Morgunblaðið - 10.11.2005, Side 29

Morgunblaðið - 10.11.2005, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 29 UMRÆÐAN MÁLEFNI aldraðra hafa verið mikið í umræðunni undanfarið og hefur hvað hæst borið aðbúnað og að- stæður á Sólvangi. Umfjöllun um þessi mál má ekki skorðast eingöngu við sjúkra- stofnanir eða dval- arheimili. Ekki má gleyma þeim ein- staklingum sem búa í eigin húsnæði og þurfa á aðstoð að halda heima við. Aldraðir sem búa í heimahúsum eru misvel á sig komnir andlega og líkamlega. Það er rétt- ur hvers og eins að fá að búa heima eins lengi og hann getur og því er krafa og við- fangsefni hvers sveitafélags að gera honum það mögulegt. Bent skal á að 90% aldraðra búa í heimahúsum og það ber að sjá til að þeir fái þá þjón- ustu sem þeir þurfa og seinka þannig eða koma í veg fyrir stofnanavistun. Þjónustan verður alltaf mjög ein- staklingsbundin og fer eftir andlegu og líkamlegu heilbrigði, allt frá því að þurfa að fá aðstoð við heimilisþrif upp í að þurfa daglega heimahjúkrun. Það ætti að vera stolt hvers sveitarfélags að hugsa vel um þá einstaklinga sem hafa byggt upp og skapað okkur sem yngri erum það þjóðfélag sem við lif- um í. Oft er því þannig varið að öldruð hjón eða sambýlisfólk er misvel á sig komið. Þess vegna er nauðsynlegt að sveitarfélagið bjóði upp á mismunandi úrræði. Dagvistun er eitt af þeim úrræðum sem hvert sveitafélag ætti að leggja alúð við að bjóða upp á. Við í Hafn- arfirði erum að opna dagvistunardeild fyrir minnissjúka í samvinnu við félag aðstandenda Alzheimersjúklinga. Við höfum líka verið svo lánsöm að fá að njóta þjónustu Hrafnistu fyr- ir einstaklinga sem þurfa á dagþjónustu að halda. En bet- ur má ef duga skal. Við verðum að bjóða fólkinu okkar upp á fleiri úræði. Það eru til einstaklingar sem vegna sjónmissis og hreyfihömlunar er ekki fært til að færa björg í bú. Við verð- um að mæta þessum þörfum og sjá til að úrlausn fáist sem fyrst. Lækkun eða niðurfelling á fast- eignagjöldum til aldraðra ætti að vera stolt hvers sveitarfélags að veita. Margir búa í stórum sem smáum eignum, sem eru skuldlausar og hafa ekki efni á að greiða þá háu fast- eignaskatta sem lagðir eru á þá. Þetta gerir eldri borgurum kleift að búa í eigin húsnæði eins lengi og fært er og þeir þurfa því síður á dýrum vistunarplássum að halda, séu þeir færir til þess. Í mínum huga er nauð- synlegt að aldraðir eignist umboðs- mann, sem þeir geti leitað til með sín málefni. Tryggingakerfið á Íslandi er allt of flókið og torsótt. Eldri borg- arar hafa oft á tíðum hvorki heilsu né kraft til að leita réttar síns. Þetta embætti myndi létta öldruðum að sækja þau réttindi sem þeir eiga sam- kvæmt lögum rétt á. Aldraðir eru ekki háværir né kröfuharðir á sín réttindi. Því ber okkur sem yngri erum skylda til að búa þeim gott ævikvöld. Umboðsmaður aldraðra óskast Eftir Guðrúnu Jónsdóttur ’Aldraðir eru ekki há-værir né kröfuharðir á sín réttindi. Því ber okk- ur sem yngri erum skylda til að búa þeim gott ævikvöld.‘ Guðrún Jónsdóttir Höfundur er hjúkrunarfræðingur og frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Hafnarfirði í 3.