Morgunblaðið - 11.10.2005, Page 47
kl. 5.30, 8 og 10.30 b.i. 16
Göldrótt gamanmynd!
Sýnd kl. 6 Íslenskt tal
Night Watch is F***ING COOL!
Quentin Tarantino
i t t i I !
ti r ti
RACHEL McADAMS CILLIAN MURPHY
Hrikalega hraður háloftatryllir með Jamie Foxx, Josh Lucas og Jessicu Biel í aðalhlutverkum.
FRÁ LEIKSTJÓRA FAST AND THE FURIOUS & XXX I I
Hrikalega hraður háloftatryllir með Jamie Foxx, Josh Lucas og Jessicu Biel í aðalhlutverkum.
400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 14 ára
Skemmtilega ævintýramynd með íslensku tali.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
Ó.H´T / RÁS 2
H.J. / MBL
S.V. / MBL
Miða sala opn ar kl. 17.15
Sími 551 9000í i
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
HÖRKU SPENNUTRYLLIR FRÁ WES CRAVEN
LEIKSTJÓRA SCREAM MYNDANNA.
RACHEL
McADAMS
CILLIAN
MURPHY
553 2075Bara lúxus ☎
"BRÚTAL, BLÓÐUG, ÓGNVEKJANDI
OG SLÁANDI ... SVO MAGNÞRUNGIN
AÐ ÞÚ SITUR EFTIR Í LOSTI!"
EMPIRE MAGAZINE. UK
"ÉG SEF ENN MEÐ
LJÓSIN KVEIKT"
INTERNET MOVIE DATABASE
FRÁBÆR GRÍN OG SPENNUMYND
Harðasta löggan í bænum er þann
mund að fá stórskrýtinn félaga!
Sýnd kl. 8Sýnd kl. 8 og 10.20
RACHEL McADAMS CILLIAN MURPHY
Hrikalega hraður háloftatryllir með Jamie Foxx, Josh
Lucas og Jessicu Biel í aðalhlutverkum.
"FLOTTASTA HROLLVEKJA ÁRSINS"
KÓNGURINN OG FÍFLIÐ / X-FM
Topp5.is
S.V. / MBL
Sýnd kl. 6 ísl tal
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 B.i. 16 ára
Skemmtilega ævintýramynd
með íslensku tali.
450
kr.
Síðustu sýningar
Í 36.000 FETUM VARÐ HENNAR
VERSTA MARTRÖÐ AÐ VERULEIKA.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2005 47
SKYGGNSTBAK
VI‹ TJÖLDINKÍNA:
Kynntu flér máli› og skrá›u
flig á endurmenntun.is
ÞAÐ er ekki oft sem við fáum tæki-
færi til að sjá kvikmyndir frá Rúm-
eníu, en Dauði hr. Lazarescu bætir
það svo sannarlega upp. Myndin
sem segir frá gömlum hálffullum
karli sem kvartar um kviðverki er
rúmlega 2 og hálfur tími að lengd,
og af einhverjum skemmtilegum
ástæðum heldur hún manni hug-
föngnum allan þann langa tíma,
enda hættir hún aldrei að koma
manni á óvart.
Hr. Lazarescu er einmana ekkill
sem býr einn í sjúskaðri blokkaríbúð
ásamt köttunum sínum. Þennan
laugardagsmorgun vaknar hann
með maga- og höfuðverki, og þegar
þeir hafa ekkert skánað um kvöldið
hringir hann á sjúkrabíl með aðstoð
nágrannanna. Þegar sjúkrabíllinn
loksins mætir, hefst næturlangt
ferðalag hr. Lazarescu á milli
sjúkrahúsa Búkarest-borgar. Með
honum er sjúkraliðinn Mioara, sem
reynir að vernda karlangann frá
sjálfhverfu starfsliði heilsukerfisins.
Saga hr. Lazarescu er byggð á
sannsögulegum atburðum og virðist
svo sannarlega sönn. Myndin er tek-
in í heimildarmyndastíl, án aukalýs-
ingar, vel grófkorna og óstöðug
myndavél. Takturinn hægur og
byrjun myndarinnar í rauntíma –
manni finnst maður vera á staðnum.
