Tíminn - 02.06.1970, Blaðsíða 10
TÍM1N1M
FULLT TUNGL
Eftir P. G. Wodehouse
3
var auðvitað bara að anda. Ég get
sagt þér það að mér finnist ekki
skemmtilegt að hugsa til þess að
vera byrgður hér inn í Blandings
kastala með þeim Clarence, Gala-
had, Freddie o-g þessum náunga
Plimsol, og það núna þegar tungl-
ið er fullt, þetta verður eins og
maður hefði orðið skipreika á eyði-
eyju með Marx bræðrum.
— Hver er þessi Plimsoll?
— Það er náunginn sem Fredd-
ie ætlar að koma með.
— Heitir hann Plimsoll?
— Já, en ég hef auðvitað bara
orð Freddies fyrir því, sjálfur var
maðurinn svo þreiifandi fullur að
hann var mállaus, á meðan við
Freddie töluðum saman þá studdi
maðurinn sig við strætisvagnaskýli
með annarri hendinni en með
hinni var hann að veiða ósýnilegar
flugur, á andliti hans var blíðlegt
bros ég hef aldrei séð eins útúr-
drukkinn mann.
Frú Hermione hrukkaði ennið,
eins og hún væri að reyna að
muna eitthvað, hún spurði:
— Hvernig var maðurinn í hátt?
— Hár og grannur, iíkur Clar-
ence á vöxt, ef þú getur ímyndað
þér bróður þinn eins og hann leit
út þegar hann var ungur að því
viðbættu að hann væri blekfullur,
með arnarnef og hornspangargler-
augu, þá færðu góða mynd af þess-
um Plimsoll, en bú þekkir hann
þó ekki?
— Það er einmitt það sem ég
er að reyna að .inuna ég hef áreið-
anlega heyrt’’ nafnið fyarj sagði
Freddie þér nokkuð um haþn?
— Hann fékk ekki tíma til þess,
þú veizt hvernig það er þegar mað-
ur hittir Freddie, maður reynir að
flýta sér að komast frá honum,
sem fyrst, ég gaf honum rétt tóm
til að skýra frá að hann ætlaði að
koma til Blandings með þennan
flugnaveiðara með sér, sem hann
9agði að héti Tipton Plimsoll, og
svo stökk ég inn í bílinn.
— Tipton, auðvitað nú man ég.
— Þekkirðu hann?
— Við nöfum aldrei hitzr en
mér var sýndur honn inni á hóteli
rétt áður en við fórum frá London,
hann er ungur Ameríkani, sem hef
ur menntazt hér á Englandi að ég
held, og afar ríkur
— Ríkuir?
— Óhemju ríkur
— Guð minn góður
Nú varð þögn, hjónin litu hvort
á annað, svo litu þau bæði s vegg-
inn sem skildi þeirra herbergi frá
herbergi Veronieu Wedge, en þar
lá hún og starði upp í loftið, ana-
ardráttur frúa'rinnar var orðinn ör-
ari og svipur hershöfðingjans var
orðinn eins og á manni sem sér
sýnir, hann sat þsgjandi og lék ser
að tánum á maka sínum, svo hóst-
aði hann og sagði:
— Þetta verður góður félags-
skapur fyrir Vee.
— Já.
— Hún hefur áreiðanelga feikna
gott af þessu.
— -Já.
— Það er — er — ágætt fyrir
ungt fólk — í svona stað - svor.a
langt uppi í sveit og allt bað —
að hafa ungt fólk tii að tala við
það er svo upplífgandi
— Já, fannst þér har.r. löguleg-
ur?
— Mér virtizt hann töfrandi
maður auðvitað að því frádregnu
að hann var alveg á floti.
— Ég tek það nú ekki alvarlega
hann þolir sjálfsagt ekki ínikið.
— Sjálfsagt ekki, og maður sem
eyðir kvöldinu með S'reddie verð-
ur auðvitað að hressa sig, þar að
auki vitum við að l að er ekki erf-
ítt að gera Vee ár.ægða.
— Hvað meinartu’
— Nú, fjárinn hafi það, þegar
maður hugleiðir að hún var einu
sinn trúlofuð Freddie. . .
— Ó, hjáipi r.iéi, ég var alveg
búin að gleyma því, ég verð að
segja lienni að minnast ekki á það
og það er bezt aö þú undirstingir
Clarence um að tala ekki um það.
— Já, ég fer strax og tala um
það við hann, góða nótt væna mín.
— Góða nótt góði.
