Morgunblaðið - 11.10.2005, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
● HLUTABRÉF hækkuðu í verði í
Kauphöll Íslands í dag. Úrvals-
vísitalan hækkaði um 0,11% og er
4.467 stig. Viðskipti með hlutabréf
námu 3,3 milljörðum, þar af 2,9
milljörðum með bréf Straums Burð-
aráss fjárfestingarbanka. Bréf
Mosaic Fashions hækkuðu um
3,45%, bréf Icelandic Group um
1,56% og bréf Marels um 0,78%.
Bréf Atorku lækkuðu um 1,72% og
bréf Straums Burðaráss fjárfesting-
arbanka um 1,55%.
Úrvalsvísitalan
hækkar
42,
, 1226
(7 0 0"
8B + '(/' #!
5 +$'(/' #!
; ) '(/' #!
;C'(/' #!
"5' ' #!
D ' #!
9 ( ' #!
3 /7 )'5 ' #!
3$) ' #!
C 'D ' #!
*
' #!
D;' #!
-&5 1 ';1#! ' #!
> ' #!
' -7 / "
8( '(/' #!
; - 'D ' #!
" -/ ' #!
EB
B'(/' #!
*( B'; ( ' #!
:=
' #!
F)'# /' #!
GH;'8 B'G
(
-
0)) ) - $ ' #!
$ ' #!
8"- *
9,:,
;
'% # ' #!
C 4-'D ' #!''
1#I )'' ' +#!
0#' #!
9&;)"
EJ%K
4
+ !+
&
&
&
&
&
&
&
&
&
&
&
5
)'#1
# '+ !+
& &
& &
&
& &
&
& &
& &
&
&
&
& &
&
&
&
&
&
&
&
L'&MN
&
L' MN
L'&MN
&
&
L'&
MN
L' MN
&
L'MN
L'MN
&
L'&MN
&
L'&MN
&
&
&
L'
MN
&
L'&MN
&
&
&
&
&
&
&
&
"
+ /
)
0 ('4'(' ) A
3 /'''''''''
!
! ! ! !
&
!
&
!! !
!
&
! ! !
&
! ! &
&
&
! &
&
&
/'4'76 !'!
80"!'O'8 ) ;$
+ /
&
&
&
&
&
&
&
&
&
&
80"!&'''
) '#$ ( !
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
BRESKA smásölukeðjan Somer-
field mun líklega hafna yfirtökutil-
boði frá eignarhaldsfélagi Rober
Tchenguiz, Apax Partners og
Barclays Capital, ef tilboðið verður
undir 200 penní á hlut.
Eignarhaldsfélagið hefur legið yf-
ir bókaldi Somerfield frá því að þeir
lögðu fram tilboð upp á 205 penní
fyrir sjö mánuðum. The Guardian
greinir hins vegar frá orðrómi þess
efnis að hópurinn hyggist lækka til-
boðið, en blaðið segir ólíklegt að
Somerfield gangist við lægra boði.
Ein meginástæða fyrir hiki fjárfest-
anna er sögð vera skuld félagsins við
lífeyrissjóði upp á 112 milljónir
punda sem er mun hærra en hóp-
urinn hafði gert ráð fyrir í upphafi.
Tilboðsfresturinn mun líklega
renna út nk. föstudag eftir að Somer-
field fór fram á við yfirtökuráðið að
endanlegur frestur („put up or shut
up“) yrði komið á. John von Spreck-
elsen, forstjóri Somerfield, segir að
aldrei hafi verið um nauðungarsölu
að ræða og bendir á nýlegar end-
urbætur á rekstri félagsins.
Tilboð Tchenguiz og félaga miðar
hins vegar við fasteignverðmæti fé-
lagsins en ekki breytt rekstrar-
áform. Hópurinn hefur aldrei
ábyrgst að tilboðið muni standa.
Somerfield hafnar
líklega yfirtöku
● STRAUMUR-Burðarás Fjárfesting-
arbanki á 4,58% hlutafjár í sænska
tryggingafélaginu Skandia. Frá
þessu greinir Reuters fréttastofan
og hefur eftir Ragnari Þórissyni sem
er fjárfestingastjóri hjá bankanum.
„Eftir samruna Straums og Burðar-
áss á félagið alls 46.983.500 hluti í
Skandia en það jafngildir 4,58%,“
segir Ragnar við Reuters. Hann bæt-
ir þó við að félagið hafi hvorki keypt
né selt hluti eftir sameininguna sem
bendir til þess að Straumur hafi átt
0,98% hlut í Skandia en hlutur Burð-
aráss var 3,6%. Félagið er þó enn
sem fyrr næst stærsti hluthafinn því
eignastýringafyrirtækið Fidelity á 5%.
Aðspurður segir Ragnar að verði
þess óskað komi til greina að fulltrúi
félagsins taki sæti í kjörnefnd
Skandia en þá getur félagið haft
áhrif á skipan stjórnar félagsins.
