Morgunblaðið - 07.10.2005, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 9
FRÉTTIR
Bláu húsin Fákafeni, sími 588 4545, netfang: postulín.is
Sigurstjarnan
Opið virka kl. 11-18, lau. kl. 11-15
öðruvísiFull búð af vörum
Lomonosov postulín, Rússneska
keisarasettið í matar- og kaffistellum.
Handmálað og 22 karata gylling.
Frábærar gjafavörur
Alltaf besta verðið
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
15% afsláttur
af öllum drögtum
í dag og á morgun
Hlíðasmára 11 • Kópavogi • sími 517 6460 • fax 517 6565
Við eigum eins árs afmæli
og höldum upp á það með því að gefa
20% afslátt
af öllum vörum í versluninni, allt nýjar og nýlegar vörur.
Tilboðið gildir til laugardagsins 8. október.
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222j li i í i
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
Mikið úrval af
samkvæmisfatnaði
frá
Str. 38-56
SILBOR
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mán. - fös. frá kl. 10 - 18 lau. kl. 10 - 16
Ný sending
Glæsilegar peysur
str. 36 - 56
Fermingarmyndartökur
Fjölskyldumyndatökur
Tilboðsmyndatökur
Pantið tímanlega
Ljósmyndastofa Kópavogs
sími 554 3020
Mynd, Hafnarfirði
sími 565 4207
www.ljósmynd.is
Miðasölusími: 551 1200
Miðasala á netinu: www.leikhusid.is
Sýningum lýkur
í október!
„HAGSTJÓRN opinberra aðila hef-
ur verið fjarri því að vera ábyrg.
Ríkisstjórnin hefur kynt undir ef
eitthvað er. Sum staðar í viðskipta-
lífinu er viðvarandi fákeppni og
græðgi, sem hef-
ur grafið undan
tilteknum grein-
um atvinnulífsins
og búsetuskilyrð-
um víða um
land,“ sagði
Kristján Gunn-
arsson, formaður
Starfsgreinasam-
bands Íslands, en
ársfundur þess
hófst í Ketilhúsinu á Akureyri í
gær. Hann nefndi fréttir af lokun-
um fyrirtækja í frumframleiðslu og
vinnslu liðna daga, sem fyrst og
fremst bitnuðu á félögum í sam-
bandinu og fjölskyldum þeirra.
Kristján sagði að verkalýðshreyf-
ingin og launafólk ættu ekki ein að
axla ábyrgð á stöðugleikanum í
efnahagsmálunum eina ferðina enn.
„Við erum reiðubúin til að sækja
það sem okkur ber með öllum þeim
aðferðum sem tiltækar eru. Ég held
að það hljóti að vera skilaboðin sem
við sendum frá þessum fundi,“ sagði
Kristján.
Hann sagði að við gerð síðustu
kjarasamninga hefði verkalýðs-
hreyfingin verið tilbúin að leggja
sitt af mörkum til að tryggja að
efnahagslífið kæmist í gegnum nú-
verandi tímabil án kollsteypu en
samningsforsendurnar hefðu miðað
við að aðrir væru reiðubúnir að gera
slíkt hið sama.
„Því miður höfum við orðið fyrir
verulegum vonbrigðum. Aðrir hafa
ekki lagt sitt af mörkum og for-
sendur þessara ábyrgu kjarasamn-
inga eru brostnar,“ sagði Kristján.
Verkefni næstu mánaða væri að
tryggja launafólki bætur fyrir þá
rýrnun sem til væri komin vegna
þess að forsendur kjarasamninga
væru brostnar. Reyna yrði til þraut-
ar að sá ávinningur sem kjarasamn-
ingarnir áttu að fela í sér skiluðu
sér.
„Það hvernig menn tala, atvinnu-
rekendur og stjórnvöld, ýtir hins
vegar ekki undir bjartsýni hvað
þetta snertir. Raunar þvert á móti.
Á þeim vígstöðvum láta menn eins
og ekkert hafi í skorist og halda því
fram að það væri ábyrgðarleysi af
okkar hálfu að sækja þá leiðréttingu
sem okkur ber samkvæmt kjara-
samningunum,“ sagði Kristján.