Svipurinn á nauðrökuðu and-
liti hershöfðingjans var ánægjuleg-
ur, þegar hann gekk út úi her-
bergi konu sinnar. nann var ekki
maður sem átti vanda til að
dreyma dagdrauma, en það gerði
hann á þessari stundu, honum
far.nst að hann stæði inn í bóka-
sai kastaians og styddi hendinni á
öxlina á ungum, grönnu.m og há-
vöxnum manni með hornspanga-
gleraugu, sem var nýbúinn að biðja
hann um að tala einslega við sig
og að maðurinn segði: „Má ég
biðja dóttur yðar“, hann mundi þá
svara: það megið þér vissulega
góði minn.
Teletype Erla.
I rauða herberginu var veron-
jica enn að hugsa um héraðsdans-
j leikinn. hún var ekki bjartsýn.
j hún hefði vil jað geta skinið eins
i og Ijósakróna á þessu balli, en
j hún vissi að það gat hún ekki
i gert sér vonir um, því þó hún
yrði tuttugu og þriggja ára eftiir
nokkra daga þá hafði reynslan
kennt henni að hún gat ekki bú-
izt við að fá gimsteinafesti af því
tilefni, hið bezta sem hún gat
vænzt var nælan sem Galahad
móðurbróðir hennar hafði lofað
henni og einhver ómerkilegur
skartgripur sem Freddie hafði
rninnzt á, þessar hugleiðin.gar
hennar voru truflaðar með því að
dyrnar voru opnaðar, faðir henn-
ar hafði séð ljósglætu undir hurð-
inni, þegar hann lagði af stað í
sendiferðina til mágs síns. Veron-
ica reis upp og renndi geysistór-
um augum tii föður síns og sagði
hunangssætum rómi:
— Hallo pabbi.
— Halló elskan, hvernig líður
'þér?
— Ágætlega pabbi. — Wedge
hershöfðingi settist til fóta hjá
dóttur sinn' hann var alltaf jafn
hissa, þegar han,n sá þessa stúiku,
hvernig honum og konu hans
hafði auðmast að eignast svona
glæsilega dóttur. bvi þau voru
bæði vægast sagt afar blátt áfram
í útiiiti. Þó að Veronica Wedge
væri ugglaust hin vitgrennsta þá
var hún tvimælalaust hjn fríðasta
stúlka. sem skráð var á blaðsíður
aðalsmannatalsins hjá Debrett.
Heilabú hennar var ekki stærra
en í páhænu, sem þar að auki
hafði dottið á höfaðið þegar hún I
var nýkomin úr egginu, en stúlk-
an var svo skíiand' fögur, að
tízkuljósmyndarair slóguit urn að
mynda hana. Ærí3 ef dagblöðin
birtu fyrirsagnir sem hljóðuðu á
þessa leið: „Uopþot i West End, j
Ijósmyndarar fliúgast á, þúsundir
æpa fagnaðaróp", þá gat fólk ver-
ið nokkurn veginn öruggt um að
Veronica Wedge var orsökin fyr-
ir ólátunum og kapphlaupinu á
milli þessara fagmanna.
— Hvenær komstu aftur pabbi?
— Rétt áðan, lestinni seinkaði.
— Skemmtirðu þér vel í Lond-
on?
— Mjög Vei, marurinn var ágæt
ur, Galahad móðnrbróðir þinn
var barna.
ÞRIÐJUDAGUR 2. júm 197«.
— Gally frær.di ætlar að koma .
hingað í afmælið imitt.
— Já, hann sagði mér það, og
Freddie kemur á morgun.
— Já, — sagði Veronica, <>g
það var ekki að heyra að hú.n
væri í geðshrærixigu, hafi siitin á
truiofun hennar og Freddies og
það að hann var kvæntur ann-
arri, valdið henni sársauka, þá var
hún greinilega búin að jafna sig.
— Freddie kemur með vin
sinn með sér, náunga að nafni
Tipton Plimsoll.
— Ó, er það haran?
— Þekkirðu hann?
— Nei, en ég var með mömmu
inni á Quaglino um daginn og!
þá sýndi einhver okkur hann,
hann er hræðilega ríkur, vill
mamma að ég giftist honum?
Það kom oft fyrir að hershöfð-
inginn varð orðlaus vegna þess
hve þetta barn var skemantilega
einfalt og blátt áfrarn og svoleið-
is fór nú, þegar hann var búinn
að jafraa sig, sagði hann:
— Guð minn góður, þetta er
stórfurðuleg hugmynd, ég hýst !
ekki við að mömmu þinni hafi
svo mikið sem dottið slíkt í hu-g.