SB á 4,58% í Skandia
● Í DAG voru gefin út erlend skulda-
bréf í íslenskum krónum fyrir alls 5
milljarða króna af hálfu lánasýslu
Austurríkis og Deutsche bank. Út-
gáfan telur nú alls um 80 milljarða
króna og segir í Hálffimmfréttum
greiningardeildar KB banka að það
sé um þrefalt meira en áætlanir
deildarinnar um innflæði vegna stór-
iðju á þessu ári. Segir deildin ljóst að
allir hvatar séu fyrir hendi að áfram-
hald verði á útgáfunni þar sem nafn-
vaxtamunur við útlönd sé 7,7% og
almennt gert ráð fyrir því að krónan
haldist sterk næstu 6–12 mánuði.
Segir í Hálffimmfréttum að ekki
muni draga úr útgáfunni fyrr en hagn-
aður útgefandans minnkar með því
að nafnvaxtamunur við útlönd minnki
frá því sem nú er, eða gengisáhætta
endafjárfestisins aukist.
Erlend skuldabréf ná
80 milljarða markinu
● GENGIÐ hefur verið frá sölu á öllu
hlutafé Gasfélagsins ehf, sem er
helsti innflytjandi á fljótandi gasi og
gashylkjum til landsins. Seljendur
eru Olíufélagið ehf, Olíuverzlun Ís-
lands hf. og Skeljungur hf.
Kaupandi er Ísmyndir ehf, sem
eru í eigu Jóns Þorsteins Jónssonar,
stjórnarformanns Saxhóls ehf. og
Arnar Arnarsonar, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Gasfélagsins ehf.
Að sögn kaupanda er um að ræða
einkar spennandi tækifæri með
mikla framtíðarmöguleika. Rekstur
Gasfélagsins ehf. er sagður hafa
gengið vel, en mikil aukning hefur
verið í gasnotkun hér á landi. Í frétta-
tilkynningu segir að lögð verði
áhersla á að halda í starfsfólkið sem
unnið hefur hjá fyrirtækinu und-
anfarin ár.
Fyrirtækjasvið MP fjárfesting-
arbanka annaðist söluna, en fyr-
irtækjaráðgjöf Íslandsbanka var ráð-
gjafi kaupenda.
Gasfélagið selt
BÍLANAUST hf. hefur fjárfest í
þremur fyrirtækjum í Bretlandi á
undanförnum vikum. Samanlögð
velta fyrirtækjanna er um 1,2 millj-
arðar króna og stefnir Bílanaust á
að kaupa fleiri bresk fyrirtæki.
Öll þrjú fyrirtækin eru í sölu og
dreifingu á iðnaðarvörum, en iðn-
aðarvörur eru skilgreindar sem
verkfæri, festingavörur, öryggis-
vörur, hreinlætisvörur og efnavör-
ur.
Félögin verða sameinuð undir
einni yfirstjórn með höfuðstöðvar í
Northampton. Bílanaust hefur þeg-
ar tekið við rekstri tveggja félag-
anna en það þriðja og það stærsta
verður afhent nk. föstudag en það
veltir um 1 milljarði króna. Rekstur
félaganna verður undir nafninu AT
Toolcentre Ltd.
Velta upp á 4,3 milljarða
Umfang þessa rekstrar er um 1,2
milljarðar króna á ári og hefur
hagnaður félaganna verið um 100
milljónir króna á ári. Starfsmenn í
Bretlandi eru um 75 talsins. Bíl-
anaust naut aðstoðar Íslandsbanka
við fjármögnun kaupanna.
Að sögn Hermanns Guðmunds-
sonar, framkvæmdastjóra Bíla-
nausts, verður samstæðan eftir
þessi kaup byggð upp á þremur
megin stoðum; sölu og dreifingu á
varahlutum, sölu og dreifingu á
hjólbörðum og iðnaðarvörusölu í
Bretlandi. Segir Hermann áætlað
að um það bil 25% af tekjum og
hagnaði samstæðunnar komi frá
starfseminni í Bretlandi eftir þessi
kaup. Hann segir kaupverðið trún-
aðarmál en að um umtalsverða fjár-
festingu sé að ræða. „Áætlun fé-
lagsins fyrir árið 2006 er í vinnslu
en reiknað er með að velta félagsins
verði um 4,3 milljarðar króna og
hagnaður tæpar 400 milljónir.“
Hermann segir að leitað verði
frekari fanga með kaup á svipuðum
fyrirtækjum í Bretlandi á næsta ári
og hafi Miðlöndin svokölluðu verið
skilgreind sem helsta markaðs-
svæðið. „Við stefnum á að innan
tveggja ára verði starfsemi okkar í
Bretlandi orðin jafn mikil og á Ís-
landi og að veltan á hvoru markaðs-
svæði verði þá á fjórða milljarð
króna.“
Hermann segir starfsemi bresku
fyrirtækjanna nokkuð frábrugðna
meginstarfsemi félagsins á Íslandi.
Iðnaðarvörudeild félagsins sé þó
um 10% af veltu þess á Íslandi.
