Tíminn - 28.05.1970, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 28. maí 1970.
TÍMINN
15
Kristján Benediktsson í ræðu sinni í Háskólabíói í gærkvöldi:
LflTUM BNVELDISSOL iHALDSINS I RViK
GANGA TIL WAR A SUNNUDAGINN KEMUR
— og tryggjum kosningu Guðmundar G. Þórarinssonar
Góðir ?estir.
Það grúfir skuggi yfir borg-
inni — skuggi verkfalla og
vinnudeilna. Slíkt er talandi
tákn þess stjórnarfars, sem við
búum við og höfum búið við
síðasta áratuginn.
Kaupdeilur og kjarabætur
fcnúnar fram með verkföllum —
síðan gengisfellingar, sem þurrk
áð hafa launabæturnar út á
einni nóttu. Kannist þið við
þetta 'áheyrendur góðir. Batn-
andi afkoma þjóðarbúsins
vegna aukinna aflabragða gerir
það að verkum að núna er auð-
veldara en oftast áður að ganga
til móts við sanngjarnar kröfur
launafólks um hækkað kaup.
Framsóknarflokkurinn krefst
þess að svo verði gert í stað
þess að sóa kröftum og tíma í
deilur og verkföll, sem öllum
hljóta að verða til tjóns.
Þessi glæsilega samkonia —
sá mikil fjöldi, sem hér er sam
an fcominn, ©r talandi tákn um
samheldni okkar og styrk. —
Talandi tákn um þann baráttu-
hug og þrótt, sem ávallt hefur
einkennt Framsófcnarflokkinn,
þegar úrslitaátök hafa átt sér
stað á vettvangi stjórnmálanna.
Að þessu sinni hefur Framsókn
arflokkurinn sett sér það mark,
að eignast þrjá fulltrúa í borg-
arstjórn Reykjavíkur og auka
með því áhrif sín í borgarmál-
um.
Með þeim sigri yrði væntan-
lega hnekkt hálfrar aldar ein-
veldi Sjálfstæðisflokksins í
borgarstjórn. Sá valdaferill er
þegar orðinn nógu langur og
mætti nefna margt því til sönn-
unar. Öldruð Sjálfstæðiskona
kvaddi sér hljóðs á fundi, sem
ég var á um daginn, og hafði
þann boðskap að flytja, að fram
boð andstæðiriga Sjálfstæðis-
flokksins við þessar borgar-
stjórnarkosningar væru sprott-
in aí öfund Sjálfstæðisflokk-
urinn og Reykjavík væru eitt og
hið sama og þannig ætti.það að
vera.
Þessi skoðun gömlu Sjálf-
stæðiskonunnar er ekki flutt
hér henni til hnjóðs. Hún var
einlæg í trú sinni.
En hið alvarlega við þetta
er það, að þessi gamla kona er
alls ekki ein um þessar skoð-
anir. Og þegar svo er komið
hjá stjórnmálaflokki í lýðræðis-
þjóðfélagi. áð flokksmennirnir
tala um, að fnamboð andstæð-
inga séu sprottin af öfund, þá
er skammt í aðrar og hættu-
legri öfgar. Þá er farið að
hrikta i sjálfum undirstöðum
lýðræðisins.
Margir munu án efa með at-
kvæði sínu á sunnudaginn kem-
ur vilja mótmæla ýmsu í stjórn
borgarinnar á undanförnum ár-
um. En margir hljóta þeir einn-
ið að vera, sem nota vilja tæki-
færið til að gera upp sakirnar
við ríkisstjórnina, kvitta fyrir
Kristján Benediktsson
hóflausar álögur,- atvinnuskort
og almennt úrræðaleysi í mál-
efnum lands og þjóðar, Þannig
gefist á sunnudaginn kemur
einstakt tækifæri til að veita
íhaldinu í borgarstjórn og íhald
inú 'f ríkisstjórn " vérðúga og
1 eftirminnilega ráðningu.
Indverskt máltæki segir, að
aðeins þurfi eitt strá til að
sökkva bátnum. Það þarf ekki
heldur itema eitt aitkvæði til
að Íhaádsskiítan sökkvi á sunnu
daginn kemur. Láttu það verða
þitt atkvæði.
Enginn, sem hér er inni, má
lenda í því eftir kosnmgar, að
þurfa að standa samvizku sinni
reikningsSkil þess, að hann
hefði getað útvegað atkvæðið
sem vantaði. Enginn sem hér
er inni, má eiga þátt í því með
aðgerðarleysi, að íhaldsskútan
sigli með ránfuglsmerkið -við
hún yfir marklínu hálfrar
aldar einveldis í borgarmálum
Reykjavíkur. Mál er að linni
því valdaskeiði sem staðið hef-
ur óslitið allt frá þeim tíma,-
er afar og ömmur þeirra, sem
nú ganga að kjörborðinu í
fyrsta skipti, voru á táninga-
aldri.
Við skulum sameina krafta
okkar og sækja fram í einni
órofa fylkingu, þar til sigur er
unninn og íhaldsmeirihlutinn í
Reykjavík að velli lagður. —
Og við látum ekki staðar num
ið, þótt þeim áfanga verði náð.
.Við sækjum fram til nýrra
sigra.
Við höldum baráttu okkar
áfram — baráttu til betra lífs
í borginni — baráttu til meira
jafnréttis, meiri samvinnu og
imeiri þroska og velsælar ekki
aðeins Reykví’kingum til handa
heldur landsmönnum öllum.