Veronica þagði og hugsaði, en!
það var nokkuð sem hún gerði
sjaldan, enda kostaði það hana
mikið erfiði, en þetta var líka
sérstakt ti'efni, hún sagði:
— Mér þætti það ekki svo
i slæmt, hann virtist ekki sem verst
ur.
Að vísu vax ekki mikill hiti í!
þessum orðum, — ef Júlía hefði
verið að tala um Rómeó, þá hefði
hún sjálfsagt orðað ummæli sín.
j hetur en orð Veronicu létu samt
sem sætasta tónlist í cyrum hers-
höfðingjans iionum var hlýtt um
hjartaræturnar þegar hann bauð
dóttur sinni góða nótt með kossi.
Þegar har,n var kominn út að
dyrunum mundi hann allt í ainu
að hann hafði ætlað að spyrja
dóttur sína um nokkuð næst þeg-
ar hann sæi hana, hann staldraði
því við og spurði:
— Vee, meðal annarra orða,
hefur nokkur nokkurn tíma ka-11-
að þig draumakanínu?
arr.rír-r'i^i
er þriðjudagur 2. júní
— Marcelinus
Tungl í hásuðri kl. 11.59
Árdegisháflæði í Rvík kl. 5.58
HEILSUGÆZLÁ
Slökkviliði? sjúkrabifre'ðir.
Sjúkrabifreið í Hafnarfirði
síma 51336-
fyrii r vkjavfk og Kópavog
sim) 11100
Slysavarðstofan i Borgarspítalanmn
er opin allan sólarhringinn. Að
eins móttaka slasaðra. Simi
81212.
Kópavogs-Apótek og Keflavfkur
Apðtek era opin virka daga kl
9—19 laugardaga kl. 9—14 helga
daga kl. 13-15-
Almennar upplýsingar um lækna
bjónustu 1 borginní eru gefnar
símsvara læknafélags Reykjavik
ur, sími 18888.
Ft garhc ':ð i Kópavogi,
IHíðarvegi 40, slml 42644.
Apótek Hafnarfjarðar er opið alla
virka daga frá kl. 9—7 á laugar-
dögum ki. 9—2 og á sunnudögum
og öðrum helgidögum er opið irá
kl. 2—4.
Knpnvogs"’pótek og Keflavíkur-
apótek eru opin virka daga kl. 9
—19 laugardaga kl. 9—14, helgi-
daga fcl. 13—15.
Tannlæknavakt er i Heilsuvernd
arstöðinni (þar sem slysavarð-
stofan var) og er opin laugardaga
og sunnudaga kl. 5—6 e. h. Sími
22411
Kvöld og helgarvörzlu Apoteka i
Reykjavík annast vikuna 30. maí
til 5. iúní Apótek Austurbæjar og
Holts-Apótek.
Næturvörzlu í Keflavík 2. júní
annast Arnbjörn Ólafsson.
pSlágslíS1
Í.R-ingar.
Aðalfundur verður haldinn þriðju
daginn 2. júní í Þjóðleikhúskjall-
aranum kl. 8.30.
Tónabær. Tónabær Tónabær.
Félagstarf eldri borgara. Mið-
vikudaginn 3. júnd verður opið hús
frá kl. 1,30 — kl. 5,30. Dagskrá:
Leáð, telft, spilað, kaffiveitmgar,
upplestur, bókaútlán, kvikmyndir.
Munið skoðunarferðina í listasafn
Ásmundar Sveinssonar 8. júní, tilk.
þátttöku í síma 18800.
FLUGÁÆTLANIR
Loftleiðir h.f.:
Eiríkur rauði er væntanlegur frá
NY kl. 0730. Fer til Brussel kl.
0815. Er væntanlegur til baka frá
Brussel kl. 1630. Fer til NY kl.
1715. Leifur Eiriksson er væntan-
legur frá NY kl. 1030. Fer til
Brussel kl. 1130. Er væntanlegur
til baka frá Brussel kl. 0215. Fer
til NY kl. 0310. Guðríður Þorbjarn-
ardóttir er væntanleg frá NY kl.
0830. Fer til Glasgow og London
kl. 0930. Er væntanleg til baka frá
London og Glasgow kl. 0030. Fer
til NY kl. 0130.
SIGLINGAR
Skipadeild S.Í.S.:
Arnarfell fór frá Hull í gær til ís-
lands. Jökulfell fór frá Fáskrúðs-
firði 31. maí, til Faxaflóahafna.
