Morgunblaðið - 07.10.2005, Side 63
kl. 5.30, 8 og 10.30 b.i. 16 ára
Göldrótt gamanmynd!
Ó.H´T / RÁS 2
KVIKMYNDAHÁTÍÐ
29. september til 9. október
Something like happiness /
Einskonar hamingja Sýnd kl. 6
Head on / Beint á vegginn Sýnd kl. 8
Antares Sýnd kl. 10.15
FRÁBÆR GRÍN OG SPENNUMYND
Harðasta löggan í bænum er þann mund að
fá stórskrýtinn félaga!
Sýnd kl. 8 og 10
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
HÖRKU SPENNUTRYLLIR FRÁ
WES CRAVEN LEIKSTJÓRA
SCREAM MYNDANNA.
Sýnd kl. 6 ísl tal
Sýnd kl. 6 Íslenskt tal
Óbeint framhald af þáttaröðinni Jesú og Jósefína sem
var sýnd við miklar vinsældir á Stöð 2 síðustu jól.
RACHEL
McADAMS
CILLIAN
MURPHY
Skemmtilega ævintýramynd
með íslensku tali.
Topp5.is
Í 36.000 FETUM VARÐ HENNAR
VERSTA MARTRÖÐ AÐ VERULEIKA.
Night Watch is
F***ING COOL!
Quentin Tarantino
RACHEL McADAMS CILLIAN MURPHY
Hrikalega hraður háloftatryllir með Jamie Foxx,
Josh Lucas og Jessicu Biel í aðalhlutverkum.
Miða sala opn ar kl. 17.15
Sími 551 9000
FRÁ LEIKSTJÓRA FAST AND THE FURIOUS & XXX I I
Hrikalega hraður háloftatryllir með Jamie Foxx, Josh Lucas og Jessicu Biel í aðalhlutverkum.
400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 14 ára
Skemmtilega ævintýramynd
með íslensku tali.
Sýnd kl. 8 og 10.15
RACHEL McADAMS CILLIAN MURPHY
Hrikalega hraður háloftatryllir
með Jamie Foxx, Josh Lucas og
Jessicu Biel í aðalhlutverkum.
H.J. / MBL
S.V. / MBL
Miða sala opn ar kl. 17.15
Sími 551 9000
S.V. / MBL
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 B.i. 14 ára
450
kr.
553 2075Bara lúxus ☎
"BRÚTAL, BLÓÐUG, ÓGNVEKJANDI
OG SLÁANDI ... SVO MAGNÞRUNGIN
AÐ ÞÚ SITUR EFTIR Í LOSTI!"
EMPIRE MAGAZINE. UK
"ÉG SEF ENN MEÐ
LJÓSIN KVEIKT"
INTERNET MOVIE DATABASE
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 63
Tjarnarbíó kl. 15:00
Föstudaginn 7. október
Miðnæturbíó og mikilvægi
poppheimildanna
www.filmfest.is
Háskólabíó
18:00 Augnaráðið
18:00 Fallin
20:00 Okkar arfur
20:00 Hrein
22:10 Töfrakastali Howls
Regnboginn
18:00 Einskonar hamingja
20:00 Beint á vegginn
22:15 Antares
Tjarnarbíó
15:00 Stuart Samuels Masterclass
17:00 Fædd í vændi
19:00 Endalok herrabandalagsins
21:00 Bölvun
23:00 Miðæturmyndir: Af bekknum á miðjuna
00:45 Strokhöfuðleður
NÝR BÚNAÐUR
Í TJARNARBÍÓI
Kanadíski leikstjórinn Stuart Samuels fjallar
um mikilvægi þess að gera
heimildarmyndir um poppmenningu á
masterclass-námskeiði í dag. Mynd hans
Miðnæturmyndir: Af bekknum á miðjuna
verður síðan sýnd á undan Strokhöfuðleðri
Davids Lynch í kvöld kl. 23:00.
HEIMILDARMYND kanadíska
leikstjórans Stuarts Samuels Mið-
næturmyndir: Af bekknum á miðj-
una var frumsýnd á Alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Reykjavík á
miðvikudagskvöldið. Leikstjórinn
Stuart Samuels var viðstaddur sýn-
inguna og svaraði spurningum
áhorfenda að sýningu lokinni. Í
kvöld heldur Samuels masterclass-
námskeið um heimildarmyndir og
poppmenningu í Tjarnarbíói.