–4. sæti. Prófkjör Hafnarfjörður KÓPAVOGUR er á tímamótum. Undraverð þróun síðustu ára hefur skapað nýjan grundvöll. Í bænum er ný öld og ótal tækifæri. Framsóknarflokkurinn hefur tekið virkan þátt í þessari mögnuðu þró- un. Flokkurinn stend- ur líka á tímamótum, nú þarf að velja nýja forystu í Kópavogi. Þetta val hefur afger- andi áhrif á stöðu flokksins á komandi tíð. Bærinn er fyrir fólk- ið. Kópavogur á að vera bær þar sem allir íbúar njóta sanngirni og réttlætis, bær þar sem skólar og stofn- anir eru áfram í fremstu röð. Fram- sóknarflokkurinn stendur fyrir styrka fjölskyldustefnu. Heil- brigð starfsemi íþrótta og tómstunda styrkir fólk á öllum aldri. Eft- irspurn eykst og fleiri lifa lengur og betur. Það er mikilvægt að fylgja þróuninni. Kópavogur þarf enn að hugsa stórt í málefnum aldraðra. Kópavogur á að vera bær fólksins alls þar sem skipulag og samningar standa og skattheimta er ekki meiri en í nágrannasveitum. Það er brýnt að efla bæjarbraginn. Sú stefna er mörkuð, en töluvert í land. Kópavogsdalur er miðja íþrótta, útivistar og verslunar. Það þarf að létta á umferðarhnútum þar og ljúka fegrun Dalsins. Það er almennilegur bæjarbragur að Kópavogsvöllur sé alvöru leikvangur með yfirbyggðri stúku. Bæjarbragur verður líka betri þegar Hamraborgarsvæðið tengist Borgarholtinu og djásnunum þrem- ur. Fólk þarf að komast fyrir á þessu svæði. Það er brýnt að skerpa á merkingum og skipulagi sem þykja grundvall- aratriði í vestrænum heimi. Það er önnur útivist- arparadís í Fossvogsdal, þar sem bæjarmörk standa í vegi fyrir já- kvæðri þróun. Íþrótta- félögin HK og Víkingur hafa sett bæjar og borg- aryfirvöldum gott for- dæmi með samvinnu. Það er skylda Kópavogs og Reykjavíkur að þróa svæðið saman, svo íbú- arnir njóti sín. Þar ber að ræða gerð sundlaug- ar og annarra mögu- legra sameiginlegra mannvirkja. Nú er lag á nýrri öld. Kópavogur hefur alla burði til að verða afburðabær. Fyr- irtækjarekstur er í blóma, uppbygg- ing heldur áfram. Í opnu prófkjöri á laugardaginn fá bæjarbúar sjaldgæft tækifæri til að velja Framsókn öfluga forystu. Veik forysta í Framsókn gæti leitt af sér eins flokks stjórn í vor. Það er engum hollt. Flokkur á tímamótum Eftir Samúel Örn Erlingsson ’Nú er lag ánýrri öld. Kópa- vogur hefur alla burði til að verða afburða- bær.‘ Höfundur býður sig fram í 1. sæti í prófkjöri framsóknarmanna í Kópavogi. Prófkjör Kópavogur Samúel Örn Erlingsson ÉG ER stuðningsmaður þess að foreldrar fái laun fyrir að vera heimavinnandi með barni/börnum sínum. Ef annað foreldrið hefur tækifæri til að vinna sveigjanlegan vinnu- tíma á sveitarfélagið að greiða því laun ef það kýs að vera heima. Kópavogsbær hefur dafnað og eflst í gegn- um árin. Íbúafjöldinn er orðinn 27 þúsund. Kópavogsbær hefur því alla möguleika á því að vera fjöl- skylduvænasta sveit- arfélagið. Að taka for- ystu í þessum málum og styðja við fjöl- skyldur í sveitarfélaginu. Leik- skólar eru vissulega öflugir í upp- eldi barnanna og styðja við fjölskyldur. Hvers vegna fæst ekki fólk til vinnu á leikskólum? Því kjörin eru ekki góð miðað við vinnuframlag. Þar ætti Kópavogs- bær að gera vel við starfsfólk leik- skólanna og finna leiðir til að bæta kjör þess. Það þarf stúdentspróf í dag og þriggja ára háskólanám til að verða leikskólakennari. Gleym- um því ekki og metum þetta ómet- anlega starf sem fram fer á leik- skólum. Það ætti því að vera val hvort barn sé allan daginn á leik- skóla eða hvort foreldri kýs að vera heima hálfan daginn með barni/ börnum sínum. Allir skólar bjóða upp á dægradvöl eftir að skóla lýk- ur sem er gott mál. En valið um að vera heima hjá barni/börnum sínum ætti líka að ná upp í 1.