Tíminn - 28.06.1970, Síða 5
í sam'bandi við athugun o'kkar
á skákinni Friðrik—Benkö í síð-
asta þætti, urðum við vitni að
því hvernig 12. leikur hvíts, Rh4,
setti „strategískt" mark sitt á
Skákina og varð upphaf þeirrar
áætlunar, sem hvítur síðan fram-
fylgdi. í kjölfar leiksins fylgdi
frsmrás hvítu peðanna á kóngs-
vnngnum (17. f4 og 22. g4, ásamt
25 f5), og svartur fékk að lok-
um við ekkerf ráðið. Þessa áætlun,
sem nefna mætti Rh4-áætlunina,
sjáum við framkvæmda á ný í
skákinni, sem hér fer á eftir, að
vísu með örlítið breyttum kenni
leitum. Það er að sjálfsögðu eðli
upphyggingarinnar í þessum
tveimur skákum, sem gerir áætl-
unina framkvæmanlega.
Lugano 1970.
Hv.: Friðrik. Sv.: Lazlo Szabo
Sikileyjarvörn (?)
1. Rf3 — gG
2. d4 — Bg7
3. e4 — c5
(Með breyttri leikröð er komin
upp sama staðan og í skákinni
Friðrik — Benkö).
4. c3 — cxd4
5. cxd4 — d6
(Szobo tekur byrjunina nokkuð
öðruni tökum en Benkö, en ekki
líður á löngu, þar til ská'kin bein-
ist inn á svipaða braut).
6. h3,
(Gagnlegur leikur í þessari stöðu.
Iíann kemur í veg fyrir, að svart-
ur nái að þrýsta á d4-peðið með
þ\Tí að leppa riddarann á f3. Auk
þess hefur leikurinn aðra gagn-
lega eiginleika, eins og síðar kem
ur í Ijós).
6. _, _ Rf6
7. Rc3 — 0—0
8. Bg5,
(Þessi leikur er kunnur úr öðrum
byrjunum, en hlutverk hans er
m.a. það að fá svart til að leiká
—, h6, sem gæti reynzt veiking
á svörtu stöðunni. Þetta leiðir
hugann að fyrri skákinni, þar
sem hvíti riddarinn var sendur
út af örkinni til að veikja svörtu
kóngsstöðuna (10. Rgð!)
8. —, — Rc6
(í slíkri stöðu hlýtur ávallt að
vakna spurning um markmið og
leiðir. Ýmsir mundu taka af skar-
ið hér og leika 9. d5, aðrir mundu
kjósa að bíða átefcta og viðhalda
spennunni á miðborðinu. Ákvörð-
un þessa eðlis getur kostað mifcil
heilaforot, en hún hlýtur í öllu
verulegu að markazt af persónu-
legum viðhorfum skákmannsins,
reynslu hans og skapgerð).
9. Be2, _ h6
(Svörtum finnst staðan þröng og
ákveður að grípa til gagnaðgerða
á miðborðinu. Áður þarf hann
þó að reka biskupinn á g5 af
höndum sér, en við það skapast
veikleiki á kóngsvængnum, sem
hvítur reynir að færa sér í nyt
á svipaoan hátt og í fyrri skák-
inni).
10. Be3 —
(Hér kemur í ijós einn kosturinn
við 6. leifc hvíts. Svartur getur
nú ekki leikið —,N Rg4).
10. —, — d5
(Skákin beinist nú inn á svipaða
braut og fyrri skákin)
11. e5, —“Rel
12. Hcl
(Hvítur vill firra sig öllum áhyggj
um af bakstæðu peði á c-línunni,
en jafnframt er leiknum ætlað-að
koma í veg fyrir, að svartur geti
með góðu móti losað um stöðu
sína með —, f6)
12. _, — Be6
(Svörtum líkaði ekki áframhaldið
12. —, f6, 13. Rxd5, sem virðist
leiða til betri stöðu fyrir hvítan
í ölluni afbrigðum (13. —, Dxd5,
14. Bc4). Einnig 12. r-, Rxc3, 13.
Hxc3, f6 hefur sína > annmarka
vegna veikleika svörtu peðanna
á kóngsvængnum).
13. Bd3
(Miðar enn að því að torvelda
framrás svarta f-peðsins. T.d.
strandar 13. —, f5 á 14. exf6
frhj. og svartur tapar peði).
13. _, — Bf5
14. 0—0, — Rxc3
15. Hxc3, — Bxd3
16. Dxd3, —
(Staðan hefur nú einfaldazt nokk
uð, vegna upps'kipta, en í „strate-
giskum“ skilningi hlítir hún
söimu lögmálum og áður).
