Mánudagsblaðið - 14.12.1981, Blaðsíða 12

Mánudagsblaðið - 14.12.1981, Blaðsíða 12
ANNA OG KRISTJÁN eftir Áke Leijonhufvud, þýdd af Jóhönnu Kristjónsdóttur... „magnað- asta hjúskaparlýsing síðan á dögum Strind- bergs.“ „Bók sem allir þeir ættu að lesa sem eru í sambúð með annarri manneskju, “ sögðu sœnsk- ir gagnrýnendur um Önnu og Kristján. ANNA OG KRISTJÁN er saga samin af óvenjulegum skaphita, innsæi og vægðarleysi. Áke Leijonhufvud tekst vissulega að ýta við lesendum svo að um munar — hann gengur nærri sögupersónum sínum, — og okkur. Saga sögð frá báðum hliðum ANNA OG KRISTJÁN er svo samin að hjón segja frá til skiptis. Þannig setur lesand- inn sig í spor þeirra beggja, lifir sig inn í reynslu þeirra, þá tilfinningaspennu og sál- arkreppu hjúskaparlífs sem sagan lýsir af svo fágætum þrótti, hörku og viðkvæmni í senn. ANNA OG KRISTJÁN, áhrifamesta, nærgöng- ulasta skáldsaga ársins. ÞÓ BLÆÐI HJARTASÁR eftir höfund Kvennaklósettsins, Marllyn French, í þýðingu Álfheiðar Kjartansdóttur líkist ekki neinni annarri ástarsögu sem þú hefur lesið. „Hér leiðir Marilyn French til lykta það viðfangsefni sem hún setti okkur fyrir sjónir í Kvennaklósettinu og hún gerir það af slíkum myndugleik og rökfimi að ekki verður vísað á bug.“ Þannig voru viðbrögð gagnrýnenda við þessari nýju, stórbrotnu sögu eftir Marilyn French. Hér segir frá karli og konu á miðjum aldri' og ástum þeirra. Dolores og Victor eru bandarísk og eiga bæði fjölskyldur heima, en dveljast ein í Bretlandi árlangt. Fundum þeirra ber saman í járnbrautarlest, á samri stundu verða þau ástfangin og varpa sér umsvifalaust út í samlíf sem þau vita að ekki getur staðið nema árið. Hún gáfuð og sjálfstæð — hann sjálfsöruggur og snjall Bæði eiga mikla og sár'a reynslu að baki og komast fjótt að því að þau líta margt ólíkum augum. Hún er gáfuð og sjálfstæð kona sem hefur með sársauka gert upp við kvenhlutverk sitt, — hann sjálfsöruggur, snjall og hefur lán- astflest í starfi sínu. Um samspil þessa fólks fjallar sagan, þá ástríðu sem þau leysa úr læðingi hvort hjá öðru, lífsnautn, þjáningu og lifsfyllingu, sem ástin vekur þeim. Báðum er Ijóst að þetta ár er einstæður tími í lífi þeirra og mun setja mark sitt á þau þaðan ífrá. í Kvennaklósettinu brá Marilyn French upp viðtækri mynd úr lífi kvenna og heillaði lesendur, karla og konur, um allar jarðir. ÞÓ BLÆÐI HJARTASÁR er nokkuð ólíkt verk, en engu siður hrífandi saga, næmleg og máitug, auðgar og dýpkar mannskilning lesandans. Þetta er saga fyrir hugsandi fólk, konur og karla, — ógleymanleg saga. Um ástir, í hjónabandi og utan þess MIÐBÆRINN, ný saga eftir Deu Trier Mörch, höfund Vetrarbarna og Kastaníuganganna, i þýöingu Ólafar Eldjárn. Enn á ný tekst Deu að vinna hugi lesenda sinna, nú með samtímasögu frá Kaupmanna- höfn. Umsagnir danskra gagnrýnenda færa okkur heim sanninn um það: „Það er sjaldgæf reynsla að lesa þessa bók,“ sagði einn. „Þetta er bók sem maður leitar til á ný og sækir styrk i. “ „Hér lýsir Dea börnum i samvistum við for- eldra sina og lífið sjálft, “ sagði annar. „Þegar Deu Trier Mörch tekst best upp,“ sagði sá þriðji, „blandar hún sáman á fátiðan og áhrifaríkan hátt Ijóðrænu og raunsœi, einlægni og húmor.“ PRAXIS. Hrífandi skemmtileg, fyndin, átak- anleg og ögrandi saga eftir Fay Weldon i þýð- ingu Dagnýjar Kristjánsdóttur. Saga sem ýtir við lesandanum, — til hrifn- ingar og hneykslunar. Bók sem hefur farið um allar jarðir og hlotið mikið lof. Sagan var lesin í íslenska útvarpinu í sumar og stóð ekki á viðbrögðum: fólk var ýmist bergnumið eða stórhneykslað. PRAXIS er bók sem skiptir máli, bók sem þú verður að lesa. „Þetta er saga kvenkynsins, samþjöppuð í kjarnaatriðum. í frásögn sinni af lífi einnar konu hefur Fay Weldon veitt okkur heildarsýn yfir líf kvenna yfirleitt.“ (Marilyn French, höf- undur Kvennaklósettsins). „Milljónir kvenna um allan heim finna ... að þannig er það!“ (New York Times) Úthrópuð og dáð PRAXIS er saga konufrá barnæsku tilfertugs. Hún missir foreldra sína, hvort með sínum hætti en hvorugt í gröfina, fer í skóla, giftir sig, selur sig, giftir sig á ný, eignast börn, stendur loks ein uppi. Þá verður hún fræg, sett í fang- elsi vegna verknaðar sem samfélagið fordæmir. Hún er orðin kvenfrelsisleiðtogi, úthrópuð og dáð. PRAXIS er engin venjuleg kvennabók. Þetta er bók sem snertir alla, bók sem kemur við grundvallarviðhorf fólks, lífsskoðanir okkar. Hvert er frelsi manneskjunnar, hvaða rétt hefur manneskjan yfir lífi sínu, hver er vegur hennar tilfrelsis? Á þetta bregður Praxis Ijósi í frásögn sem er svo lifandi og máttug að athygli lesandans dofnar aldrei. — PRAXIS er sagan — fyrir alla. Aðalpersónan, Lúlú, býr ásamt manni og tveimur bömum í miöbæ Kaupmannahafnar. Vinkona hennar er Maria sem kom við sögu i Vetrarbörnum, — saga hennar er í senn and- stæða og hliðstæða við sögu Lúlú. Sagan er sögö af lifandi raunsæi og tilfinningu, heimur hversdagsins, fjölskyldulífsins, er dreginn upp af þeim næmleika sem lesendur fyrri sagna höfundarins þekkja. í frásögninni fléttast sam- an með eðlilegum hætti hið smáa og hið stóra, það tímanlega og sístæða i lífi manneskjunnar. Fyrr en varir er lesandinn hrifinn inn í sögu- heim Deu Trier Mörch — enn á ný. MIÐBÆR- INN er skáldsaga ársins, bók sem líður ekki úr minni. IÐUNN Bræðraborgarstíg16 Pósthólf 294 121 Reykjavík Sími 12923-19156

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.