega í liðinu. Hann þarf meiri reynslu til að verða fyrirliði og ég mun styðja hann í allra efstu sætin á listanum. Mér líst vel á þann hóp sem hefur gefið kost á sér, hef starfað með þeim flestum og ber þeim vel söguna. Við erum að velja lið en áherslan hefur svolítið verið á leiðtogann og borg- arstjóraefnið. Við þurfum að skapa sterkt og samhent lið. Ærin verkefni eru framundan og sannarlega eru fleiri spennandi stöður á vellinum heldur en bara fyrirliðastaðan,“ segir Guðlaugur Þór. Í hans augum er verkefni borgar- stjórans í Reykjavík eingöngu eitt, þ.e. að vinna fyrir fólkið í borginni. Þjóðin í þakkarskuld við Davíð Hann stefnir sem fyrr segir á landsmálin, þar bíði mörg spennandi verkefni. Guðlaugur Þór segir brott- hvarf Davíðs Oddssonar úr lands- málunum vera stór tíðindi og enginn velkist í vafa um ótrúleg afrek hans á þeim vettvangi síðustu árin. Þjóðin standi í mikilli þakkarskuld við Dav- íð. Nú séu framundan mörg skemmtileg verkefni undir stjórn Geirs H. Haarde og nýrrar forystu Sjálfstæðisflokksins. „Ég vil taka þátt í því verkefni, þrátt fyrir að ég muni ekki draga af mér á næstu mánuðum í baráttunni fyrir því að koma sjálfstæðismönnum aftur í forystu í borginni.“ Hann seg- ir verkefni borgarfulltrúans hafa ver- ið góðan grunn fyrir þingmanns- starfið. Hann hafi verið ófeiminn við að taka upp á Alþingi ýmis hags- munamál Reykvíkinga. Meira þurfi að gera af því og hann segist ekki vera í vafa um að málflutningur sinn og fleiri þingmanna hafi haft þau áhrif að 2/3 hlutar Símapeninganna til samgöngumála hafi farið í sam- göngubætur á höfuðborgarsvæðinu. Nýta þurfi samgöngumannvirkin í borginni betur og gera þar umbætur, að öðrum kosti muni samgöngukerfið springa á álagstímum. Þar þurfi bæði ríki og borg að taka höndum saman og ekki síst sé þörf á nýju hugarfari borgaryfirvalda. Gleymum ekki öldruðum Fjölskyldumálin standa Guðlaugi Þór nærri og telur hann það vera verkefni hans kynslóðar að sameina virka þátttöku í atvinnulífinu og fjöl- skyldulífi. Að því borði verði ríki, sveitarfélög og atvinnulífið að koma. Honum eru einnig mörg mál hug- leikin, sem hann telur að ná megi betri árangri við. Sem nokkur dæmi nefnir hann útrás í heilbrigðiskerfinu og auðveldlega megi gera Reykjavík og Ísland enn frekar að alþjóðlegri fjármálamiðstöð. „Við megum heldur ekki gleyma þeim sem hafa byggt þetta allt saman upp fyrir okkur. Við þurfum sérstak- lega að huga að málefnum aldraðra. Þar eru ákveðnir hópar sem ekki hafa notið góðs af verðmætaaukning- unni í þjóðfélaginu og það þurfum við að bæta,“ segir Guðlaugur Þór, og nefnir einnig umhverfismál sem mik- ilvægan málaflokk. Íslendingar séu matvælaframleiðendur og ferða- mannaþjóð sem bjóði upp á einstaka og ósnortna náttúru, nokkuð sem fólk í öðrum löndum hafi ekki tæki- færi á að kynnast nema hér á landi. „Skilgreina þarf betur viðskipta- stefnu Íslands. Tollar og vörugjöld eru í eðli sínu hluti af haftastefnu og stuðla að því að ýta verslun út úr landinu og skerða lífskjör. Það er ei- lífðarverkefni að halda álögum á fólki og fyrirtækjum í lágmarki og koma í veg fyrir útþenslu og óþarfa afskipti hins opinbera. Enn er mikið verk óunnið við að hrinda grundvallarhug- sjónum sjálfstæðisstefnunnar í fram- kvæmd. Halda verður áfram að auka frjálsræði í atvinnulífinu og efla verð- mætasköpun sem m.a. getur staðið undir öflugri samhjálp fyrir alla þá sem á henni þurfa að halda. Ég von- ast til að fá brautargengi til að verða í þeirri forystusveit sem hrindir þeirri stefnu í framkvæmd,“ segir Guðlaug- ur Þór að endingu. Guðlaugur Þór Þórðarson gefur ekki kost á sér í borgarstjórn og lýsir stuðn- ingi við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson í efsta sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna Setur stefnuna á forystusveit Sjálfstæðisflokksins á landsvísu Morgunblaðið/Þorkell Guðlaugur Þór Þórðarson ætar að einbeita sér að þingstörfunum. Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is SIGURÐUR Sigurðarson vígslu- biskup tekur þátt í biskupsvígslu í Pókot-héraði í Kenýa í dag, sunnu- dag, að því er fram kemur í tilkynn- ingu frá Biskupsstofu. William Lop- eta, sem vígist til biskups, tengist íslensku kristniboði sterkum bönd- um. Íslendingar hófu kristniboð í Ken- ýa árið 1978 og hafa starfað þar síð- an, mestmegnis í Pókot-héraði í norðvesturhluta landsins. Íslenska kristniboðið er unnið í samstarfi við Lúthersku kirkjuna í Kenýa sem telur 55 þúsund manns. Lopeta kemur úr söfnuði sem Ragnar Gunnarsson kristniboði stofnaði með heimamönnum árið 1991 í Lain, sem var hluti af starfssvæði ís- lenska kristniboðsins í Chepareria. Hann hlaut síðan menntun í fræðslu- miðstöð kirkjunnar í Kapenguria í Pókot- héraði og síðan í prestaskóla kirkjunnar í Matongo í suðvest- urhluta landsins. Fulltrúar frá kirkj- unni í Pókot hafa kom- ið til Íslands fyrir til- stilli Hjálparstarfs kirkjunnar og Sam- bands íslenskra kristni- boðsfélaga (SÍK). Lopeta kom til landsins árið 2001 á vegum SÍK og dvaldist hér um tíma. Fram kemur í tilkynningu að Lútherska kirkjan hafi beðið Þjóð- kirkjuna um að senda biskup til að taka þátt í vígslunni og bað biskup Íslands Sigurð að fara fyrir hönd kirkjunnar. Með honum í för eru Jón- as Þórisson frá Hjálpar- starfi kirkjunnar og Þor- valdur Karl Helgason, biskupsritari. Sigurður tekur þátt í vígslunni og predikar. Walter Obare Omwanza, höfuðbiskup Lúthersku kirkjunnar í Kenýa, annast vígsluna. Þorvaldur Karl og Jónas munu fara eftir biskupsvígsluna og heim- sækja samstarfsaðila hjálparstarfs kirkjunnar í Úganda, skammt frá Pókót. Vígslubiskup tekur þátt í biskupsvígslu í Kenýa Sigurður Sigurðarson Í KÖNNUN sem Gallup vann fyrir Franca ehf. kemur fram að 57,1% aðspurðra treystir Vilhjálmi Þ. Vil- hjálmssyni vel eða mjög vel til þess að gegna starfi borgarstjóra. Hins vegar treystu 42,3% Gísla Marteini vel eða mjög til að gegna embættinu en í báðum tilvikum svör- uðu um 20% því til að þeir treystu frambjóðendunum hvorki vel né illa. Niðurstöður úr spurningum um traust til frambjóðendanna eru nán- ast þær sömu og þegar spurt er um hvorn frambjóðandann aðspurðir vildu sjá leiða lista sjálfstæðis- manna. Þar svöruðu 57,3% að- spurðra því til að þeir vildu frekar að Vilhjálmur leiddi listann en 42,7% Gísla, eins og Morgunblaðið greindi frá á föstudag. Af þeim sem sögðust kjósa Sjálf- stæðisflokkinn í borgarstjórn- arkosningum ef kosið yrði núna, sögðust 33,8% treysta Vilhjálmi Þ. mjög vel til að gegna starfi borg- arstjóra og 39,1% treystu honum vel til þess. Hins vegar treysta 26,6% þeirra sem hyggjast kjósa Sjálfstæð- isflokkinn Gísla Marteini mjög vel til að gegna starfinu en 38,6% treysta honum vel. Báðir frambjóðendurnir njóta mest trausts meðal 68 ára og eldri en 38,1% í þeim aldursflokki treysta Vilhjálmi mjög vel en 19% Gísla. Fleiri treysta Vilhjálmi HLUTABRÉF í lággjaldaflugfélag- inu EasyJet hækkuðu í fyrradag í kjölfar frétta um að Icelandair hefði hug á að auka hlut sinn í félaginu að því er fram kemur á vef Daily Tele- graph. Hluturinn hækkaði um 4,2% í 293,75 pens í kjölfar frétta af því að verðbréfamiðlarinn Teather & Greenwood hugðist kaupa þrjár milljónir hluta í EasyJet fyrir Ice- landair, sem á fyrir 13,01% í EasyJet. Þrátt fyrir að aðeins sé um að ræða 0,75% hlut í félaginu er talið að frekari hlutaaukning geti leitt til þess að yfirtökutilboð fari í gang. Icelandair hugar að auknum hlut í EasyJet

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.