Án þess að þekkja sérstaklega til
er ekki annað hægt en að halda að
kvikmyndin sé gagnrýni á sjúkra-
stofnanir í Rúmeníu, þar sem starfs-
fólkið virðist uppteknara af sjálfu
sér en sjúklingunum, annaðhvort á
það í stríði hvert við annað eða
sjúkraflutningafólkið. Kerfið er
greinilega sjúkara en sjúklingarnir
sem er kastað til og frá, og lítil sem
engin virðing sýnd. Hvað þá göml-
um karli sem brennivínslykt er af –
en við getum ekki annað en fundið
til með honum.
Persónurnar eru vel skrifaðar og
mjög raunsæjar. Samtölin hjálpa
þar mikið til, þau eru mjög trúverð-
ug, bæði ryþminn og innihaldið. Ég
verð að nefna atriðið með nágranna-
konunni og sjúkraliðanum inni í eld-
húsi hr. Lazarescu sem var svo
skemmtilega satt á hversdagslegan
máta. Frammistaða leikaranna und-
irstrikar trúverðugheit mynd-
arinnar. Hvernig Lazarescu greyið
verður veikari með tímanum er
mjög áhrifaríkt og fær mann til að
finna til. Mioara er sérlega mannleg
innan um alla hrokagikkina og ná-
grannahjónin eru ljóslifandi karakt-
erar og samskipti þeirra eru mjög
tragi-kómísk. Sá svarti húmor sem
er kynntur í upphafi gengur út í
gegnum alla myndina, og gerir okk-
ur áhorfendum lífið léttara á þrauta-
göngunni með hr. Lazarescu.
Titill myndarinnar gefur margt til
kynna, og er hálfkaldhæðinn þar
sem hr. Lazaraescu er lítill herra í
augum þeirra sem hann mætir.
Væntanlega gefur hann einnig til
kynna endi myndarinnar, nema hr.
Lazarescu hljóti sömu örlög og ann-
ar Lasarus sem við þekkjum, en á
því virðist lítill möguleiki í þessum
grimma heimi sem hér hefur verið
lokið upp fyrir okkur á undarlega
hrífandi hátt.
„Sá svarti húmor sem er kynntur í upphafi gengur út í gegnum alla mynd-
ina, og gerir okkur áhorfendum lífið léttara á þrautagöngunni með hr.
Lazarescu,“ segir í dómnum.
Hrífandi þrautaganga
KVIKMYNDIR
Tjarnarbíó: AKR 2005
Leikstjórn: Cristi Puiu. Handrit: Cristi
Puiu og Razvan Radulescu. Aðal-
hlutverk: Ion Fiscuteanu og Luminota
Gheorghiu. 154 mín. Rúmenía 2004.
Dauði Hr. Lazarescu (Moartea domnului
Lazarescu) Hildur Loftsdóttir
ÞAÐ örlar á s-amerísku töfra-
raunsæi í Heilögu stúlkunni, sem
kemur ekki á óvart því myndin er
argentínsk, gerð af leikstjóranum
Martel (La Ciénaga). Hún dregur
nafn sitt af Amaliu (Alche), 16 ára,
heittrúaðri stúlku sem lítur á það
sem köllun frá Himnaföðurnum þeg-
ar hún finnur fyrir manndómi lækn-
isins Janos (Belloso), er hann nudd-
ast við hana í mannþröng. Janos
situr læknaþing á litlu fjölskylduhót-
eli sem Helena (Morán) móðir Amal-
iu rekur. Til að byrja með ætlar
Amalia að forða lækninum góða frá
freistingum holdsins en sá góði
ásetningur breytist í átök efnis og
anda.
Hvort sem Janos er viljandi eða
óviljandi þátttakandi í gjörningnum,
verður hann afdrifaríkur fyrir
þrenninguna, lækninn, stúlkuna og
móðurina, því um sinn kemur Janos
róti á tilfinningalíf mæðgnanna
beggja. Hvað hann er að vilja er ekki
ljóst en yfir manninum er flóttalegur
blær, nánast öfuguggalegur. Hitt er
ljóst að skilin eða misskilin skila-
boðin sem Amalia nemur, koma hon-
um í koll og setja líf Janosar í upp-
nám. Martel svarar ekki
spurningunni hvað sé í gangi; Trúar-
grillur, vakning kynhvatanna, til-
raun til tælingar eða perraháttur,
heldur kýs að láta áhorfandanum
eftir að túlka atburðarásina eftir eig-
in höfði. Leiðir hann inn í flókið til-
finningalíf þriggja persóna og skilur
eftir án óvefengjanlegrar nið-
urstöðu.
