Morgunblaðið - 18.09.2005, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 18.09.2005, Qupperneq 58
58 SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Krabbamein sem fjölskyldumein – áhrifá börn og aðra aðstandendur sjúk-linga, er yfirskrift árlegs kynning-arfundar stuðningshópa Krabba- meinsfélags Íslands sem verður haldinn miðvikudaginn 21. september og hefst hann klukkan 20. „Krabbamein er enn í hugum margra hugs- anlegur dauðadómur,“ segir Ragnar Davíðsson, formaður Nýrrar raddar. „Það ætti ekki að vera svo því flestir sjúklingar njóta margvíslegra úr- ræða sem nútímalækningar hafa að bjóða. Krabbamein er í raun samheiti yfir fjölmargar tegundir sjúkdóma og sumar tegundir eru þess eðlis að batahorfur eru góðar. Þegar einhver í fjölskyldunni greinist með krabbamein er það ef til vill þetta samheiti sem gerir alla óttaslegna. Á fundinum ætlum við að fjalla um hve miklu máli skiptir að gleyma ekki þeim sem standa sjúklingnum næst, fjölskyldunni börnunum, mök- um, vinum og öðrum aðstandendum.“ Hann segir gildi stuðningshópa ótvírætt því með því að miðla upplýsingum og þekkingu stuðla stuðningshópar að því að hjálpa sjúkling- um, fjölskyldum og þeirra nánustu við að takast á við það tilfinningalega álag og breytingar á daglegu lífi sem fylgir sjúkdómnum.“ Sjálfur hefur Ragnar reynslu af starfsemi stuðningshópanna en hann greindist með krabbamein í hálsi árið 1996. Þá hafði hann ný- lokið námi í klassískum söng og hafði verið virk- ur í íslensku tónlistarlífi. Hann var að velta fyrir sér möguleikum á framhaldsnámi ytra og hafði verið boðið nám hjá virtri sópransöngkonu, Virg- iniu Zeani, í Bandaríkjunum. Veikindin komu því á versta tíma, enda hafði Ragnar stefnt að því að hafa framtíðaratvinnu sína í söng, sem einnig var helsta áhugamál hans, ástríða og lífsstíll. Ekki gekk vel að sjúkdómsgreina Ragnar og tók það ferli 3–4 ár. Að lokum var úrskurðað að hann væri með krabbamein og fjarlægja þurfti barkakýlið úr honum. Meðan á þessu stóð menntaði hann sig á öðru sviði. „Fyrir mig og fjölskyldu mína var það ómet- anlegt að kynnast og taka þátt í starfsemi stuðn- ingshóps hjá KÍ og það kenndi okkur að nálgast krabbameinið eins og hver önnur veikindi. Börn- in okkar voru ung á þessum tíma og viðbrögð þeirra mismunandi eftir aldri og því bar okkur einnig að taka tillit til þess. En þögnin getur ekki síður verið þrúgandi. Það er erfitt fyrir börn að fá hvorki fræðslu né vitneskju um það sem gerist á erfiðum tímabilum sem þessum. Ég hvet því alla, hvort heldur þá sem fengið hafa krabba- mein, eða eru aðstandendur þeirra, að mæta og kynnast af eigin raun því sem fram fer á þessum kynningarfundi.“ Stuðningshópur | Krabbameinsfélagið heldur kynningarfund í Ými  Ragnar Davíðsson er verkefnastjóri á Land- spítala – háskólasjúkra- húsi. Ragnar stundaði söngnám í Söngskól- anum í Reykjavík og út- skrifaðist frá Nýja tón- listarskólanum. Hann lauk B.Sc.-námi í rekstrar- og markaðs- fræðum frá Tækniskóla Íslands 1999 og IPMA – vottun í verkefnastjórnun 2005. Ragnar er formaður Nýrrar raddar, stuðningsfélags inn- an vébanda Krabbameinsfélags Íslands. Hann er kvæntur Ingibjörgu Vilhjálmsdóttur sjúkra- liða og eiga þau saman þrjú börn. Erfitt fyrir börn að fá ekki fræðslu Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Ég á mér draum, sagði Martin Luther King í frægri ræðu. Orðalagið er engin tilviljun; ég á pening, eða ég hef gert áætlun vekur ekki sömu hughrif. Ein- beittu þér að draumunum, þeir skipta mestu máli núna. