Morgunblaðið - 07.10.2005, Page 52
52 FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GARÐYRKJUFÉLAG Íslands held-
ur ráðstefnu í sal KFUM við Holta-
veg á morgun, laugardaginn 8.
október kl. 10.30–17. Á ráðstefn-
unni, sem haldin er í tilefni af 120
ára afmæli félagsins, verður fjallað
um tengsl gróðurs og fólks í fortíð,
nútíð og framtíð. Fyrirlesarar
munu velta fyrir sér lífi fjölskyld-
unnar í heimilisgarðinum, þróun
hans og breytingar með breyttum
þörfum heimilisfólksins. Í lok ráð-
stefnunnar verður gerð grein fyrir
úrslitum ljósmyndasamkeppni og
ljóðasamkeppni félagsins.
Að ráðstefnu lokinni býður land-
búnaðarráðherra upp á veitingar.
Þátttökugjald er 2.000 kr fyrir
félaga GÍ og 3.500 kr fyrir utan-
félagsmenn. Tekið er á móti skrán-
ingu á skrifstofu Garðyrkjufélags-
ins í tölvupósti
gardurinn@gardurinn.is og í síma
552 7721.
Afmælisráð-
stefna Garð-
yrkjufélagsins
HANDVERKSFÓLK frá Vestmannaeyjum mun selja og sýna handverk sitt
í Mjóddinni við Álfabakka, Reykjavík á morgun, laugardaginn 8. október.
Þar verða ýmsir munir á boðstólum, t.d. glervara, leirmunir, málaðar
myndir, bútasaumsstykki, útskornir trémunir o.fl. Svo er aldrei að vita
nema einhverjar óvæntar uppákomur verði, að hætti Eyjamanna, segir í
fréttatilkynningu.
Sölu- og handverkssýning
Eyjamanna í Reykjavík
GLERAUGNAVERSLUNIN Plusminus Optic hefur verið opnuð á Suður-
landsbraut 4. Verslunin er búin nýjum og fullkomnum tækjakosti til sjón-
mælinga og á verkstæði. Eigendur verslunarinnar eru Friðleifur Hall-
grímsson og Guðmundur Örvar Hallgrímsson sjónfræðingur, en hann
hefur áralanga reynslu og öll tilskilin réttindi til sjónmælinga, segir í
fréttatilkynningu.
Markmið Plusminus Optic er að huga að og halda utan um sjónheilsu við-
skiptavina sinna á sem víðtækastan hátt og er m.a. boðið upp á sjónmæl-
ingar, vörur í mörgum verðflokkum og áskriftarþjónustu á linsum.
Meðal gleraugnaumgjarða sem boðið er upp á eru Scandinavian Eyewe-
ar, MicromegaOttica og Porsche Design.
Guðmundur Örvar Hallgrímsson, sjónfræðingur í Plusminus Optic.
Plusminus Optic
ný gleraugnaverslun
OG Vodafone hefur gert tveggja
ára styrktarsamning við Ólöfu Mar-
íu Jónsdóttur, atvinnukonu í golfi.
Samningurinn tryggir Ólöfu, sem
er keppandi á evrópsku mótaröð-
inni (LPGA) í golfi, fjárhagslegan
styrk og frí mánaðar- og notk-
unargjöld af fjarskiptaþjónustu Og
Vodafone. Þá fær hún BlackBerry
samskiptatæki frá Vodafone, far-
síma og Vodafone Mobile Connect
gagnakort fyrir fartölvu. Enn-
fremur mun Og Vodafone verð-
launa Ólöfu Maríu nái hún fram-
úrskarandi árangri í keppnisgrein
sinni á alþjóðlegum vettvangi.
Á myndinni má sjá Ólöfu Maríu
Jónsdóttur ásamt Birni Víglunds-
syni, framkvæmdastjóra markaðs-
sviðs Og Vodafone.
Og Vodafone
styrkir
Ólöfu Maríu
SPRON veittu nýlega styrki til viðskiptavina í fjórum
flokkum. Veittir voru fimm endurmenntunarstyrkir,
hver að upphæð 25.000 kr., fimm tómstundastyrkir að
upphæð 20.000 kr. hver, fimm bókastyrkir, hver að
upphæð 20.000 kr. og bílprófsstyrkur að upphæð 25.000
kr.
Myndin er tekin á afhendingu styrkjanna og má á
henni sjá hluta styrkþega ásamt fulltrúum SPRON. F.v.:
Jónína Kristjánsdóttir frá SPRON, Anna Garðarsdóttir,
Vigdís Klemenzdóttir, Guðmundur Óli Hreggviðsson,
Þorbjörg Gísladóttir, Anton Heiðar Þórólfsson, Finn-
bogi Árnason og Guðfinna Helgadóttir frá SPRON.
SPRON afhenda tómstundastyrki
Á FUNDI Fulltrúaráðs sjálfstæð-
isfélaganna í Garðabæ sem haldinn
var nýlega var samþykkt nær ein-
róma að gengið yrði til prófkjörs
við val á framboðslista Sjálfstæð-
isflokksins í Garðabæ fyrir sveita-
stjórnarskosningarnar vorið 2006.
