Morgunblaðið - 10.11.2005, Page 33

Morgunblaðið - 10.11.2005, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 33 MINNINGAR þegar Árni réðst til starfa við skólann. Á þeim tíma var hann að breyta um starfsvettvang, hætta störfum sem iðnaðarmaður og snúa sér alfarið að söng og söngkennslu, sem hafði verið áhugamál hans um langa hríð. Þrátt fyrir að nokkur aldursmunur væri á okkur náðum við vel saman og sátum oft og spjölluðum um heima og geima á kennarastofunni við Austurgötuna. Á þeim tíma sem Árni kenndi við skólann stóðu kennarar hans fyrir nokkrum kennaratónleikum, m.a. í tengslum við 30 og 40 ára afmæli skól- ans, og var Árni jafnan í hópi þeirra sem glaðir tóku þátt í þeim verkefn- um. Hann var duglegur, jákvæður og áhugasamur kennari sem vildi nem- endum sínum og skólanum vel. Fyrir það erum við Suðurnesjamenn þakk- látir. Um leið og ég bið Guð að blessa minningu Árna Sighvatssonar votta ég fjölskyldu hans mína dýpstu sam- úð. Kjartan Már Kjartansson, fv. skólastjóri Tónlistarskólans í Keflavík. Það er ekki allt í árum talið þegar litið er um öxl. Fá ár geta haft mikla þýðingu en þannig talaði Árni oft um okkar samstarf. Við kynntumst í Ár- nesingakórnum þar sem hann hafði sungið um árabil en ég hafði verið beðinn að taka að mér meðleik í tilfall- andi verkefnum. Þannig hófst okkar ágæti vinskapur sem var upphafið að skemmtilegum tímum á næstu árum. Um vorið árið 2000 varpaði Árni fram þeirri hugmynd að gaman væri að gera geisladisk með ýmsum lögum sem voru honum kær og hann hafði sungið svo oft. Til að hafa eitthvað í hendi gerði Árni lista yfir þau lög sem til greina komu og þá kom í ljós að hægt var að búa til heilan geisladisk eingöngu með sönglögum eftir Sig- valda Kaldalóns. Diskurinn varð að veruleika og fórum við í fjölmargar tónleikaferðir en á sumartónleikum árið 2001 í Árbæjarsafni náðist ógleymanleg stemming og eins í Gerðubergi þá um haustið. Á Þorra árið 2002 var okkur svo boðið í ís- lenska sendiráðið í Washington D.C. til að flytja Kaldalóns-lögin og var Árna hrósað óspart fyrir næmi og skýrleika í framburði. Síðustu 3 ár varði Árni sífellt meiri tíma í að mála myndir og hélt nokkrar sýningar en einkasýning sem hann hélt í Þrastarlundi í Grímsnesi sum- arið 2004 þótti sérlega heilsteypt og viðamikil. Verkin voru af ýmsum toga, mest landslagverk en þó einnig nokkrar fantasíur, sem hann kallaði. Árni var sérlega léttur í lund og var gott að vinna með honum. Áratuga reynsla hans á sviði Þjóðleikshússins nýttist honum vel auk þess sem hann var haf- sjór af fróðleik og skemmtilegum sög- um af ýmsu tagi. Ég er þakklátur fyr- ir þann tíma sem við unnum saman en sendi fjölskyldu og vinum samúðar- kveðjur. Jón Sigurðsson. Yfir tónanna haf inn í ljósvakans lönd sál mín líður í draumþrá í kvöld, þar sem sóldansinn stígur með hörpur í hönd undir hvolfsölum ljósálfafjöld. (Guðmundur Guðmundsson.) Árni Sighvatsson var góður félagi í Árnesingakórnum í Reykjavík í mörg ár. Hann hafði fallega rödd og söng stundum einsöng með kórnum og einnig tók hann að sér raddþjálfun þegar á þurfti að halda. Það er dýr- mætt fyrir kór að hafa slíkt hæfileika- fólk í sínum röðum. Hann Árni varð aldrei gamall. Hann var ungur, hress og kvikur í spori þótt árin færðust yfir. Með blik í auga og bros á vör mætti hann á kór- æfingar og sporléttur hefur hann gengið inn um Gullna hliðið þar sem hann syngur nú með herskörum him- insins. Við kveðjum Árna með söknuði og þökkum fyrir að hafa átt samleið með honum um stund. Fjölskyldu hans sendum við inni- legar samúðarkveðjur. Félagar í Árnesingakórnum í Reykjavík. