Mánudagsblaðið - 23.02.1981, Blaðsíða 1

Mánudagsblaðið - 23.02.1981, Blaðsíða 1
Slaó fyrir al/a 2. tbl. 32 árg. 1981 Verð kr. 4.50. BURT MEÐ SUKKIÐ OG ÓREIÐUNA /---------------------> Heimaeyjarhneykslið grunsamlegt LÖGBROT OG ÓFARIR Allir sverja af sér ábyrgð Það reginhneyksli, sem strand Heimaeyjar austur á söndum, hefur vakið er mjög til umræðu í blöðum. Forsvarsmenn skipsins sverja hver af öðrum af sér alla ábyrgð og einnig tryggingaraðilinn. Hjá Landhelgisgæslunni fengust aftur á móti aðrar og haldbærari upplýsingar, sem jafnframt varpa skýru ljósi á viðbrögð útgerðarinnar. Skipherra á varðskipinu, þaulreyndur maður, staðfesti í sjónvarpsviðtali, að hann teldi útgerðina hafa hafnað besta kostinum, er hún vísaði boðum Gæslunnar á bug og afþakkaði aðstoð. Rök skipherrans voru þau, að lið hans um borð í varpskipinu væri þaulæft, tækjaútbúnaður hinn besti, sem völ væri á, skipið aflmikið o.s.frv. Auk þess sagði skipherrann, að neitun útgerðarinnar væri ekki einsdæmi og sagðist geta rökstutt það ef þörf krefði. Marga grunar að annaðhvort útgerðin haíi ekki tímt, að þiggja aðstoð varðskipsins eða sökin sé tryggingafélagsins. Skal hvorugt fullyrt hér en allir þessir svardagar í sambandi við þetta mál eru harla grunsamlegir og ekki úr vegi að upplýsa hið sanna í því. Mjólkurþamb hcettulegt fullorðnum það mun vera staðreynd að Islendingar séu að drepa sig á mjólkurþambi. Hvergi í heiminum eru drukkin eins kynstur af mjólk og hér. Þessi drykkur virðist vera að leysa af hólmi vatnið, því íslensku berserkirnir þamba mjólkina við þorsta en frá sultarár- unum ríkir sú skoðun að allt þetta mjólkurþamb sé hollt, Þar sem staðreyndir sanna að mjólkin er hættuleg fullorðnu fólki, sem ekki hefur því meiri hreyfíngu og ætti almenn- ingur að varast ofnautn á þessu sviði. Hinsvegar er sagt, að skyldur drykkur mjólkinni þ.e. sýran sé holl, betur frískandi en beljusaflnn, full af bætiefnum og hollustu og eflaust myndi mjólkureinok- unin hækka verðið á henni yrði hún vinsæl meðal a!m- ennings. |MI ' Fatafella Mánudagsblaðsins. Það hefur vakið eftirtekt, að opinberir aðilar ganga fremstir í flokki með að mismuna fólki á einn eða annan hátt. Til dæmis hefur það verið gagnrýnt með réttu af eigendum veitingahúsa, að hið opinbera hafí sett á stofn mötuneyti hér og þar í Reykjavík og víðar, sem er ef til vill ekki tiltökumál, nema þá að því leyti, að þar er matur seldur á 1/5 þess verðs, sem hann í raun og veru kostar. Þetta væri að sjálfsögðu þyrfti ekki að greiða ekki ámælisvert ef hinn mismuninn eða 4/5. Hér er almenni skattborgari um að ræða hróplegt ranglæti gagnvart öðrum þjóðfélagsþegnum, sem verða að kaupa sinn mat á fullu verði og greiða til viðbótar fyrir þá, sem njóta þeirra forréttinda að éta lúxusmat fyrir næstum ekki neitt í hádeginu. Og það er ekki nóg með það, að þeir opinberu starfsmenn, sem „hafa rétt” til að njóta þessara fríðinda, éti í mötuneytum þessum, heldur kemur fjöldi fólks af götunni inn í þau og kaupir matinn á sama verði og forréttinda- hópurinn. Við erum að kvarta yflr skattaáþján og finnst vera kominn tími til að skera niður opinber gjöld. A sama tíma spretta þessi ölmusu-mötuneyti upp eins og gorkúlur hér og þar í „kerfinu” og enginn segir neitt, nema veitingahúsa- eigendur, sem vilja ekki svona óforskammaða sam- keppni. Menn yrðu ekki hissa þó þeir færu fram á ríkis- og borgarstyrk til þess að reka fyrirtæki sín. það var gagnrýnt hér á árunum að þingmenn fengju bílastyrk og nytu þeirra forréttinda að þurfa Framhald á bls 5. Er það satt að Steingrími Hermanssyni hafi verið boðið þularstarf hjá báðum opinberu fjölmiðlunum?

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.