Mánudagsblaðið - 20.04.1981, Page 12
Sími Mönudagsblciðsins er 1 34 96
Ef þú kaupir bfl sem er penmganna viiði
þá er hann ekki d\r
-líttu svo á enduisöluvenðiÓ
Bíósjeffar í Hollywood
Þrír bíósjeffar tekja sig nú menn með mönnum,
enda gera þeir nú víðreist. Þessir þrír sjeffar eru
forstjórar Tónabíós, Laugarásbíós og svo auðvitað
Háskólabíós, sem nýlega brugðu sér vestur til
Holywood til þess að vera viðstaddir afhendingu
Oscar-verðlaunanna og munu ósparir á að miklast
yfír því að hafa andað að sér sama lofti og Robert De
Niro, Sissy Spacek, Robert Redford o.s.frv.
Gárungarnir segja að þeir hafi tekið með sér myndir
og umsagnir íslenskra kritikera til að skýra
heiminum frá OKKAR afrekum í kvikmyndaheim-
inum.
Það er ekkert nema gott eitt af slíkum reisum að
segja, þó óvíst sé hverjir greiða endanlega
kostnaðinn. En soyrja má hvort það sé alveg í anda
þessara hálf- og alopinberu fyrirtækja, að
forstjórarnir leggi ppp í slíkar langferðir-- í
menningarleit?
Matti, Geir og Vestanmenn
Sjálfstæðismaður, sem nýlega átti leið um
Vestfirði, kom með þau ískyggilegu tíðindi, að ef
Matthías Bjarnason hætti ekki að sleikja skóna hans
Geirs þyrfti hann ekki að hugsa sér framboð fyrir þá
vestanmenn framar. Vegur Geirs Hallgrímssonar
(og þá væntanlega flokksins) er nú alveg í núlli, en
aðdáun Matta virðist fara vaxandi á Geir._
SÁÁ og „gamblers"
A síðasta aðalfundi SAA voru ýmsar merkilegar
umræður um fjáröflun félagsins til umræðu og voru
margar hugmyndir á lofti. Einna merkastar voru
þær, að félagið eða framámenn þess skyldu
skipuleggja fjárhættuspil á veitingastöðum. Sögðust
þeir sem gerst vita, að þá þ.e.a.s. væru gestir undir
áhrifum, manna örlyndastir og ósparir á gullið. En
þegar til atkvæða var gengið þá var tillagan felld,
þrátt fyrir að aðalstuðningsmenn hennar,
formaðurinn og varaformaðurinn væru henni mjög
fylgjandi. Meirihlutinn í SÁÁ leit svo á, að það væri
nóg að Rauði krossinn kenndi íslenskum börnum að
„gambla“, þótt líknarfélög á borð við SÁÁ færi ekki
svaðið líka.
Kalla á Hilmar.
Nú hefur verið ákveðið að stofna hinn langþráða
sparisjóð hinna góðglöðu á vegum SÁÁ, en ekki
verður hann alveg sjálfstæður, því að í ráði er, að
hann verði undir yfírstjórn eins af þjóðbönkunum.
Forráðamenn SÁÁ mega þó þakka sínum sæla fyrir
að geta óáreittir skotið skjólshúsi yfir barðar
eiginkonur og konugarmarnir geta nú náð sér niðri á
vondum eiginmönnum með því að hóta: Ef þú
hreyfir hönd eða fót, kalla ég í hann Hilmar!!!
Ný æfisaga
Hörður Bjarnason, fyrrverandi Húsameistari
ríkisins, er nú sagður vera að semja æfisögu sína og
gerir þar grein fyrir ýmsum byggingum sem hann
hefur hannað með miklum ágætum m.a. lýsir hann
ýmsu heimsfrægu fólki sem hann hefur kvnnst,
fundum sínum og erlendra stórarkitekta, ferðum
sínum um heiminn bæði í einka- og opinberum
erindum, skrifstofurekstri og lífi og svo allskyns
æfintýrum, sem hann hefur lent í. Auðvitað bíður
alþjóð óþreyjufull eftir útkomu æfisögunnar en þó
enginn jafnspenntur og Jón Haraldsson, hinn hæðni
og neyðyrti útvarpsmaður og gagnrýnandi.
Jæja loksins drattaðist umferðanefnd eða
götulögreglan til þess að setja upp gul blikkljós að
hinum ýmsu hornum þar sem umferð er ekki mikil
vissa tíma dags eða á nóttum, í stað reglubundinna
umferðarljósa. Þetta er strax bót i umferðinni, sem
raunar Mánudagsblaðið stakk upp á fyrir hálfum
öðrum ártug, en því var ekki sinnt þá.
Nú væri ekki úr vegi að lögreglan endurskipu-
leggði starf sitt og m.a. gerði vissa lögregluþjóna
eða hópa þeirra ábyrga fyrir hinum ýmsu hverfum
þar sem oftast er broftist inn í. Slík patrólstörf hafa
gefist vel ytra en hafa aldrei verið reynd hér, frekar
en önnur gömul og góð ráð sem nýtt eru erlendis og
hafa sannað ágæti sitt.