Morgunblaðið - 31.10.2005, Blaðsíða 16
foreldrar geta lagt sitt af mörkum til
þess að skemmtunin fari vel fram.
Eftirfarandi má hafa til hliðsjónar:
Verið skýr í afstöðu ykkar gegn
neyslu áfengis og annarra vímu-
efna
Kaupið e kki áfengi fyrir ungling-
inn
Bjóðið upp á óáfenga drykki
Ef unglingurinn fær leyfi til að
bjóða vinum heim fyrir ballið þarf
foreldri að vera heima, til stuðn-
ings og til að sjá til þess að hvorki
áfengis né annarra vímuefna sé
neytt á staðnum
Tryggið að unglingurinn komist
öruggur heim að loknu balli, t.d.
með því að sækja hann ef ekki eru
skipulagðar ferðir á vegum skól-
ans. Brýna fyrir honum að þiggja
ekki far með einhverjum sem
hugsanlega eru undir áhrifum
Ítrekið að unglingurinn þiggi ekki
drykk frá öðrum, eða skilji glas
sitt eftir án þess að fylgjast með
því, þar sem ólyfjan getur hafa
verið laumað í glasið
Ef foreldri verður vart við skipu-
lagt, foreldralaust partí þar sem
málin virðast vera að fara úr
böndunum þarf að láta lögreglu
umsvifalaust vita
Einnig ef foreldrar verða varir við
að ungu fólki, sem ekki hefur ald-
ur til, er boðið á vínveitinga- eða
skemmtistað. Þá þarf að láta lög-
reglu vita af því strax svo hægt sé
að kanna hvort verið sé að selja
eða nota vímuefni á staðnum og
hvort ungt fólk undir lögaldri sé á
staðnum og því seldir eða afhentir
áfengir drykkir.
Ínýliðinni vímuvarnaviku varþemað upphafsaldur áfeng-isdrykkju þar sem m.a. varlögð áhersla á mikilvægi þess
að ungt fólk hefji ekki neyslu áfengis
fyrr en eftir tvítugt. Fyrir utan það
að bannað er með lögum að neyta
áfengis fyrr en eftir tvítugt benda
niðurstöður rannsókna til þess að
áfengi hafi varanleg skaðleg áhrif á
myndun heilans og þar af leiðandi
ýmsar stöðvar hans. Þar á meðal eru
minnisstöðvar, stöðvar sem stýra
sjónsviði og talmáli.
Rannsóknir sýna að þessi skað-
legu áhrif geta verið varanleg og
hafa því slæm áhrif á námsárangur.
Líkur á brottfalli, lélegri mætingu
og falli á prófum aukast til muna í
hlutfalli við áfengisneyslu. Þá eru
ótalin önnur vond áhrif áfengis eins
og fallslys, slys af völdum ölvunar-
aksturs o.s.frv. Það eru því margar
ástæður fyrir því að vara við áfeng-
isneyslu á unglinsárunum.
Foreldrar geta lagt sitt af mörk-
um. Á skólaböllum í framhalds-
skólum kemur saman ungt fólk frá
16 ára til um tvítugs. Þar af leiðandi
blandast saman hópur af ungu fólki
sem ekki hefur aldur til að neyta
áfengis og ungt fólk sem má kaupa
áfengi – og það kaupir mögulega
áfengi fyrir vini sína sem yngri eru.
Flestir – ef ekki allir – grunn- og
framhaldsskólar eru með mjög
strangar reglur hvað varðar neyslu
hvers konar vímuefna á samkomum
sem haldnar eru á vegum skólans.
Reglur eins og „áfengi ógildir mið-
ann“ eru þar góðar og gildar. Þrátt
fyrir þetta eru alltaf einhverjir sem
reyna að blanda saman áfengi og
skólaskemmtunum. Og stundum
getur ungt fólk, sem ekki hafði ætlað
sér að neyta áfengis, átt í erfið-
leikum með að standast freisting-
arnar – og þrýstinginn frá öðrum.
Ýmislegt til að hafa í huga
Allir foreldrar vilja væntanlega
vernda börn sín gegn skaðlegum
áhrifum áfengisins á þroska heilans
og gera því sitt til að koma í veg fyrir
að þau neyti áfengis áður en þau
hafa aldur til. Ýmislegt þarf að hafa í
huga þegar unglingurinn er að fara á
skólaball, eða út að skemmta sér, og
HOLLRÁÐ UM HEILSUNA | Lýðheilsustöð
Áfengislaus skólaböll
Líkur á brottfalli, lélegri
mætingu og falli á prófum
aukast til muna í hlutfalli
við áfengisneyslu ung-
menna.
Niðurstöður rannsókna benda til þess að áfengisneysla ungmenna hafi varan-
leg skaðleg áhrif á myndun heilans og þar af leiðandi ýmsar stöðvar heilans.
Rafn M. Jónsson, verkefnisstjóri
áfengis- og vímuvarna Lýð-
heilsustöð.
