Morgunblaðið - 12.10.2005, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
Skapandi starf
Starfskraftur óskast virka daga frá kl. 12.00 til
18.00 og annan hvern laugardag frá kl. 12.00
til 15.00.
Sauma- og sníðakunnátta og þjónustulund
áskilin. Reyklaus vinnustaður.
Upplýsingar gefur Guðlaug í síma 892 8713.
Óskum að ráða duglega og samviskusama starfsmenn til
ræstingaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Um framtíðarstörf
er að ræða og þau snúast um:
Vaktmaður Viljum ráða til okkar vaktmanneskju til eftirlits-
og þjónustustarfa á nóttunni. Unnið er aðra hvora viku en frí
hina. Um fullt starf er að ræða. Ráðið verður í starfið
fljótlega.
Næturræstingar Óskum eftir starfsfólki til ræstinga að
nóttu til, frá kl 4.00 e.m. á svæði 110. Unnið er í 7 daga og
síðan frí í 7 daga. Æskilegt aldurstakmark 25 ára, þó ekki
skilyrði.
Dagmaður Erum að leita eftir starfsmanni í fullt starf. Starfið
er blandað föstum verkefnum og tilfallandi.
Vinnutími er frá kl. 8.00 alla virka
daga vikunnar. Ýmis fríðindi
fylgja starfinu.
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Hluthafafundur
Hluthafafundur hjá Hraðfrystihússinu – Gunn-
vöru hf. verður haldinn föstudaginn 21. október
nk. kl. 10:00 á skrifstofu félagsins.
Dagskrá:
1. Samruni félagsins við Framnes Ís 780 ehf.
2. Lækkun hlutafjár hins sameinaða félags
úr kr. 239.467.358 í kr. 186.435.125
3. Önnur mál.
Dagskrá og endanlegar tillögur munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýn-
is, viku fyrir hluthafafund.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent
á fundarstað frá kl. 9:00.
Stjórn Hraðfrystihússins – Gunnvarar hf.
Kennsla
Námskeið og próf
til réttinda leigumiðlunar
Námskeið til réttinda leigumiðlunar verður
haldið dagana 31. október, 2. og 4. nóvember
nk., kl. 17:00-19:00 og próf 12. nóvember nk.
Námskeið og próf er haldið samkvæmt húsa-
leigulögum nr. 36/1994 og reglugerð um leigu-
miðlun nr. 675/1994 og kostar kr. 30.000.
Þátttöku ber að tilkynna til Endurmenntunar
Háskóla Íslands, sími 525 4444, fyrir 25. október
nk. Fyrirvari er gerður um næga þátttöku.
Prófnefnd leigumiðlara.
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Ólafsvegi 1,
Ólafsfirði, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Kirkjuvegur 16, þingl. eig. Izudin Vajzovic og Sabina Vajzovic, gerðar-
beiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 14. október 2005 kl. 10.00.
Kirkjuvegur 16, fastanr. 215-4187, þingl. eig. Marinó Heiðar Svavars-
son, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður bænda og SP-Fjármögnun
hf., föstudaginn 14. október 2005 kl. 10.00.
Kirkjuvegur 4, þingl. eig. Sæfari SF-109 ehf., gerðarbeiðandi Sam-
vinnulífeyrissjóðurinn, föstudaginn 14. október 2005 kl. 10.00.
Kirkjuvegur 4, fastanr. 215-4166, þingl. eig. Viggó Guðjónsson, gerð-
arbeiðendur Samvinnulífeyrissjóðurinn og Sjóvá-Almennar trygging-
ar hf., föstudaginn 14. október 2005 kl. 10.00.
Vesturgata 1, fastanr. 215-4368, þingl. eig. Viggó Guðjónsson, gerð-
arbeiðandi Samvinnulífeyrissjóðurinn, föstudaginn 14. október
2005 kl. 10.00.
Sýslumaðurinn á Ólafsfirði,
10. október 2005.
Til sölu
Hús til flutnings
Akraneskaupstaður auglýsir til sölu Breiðargötu
4 (Bræðrapart) til flutnings af núverandi lóð.
Húsið, sem er tveggja hæða járnklætt timburhús
að grunnfleti um 46 m², heildar flatarmál um 130
m², hefur verið talsvert endurnýjað að innan en
þarfnast viðgerða að utan.
Húsið selst í núverandi ástandi og þarf að flytjast
af lóðinni innan 6 mánaða frá því að tilboði er
tekið. Til greina kemur að lóðin að Suðurgötu
20 fylgi húsinu ef um semst. Nánari skilmálar
vegna sölu hússins liggja frammi á bæjarskrifstof-
unni, Stillholti 16-18.
Tilboðum óskað skilað til undirritaðs fyrir
kl. 11:00 þriðjudaginn 25. október 2005 að Still-
holti 16-18, Akranesi, en þá verða tilboð opnuð
að þeim viðstöddum sem þess óska.
Þeim, sem vilja kynna sér nánar ástand húss-
ins, er bent á að hafa samband við forstöðu-
mann Þjónustumiðstöðvar Akraness, Sigurð
Þorsteinsson, í síma 898 9214.
Bæjarritari.
Styrkir
Rannsóknarsjóður
Öldrunarráðs Íslands
auglýsir eftir umsóknum um styrk
Úr 5. gr. skipulagsskrár Rannsóknarsjóðsins:
„Hlutverk sjóðsins er að styrkja rannsóknir í
öldrunarmálum á Íslandi, svo og þau verkefni
sem stjórn sjóðsins ákveður.“
Umsóknarfrestur er til 5. nóvember 2005 og
skulu umsóknir sendar Öldrunarráði Íslands,
Hverahlíð 20, 810 Hveragerði.
Frekari upplýsingar veitir Gísli Páll Pálsson,
formaður stjórnar ÖÍ, í síma 480 2000.
Stjórn Öldrunarráðs Íslands.
Tilboð/Útboð
Útboð
á flugvél flugklúbbs Flotans
á Keflavíkurflugvelli.
Vegna lokunnar flugklúbbs Flotans á Keflavík-
urflugvelli (Navy Flying Club) hefur verið
ákveðið að óska eftir tilboðum í flugvél félags-
ins. Flugvélin er af gerðinni Piper Cherokee
Warrior 1974 PA-28-151 N44645.
Vélin verður til sýnis föstudaginn 14. október
2005 milli kl. 11.00 og 12.00 fyrir hádegi og
áhugasamir fá þá gögn afhent.
Vinsamlega hafið samband við Tómstunda-
deild Varnarliðsins (Morale, Welfare and Recr-
eation Department), tengiliður er Þorsteinn
Bjarnason í síma 425 4690 eða 425 7502.
Tilkynningar
Félagslíf
Skyggnilýsingarfundur
með Maríu Sigurðardóttur
verður haldinn í Góðtemplarahús-
inu fimmtudaginn 13. október og
hefst kl. 20.30. Á fundinum heldur
María Sigurðardóttir skyggnilýs-
ingu.
Aðgöngumiðar verða seldir í and-
dyri Góðtemplarahússins fyrir
fundinn frá kl. 19.30—20.30 á
meðan húsrúm leyfir.
Miðaverð 800 kr. fyrir félags-
menn en 1.200 kr. fyrir aðra.
Stjórnin.
HELGAFELL 6005101219 IV/V
(Embf.)
GLITNIR 6005101219 I
I.O.O.F. 7 18610127½
I.O.O.F.18186101289.0.*
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.