Tíminn - 24.02.1970, Blaðsíða 12

Tíminn - 24.02.1970, Blaðsíða 12
ÞrlSjudagur 24. febrúar 1970 Á HREINDÝRAVEIDUM FYRIR SÆDÝRASAFNIÐ, BLS. 15 Þorsteinn Sigurðsson forma'ður Búna'ðarfélags fslands i ræðustól í upph afi þingsins. 52. húnaðarþing var sett í gær: (Tímamynd GE). Oröið tímabært aö Búnaðarfélag íslands hafi fiskiræktarráðunaut sagði Þorsteinn Sigurðsson í setningarræðu AK, Reykjavík, ntánudag 52. búnaðarþing var sett í Bændahöllinni kl. tíu árdegis í dag. Þorsteinn Siguríllsson, for- seti Búnaðarfélags íslands, setti þingið með ræðu, og á setningarj fundinum flutti Ingólfur Jónsson j laiKlbúnaðarráðherra einnig ávarp. | Á Bðrum fundi þingsins eftir há- j degið voru kjörnir varaforsetar, Einar Ólafsson og Ásgeir Bjarna son, en forseti Búnaðarfélagsins er jafnan aðalforseti á búnaðar- þingum. Ritarar voru kjörnir Benedikt Grímsson og Sveinn Jónsson. Næsta fundur á búnaðar þingi verður kl. 9,30 árdegis í dag, og flytur Gísli Kristjánsson þá erindi um hraðþurrkun heys. Flestir búnaðarþingsmenn voru komnir til þings í daig. 1 upphafi setningarræSu sinnar minntist Þorsteinn Sigurðsson fyrst þriggja merkisbænda, ■ sem allir áittu sæti á búnaðarþingi lengur eða skemur, og hafa látizt síðan síðasta búnaðarþingi lauk. Þessir bændur voru Guðmundur Erlendsson bóndi á Núpi í Rang árþingi, Þórhallur Jónasson bóndi á Breiðavaði í Eiðaþinghá og Ólafur Bjarnason bóndi í Brautar holti á Kjalarnesi. Risu fundar menn úr sætum í virðingarskyni við Iþá. Forseti Búnaðarfélagsins ræddi síðan um árferðið og afkomu bú- skapar á liðnu ári, einkum hey- brestinn á liðnu sumri og ræddi þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið af opinberri hálfu til hjálp ar á heybrestssvæðum. Hann sagði að Bjargráðasjóður hefði lánað 72 millj. kr. á sl. hau~ti og tekið til þess allstórt lán úi Jarða- kaupasjóði ríkisins. Hann taldi, að betur hefði tek izt en á horfðist að fuilnægja lánsþörf bænda vegna fóðurskorts ins. í framhaldi af þessum lána- málum ræddi Þorsteinn um al- menn lánákjör bænda hér á landi og gerði nokkurn samanburð á þeim og lánakjörum, sem bænd ur á Norðurlöndum eiga við að búa. Sagði hann, að bændur á Norðurlöndum byggju við mikiu betri lánskjör, bæði til byggingar, ræktunar, vélakaupa, bústofns- kaupa og rekstrar. Lánin væru miklu hærri hlutfallslega, allt að 90% kostnaðar við framkvæmdir, svo sem byggingar íbúðar- og peningshúsa, 75% til verkfæra- kaupa og yfirleitt með 4,5% vöxt um. Þá ræddi Þorsteinn um efnahag bænda og þá athugun, sem nýlega hefur farið fram á honum. Hann ræddi einnig um veiðimál og kvað það orðið fyllilega __ tíma bært, að Búnaðarfélag íslands réðii í þjónuistu sína fiskimála ráðunaut til þess að leiðbeina SKOÐANAKONNUN I BORGARNESI Á fundi situðningsmanna B-liist- ans í Borgarnesi 8. febrúar 1970 var kosin nefnd til þess að ganga frá tillögu um framboðs- lista við næstu hreppsnefndar- kosningar. Nefndin hefur ákveð ið að efna til skoðanakönnunar um skipun fimm efstu sæta list ans. Skoðanakönnun þessi verður framkvæmd þannig, að útbúnir verða kjörseðler með 15 nöfn um og 5 auðum línum fyrir nöfn. Ætlazt er til þess, að þeir, sem taka þátt í skoðanakönnuninni merki við fimm nöfn á listanum eða nöfn, sem þeir kynnu að bæta á hann og númeri 1 til 5 við þá ménn, sem þeir vilja láta skipa 5 efstu sæti framboðslistans. Með Ifllðsjón af niðurstöðu skoðanakönnunarinnar, tekur svo undirbúningsnefndin endanlega ákvörðun um framboðið sam- kvæmt umboði almenns fundar stuðningsmanna B-listans í Borg arnesi. Þátttaka í skoðanakönnunin ni er ' heimil öllum kosningabærum stuðnimgsmönnum B-listans til hreppsnefndarkosninga. Kjörfundur vegoa skoðanakönn unarinnar verður ákveðinn oglmeð heimsendum kjörgögnum og auglýstur síðar. Nánari reglur um á Ikjörstað. skoðanakönnunina verða birtar I (Fréttatilkynning) bændum um fiskirækt í ám og vötnum og fiskeldi. Hér væri um að ræða mikilvæga framtíð árbúgrein. Loks ræddi hann um rafmagns málin og minnti á