Látum höfuðborgina vera í far-
arbroddi á sem flestum sviðum,
ekki í samkeppni heldur sam-
vinnu við aðrar byggðir lands-
ins. Látum hana verða fremsta
meðal jafningja.
Framsóknarflokkurinn geng-
ur af einhug og festu til þess-
ara kosninganna. Hann er eina
aflið í íslenzkum stjórnmálum,
sem íhaldsandstæðingar geta
sett traust sitt á. Hann hefur
aldrei brugðizt trausti þeirra,
sem honum hafa sýnt trúnað
og mun ekki gera. Hann hefur
engin sérréttindi að verja.
Hann mun hér eftir sem hing
að til standa vörð um réttindi
hins almenna borgara. Allra
þeirra mörgu sem heyja lífs-
baráttuna af elju og karl
mennsku. Þeir, sem það gera
eru hvort tveggja hollir sjálf-
um sér og góðir þegnar þjó®-
félagsii.j.
Við sækjum fram í þeirri trú,
að samfélag okkar geti því að-
eins verið voldugt og sterkt, að
þegnar þess séu hver og einin
ábyrgir og hæfir einstakling-
ar.
Að því ber okkur að fceppa.
— Að því skulum við keppa.
Góðir gestir. Látum næsta
sunnudag verða sigurdag í sögu
Framsófcnarflokksins.
Látum einveldissól íhaldsins
í Reykjavík ganga til viðar
þann dag. Það er á ykkar valdi
ásamt annarra kjósenda að það
takist. Og það tekst aðeins með
því að tryggja kosningu Guð-
mundar Þórarinsson í borgar-
stjórn.
GEYSIFJÖLBREYTT DAGSKRÁ LíSTAHÁTÍCAR
SB-Reykjavík, miðvikudag. |vífcur o« kotna fram á hátíðinni,
Listahátíð í Reykjavík 1970, þeirra á meðal André Previn,
verður sett í Háskólabíói 20. júní Vladimir Asbkenazy, Itzhak Perl-
næstkomandi og stendur hún til man, Daniel Barenboim, Jacque-
1. júlí. Hátfðin býður upp á list line du Pré og Victoria de los
fyrir alla. Þar verður hljómlist, Angeles.
leiklist, bókmenntir, listdans og Af leiklistaratriðum er helzt að
myndlist. Aldrei áður hefur íslend nefna Kristnihald undir Jökli, eft-
ingum gefizt kostur á að njóta ir Halldór Laxness, og Buíbba
slíkrar fjölbreytni í list í flutn- kóng, sem að þessu sinni er brúðu
ingi og í sýningum í höfuðhorg- leifchússýning. Á ballettsýningu
inni. kemur m.a. fram íslenzk stúlfca.
Fjölmargir heimsfrægir hljóm- Sveinbjörg Atexanders, sem er
listarmenn munu komia til Reykja- sólódansmær við Kölnarballettinn.
44 konur frá Borgarnesi á
Heimilissýningunni í gær
Reykjavík, miðvikudag.
„Þetta er stórkiostleg sýning",
sögðu fconurnar frá Borgarnesi,
sem komu í dag í hópferð á sýn-
inguna Heimilið „Veröld innan
veggja“ í Laugardalshöllinni.
Konurnar voru rúmlega 40 tals-
ins, allar félagstoonur í Kven-
félagi Borgamess. Þær tóku sér
á leigu stóran rútubíl og lögðu af
stað í býtið, en heima sátu eigin-
mennirnir um að gæta barna og
bús, sögðu þær.
Konurnar vörðu deginum til að
skoða sýninguna, en um kvöldið
lá leiðin í Iðnó, þar sem Jörundur
Hundadagakonungur var skoðaður.
Þegar hafa nokkrir hópar sótt
sýninguna og nofckru eftir að hóp-
urinn frá Borgarnesi kom í gær,
bar annan hóp að garði. Þar voru
nýútskrifaðir gagnfræðingar frá
Siglufirði á ferð. Von er á all-
mörguro hópferðum til sýningar-
innar nœstu daga.
Lesið verður upp úr innlendum
og erlendum verkum og ljóðum,
haldnir verða fcirkjutónleikar og
kórar syngja og lúðrasveitir leika.
Listsýningar verða á mörgam
stöðum í borginni og í tilefni
sýningarinnar verður komið fyrir
listavenki á Hagatongi. Það er 8
metra hár sikúlptúr úr járni og
plasti með rafmagnsmótor. Verk
þetta er eftir Jón Gunnar Árna-
son. Það skal þó tekið fram, að
verkföll geta komið í veg fyrir
þá framkvæmd, eða tafið hana.
Þetta listaverk A heldur ebki að
standa þarna um alla framtíð.
Dagskrá listahátíðarinnar verður
gefin út á enistou, norsku og ís-
lenzku og verður henni dreift
víða. Aðgöngumiðasala hefst á
morgun, fimmtudag í Traðarkots-
sundi 6, og einnig verða miðar
seldir I Norræna húsinu. Verð
þeirra er nofcuð misjafnt, eftir því
hvaða atriði er um að ræða, en
þeir verða efcki dýrari en 350 kr.
og er þar um af ræða Kristnilhald
undir Jökli.
Allar upplýsingar um Listalhátíð
ina fást fyrst um sinn í Norrœna
húsinu. Síminn er 17030, en nán-
ar verður sagt frá hátáðinni hér
í blaðinu síðar.
f/rtt t$mnt!iow
Kvennahópurinn frá Borgarnesi, viS komuna til Reykjavíkur.
i
ili|! *
asp • 'T {*
jjjpi r * < - g '0 /> |||||||S1|||| % I
‘ajSJS'iig -i'’v i