Tíminn - 25.03.1970, Side 16
MlSvilcudagur 25. mari 1970
Skattfrjálst braskfélag - sjá blaðsíðu 7
K1
FÉLAGSHFIMILI FRAMSOKNAR-
MANNA í SUÐURL.KJÖRDÆMI
Á síðastaári festi kjördæm-
issamband Framsóknarmanna
á Suðurlandi kaup á hæð í hús-
inu að Eyrarvegi 15 á Selfossi.
Síðan hefur verið unnið við
þetta húsnæði og má það nú
heita fulbúið.
Sunnudaginn 22. marz var
það opnað formlega og tekið í
notkun að viðstöddum falltrú-
um Framsóknarfélaga í kjör-
dœminu og allmörgum gestum.
Þórarinn Sigurjónsson, formað-
ur byggingarnendar, rakti sögu
hiúskaupa og framkvæmda,
þakkaði öllum, er lagt höfðu
hönd að verki, þar af höfðu
margir unnið í sjálfboðavinnu,
og afhenti Jóni R. Hjá'lmars-
syni, formanni kjördæmissam-
bandsins, afsalsbréf fyrir hús-
eigninni.
Margar ræður voru fluttar
í tilefni þesSa gleðilega viðburð
ar os m. a. tóku til móls al-
þingismennirnir Ágúst Þor-
valdsson og Björn Fr. Björns-
son og ritari Framsóknarflok'ks
ins, Hel.ga Bergs. Guðmundur
Guðmundsson afhenti að gjöf
ágætt ræðupúlt frá F.Ú.F. í
Árnessýsiu, er formaður þess
Eggert Jóhannesson hafði smíð
að. Heillaskeyti barst frá Fram-
sóknarmönnum í Vestmanna-
eyjum, er ekki höfðu komið
því við að mæta.
Húseign þessi er um 135
flatarmálsmetrar að stærð. Frá
gangur allur er hinn vandað-
asti og innréttingar smekkleg-
ar.
Nokkur hluti hússins hefur
verið leigður út fyrst um sinn
undir skrifstofur, en að öðru
leyti verður þarna ágæt að-
staða fyrir starfsemi kjördæm
issambandsins og Framsóknar-
félaganna og aiveg sérstakiega
fyrir Þjóðólf, blað Framsókn-
armanna á Suðurlandi.
Frá vígslu Félagsheimllis Framsóknarmanna I Suðurla ndsköjrdæmi. Ágúst Þorvaldsson alþingismaður er I
ræðustól. (Tímamynd Diðrik)
ALMENNINGI VERÐI AUÐVELD-
AÐ AÐ NJÓTA VETRARORLOFA
SKB-Reykjavík, þirðjudag.
Þingmenn allra flokka lögðu í
dag fram tillögu til þingsályktun-
ar um vetrarorlof. Er tillagan á
þá leið að Alþingi álykti að skora
á ríkisstjórnina að hafa um það
forgöngu við ASÍ og önnur stéttar
sambönd í landinu, að kannað
verði hvernig auðvelda megi al-
menningi að njóta orlofs á vetrum
sé rtil hressingar og hvíldar, bæði
innanlands við útilíf og í hóporlofs
ferðum til Suðurlanda. Verði m. a.
leitað samvinnu við Flugfélag fs-
lands og Loftleiðir um mái þetta,
svo og innlendar fcrðaskrifstofur.
í greinargerð með ályktuninni
segir m. a. a ðsívaxandi vélvæð-
ing í atvinnulífi, sáaukið þéttbýli,
hraði og hávaði auki á þörf manna
til að nj’óta orlofs síns sem bezt.
En s’vo að orlofin verði raunveru-
leg almenningseign, þurfi menn
að geta notið þeirra á ódýran og
hagkvæman hótt, og þau þurfi að
falla á þann tíma, sem almenning-
ur geti leyft sér að tafca þau af-
komu sinnar vegna. Sumur séu
hér stu.tt og vetur langir og því
veiti þjóðinni ekfci af að nota sum
artímann sem bezt til vinnu, en þá
verði orlofin afskipt hjá mörgum,
nema sá háttur komi til að nota
vetrartímann, þegar minnst sé um
atvinnu og erfiðara um ýmsar
vin nufrarnk v æm d ir.
Ýmis stéttarfélög hafi unnið
mikið og gott starf að orlofsmál-
um á undanförnum árum, en
samt sem áður sé staðreynd að
fjölmargir hafi mjög sjaldan eða
aldrei, ýmist vegna fjárskorts eða
tímaskorts getað tekið orlof.
Á þessu þurfi að verða breyting
en hún verði ekki nema orlofin
færist í verulegu mæli á vetrar-
tímann líka. Það sé og athyglis-
vert verkefni fyrir flugfélögin að
nota flugvélar sínar í hópferðir
til Suðurlanda þegai fátt sé um
farþega á auglýstum leiðum.
Síðasti bærinn í dalnum sýnd mikið lagfærð
OÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Hin vinsæla barnakvikmynd
Óskars Gíslasonar, Síðasti bær
inn í dalnum, verður sýnd i
Tjarnarbæ eftir páska. Verður
fyrsta sýningin að þessu sinni
annan dag páska. Er myndin
mikið endurbætt frá því hún
var sýnd síðast. Hefur verið
sett inn á hana nýtt tal og
tónn. Ný kópía af myndinni
var gerð í Danmörku en liljóð
upptakan fór fram hjá sjónvarp
inu.