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ÞORFINNUR BJARNASON fyrrv. sveitastjóri á Skagaströnd, sem lést sunnudaginn 6. nóvember sl., verður jarðsunginn frá Grensáskirkju föstudaginn 11. nóvember kl. 13.00. Hulda Pálsdóttir, Ingþór Þorfinnsson, Ingibjörg Þorfinnsdóttir, Guðmundur Þorbjörnsson, Þorfinnur Björnsson, Elías Ingþórsson, Erla Svanhvít Guðmundsdóttir, Daníel Guðmundsson. Eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐNI JÓNSSON, Kjalarlandi 29, Reykjavík, Lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 7. nóvember Útför hans fer fram frá Langholtskirkju föstu- daginn 11. nóvember kl. 13:00 Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Sólrún B. Kristinsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Jón Guðnason, Elín Ragnheiður Guðnadóttir, Dominic Scott, Sigrún Guðnadóttir, Garðar Hólm Kjartansson, Kristinn Guðnason, Emma Kolbrún Garðarsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ODDNÝ ÓLAFSDÓTTIR kjólameistari, frá Látrum í Aðalvík, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 27. október sl., verður jarðsungin frá Hallgríms- kirkju í dag, fimmtudaginn 10. nóvember, kl. 15:00. Guðbjörg Björnsdóttir, Arndís H. Björnsdóttir, Jóhanna G. Björnsdóttir, Tryggvi Eyvindsson, Hildur Björnsdóttir, Ólöf S. Björnsdóttir, Magnús Kristmannsson, Arinbjörn Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÓLI SVEINBJÖRN JÚLÍUSSON, verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju, Höfn í Horna- firði, laugardaginn 12. nóvember og hefst at- höfnin kl. 14.00. Svanhildur Ó. Eggertsdóttir, Þóra Sveinbjörnsdóttir, John F. Thompson, Sólveig Sveinbjörnsdóttir, Steinþór Hafsteinsson, Ástríður Sveinbjörnsdóttir, Stefán P. Ólafsson, Bryndís Sveinbjörnsdóttir, Grímur Ó. Eiríksson, Maren Sveinbjörnsdóttir, Sveinn H. Sveinsson, Haukur Sveinbjörnsson, Ásdís Ólafsdóttir, Sigrún Sveinbjörnsdóttir, Snorri Aðalsteinsson, Ólafur Gísli Sveinbjörnsson, Hrönn Ingólfsdóttir, Steinunn Óladóttir, Sigurður Halldórsson, afa- og langafabörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, STEINGERÐAR JÓHANNSDÓTTUR frá Brekku, Vestmannaeyjum. Marý Kristín Coiner, Stein Ingólf Henriksen, Ágúst Vilhelm Steinson, Arna Ágústsdóttir, Ómar Steinson, Arndís María Kjartansdóttir, Óðinn Steinson, Steinunn Jónatansdóttir og barnabarnabörn. Innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför BRAGA ÓLAFSSONAR THORODDSENS, Aðalstræti 78, Patreksfirði. Þórdís Haraldsdóttir og fjölskylda. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ÁSGERÐUR THEODÓRA JÓNSDÓTTIR, Hrísholti 12, Selfossi, sem lést mánudaginn 31. október, verður jarð- sungin frá Selfosskirkju laugardaginn 12. nóv- ember kl. 13:30. Blóm og kransar afþakkaðir, en bent er á líknarstofnanir. Gunnlaugur Briem Vilhjálmsson, Kolbrún Svavarsdóttir, Heiðar Bjarndal Jónsson, Erla Gunnlaugsdóttir, Þórhallur Bjarnason, Unnur Gunnlaugsdóttir, Sigurður Birgir Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐNI ÓLAFSSON, Lautasmára 1, Kópavogi, áður bóndi á Þórisstöðum, Svínadal, lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 1. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. Ruth Anna Ólafsson, Þuríður Guðnadóttir, Birgitta Guðnadóttir, Þórarinn Þórarinsson, Guðný Guðnadóttir, Þórir Guðnason, Barbara G. Davis, Egill Guðnason, Anna Arnardóttir, barnabörn og langafabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNA MARGRÉT TÓMASDÓTTIR, Vesturgötu 7, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Víðinesi miðviku- daginn 9. nóvember Tómas Guðmundsson, Sigurbjörg Ásta Magnúsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Sigurður Skúlason, Sigurður Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts og útfarar hjartkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRU BIRNU BRYNJÓLFSDÓTTUR. Sérstakar þakkir eru til starfsfólks Hrafnistu Hafnarfirði fyrir góða umönnun. Magnús Gústafsson, Edda Birna Gústafsson, Birna Magnúsdóttir, Björn Magnússon, Dagbjört Ósk Steindórsdóttir, Einar Magnússon, Áslaug Jónsdóttir, Jórunn María Magnúsdóttir, Haukur Bragason, Baldur Dan Alfreðsson, Þórir Dan Viðarsson, Jóhanna Stella Baldvinsdóttir og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.