Ungu stúlkurnar leika sannfær-
andi en hin glæsilega, argentínska
gæðaleikkona, Morán (La Ciénaga),
drottnar yfir myndinni.
Andinn og holdið
KVIKMYNDIR
Háskólabíó: AKR 2005
Leikstjóri: Lucrecia Martel. Aðalleik-
endur: Mercedes Morán, Carlos Belloso,
Alejandro Urdapilleta, María Alche. 100
mín. Argentína. 2005.
Heilaga stúlkan (The Holy Girl/ La Niña
santa) „Ungu stúlkurnar leika sannfærandi en hin glæsilega, argentínska gæða-
leikkona, Morán (La Ciénaga), drottnar yfir myndinni,“ segir m.a. í dómi.
Sæbjörn Valdimarsson
FORTÍÐIN plagar Albert Tueis
(Zabor), víðfrægan franskan ljós-
myndara sem er að leggja síðustu
hönd á sýningu verka hálfrar aldar
ferils. Hann veit að mikilvægustu
myndirnar vantar, þær sem hann
tók af hryllilegum stríðsglæpum
landa sinna þegar hann var við her-
þjónustu í nýlendunni Marokkó. Þá
var hann ungur og tilfinninganæmur
maður sem hafði ekki kjark til að
stöðva fólskuverk sem framin voru á
landsmönnum. Um sama leyti
sömdu Frakkar og Marokkóbúar,
landið hlaut sjálfstæði, og Tueis
sneri heim með byrði á bakinu en
myndirnar urðu eftir.
Æ síðan hafa minningarnar ásótt
ljósmyndarann, nú er að duga eða
drepast, hann heldur til baka til
Marokkó til að friða sálina. Þangað
til verður opnunin að bíða.
Að vera eða vera ekki er stóra
spurningin sem kvelur ljósmynd-
arann Albert, hann stóð sig greini-
lega ekki í stykkinu þegar á hann
reyndi og Zabor túlkar einkar vel
linnulausa kvölina sem samviskan
bakar viðkvæmum manni. Augna-
ráðið er erfitt en ófrávíkjanlegt upp-
gjör þar sem örlögin koma enn einu
sinni til skjalanna, nú á bless-
unarlegan hátt og Albert fær end-
urgreiddan þann manndómsbrag að
standa frammi fyrir heiminum og
játa og iðrast gjörða sinna.
Reyndar voru aðstæðurnar slíkar
í styrjöldinni að Albert hinn ungi
fékk við lítið ráðið. En það skiptir
litlu máli, eins og þjóðskáldið orti þá;
„iðrast margt lífið eitt augnakast/
sem aldrei verður tekið til baka.“
Ekki má gleyma að geta frammi-
stöðu leikarans sem fer með hlut-
verk Alberts stríðstímanna og
nokkrar hliðarsögur frá Marokkó
samtímans eru snyrtilega fléttaðar
inn í umhugsunarverða mynd sem
tekst að skila með prýði ofur-
viðkvæmu innihaldi. Það er erfiður
línudans og oft mjótt á mununum, en
jafnvægið hefur alltaf betur áður en
illa fer. Athyglisvert að Augnaráðið
er fyrsta, langa, leikna mynd hins
norsk/marokkóska Lahmaris.
Eitt augnakast
KVIKMYNDIR
Háskólabíó: AKR 2005
Leikstjóri: Nour-Eddine Lakhmari. Aðal-
leikendur: Jacques Zabor, Khalid Bench-
agra, Florian Cadiou, Abdellah Didane,
Guillaume Lanson. 88 mín. Noregur/
Marokkó. 2005.
Augnaráðið (Le regard) Sæbjörn Valdimarsson