Dísarfell er í Uddevalla, fer þaðan
til Gdynia og Valkom. Litlafell fór
frá Liverpool 29. maí, til Svend-
borgar. Helgafell er í Ventspils,
fer þaðan á mnrgun til Svendborg-
ar. Stapafell fór frá Rotterdam 31.
maí, til Keflavíkur. Mælifell er í
Valkom í Finnlandi. Falcon Reefer
væntanlegt til New Bedford á
morgun. Fálkur er á Akureyri.
Nordic Proctor er á Akureyri.
Snowman er í Gautaborg.
Skipaútgerð ríkisins:
Hekla er í Rvík. Herjólfur fer frá
Vestmannaeyjum kl. 12.30 í dag
til Þorláksh. þaðan aftur kl. 17.00
til Vestmannaeyija. Herðubreið er
á Vestfjarðahöfnum á suðurleið.
SÖFN OG SÝNINGAR
Dýrasýning.
Dýrasýning Andresar Valberg er
opin öll kvöld kl. 8—11 og laug-
ardaga kl. 12—10. Aðgöngumiðar
er happdrætti, dregið er vikulega
1 vinningur sem er 2’/a milljón
ára gamall steingerður kuðung-
ur.
íslcnzka dýrasafnið
verður opið daglega í Breiðfirð-
ingabúð, Skólavörðustig 6B kl.
10—22. Isl. dýrasafnið.
ORÐSENDING
Fr. Tæðrastyrksnefnd.
Hvíldarvikur mæðrastyrksncfnd
ar að Hlaðgerðakoti byrja 19- júni
og verða tveir hópar ri r eldri
konur Þá verða mæður með börn
sín eins og undanfarin sumur og
þeim skipt í v5pa.
Konur, sem ætla að sumar-
dvöl hjá nefndinni tali við skrif-
stofuna sem fyrs* að N.iálsgötu 3.
Þar eru gefnar nánari uppi. Önið
daglega frá kl. 2—4 nema laugar-
daga Sími 14349
IHinningarspjöld Kvenfélags
Laugarnessóknar fást 1 Bókaverzl-
uninni Hrísateigii 19, simi 37560 o:
hjá Sigríði Hofteigi 19, slmi 3/ 544
Astu, Goðheimum 22 sírni 32060 og
hjá Guðmundu Grænuhlíð 3. sími
32573.
Minningarspjöld F!!i"i>iörgunar-
sveitarinnar fásl á flirtöldum
stöðum:
Bókabi.ð Bra. Brynjólfssocnar,
Hafnarstræti. ,
Siguxð M. Þorstelnssyni s 32060
Sigiurði Waage, s. 34527.
Stefáni Bjarnasynl, s- 37392.
Magnúsi Þórarinssym, s. 37407.
GENGISSKRANING
Nr. 58 — 28. maí 1970.
1 Bandar. dollar 87,90 88,10
1 Stenlingspund 211,00 211,50
1 Kanadadollar 81,85 82,05
100 Damsikar kir. 1.172,00 1.174,66
100 Norskar kr. 1.229,80 1.232,60
100 Sænsikar kr. 1.691,54 1,695,40
100 Frnnsk mörik 2.108,42 2.113,20
100 Franskir fr. 1.592,90 1.596,50
100 Belg. framikar 177,10 177,50
100 Sviissn. fr. 2.036,94 2.041,60
100 Gylini 2.424,94 2.429,90
100 V.-þýzk m. 2.417,45 2.422,87
100 Lírur 18,96 14,00
100 Austurr. sch. 339,60 340,38
100 Escudos 308,45 309,15
100 Pesetar 126,27 126,55
100 Reikningskrónur —
Vöruskiptalöml 99,86 100,14
1 Reiikningsdollar —
Vöruskiptalönd 87,90 88,10
1 Reiknimgspund —
Vöruskiptadönd 210,95 211,45
Lárétt:
1 Losaði. 6 Kassi. 8 Bál. 9 Máttur.
10 Konu. 11 Maður. 12 Gímald. 13
Tala. 15 Dusta.
Krossgáta
Nr. 549
Lóðrétt: 2 Skemmdinni. 3
Leyfist. 4 Óvættur .5 Kýr. 7
Vör. 14 Iðja.
Ráðning á gátu nr. 548.
Lárétt: 1 Þjóna. 6 Ósa. 8 Ról.
9 Gil. 10 Afl. 11 Rót. 12 Iðn.
13 Rán. 15 Hérna.
Lóðrétt: 2 Jólatré. 3 Ós. 4
Naglinn. 5 Aburð. 7 Fiink.
14l Ár.