–4. bekk grunnskólans. Við tölum um vinnu- tíma barna. Er það ekki orðið óeðli- legt að tala um vinnutíma þeirra? Hvar er tími fyrir leiki og að vera heima hjá sér? Gætum að framtíð- inni, við höfum hana í dag og fram- tíðin er barnanna. Uppbyggingarstarf það sem Sig- urður Geirdal hóf í þjónustu við íbúa í Kópavogi er sú stefna sem markvisst á að sækjast eftir. Að- búnaður aldraða og félagslegt hús- næði er með því besta sem þekkist hjá sveitarfélögum. Menningar- starfsemin er með miklum blóma og íþróttamál í góðum farvegi. Kópavogsbær hefur enda ákveðið að styrkja þær íþróttir sem við- urkenndar eru af Íþróttasambandi Íslands. Það á líka að styrkja tónlistarnám og listnám ýmiskonar sem er mikilvægt fyrir hag barnanna. Áherslur mínar í umhverfismálum eru að byggja upp græn svæði í Kópavogi. Myndarlega hefur ver- ið staðið að uppbygg- ingu göngustíga í bæn- um en það þarf fleiri græn svæði. Áður fyrr var Smárinn mosa vax- inn með fallegum holt- um og steinum. Ekkert friðland var tekið frá þar. Við þurfum að huga betur að náttúrunni og búa til svæði sem ekki verði hróflað við. Holtið við Kópavogsbrúna er gott dæmi um náttúrufegurð sem er friðhelg. Þar standa Kópavogskirkja og Gerðasafn ásamt Salnum í fallegu umhverfi. Mikilvægt er að halda Holtinu okkar óbreyttu. Ég býð mig fram í 3. sæti fyrir Framsókn í Kópavogi. Ég er menntaður kennari og námsráðgjafi og hef starfað í grunn- og fram- haldsskólum. Ég á tvö börn. Hef unnið ýmis trúnaðarstörf fyrir Framsóknarflokkinn í gegnum tíð- ina. Fjölskyldumálin og þjónusta Kópavogsbæjar við íbúa sína eru mér hugleikin og hvet ég ykkur til að koma í Smáraskóla hinn 12. nóv- ember milli kl. 10 og 20 og kjósa mig í 3. sætið. opu@simnet.is Foreldrar heima með börnum sínum Eftir Ólöfu Pálínu Úlfarsdóttur ’Við þurfum að hugabetur að náttúrunni og búa til svæði sem ekki verði hróflað við.‘ Ólöf Pálína Úlfarsdóttir Höfundur býður sig fram í prófkjöri Framsóknarflokksins í Kópavogi og óskar eftir 3. sæti listans. Prófkjör Kópavogur Föt fyrir allar konur á öllum aldri Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-16 HVAÐ SKIPTIR ÞIG MÁLI ÞEGAR ÞÚ SELUR EIGNINA ÞÍNA? VIÐ BJÓÐUM: DP FASTEIGNIR ERU BYGGÐAR Á GRUNNI OG ÞEKKINGU DP LÖGMANNA Fasteignasalan DP FASTEIGNIR er í Félagi Fasteignasala. - Heiðarleg og vönduð vinnubrögð. - Persónulega þjónustu. - Þekkingu. - Þrír löggiltir fasteignasalar starfa hjá DP FASTEIGNUM. Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Laugavegur 182 • 105 Rvík • Fax 533 481 • mid idborg.is REKAGRANDI 10 – OPIÐ HÚS 67 fm mjög góð 2ja herbergja íbúð á 1. hæð (jarð- hæð) í litlu 3ja hæða húsi við Rekagranda. Íbúðinni fylgir ca 40 fm nýleg sérverönd með skjólvegg til suð-austurs. Íbúðin skiptist í hol, eldhús, góða stofu, geymslu, baðherbergi og svefnherbergi. Falleg og þrifaleg sameign. Íbúð 1-1. V. 14,8 m. 5989. Sigrún (sími 869 6571) sýnir í dag milli kl. 17.00 og 18.30. Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.