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nautið er náið manneskju með vafasama fortíð. Nú reynir á getu þess til þess að fyrirgefa hið liðna og sneiða hjá kjafta- sögum. Hið fyrra er reyndar auðveldara en hið síðara. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Órökrétt vinnulag ástvinar er að gera tvíburann gráhærðan og reyndar verður hann enn reiðari þegar aðferð viðkom- andi lukkast. Hér gildir að hafa opinn huga og aldrei að segja aldrei. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Sérhver réttindi fela í sér ábyrgð og öll- um forréttindum fylgir fyrirvari. Krabb- inn á að neyta réttar síns og nýta sér að- stöðu sína á þann veg að aðrir geti tekið sér hann til fyrirmyndar. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Ljónið hefur komist upp með sitt af hverju fyrir tilstilli ófeiminnar og ófyr- irleitinnar manneskju sem ekki hikar við að fara yfir strikið. Nú er komið að ljón- inu að leyfa öðrum að ganga á lagið. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Sumir hafa verið það þröngsýnir um langt skeið að stórvirkar vinnuvélar þyrfti til þess að opna huga þeirra. Ef þér gengur treglega að komast áleiðis skaltu snúa þér að næsta manni. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Raunveruleiki vogarinnar er svo inni- haldsríkur að hún hefur ekkert að flýja. Ef þú stendur sjálfa þig að dagdraumum um ótilgreinda eyju í hitabeltinu skaltu snúa til baka. Þú ættir að reyna að vekja aðdáun einhvers í steingeitarmerkinu. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þörfin fyrir að tilheyra einhverju herjar á sporðdrekann. Hver þekkir það ekki? En tilfinningar drekans eru ákafari en annarra. Einfaldasta leiðin til þess finna til samkenndar með öðrum er að gefa af sér. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það er alls ekki víst að vandamálin þín séu svo slæm. Hugsanlega eru þau meira að segja dálítið spennandi. Láttu gamlan farangur lönd og leið og fáðu þér eitt- hvað smart í staðinn. Líkingin er sem sagt þessi, við erum öll með eitthvað í farteskinu og því eins gott að farang- urinn sé aðlaðandi og með stíl. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Steingeitin er alveg í stuði til þess að fara fínt í hlutina. Reyndar á það vel við hennar hástemmda og fágaða stíl. Þeir sem best þekkja til skilja hvað við er átt. Einhver er hugfanginn af rödd steingeit- arinnar; segðu eitthvað fallegt við hann. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Stundum er nóg að vera metinn að verð- leikum fyrir eitthvað, en þegar öllu er á botninn hvolft vill vatnsberinn bera úr býtum hér og nú. Þú ert vel þess virði, ekki biðja um minna en þú átt skilið. