Mánudagsblaðið - 22.12.1980, Blaðsíða 8
Guðrún
í vand-
ræðum
Guðrún Helgadóttir
hefur sent frá sér nýja
sögu um þá félaga Jón
Odd og Jón Bjarna. Sú
gamansaga gengur í
bænum að Guðrún
Helgadóttir hafí átt í
mestu erfiðleikúm með
að ljúka við sögun því
mikið hafi verið að gera
eftir að Olafur Ragnar
Grímsson tók við starfi
þingflokksfor manns.
Hann mun hafa verið
harður húsbóndi og
haldið langa og stranga
fundi með þingflokkn-
um þannig að skáldið
mun hafa átt í mestu
erfiðleikum með að
skrifa söguna þar til
Olafur fór utansíðsum-
ars. Þá mun sagan hafa
smollið saman.
Mánudagur 22. desember 1980.
Mánudagsblaðið
hafa beðið í startholun-
um með stofnun nýs
hlutafélags um flug-
restur meðan að málefni
Flugleiða voru rædd af
Alþingi og ríkisstjórn. A
undanförnum vikum
hefur mátt finna
Hættir
Norðdal?
Heyrst hefur að
Jóhannes Nordal seðla-
bankastjóri muni láta af
störfum sem slíkur á
næstunni. Hann mun
vera orðinn dauðleiður á
efnahags öngþveitinu
sem hér er og láir það
honum víst enginn.
Ef af þessu verður J)á
mun Jóhannes ætla nú
helga sig svo til
eingöngu að ,törfum
fyrir Landsvirkjun.
Sjálfsmorðum mun
hafa farið fjölgandi á
þessu ári miðað við árið
á undan. Þannig munu
hafa orðið fleiri
sjálfsmorð á fyrstu 11
mánuðum þessa árs en
urðu allt árið í fyrra.
Orsakir fyrir þessu er
ekki gott að koma auga
á í fljótu bragði en tala
sjálfsmorða hefur á
síðustu árum yfirleitt
verið há hlutfallslega.
Ljóst er að margir
starfsmenn Flugleiða
samsvörun á milli fjölda ,
funda þessa starfsf
funda þessa starfsfólks
og slæms útlits fyrir
Flugleiði. Nú er komið
fram að Flugleiðir eiga
fyrir ríkisábyrgðinni og
mun því stofnun þessa
hlutafélags bíða en
skyldu Flugleiðir
einhverntímann hrapa
þá eru margir sem vilja
stökkva á hræið og taka
það af því sem þeir geta.
■ r4
ALEGGSPYLSUR
ALEGGSTEGUNDA
A LANDINU
-
.
-
Bjorpylsa • Bjórskinka • Búlgörsk spægipylsa • Bringupylsa • Hamborgarpylsa • Hangikjöt
Kindakæfa • Lambaspægipylsa • Lambasteik • Lifrakæfa • Lyonpylsa • Madagasgar salami • Malakoff
Milanó salami • Mortadella • Paprikupylsa • Raftaskinka • Rúllupylsa • Servelatpylsa • Skinka
Spægipylsa • Skinkupylsa • Svínarúllupylsa • Svínasteik • Tepylsa • Tungupylsa • Tungur • Veiðipylsa
KJOTIÐNAÐARSTOÐ SAMBANDSINS