Fleiri upplýsingar má fá á heima-
síðu Landlæknisembættisins:
www.landlaeknir.is
RÖNTGENMYNDATÖKUR
af brjóstum leika lykilhlut-
verk í færri dauðsföllum af
völdum brjóstakrabbameins,
að því er rannsókn sem
greint er frá á vef New
York Times gefur til kynna.
Niðurstöðurnar birtast í
New England Journal of
Medicine.
Á tíunda áratugnum
fækkaði dauðsföllum af
völdum brjóstakrabbameins
mjög og er hluti rakinn til
röntgenmyndatökunnar og
hluti til nýrra kraftmikilla
lyfja sem notuð voru gegn
brjóstakrabbameini.
Rannsókninni var ætlað
að athuga hvað hefði valdið
fækkun dauðsfalla á þessum
áratug en flestir höfðu trú á
að lyfin hefðu mest að
segja. Margir töldu að rönt-
genmyndirnar væru jafnvel
óáreiðanlegar. Í ljós kom að
hvort tveggja hafði mikil
áhrif, þ.e. 28-65% eru rakin
til röntgenmyndatöku en af-
gangurinn til nýju lyfjanna.
ÁRVEKNISÁTAK UM BRJÓSTAKRABBAMEIN Í OKTÓBER
Röntgenmyndatökur
í lykilhlutverki
16 MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF | HEILSA
Umbo›s- og sölua›ili
sími: 551 9239
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
!"#$%&'()* +++,-.$-/-,%
Opið laugard. 11-16
Sunnudaga 13-16
ALDURINN er stærsti einstaki
áhættuþáttur brjóstakrabbameins, en
konum yfir fimmtugu er mun hættara
við að fá sjúkdóminn en yngri konum.
Aðrir áhættuþættir eru fjölskyldusaga
um sjúkdóminn, að hafa byrjað snemma
á blæðingum eða seint á breytingaskeiði,
að hafa fengið krabbamein áður eða að
gangast undir hormónameðferð í yfir
áratug. Allt er þetta þó einstaklings-
bundið og ein mikilvægasta forvörnin er
að þekkja brjóst sín og þreifa reglulega
á þeim sjálf. Þegar krabbamein í brjóst-
um er uppgötvað snemma er í sumum
tilvikum hægt að auka lífslíkur um 90%,
að því er fram kemur á heilsuvef BBC.
160–170 konur greinast árlega
Ár hvert greinist krabbamein í brjóst-
um hjá 160-170 íslenskum konum, sam-
kvæmt upplýsingum frá Krabbameins-
skránni, og hefur nýgengi sjúkdómsins
aukist á undanförnum áratugum en dán-
artíðni nær staðið í stað.Yngstu kon-
urnar eru á þrítugsaldri en tíðnin eykst
með hækkandi aldri. Íslenskar konur
eru í efsta sæti á Norðurlöndum varð-
andi nýgengi brjóstakrabbameins. Lífs-
horfur kvenna með þetta krabbamein
hafa batnað mikið síðustu áratugi. Um
47% þeirra sem greindust á árunum
1956-65 lifðu í fimm ár eða lengur en nú
geta um 72% vænst þess að lifa svo
lengi, enda hafa orðið miklar framfarir
varðandi greiningu og meðferð. Að
teknu tilliti til annarra dánarorsaka eru
fimm ára lífshorfur um 80% (miðað við
1986-1995). Nú eru á lífi meira en 1700
íslenskar konur sem hafa fengið þennan
sjúkdóm.
Konur á aldrinum frá fertugu til sjö-
tugs eru hvattar til að fara í brjósta-
myndatöku á tveggja ára fresti. Gefið
hefur verið út almennt fræðslurit um
brjóstakrabbamein og annað fræðslurit
um leit að krabbameini í brjóstum.
Þreifið sjálfar reglu-
lega á brjóstunum
KARLAR sem eiga erfitt með
svefn eiga frekar á hættu að fá
sykursýki en aðrir, samkvæmt
sænskri rannsókn sem 2.000
karlar og konur tóku þátt í. Á
vef sænska ríkissjónvarpsins
SVT kemur fram að orsaka-
samhengið sé þó óljóst.
Lena Mallon, vísindamaður
við Uppsalaháskóla, segir að
þegar karlar sofi ekki meira en
fimm tíma á sólarhring og vakni
oft á nóttunni, virðist þeir frek-
ar eiga á hættu að fá sykursýki.
Þátttakendur svöruðu spurn-
ingalista með tólf ára millibili,
þar af mörgum spurningum um
svefnvenjur. Á tólf árum fékk
ellefti hver karlmaður og
sautjánda hver kona í hópnum
sykursýki og skýr fylgni fannst
á milli svefntruflana og syk-
ursýki hjá körlunum en ekki
konunum.
RANNSÓKN
Svefntruflanir
og sykursýki