Á fundinum var einnig valin kjör-
nefnd en prófkjörið mun fara fram
samkvæmt reglum um prófkjör
Sjálfstæðisflokksins. Stefnt er að
því að prófkjörið fari fram í janúar
en auglýst verður eftir framboðum
í nóvember og framboðsfrestur
mun renna út í lok desember, segir
í fréttatilkynningu.
Prófkjör hjá
Sjálfstæðis-
flokknum í
Garðabæ
STJÓRN Ungra vinstri grænna
hvetur ríkisstjórn Íslands til þess
að hætta við áætlað framboð til Ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Þetta kemur fram í ályktun frá
stjórninni:
„Halldór Ásgrímsson virðist líta
á framboðið svipuðum augum og
að Ísland standi sig vel á al-
þjóðlegu handboltamóti. Þau sjón-
armið hans að mikilvægt sé að
stefnumið Íslands komist á fram-
færi innan öryggisráðsins byggja
því á veikum grunni, eða raunar
bandarískum. Lítið hefur farið fyr-
ir sjálfstæðri utanríkisstefnu hjá
sitjandi ríkisstjórn Íslands sem
grípur hvert tækifæri til þess að
styðja við stríðsrekstur Banda-
ríkjamanna á erlendri grund. Ung
vinstri græn telja það ekki verjandi
að þeim svimandi háu fjárhæðum
sem slíkt framboð myndi kosta
verði varið í handauppréttingar til
stuðnings stefnu Bandaríkjanna á
alþjóðavettvangi. Ennfremur er
ólíklegt að Ísland nái kjöri þar sem
kosningabarátta er háð við mun
fleiri, stærri og ríkari þjóðir. Nóg
er komið af því að hver höndin sé
upp á móti annarri innan rík-
isstjórnarinnar vegna framboðsins.
Mál er til komið að menn sameinist
fremur um að bæta samskipti Ís-
lands á alþjóðavettvangi með öðr-
um hætti, til dæmis með mynd-
arlegri hætti hvað varðar
þróunarsamvinnu við ríki sem
standa höllum fæti.“
Andsnúin
framboði til
Öryggisráðsins
Á AÐALFUNDI
Vinstri grænna í
Kópavogi sem
var 5. október sl.,
var Emil Hjörvar
Petersen, núver-
andi varafor-
maður Ungra
vinstri grænna,
kjörinn formað-
ur Vinstri
grænna í Kópa-
vogi. Hann tekur við formannsemb-
ættinu af Sigursteini Mássyni. Emil
er 21 árs nemi við Háskóla Íslands
og hefur starfað í ungliðahreyfingu
flokksins á undanförnum árum,
segir í fréttatilkynningu.
Emil Hjörvar
formaður VG
í Kópavogi
Emil Hjörvar
Petersen
STJÓRN Fróða, félags sagn-
fræðinema við Háskóla Íslands,
sendir frá sér eftirfarandi ályktun
varðandi skipun sagnaritara sögu
þingræðis.
„Stjórn Fróða, félags sagn-
fræðinema við Háskóla Íslands, for-
dæmir þá ákvörðun forsæt-
isnefndar Alþingis að skipa
flokkshollan stjórnmálamann til
þess að rita sögu þingræðis á Ís-
landi. Stjórninni þykir hæpið að
slíkur einstaklingur geti fjallað um
efnið á hlutlausan hátt. Lágmarks-
krafa hlýtur að vera sérfræðiþekk-
ing um efnið og að maðurinn eigi
ekki pólitíska fortíð að baki. Svona
vinnubrögð teljum við forkastanleg
og lýsa vanvirðingu í garð fræði-
manna.
Komandi kynslóðir eiga betra
skilið en að horfið sé aftur til þeirra
hátta að Íslandssagan sé skrifuð af
stjórnmálamönnum.“
Andsnúin
ákvörðun
forsætisnefndar
FRÍTT til Evrópu fyrir reyklausa
(Quit and win – Don’t start) er
keppni ætluð ungu fólki á aldrinum
15–20 ára og er liður í að hvetja
ungt fólk á þessum aldri til reyk-
leysis. Þátttakendur geta skráð sig
í gegnum heimasíðu Lýðheilsu-
stöðvar www.lydheilsustod.is
Allir sem verða reyklausir frá 10.
nóvember – 10. desember og eru
fæddir á árunum 1985–1990 eiga
þess kost að vinna utanlandsferð.
Keppnin er tvískipt, annars vegar
fyrir reyklausa og hins vegar fyrir
þá sem reykja en vilja hætta. Dreg-
ið verður um vinninga í báðum
flokkum um miðjan desember.