þá staðreynd, sem nú væri væntanlega öRum ljós, að ekkert býli gæti haldjzt í byggð til langframa, nema hafa rafmagn. Enn skorti nokkuð á, að svo væri. Enn hefðu um 1550 býli ekki rafmagn frá ríkisraf- veitum, en þar af mundu um 950 hafa einkarafstöðvar. Af þeim býlum, sem þá vœru eftir raf m-ag'nlaius væri búið að samþykkja að leggja á næstu missirum raf magn til 260 býla, en þá væri enn bálft þriðja hundrað eftir, og nokkuð langt að leggja á mör.g þeirra. Þorsteinn gat þess, að nágranna þjóðir, til að mynda Svíar, hefðu komið á hjá sér víltækum upp- skerutryggingum, og legði ríkið verulegar fjánhæðir til þeirra. Uppskerubrestur hefði t. d. orðið svo mikill þar á liðnu sumri, að ríkið hefði orðið að leggja fram stóraukið fé til þess að trygging ar þessar uppfylltu skyldur sínar. Eins og áfallahættu íslenzkra bænda væri háttað, hlytu slíkar uppskerutryggingar að vera þeim íihugunarefni. Framhald á bls. 22. Atkvæöa- greiðsla um sameiningu ísafjaröar og Eyrarhrepps GS-ísafirði, mánudag. Fundir um sameiningu Eyr- arhrepps og ísafjarðar voru á laugardag og sunnudag á ísafirði og Hnífsdal. Frummæl endur á báðum fundunum voru Jóhann Einvarðsson, bæjarstjóri ísafirði og Guð- mundur Ingólfsson Hnífsdal. Einnig sat fundinn Unn- ar Stefánsson, viðskiptafræð- ingar frá framkvæmdanefnd sameiningarnefndar sveitar- félaga. Hans V. Haraldsson, hagfræðingur, ísafirði hefur samið álitsgerð fyrir samein- ingarnefndina hér. Einnig hefur Guðmundur Magnússon sveitarstjóri í Eyrarhreppi, samið og gefið út bækling sem í eru ýmsar upplýsingar um málið. Fundirinir voru fjöísóttir og margir ræðumenn tóku til máls. Atkvæðagreiðs'la um málið fer fram næstkomandi sunnudag á báðum stöðum, og eru það ein- dregin tilmæli til fólks að fara og kjóisa, hvort sem það er með sameiningunni eða ekki. Konur á Suðurnesjum Stofnfundur félags Framsóknar kvenna í Keflavík og nágrenni verður haldinn í Aðalveri í Kefla vík, föstudaginn 27. febr. n. k. kl. 20,30. Allair FramsóknarkonUr velkomnar. Nefndin. KONA LÉZT ER KVIKNAÐI í LEGUBEKK ER HÚN SVAF Á OÓ—Reykjavík, mánudag. Iíona fórst s. 1. laugardags- kvöld er eldur kviknaði f legu bekk, sem hún hafði hallað sér á og sofnað. Allar líkur benda til að konan liafi sofnað út frá logandi sígarettu og eldurinn komizt úr hennj í svæfil og síðan í legubekkinn sem hún lá á. Slysið varð á Reykja'lundi en þar starfaði konan, scm hét Þóra Eggertsdóttir og var 58 ára -ð aldri. Eldurinn náði ekki að breiðast út. Rétt fyrir kl. lo á 1-agardags bvöldið varð fólk, vart við reyk í álmu þeirri í aðalbygg ingunni á Reykalundi, sem starfsfólk býr í. Kom fljótlega í ljós að reyk lagði út með- fram dyrum á íbúð Þóru. Voru dyrnar læstar að innan, en fljótlega tókst að opna þær. Haukur Þórðarson, yfirlæknir, réðist á eldinn með handslökkvi tæki og tókst honum að slökkva í sófanum. Konan var látin þegar komið var inn í herberg ið. Var sófinn mikið brunn inn og eins koddi og teppi sem Þóra hafði liag-t yfir sig. Ann- að brann ekki horberginu. en hitinn var mjög mikill og sviðn uðu húsgögn og takkar á sjón varpstæki sem var við vegg gegnt sófanum. Þóra hafði tvö herbergi til umráða, stofuna sem hún lézt í og samliggjandi svefnherbergi. Hefur Þóra greinilega ekki ætlað að sofna á leguibekknum, heldur hallað sér þar um stund. Það var hjúkrunarkona sem fyrst kom að dyrunum sem reykinn lagði út meðfram. Féll hurðin svo vel að stöfum að lítinn reyk lagði út um bygg inguna Ilefur bruninn verið mjög hægfara og sófinn frem ur sviðnað en brunnið. Rann sóknarlögreglan í Hafnarfirði, sem hefur rannsókn mélsins með hömdum, segist ekki getað ákvarðað með vissu hve langt var síðan eldurinn komst í legubekkinn þar til vart varð við hann. Var þegar í stað hringt í slökkviliðið í Reykja ví'k, en búið var að slökfcva - sófanum þegar það kom á stað inn. Þóra hefur starfaS á Reykja lundi í mörg ár. Vann hún þar . þvottahúsinu.i Hún var ógift.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.