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Fiskurinn lendir í því að lagfæra, þó að hann hafi ekki átt þátt í því að aflaga eitt eða neitt. Hann er hetja í augum ann- arra fyrir vikið, að minnsta kosti eins. Kalt mat á aðstæðum kemur með kvöldinu. Stjörnuspá Holiday Mathis Fólk er sennilega enn að vinna úr því sem aukið innsæi á fullu tungli í fisk- um hefur dregið fram. Tunglið er hins vegar í þann mund að fela sínar ávölu línur í herklæðum hrútsins, búið undir nýjar aðstæður með nýja vitneskju í far- teskinu. Ástarplánetan Venus og kerfis- karlinn Satúrnus eru á öndverðum meiði núna. Hemjum árásargirnina svo við fælum ekki óorðna ástvini frá okkur. Sudoku © Puzzles by Pappocom Lausn síðustu gátu Þrautin felst í því að fylla út í reit- ina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 hollráðið, 8 happið, 9 atvinnugrein, 10 greinir, 11 nefið, 13 kveif, 15 sæti, 18 moð, 21 tré, 22 treg, 23 hamingja, 24 hag- kvæmt. Lóðrétt | 2 inntaks, 3 há- rug, 4 þjálfun, 5 út, 6 drungi, 7 for, 12 vond, 14 dveljast, 15 rétt, 16 án fyr- irvara, 17 aur, 18 brotsjór, 19 fim, 20 svelgurinn. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 skáld, 4 þrúga, 7 urtan, 8 ökrum, 9 nem, 11 dúða, 13 ásar, 14 gumar, 15 farg, 17 asni, 20 gró, 22 log- ar, 23 nauða, 24 runni, 25 tuddi. Lóðrétt: 1 Skuld, 2 ástúð, 3 dúnn, 4 þröm, 5 útrás, 6 aum- ur, 10 eimur, 12 agg, 13 ára, 15 fúlar, 16 ragan, 18 stund, 19 iðaði, 20 grói, 21 ónýt. 70 ÁRA afmæli. Í dag, 18. sept-ember, er sjötugur Brynjar H. Jónsson, fyrrverandi starfsmaður VISA á Akureyri. Hann verður að heiman í dag. Árnaðheilla dagbók@mbl.is  Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Bólstaðarhlíð 43 | Haustlitaferð á Þingvelli fimmtudaginn 29. sept. Kaffihlaðborð á Hótel Örk. Skrán- ing og greiðsla eigi síðar en 23. sept. Allir velkomnir. Uppl. í síma 535 2760. Dalbraut 18–20 | Félagsstarfið er öllum opið kl. 9–16. Fastir liðir eins og venjulega. Skráning stendur yfir í postulíns- og framsagnarnám- skeið. Komdu í heimsókn, kíktu í blöðin, fáður þér kaffisopa og kynntu þér haustdagskrána. Við getum líka sent þér netbréf. Sím- inn okkar er 588 9533. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 13–16 opin listmunasýning Einars Árna- sonar „Hjáverk í amstri daga“. Korpúlfar, Grafarvogi | Ganga á morgun frá Grafarvogskirkju kl. 10. Vesturgata 7 | Haustbingó verður haldið þriðjudaginn 20. september kl. 13. Rjómapönnukökur með kaffinu. Allir eru velkomnir. Vesturgata 7 | Haustlitaferð fimmtudaginn 22. september kl. 13. Ekið til Þingvalla, komið við í þjón- ustumiðstöðinni. Ekið meðfram Þingvallavatni niður með Sogni. Veitingar í Þrastarlundi að eigin vali. Skráning í síma 535 2740. All- ir velkomnir. Kirkjustarf Árbæjarkirkja | Fundir æskulýðs- félagsins alla sunnudaga kl. 17.00– 18.30. Unglingar á aldrinum 13–15 ára eru boðnir velkomnir. Grafarvogskirkja | Haustferð eldri borgara verður farinn 20. sept. kl. 10 frá Grafarvogskirkju. Farið verð- ur í Stykkishólm, norska húsið og kirkjan skoðuð. Komið verður við í Bjarnarnesi á leiðinni heim. Hjallakirkja | Æskulýðsfélag fyrir 9. og 10. bekk er með fundi á sunnudögum kl. 20–21.30. Ytri-Njarðvíkurkirkja | Spilakvöld aldraðra og öryrkja fimmtudaginn 22. sept. kl. 20 í umsjá félaga úr Lionsklúbbi Njarðvíkur, Ástríðar Helgu Sigurðardóttur, Natalíu Chow Hewlett, organista, og sókn- arprests. Hlutavelta | Þær Hafdís, Selma og María söfnuðu 2.223 kr. til styrktar Hjálpar- sjóði Rauða kross Íslands. Morgunblaðið/Þorkell
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.