Fjarað hefur undan
samfélagslegum gildum
Grétar Þorsteinsson, forseti Al-
þýðusambands Íslands, sagði í
ávarpi sínu að andrúmsloftið í sam-
félaginu einkennist í ríkum mæli af
græðgi, sem menn hafi ekki áður
upplifað jafnsterkt og um þessar
mundir. „Það hefur fjarað undan
samfélagslegum gildum, samkennd
og samhjálp og ég hef ekki séð að
stjórnvöld hafi haft uppi neina til-
burði til að koma í veg fyrir þessa
þróun,“ sagði Grétar.
Hann sagðist geta nefnt fjárlaga-
frumvarp ríkisstjórnarinnar í þessu
sambandi. Þar væri vissulega að
finna áherslur sem ástæða sé til að
fagna, svo sem 9% viðbót til
menntamála, að teknu tilliti til verð-
bólgu.
„Ég held þó því miður að við get-
um tæplega haldið því fram að þetta
sé velferðarfrumvarp með fé-
lagslegum áherslum. Þetta stór-
kostlega tækifæri til að snúa við
blaðinu og hreinlega þurrka út
stærstu vankantana á velferðar-
kerfinu er notað til að færa þeim
meira sem mest hafa, með því að út-
færa illa tímasettar skattalækkanir
þannig að hátekjufólkið fær mest,“
sagði Grétar.
Síðan hefði andrúmsloftið, þensl-
an og græðgin gert það að verkum
að sumir atvinnurekendur hafi not-
fært sér ástandið og fengið til starfa
erlent vinnuafl sem væri misnotað
til að knýja niður kjör á almennum
vinnumarkaði.
Kjaramál rædd á ársfundi Starfsgreinasambands Íslands
Reiðubúin að sækja
það sem okkur ber
Kristján
Gunnarsson
EKKI er útilokað að breytingar
verði gerðar á opinbera húsnæðis-
lánakerfinu. Þetta kom fram í máli
Árna Magnússonar félagsmálaráð-
herra á ársfundi Starfsgreinasam-
bandsins í gær, en hann stendur yfir
á Akureyri. Ráðherra sagði að þó
væri alveg skýrt að halda þyrfti í
heiðri þau grundvallarmarkmið
kerfisins að allir landsmenn, hvar
sem þeir búa og við hvaða félagslegu
aðstæður, njóti áfram bestu kjara á
húsnæðismarkaði.
Árni fór yfir stöðu mála og nefndi
að margir vildu kenna Íbúðalána-
sjóði um þensluna í þjóðfélaginu. Það
væri mikil einföldun. Gat hann þess
að útlán sjóðsins hefðu verið um 70
til 80 milljarðar króna á liðnu ári,
sem væri svipað og útlán sjóðsins á
undanförnum árum. Útlán bankanna
vegna húsnæðislána hefðu hins veg-
ar á sama tíma numið um 260–280
milljónum króna.
Þá sagði Árni, að nú fari fram
skoðun á því í samstarfi við stjórn
Íbúðalánasjóðs hvort sjóðurinn geti
og eigi að starfa með sama hætti og
hann hefur gert til þessa. Miklar og
örar breytingar hafi verið á húsnæð-
ismarkaði undangengna mánuði og
ljóst að þessi markaður sé í sífelldri
þróun. Sagðist Árni hafa lagt upp
með, að starfshópurinn sem vinnur
að þessari úttekt skili af sér áfanga-
áliti fyrir lok mánaðarins og allt útlit
sé fyrir að það muni ganga eftir.
„Verði gerðar breytingar á opin-
bera húsnæðislánakerfinu, sem ég
útiloka alls ekki, er í mínum huga al-
veg skýrt að halda verður í heiðri
þau grundvallarmarkmið þess að
með því verði tryggt að landsmenn
allir, hvar sem þeir búa og við hvaða
félagslegu aðstæður, njóti áfram
bestu kjara á húsnæðislánamarkaði.
Ríkið hefur þar mikilvægu hlutverki
að gegna sem það á ekki og má ekki,
hlaupast frá. Því trúi ég því að
Íbúðalánasjóður muni áfram gegna
mikilvægu hlutverki, jafnvel þótt
það kunni að breytast í framtíðinni,
rétt eins og í fortíðinni,“ sagði Árni.
Breytingar á húsnæðis-
kerfinu ekki útilokaðar
Morgunblaðið/Kristján
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, og Árni Magnússon félagsmálaráðherra
stinga saman nefjum á ársfundi Starfsgreinasambandsins.