Óskar Gíslason sagði i dag,
að rétt 20 ár séu nú liðin síðan
hann gerði þessa kvikmynd. Var
myndin að mestu tekin á Tanna
stöðum í Ölfusi og inniatriði :
baðstofunni í Árbæ. Leikendur
voru bæði áhugafól'k og lærðir
leikarar. Er mvndin gerð eftir
har.driti Lofts Guðmundssonar,
en Ævar Kvaran annaðist leik
stjórn, Jórunn Viðar samdi tón
list við myndina.
Flestir þeirra sem léku í
myndinni töluðu sín hlutverk
inn aftur. Meðal þeirra eru
Þóra Borg, Jón Aðils og Valdi
mar Lárusson. Frú Friðrika
Geirsdóttir, sem lék telpuna tal
aði nú aftur inn á myndina og
hefur röddin breytzt furðulítið á
þessum tíma. Að sjólfsögðu gat
drenginn, ekki talað sitt hlut
verk aftur.
PRÚFKJÖR FRAMSQKNAR-
MANNA í HAFNARFIRÐI
Farmsóknarfélögin í Hafnarfirði
efna til pró'fkjörs um skipan fram-
boðslista við bæjarstjórnarkosn-
ingarnar í vor.
Prófkjörið fer fram 4. og 5.
apríl á skrifstofu félaganna að
Strandgötu 33 kl. 2—7 e.h. báða
dagana.
Skrifstofan verður einnig opin
31. marz ti'l 3. apríl, kl. 8—10, öll
kvöldin, og er stuðningsfólik list-
ans, sem taka vi.il þátt í prófkjör-
inu og ekki hefur fengið kjör-
gögn send, hvatt til þess að hafa
samband við skrifstofuna í síma
51819.
Prófkjörslistinn er þannig skip-
aður:
Bjarni Magnússon, bankafulltrúi,
Öldutúni 14.
Björgvin Steinþórsson, skipasmið-
ur, Urðarstdg 8.
Borgiþ'ór Sigfússon, sjómaður,
Skúlaskeiði 14.
Fanný Ingvarsdóttir, húsfreyja,
Herjólfsgötu 22.
Guðný Gunnlaugsdóttir, hár-
greiðslufcona, Köldukinn 20.
Gunnar Hilmarsson, deildarstj.,
Álfaskeiði 80.
Gunnar Hólmsteinsson, viðskipta-
fræðingur, Álfaskeiði 104.
Gunnlaugur Guðmundsson, Álfa-
skeiði 46.
Iljalti Auðunsson, skipasmiður,
Öldugötu 16.
Hjalti Einarsson, trésmiður,
Álfaskeiði 88.
Hörður Gunnarsson, skrifstofustj.,
Álfaskeiði 82.
Ingvar Björnsson, stud. jur.,
Sléttuhrauni 28.
Jón Pálmason, skrifstofustj.,
Ölduslóð 34.
Kristinn Ketilsson, verzlunarráðu-
nautur, Erluhrauni 13.
Kristbjörg Ásgeirsdóttir, hús-
freyja, Ál'faskeiði 92.
Kristinn Guðnason, verzlunarstj.,
Hólabraut 14.
Lárus J. Guðmundsson, bréfberi,
Hringbraut 19.
Magnús Guðmundsson, banka-
maður, Hringbraut 7.
Margrét Þorsteinsdóttir, hús-
freyja, Sunnuvegi 11.
Ólafur Bergsson, tækniteiknari,
Lindarhvammi 26.
Ragnheiður Sveinsbjörnsdóttir,
húsfreyja, Smyrlahrauni 34.
Reynir Guðmundsson, verkam.,
Brúsastöðum.
Sigríður Karlsdóttir, húsfreyja,
Jófríðarstaðavegi 12.
Stefán Txi'-’iit-cíon, kennari,
Alfaskeiði 78.
Stefán V. Þorstcinsson, eftirlitsm.,
Arnarhrauni 36.
Sveinn A. Sigurðsson, vélstjóri,
Mávahrauni 10.
Vilhjálmur Sveinsson, bifvéla-
virki. Bröttukinn 15.
Þorvaldur Karlsson, stud. jur.
Álfaskeiði 80.
Snjóflóð féll
á Múlaveg
í tvígang
SB-Reykjavík, þriðjudag.
Snjóflóð féll á Múlaveginn
í gær am 3 leytið, en iþá var
verið að moka veginn og
var ýta stödd í Brikargili,
pegar óhappið varð, Annar
ýtustjórinn, Valdimar Stein-
grímsson, var nýfarinn í
kaffi hekn til Ólafsfjarðar,
en hinn, Gunnólfur Árnason
varð eftir og hélt sctarfinu
áfrani.
Flóðið féll yfir veginn og
færði ýtuna í kaf, þannig að
ekki sást nema rétt á þak-
ið á henni. Snjórinn braut
rúður í húsi ýtunnar og fyllt
ist það af snjó og þrengdi
hann mjög að Gunnólfi, sem
hvorki gat hrært legg né
lið. Þegar Valdimar kom aft
ur, eftir um klukkustund,
fannst honum aðkoman að
vonum heldur ósfcemmtileg.
Hann fór strax að grafa og
tók það hann nokkurn
tima, að ná vinnufélaga sín-
um út úr ýtunni, Gunnólfur
var marinn og shrámaður
og orðinn kaldur. Þeir félaa
ar komu til Ólafsfjarðar um
5 leytið f gær og var þá gert
að sárum Gunnólfs.
Seinna um kvöldið fór
svo Valdimar aftur út í
Brikargil til að reyna að ná
ýtunni úr snjónum. Þá sá
hann, að annað snjóflóð
hafði fallið í veginn, yfir
hann og alveg fram í sjó.
Mun það hafa verið enn
meira en það fyrra, en eng-
inn hafði séð það falla. Ýt-
uu var grafin upp og gekk
það vel, enda margir menn
þar að starfi.