„Við þekkjum vel til í iðnaðarvörum
og í Bretlandi er meiri hagnaðarvon
í iðnaðarvörum en varahlutum og
þess vegna var þessi leið valin.
Heimamarkaðurinn var einfaldlega
orðinn of lítill og við sáum ekki fyr-
ir okkur að geta stækkað meira
hérlendis. Auk þess þótti okkur
skynsamlegt að fjárfesta erlendis á
meðan krónan er sterk og um leið
náum við meira jafnvægi í eigna-
safnið okkar. Þegar krónan síðan
gefur eftir verðum við komnir með
viðnám í erlendu starfseminni.“
Hafa keypt hjólbarðafyrirtæki
Hermann segir að helmingurinn
af veltu fyrirtækisins á Íslandi sé
nú vegna sölu varahluta en helm-
ingurinn af hjólbarðastarfsemi. Bíl-
anaust hefur síðastliðið ár keypt
fyrirtæki hér á landi sem selja og
þjónusta hjólbarða. „Félagið var
ekki nógu stórt til að nýta þær
dreifileiðir sem það hefur yfir að
ráða. Við keyptum því Ísdekk, sem
er stærsta heilsölufyrirtæki lands-
ins á sviði hjólbarða. Eftir það fór-
um við að þreifa fyrir okkur með
smásöluhlutann og keyptum í kjöl-
farið Gúmmívinnustofuna, Hjól-
barðahöllina og Hjólbarðaverkstæði
Vesturbæjar. Þar með höfum við
fullmótað aðkomu okkar að hjól-
barðamarkaðnum. Auk þess keypt-
um við nýverið hlut í Nítró ehf. sem
er áhugavert fyrirtæki með mót-
orhjólavörur,“ segir Hermann.
Bílanaust kaupir
þrjú bresk fyrirtæki
Morgunblaðið/Árni Torfason
Fjórðungur Að sögn Hermanns Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Bílanausts, er áætlað að um það bil 25% af
tekjum og hagnaði samstæðunnar komi frá starfseminni í Bretlandi eftir kaupin.
Eftir Helga Mar Árnason
hema@mbl.is
TM Software hefur fest kaup á
hollenska hugbúnaðarfyrirtæk-
inu Falcon Automatisering BV
sem sérhæfir sig í hugbúnaðar-
lausnum fyrir heilbrigðisgeir-
ann. Þetta kemur fram í frétta-
tilkynningu frá TM Software en
þar segir jafnframt að kaupin
séu liður í þeirri stefnu fyrir-
tækisins að „styrkja stöðu sína í
Evrópu með áherslu á Benelúx-
löndin“.
TM Software hefur frá árinu
2001 markaðssett hugbúnaðar-
lausnir fyrir heilbrigðisgeirann
á Evrópumarkaði undir nafninu
Theriak og er haft eftir Axel
Ómarssyni, framkvæmdastjóra
fyrirtækisins í Evrópu, að sam-
legðaráhrif með Falcon séu um-
talsverð í öllum þeim löndum
sem TM Software selur hug-
búnaðarlausnir sínar.
Falcon var stofnað árið 1988
og hefur fyrirtækið 64 við-
skiptavini. Kerfi þess eru í notk-
un hjá um helmingi sjúkrahúsa í
Hollandi.
TM Soft-
ware kaup-
ir hollenskt
fyrirtæki
FÉLÖGIN Meiður Holding S.á.r.l.
og Bakkabræður S.á.r.l. verða leyst
upp í framhaldi af endurskipulagn-
ingu á eignum Exista ehf, sem mun
eiga sér stað á morgun, 12. október.
Stjórn Exista ehf. hefur ákveðið að
þá muni hollenskt eignarhaldsfélag,
Exista B.V. taka yfir eignir Exista
ehf. en hollenska félagið er að fullu í
eigu Exista ehf. Það sem flyst yfir á
hönd hollenska félagsins er 16,98%
hlutur í Kaupþing banka hf, 21.68%
hlutur í Flaga Group hf og 29,1%
hlutur í Bakkavör Group hf.
Með þessu móti verður Exista
B.V. beinn eignaraðili að öllum hlut-
um félagsins í Bakkavör Group hf.,
Kaupþing banki hf. og Flaga Group
hf. Exista B.V. á einnig 45% hlut í
Skipti ehf, sem keypt hefur Símann.
Stærstu eigendur Exista ehf. eru
Bakkabræður Holding (59%), KB
banki (19%) og hópur 7 sparisjóða
sem eiga samtals 22% hlut.
Erlendur Hjaltason, forstjóri Ex-
ista ehf., sagði í samtali við Morg-
unblaðið að endurskipulagningunni
væri ætlað að einfalda uppbyggingu
félagsins, framtíðarfjármögnun og
styðja við frekari vöxt.
Uppstokkun
hjá Exista
: P
QG' M
M
;0%
.8R
M
M
J8J'
F*R
M
M
3;R
:
M
M
EJ%R' .(S'9(
M
M