Verkefninu er ætlað að stuðla að
því að ungt fólk á þessum aldri
reyki ekki. Nokkur Evrópulönd
hafa verið með þetta verkefni und-
anfarin ár en Lýðheilsustöð annast
það hér á landi. Þetta er í þriðja
sinn sem Ísland er með í keppninni
en yfir 4.000 krakkar hafa tekið
þátt í því, segir í fréttatilkynningu.
Hvetja ungt fólk
til reykleysis
ÁRLEGUR flóamarkaður Lions-
klúbbsins Engeyjar til styrktar
Barna- og unglingadeild Landspít-
ala (BUGL) verður haldinn á morg-
un, laugardaginn 8. og á sunnudag-
inn í Lionsheimilinu við Sóltún 20,
Reykjavík. Sala hefst báða dagana
kl. 13 og stendur til kl. 16 á laug-
ardag og kl. 15 á sunnudag. Þar
verður fatnaður á karla, konur og
börn í úrvali, bæði notaður og nýr.
Auk fatnaðarins verður á boð-
stólum margvíslegur annar varn-
ingur, tombóla með engum núllum
o.fl., segir í fréttatilkynningu.
Flóamarkaður
Engeyjar
KYNJAKETTIR verða með katta-
sýningu í reiðhöll Gusts í Kópavogi
um helgina 8. og 9. október en
Kynjakettir eiga 15 ára afmæli í ár.
Alls verða 160 kettir til sýnis og op-
ið verður báða dagana kl. 10–18.
Sýningin er með þema hrekkja-
vöku og verður salurinn skreyttur í
samræmi við það. Á sýningunni
verða fjórir dómarar sem koma frá
Ítalíu, Noregi og Danmörku og
verða til dæmis veitt verðlaun fyrir
fallegasta svarta köttinn í anda
þema sýningarinnar, segir í frétta-
tilkynningu.
Kattasýning í
reiðhöll Gusts
FRJÁLSHYGGJUFÉLAGIÐ and-
mælir harðlega byggingu tónlistar-
húss við Reykjavíkurhöfn á kostnað
þeirra sem ekkert fá um málið að
segja – skattgreiðenda.
„Stuðningsmenn slíks bruðls á al-
mannafé hafa ekki sýnt fram á með
neinum rökum að réttlætanlegt sé
að þvinga almenning til að greiða
fyrir áhugamál útvalinna borgara.
Ef meint þörf á húsinu væri raun-
verulega til staðar myndu einkaað-
ilar sjá sér hag í byggingu þess.
Frjálshyggjufélagið minnir
stjórnmálamenn á fyrri orð um að
sýna ábyrgð í ríkisrekstrinum. Mik-
ill uppgangur er í samfélaginu og
bruðl í formi tónlistarhúss fyrir
rúman tug milljarða er óábyrgt,
fyrir utan að vera óréttmæt og
óskynsamleg framkvæmd.“
Mótmæla bygg-
ingu tónlistar-
húss á kostnað
skattgreiðenda
REYKJAVÍKURAKADEMÍAN
heldur umræðufund um málefni
innflytjenda á Íslandi undir yf-
irskriftinni Varavinnuafl eða van-
nýtt auðlind? Fundurinn verður í
húsakynnum Reykjavíkurakademí-
unnar á Hringbraut 121, 4. hæð,
laugardaginn 8. október kl. 12–14.
Fyrirlesari eru: Gissur Pét-
ursson forstjóri Vinnumálastofn-
unar, Grazyna Okunievska hjúkr-
unarfræðingur, Elsa Arnardóttir,
forstöðumaður Fjölmenningar-
setursins á Ísafirð, Andrea Sompit
Siengboon uppeldis- og mennt-
unarfræðingur, Anna G. Ólafs-
dóttir blaðamaður og fulltrúi í
Fjölmenningarráði, Anh DauTran
MA/ menntunarráðgjafi, Hallfríður
Þórarinsdóttir mannfræðingur,
Eiríkur Bergmann stjórnmálafræð-
ingur og Unnur Dís Skaptadóttir
mannfræðingur. Að framsöguer-
indi loknu verða pallborðs-
umræður og fyrirspurnum úr sal
svarað.
Fundur um mál-
efni innflytjenda
LANDSNET hefur gert þjónustu-
samning við ráðgjafafyrirtækið For-
varnir ehf. um nýjung í heilsuvernd
og eflingu streituvarna á vinnustað.
Forvarnir ehf. hafa að beiðni for-
ráðamanna Landsnets skipulagt
fræðslu- og kynningarátak sem er
sérsniðið að þörfum starfsmanna og
munu þeir fá á tímabilinu fræðslu og
aðstoð við gerð persónubundinnar
áætlunar í streituvörnum og heilsu-
eflingu. Starfsmenn fyrirtækisins
munu einnig hafa aðgang að sér-
fræðingum Forvarna, sem veita
fræðslu og stuðning, segir í frétta-
tilkynningu.
Á myndinni eru Þórður Guð-
mundsson, forstjóri Landsnets (t.v.),
og Ólafur Þór Ævarsson, fram-
kvæmdastjóri Forvarna.
Landsnet eflir
heilsuvernd á
vinnustað