Mánudagsblaðið - 20.04.1981, Blaðsíða 2
Mánudagsblaðið
Hvar er Smart spæjari
Mánudagsblaðið Reykjavík
Lengi getur vont versnað, ég
segi nú ekki annað. Sjónvarps-
dagskráin er orðin svo hörmu-
leg að það liggur við að maður
gefist bara upp og fái sér video.
En þá þarf maður að borga
afnotagjaldið engu að síður, þó
maður horfi aldrei á útsending-
arnar.
Svo koma þessir menn og
væla um meiri peninga og meiri
peninga. Ég vildi glaður borga
hærra afnotagjald ef það væri
einhver trygging fyrir því að
dagskráin batnaði. Ég held að
meiri peningar tryggi ekki betri
dagskrá. Það þarf að f þarna
inn almennilegt fólk sem hugsar
eins og annað fólk og veit að
sjónvarpið er fyrst of fremst
afþreyingartæki. Kannski þetta
sé að verða eins og í Svíþjóð þar
sem sjónvarpsmenn umgangast
bara hvorir aðra og hafa ekki
hugmynd um hvað almenningur
vill?
Það kostar sáralífið að hafa
þrjár til fjórar bíómyndir á
dagskrá í viku hverri. Og hvar
eru Smart spæjari og aðrir
góðir? Þeir ganga alltaf í öðrum
löndum. - KA.
Ragnar át skattana
IM ofan í sia aftur
Jóhann S. skrifar:
Heldur fór hann Ragnar
Arnalds skrítinn kollhnís í
skattmálunum. Áður en hann
varð fjármálaráðherra var
hann alltaf að væna þá sem
stunda sjálfstæðan atvinnu-
rekstur um ægilegan þjófnað
u' dan skatti. Þess vegna var
■>n udo sá háttur að áætla
skatt af rekstri þótt tap væri á
honum. Fóru margir illa út úr
þessu í fyrra.
Nú kemur Ragnar og segir að
þetta hafi verið tóm vitleysa og
það verði strax að hætta að
áætla tekjur á fólk. Ekki sé hægt i
að láta menn borga milíjónir í
skatt af tekjum sem þeir hafi
aldrei haft. Með batnandi
mönnum er best að lifa, ég segi
nú bara það.
Svo var Ragnar alltaf að
rífast út af því að fyrirtæki
greiddu engan tekjuskatt. En
hvað kemur í ljós eftir að
Ragnar er sestur í ráðherrastól-
inn? Jú, hann sér að mörg
fyrirtæki geta ekki greitt neinn
tekjuskatt og hann segir ekki
bofs. Hins vegar þegir stjórnar-
andstaðan svokallaða í stað þess
að grafa upp gömlu ræðurnar
hans Ragnars og stríða honum
ærlega. Það er engin harka í
honum Geir og hans mönnum.
Svona komma eins og Ragnar á
að fiengja þegar hann étur
bullið úr sér.
Annars líst mér að mörgu
leyti vel á þessa ríkisstjórn. Alla
vega er Gunnar nokkuð slyngur
og ég hygg að Albert gefí
honum góð ráð. Um Pálma og
Friðjón veit ég lítið, en þeir eru
þó af góðu kyni og má búast við
góðu af þeim. Steingrímur er
ekki nógu harður við kommana
en það er Tómas Árnason hins
vegar. Svo má nú ekki gleyma
honum Ola mínum Jó. Hann
lætur kommana ekki vaða ofan í
sig i Keflavíkurmálunum og er
það gott.
Læt ég þetta nægja í bili en
sendi kannski línu seinna.
Níðskrif um
Bandaríkjamenn
Hr. ritstjóri.
Þar sem ég veit að þú þekkir
nokkuð til í Bandaríkjunum og
ert hliðhollur þeirri þjóð sem
þar býr vil ég biðja þig að birta
nokkrar línur fyrir mig. Enda er
nú svo komið að öll dagblöðin
eru meira eða minna orðin
undirlögð af kommaáróðri og
óhróðri um Bandaríkin.
Blöðin hafa notað skotárásina
á Regan, sem geðveill maður
stóð að, til þess að ráðast að
Bandaríkjamönnum og blásið
upp að þar séu menn drepnir
með köldu blóði dag sem nótt og
oft margir á dag. Fólk sem ekki
þekkir til Bandaríkjanna stend-
ur nú í þeirri trú að íbúarnir lifi
í stöðugum ótta og hætti sér
helst ekki út fyrir hússins dyr
eftir að skyggja tekur. Þetta er
alrangt. Að vísu er mikið um
glæpi í stórborgum Bandaríkj-
anna, en hvað morðum viðkem-
ur er það oft að glæpamenn
drepa hverjir aðra og er bættur
skaðinn. Víðast hvar er almenn-
ingur þar vestra hins vegar jafn
öruggur með sig og íbúar
Reykjavíkur, ef ekki öruggari.
Mál er að níðinu um Bandaríkin
linni og treysti ég þér til að
skrifa skelegga grein um þetta í
blað þitt.
Að lokum vil ég koma á
framfæri að ég hef saknað þess
hve útgáfa Mánudagsblaðsins
hefur verið stopul að undan-
förnu og vona að Eyjólfur fari
að hressast. Ég er búinn að
kaupa blaðið í um 20 ár og þætti
leitt ef útgáfu þess yðri hætt. -
Kærar kveðjur, R. Sigurðsson.
Auglýsið í Mánu-
dagsblaðinu
*
AlþÝðubanklnnhf
Aðalfundur
Alþýðubankans hf. árið 1981 verður haldinn laugar-
daginn 25. apríl 1981 aö Hótel Sögu (Súlnasal) í
Reykjavík og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Skýrsla bankaráös um starfsemi bankans árið
1980.
2. Lagðir fram endurskoöaöir reikningar bankans
fyrir árið 1980.
3. Tillaga um kvittun til bankastjóra og bankaráðs
fyrir reikningsskil.
4. Kosning bankaráðs.
5. Kosning endurskoöenda bankans.
6. Ákvöröun um þóknun til bankaráðs og endur-
skoöenda.
7. Ákvörðun um ráðstöfun arös sbf. 33. gr. sam-
þykkta bankans.
8. Breytingar á samþykktum bankans.
9. Önnur mál, sem bera má upp sbr. 17. gr.
samþykkta bankans.
Aögöngumiöar að aöalfundinum, ásamt atkvæöa-
seölum, veröa afhentir á venjulegum afgreiöslutíma í
bankanum aö Laugavegi 31, Reykjavík, dagana 21.,
22. og 24. apríl 1981.
Bankaráö Alþýöubankans hf.