16. _, — Dd7
(Undirbýr —, Df5, sem hvítur
hindrar með Rfo4-áætluninni marg
nefndu. Með 16. —, e6 gat svart-
ur komið í veg fyrir þessa áætl-
un, en hvítur lumar þá á öðrum
sterkum leik, sem sé 17. Rh2! —
Hugmyndin með leiknum er í
stuttu máli sú, að leika 18. Dd2
ásamt 19. Rg4. Reyni svartur
að hindra þ'etta með 17. —, h5
leikur hvítur 18. Rf3, og hefur
þá myndazt uggvænlegur veik-
leiki á g5).
17. Rh4!
(Teningunum er kastað!)
17. _, — e6
18. f4, — Re7
19. g4, —
(Allt samkvæant „formúlunni")
19. _, — Hfc8
(Hér er komið að vandasamasta
augnablikinu í skákinni. Hvítur
er staðráðinn í því að leiða skák-
ina til lykta með kóngssókn, ea
hann gerir sér grein fyrir því,
að hann þarf á báðum hrókun-
um að halda, ef sóknin á að bera
árangur. Af þessari ástæðu leiðir
hann hjá sér mannakaup og vík-
ur hróknum af c-línunni í þeirri
von, að hann komi síðar að gagni
á kóngsvængnum. Þetta hefur að
sjálfsögðu í för með sér þá
áhættu, að svartur nái gagnsókn
á c-línunni).
20. Hb3!?, — Hc6?
(Eitt af þessum undarlegu tilvik-
um, þar sem leikur getur verið
rökréttur, en samt sem áður rang-
ur Svartur leitar uppskipta á
hrókunum (—, Iíb6) til að draga
úr sóknarmætti hvítu stöðunnar,
en gætir þess ekki. að hvítur á
„taktískar" örvar í mæli sínum.
20. —, Hc4 hefði torveldað mjög
sóknaráform hvíts).
21. Db5! —
(Þessi óvænti leikur gerir mögu-
lega þá tilfærslu hvíta liðsins,
sem sóknin á kóngsvængnum
krefst. Svartur verður að snúast
til varnar um sinn, og við það
vinnst tími til að koma hróknum
á b3 í gagnið á kóngsvængnum.
Þar með er orustan unnin. —
Þarna er fengin enn ein sönnun
þess, að „strategía" og „taktík"
hljóta ávallt að haldast í hendur).
21. _, — b6
22. Bd2, — Hd8
23. De2! — Hc4
(Eða 23. —, Hc2, 24. Ddl, Hdc8
25. Bc3 og hvít-ur vinnur)
24. Hd3 — Hc2
(Hvítur er nú búinn að fá því
framgengt, sem hann vildi og
gerir sér ekki grillur út af einu
peði).
25. f5! — exf5
(Eða 25. —, g5, 26. f6, gxh4, 27.
fxg7, Rg6, 28. De3 og vinnur).
26. gxf5, — Rxf5
27. Rxf5, — gxf5
28. Hg3, —
(Nú er svartur algjörlega glat-
aður)
28. _, _ De6
29. Khl, — Kh8
30. Dg2, —
(Ekki 30. Hfgl vegna _ f4)
30. _, — h5
(Örvænting).
31. Hxg7, — Hxd2
32. Dxd2. —
Svartur gefst upp vegna þess að
hann tapar hrók eftir 32. —, Kxg7
33. Dg5t
Skýringar við þessa skáfc hafa
verið ítarlegar, en hjá því verður
ekki komizt, þegar skýra skal
áætlanagerð í skák. F.Ó.
Já9
gjörid þið
svo vel*
Heyuið
viðsMptm
Síiiiinii er
(96> 31400
Verksmiðjuafgreiðsla K E A
annast heildsöluafgreiðslu á
vörum frá framleiðsludeild-
um félagsins. Með einu sím-
tali getið þér pantað allt
það, sem þér óskið, af fjöl-
breytilegri framleiðsluþeirra,
landsþekktar úrvalsvörur, —
allt á einum stað:
Málningarvörur og hreinlæt-
isvörur frá Sjöfn, kjö.t- og
niðursuðuvörur frá Kjötiðn-
aðarstöð KEA og hangikjöt
frá Reykhúsi KEA. Gula-
bandið og Flóru-smjörlíki,
Braga-kaffi og Santos-kaffi,
Flóru-sultur og safar, brauð-
vörur frá Brauðgerð KEA,
ostar og smjör frá Mjólkur-
samlagi KEA, allt eru þetta
þjóðkunnar og mjög eftir-
sóttar vörur, öruggar sölu-
vörur, marg-auglýstar í út-
varpi, sjónvarpi og blöðum.
Innkaupastjórar. Eitt símtal.
Fljót og örugg afgreiðsla.
Kynnið yður kjörin og reyn-
ið viðskiptin.
Síminn er (96) 21400.
SMJÖRLÍKIS
öERÐ