Samuels var spurður út í hug-
myndina að baki heimildarmynd
sinni „Þegar rætt er um poppmenn-
ingu og miðnæturmyndir á borð við
þær sem David Lynch gerði eða
John Waters, er mikilvægt að gera
sér það ljóst að það gríðarlegur
munur á því hvernig fólk tekur við
kvikmyndamiðlinum í dag og hvern-
ig það fór að því fyrir nokkrum ára-
tugum. Áður en myndböndin og
mynddiskarnir komu til sögunnar,
gegndu kvikmyndahúsin og þar af
leiðandi kvikmyndirnar sjálfar miklu
stærra hlutverki en þau gera í dag.“
Gekk út á andstæð gildi
„Kvikmyndahús voru félagslegs
og pólitísks eðlis og menningar-
hlutverk þeirra var víðfeðmara en
svo að maður borgaði sig bara inn á
sýningu. Á áttunda áratugnum voru
miðnæturmyndir svo langt úti á
jaðrinum að þeir sem horfðu á þær
færðust sjálfir út á jaðarinn. Þessi
kúltúr gekk út á andstöðu eða rétt-
ara sagt andstæð gildi. Ljótt var fal-
legt, slæmt varð gott og þar fram
eftir götunum. Það mætti jafnvel
líkja þessu við nihilisma í mjög af-
mörkuðu og menningarlegu tilliti.
Í dag eru þessar myndir hins veg-
ar meinlausar að mestu leyti en það
sem virðist ekki vera að gerast er að
annar kúltúr sé að taka við. Í raun
finnst manni að það sé næstum því
ómögulegt að búa til jaðarmynd sem
hefði sömu áhrif og Night of the Liv-
ing Dead, Rocky Horror, Pink
Flamingos eða Eraserhead hafði á
sína kynslóð. Upplýsingasamfélagið
er orðið svo skilvirkt að jaðarmynd
er komin inn á miðjuna áður en mað-
ur veit af og afleiðing þessa er að
myndirnar tapa mjög fljótt pólítísk-
um eða félagslegum skírskotunum
sínum.“
Svipað pönkinu
Samuels segir að heimildarmynd
sín sé að þessu leyti eins konar virð-
ingarvottur við þessar kvikmyndir
og það samfélag sem þreifst á þeim.
„Það er mjög fátt frumlegt eða
spennandi í kvikmyndaheiminum í
dag. Flestallt sem kemur út er ann-
aðhvort framhaldsmynd eða hégóm-
legar framleiðslur stórra leikara og
leikstjóra – horfðu bara á það sem
kom fyrir Star Wars myndirnar. Það
eru mjög fáar myndir sem hafa af-
gerandi áhrif á áhorfandann og fá
hann jafnvel til að sjá lífið með öðr-
um hætti og haga sér eftir því. Og
þetta er afl sem dægurmenning á
hverjum tíma þarf að búa yfir. Að
sumu leyti er þetta eins og pönkið.
Öll rokktónlist í dag byggist meira
og minna á pönkinu og þegar pönkið
byrjaði, snerist stefnan um að vera á
móti hefðbundinni tónlist. Maður
hlustaði ekki á pönk – maður FÓR á
pönktónleika.“
Samuels vill þó meina að það séu
nokkrir bandarískir leikstjórar sem
geti bjargað dægurmenningunni.
„Tarantino og Kevin Smith eru
mér að skapi en manni finnst samt
sem teiknimyndirnar séu að taka við
af mestum krafti, South Park og
jafnvel The Simpsons. Þar er ennþá
hægt að segja allt.“
Kvikmyndir | Leikstjórinn Stuart Samuels með námskeið á AKR
Masterclass-námskeið Stuarts
Samuels hefst kl. 15 í Tjarnarbíói í
dag. Skráningargjald á námskeiðið
er 1.500 kr. og fer skráningin fram
á www.filmfest.is.
Jaðarinn horfinn
til miðjunnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leikstjórinn Stuart Samuels er staddur hér á landi á vegum Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík en hátíðinni lýkur um helgina.
Bítillinn fyrrverandi PaulMcCartney ætlar ekki að
kaupa útgáfuréttinn að gömlu Bítla-
lögunum af Michael Jackson. Jack-
son lét nýlega vita af því að Bítlalög-
in væru til sölu en Paul segist hvort
eð er fá stefgjöld vegna laganna.
„Bono hringdi í
mig og sagði:
Hefur þú frétt
það? Hann er að
selja lögin. Þú
ættir að kaupa
þau aftur! En
málið er að ég fæ
peninga fyrir út-
gáfu þeirra hvort
eð er. Og eftir nokkur ár færast rétt-
indin sjálfkrafa til mín aftur.“
Fólk folk@mbl.is