Morgunblaðið - 31.10.2005, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2005 7
FRÉTTIR
Fjármögnun í takt við þínar þarfir
H
in
rik
P
ét
ur
ss
on
l
w
w
w
.m
m
ed
ia
.is
/h
ip
Við viljum að þú náir árangri
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 1500 Fax 540 1505
www.lysing.is
“Vi› vitum a› me› réttum tækjum og tólum
eiga vi›skiptavinir okkar meiri möguleika a›
ná árangri í sinni starfsemi. Okkar markmi›
er a› a›sto›a flá til gó›ra verka enda vitum
vi› a› velgengni okkar byggist á velgengni
vi›skiptavinanna.“
Gu›rí›ur Ólafsdóttir
Yfirma›ur fyrirtækjasvi›s
LÖGREGLUNNI í Keflavík var til-
kynnt um tvö skemmdarverk á bif-
reiðum á laugardag. Um morguninn
var lögregla kölluð að bifreiðastæði
við SBK, þar sem búið var að brjóta
afturrúðu í Nissan Micra-bifreið.
Einnig var búið að skemma aftur-
rúðuþurrkuna.
Síðdegis tilkynnti eigandi eðal-
bílaþjónustu að skemmdir hefðu ver-
ið unnar á bifrið hans er hann var á
ferðinni í Reykjanesbæ síðastliðið
miðvikudagskvöld. Er hann ók eftir
Hafnargötu rétt við Tjarnargötu var
eggjum kastað í bifreiðina úr bifreið
sem hann mætti. Lentu eggin á vín-
ilklæddum toppi eðalbifreiðarinnar
og skemmdist toppurinn við það.
Eggjum kastað
í eðalvagn
HARALDUR Briem sóttvarnalækn-
ir segir að fuglainflúensa sé flensa í
fuglum en ekki mönnum. Hann
segir að fuglainflúensa hafi í mjög
fáum tilfellum smitast frá fuglum í
menn og að hún smitist ekki milli
manna. Ekki sé því verið að gefa
mönnum bóluefni vegna þessa.
Hann segir aðspurður að bólu-
setning vegna árlegrar inflúensu
hér á landi komi fuglainflúensunni
ekkert við. Hann segir ennfremur
aðspurður að bólusetning vegna
inflúensu hér á landi veiti ekki vörn
gegn fuglainflúensu. Hann ítrekar
að í mjög fáum tilfellum hafi fugla-
inflúensa smitast frá fuglum í
menn. Hann segir ennfremur að
almenningur þurfi ekki að óttast
fuglainflúensu; hún sé ekki
faraldur í mönnum.
Bólusetning
gegn inflúensu
óviðkomandi
fuglaflensu
TVEGGJA daga veiði í laxveiðiánni
Alta í Finnmörku í Noregi fór á 170
þúsund norskar krónur, eða tæplega
1,6 milljónir íslenskra króna, á upp-
boði á veiðileyfum á svokallaðri lax-
ahátíð, sem Verndarsjóður villtra
laxa stóð fyrir í Ósló í Noregi í síð-
ustu viku. Á laxahátíðinni voru boð-
in upp veiðileyfi í þekktum ám í Nor-
egi, en markmið hátíðarinnar var
fjársöfnun fyrir sjóðinn.
Orri Vigfússon, formaður sjóðs-
ins, segir að sjóðurinn sé með starf-
semi í löndunum í kringum Atlants-
hafið. Tilgangur sjóðsins sé
laxavernd, eins og nafnið ber með
sér, en sjóðurinn kaupir kvóta og
veiðiréttindi í sjó svo laxinn geti
gengið til baka í sínar heimaár. Sjóð-
urinn hafi keypt slík réttindi við Ís-
land, Færeyjar og Grænland og víð-
ar, en stefnt sé að því að kaupa þau á
fleiri stöðum, t.a.m. við Noreg.
Orri segir að sjóðurinn hafi fyrr á
árinu gert samninga um kaup á net-
um í Þrándheimsfirði og laxahátíðin
í Ósló hafi átt að styrkja þau kaup.
Hann segir að hátíðin hafi vakið at-
hygli í Noregi og fjallað hafi verið
um hana í norska ríkissjónvarpinu.
Orri segir að Íslandsbanki hafi einn-
ig styrkt hátíðina.
Tveggja daga veiði fór á 1,6 milljónir
Verndarsjóður villtra laxa stóð fyrir laxahátíð í Noregi
SLÖKKVILIÐ og lögregla voru
kölluð að atvinnuhúsnæði í Grófinni
6 í Keflavík síðdegis á laugardag
vegna elds sem hafði komið upp í
húsinu. Húsinu er skipt í nokkur bil
og hafði kviknað í einu þeirra.
Slökkvistarf gekk greiðlega en
nokkrar skemmdir urðu, mest
vegna reyks og sóts. Að sögn lög-
reglu eru eldsupptök ókunn, en
málið er í rannsókn.
Eldur í Keflavík
BYGGING kalkþörungaverksmiðju
Íslenska kalkþörungafélagsins á
Bíldudal hófst á föstudaginn. Byrjað
er að taka fyrir grunni hússins, en
það er fyrirtækið Lás hf. á Bíldudal
sem sér um jarð- og steypuvinnu við
verksmiðjuna.
Ekki fékkst bankalán til þess að
reisa verksmiðjuna sem írska fyrir-
tækið Marigot og sanddælingafyrir-
tækið Björgun á Bíldudal sóttu um
fyrr í mánuðinum. Í yfirlýsingu frá
Michael Ryan, framkvæmdastjóra
Íslenska kalkþörungafélagsins segir
að ástæðan fyrir höfnun lánsum-
sóknarinnar hafi verið sú að bankinn
hafi ekki viljað taka verksmiðjuna og
byggingar hennar sem veð vegna
staðsetningar hennar. Fjármögnun
tókst þó eftir öðrum leiðum og er
gert ráð fyrir því að framleiðsla hefj-
ist snemma næsta vor. Í fyrsta
áfanga verður framleiðslan um 8.000
tonn á ári, en reiknað er með að full
afkastageta verksmiðjunnar verði
um 40.000 tonn eftir stækkanir í
nokkrum áföngum.
Guðmundur Valgeir Magnússon,
verksmiðjustjóri, segist bjartsýnn á
þróunina. „Það er stöðugt verið að
vinna að vöruþróun á Írlandi. Það
sem þeir eru komnir niður á í dag er
efni sem heitir Acid Buf, en það er
fæðubótarefni fyrir búpening unnið
úr kalkþörungum.“
Kalkþör-
ungaverk-
smiðja rís