Morgunblaðið - 17.11.2005, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
RANNSÓKNAR KRAFIST
Helsti flokkur súnníta í Írak, Ísl-
amski flokkurinn, krafðist þess í gær
að fram færi alþjóðleg og óháð rann-
sókn á misþyrmingum sem fullyrt er
að íraskir fangar hafi sætt í fangelsi
innanríkisráðuneytisins í Bagdad.
Fuglaflensa í menn í Kína
Staðfest var í fyrsta skipti í gær
að fuglaflensa hefði borist í menn í
Kína. Vitað er að kínversk kona dó
af völdum fuglaflensuveirunnar
H5N1 og líklegt þykir að hún hafi
einnig orðið tólf ára stúlku að ald-
urtila.
Nýir hluthafar í Árvakri
Forsíða ehf., félag í eigu Ólafs Jó-
hanns Ólafssonar, hefur keypt 16,7%
hlut í Árvakri, útgáfufélagi Morg-
unblaðsins. Þá hefur MGM ehf. auk-
ið hlut sinn í 16,7% en félagið er nú í
eigu Straums-Burðaráss.
Réttindi samkynhneigðra
Forsætisráðherra kynnti í gær
nýtt frumvarp um réttarstöðu sam-
kynhneigðra. Í því felst m.a. að sam-
kynhneigð pör geta fengið óvígða
sambúð skráða í þjóðskrá, samkyn-
hneigð pör fá sama rétt og gagnkyn-
hneigð til að ættleiða börn og kona í
sambúð eða staðfestri samvist með
annarri konu fær með frumvarpinu
rétt til að gangast undir tækni-
frjóvgun.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Umræðan 36/39
Erlent 20/23 Bréf 39
Minn staður 24 Minningar 40/44
Höfuðborgin 20 Myndasögur 48
Akureyri 25 Dagbók 48/51
Suðurnes 25 Staður og stund 39
Landið 26 Leikhús 52
Daglegt líf 232/33 Bíó 54/57
Neytendur 34/35 Ljósvakamiðlar 58
Menning 28 Veður 59
Forystugrein 30 Staksteinar 59
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir bæklingur frá Puma.
Blaðinu í dag fylgir einnig bæklingur
frá Vero Moda.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
í fylgd
með fullorðnum
www.jpv.is
steinunn ólína
„Það er kraftur í þessari frásögn.“
Halldór Guðmundsson / FRÉTTABLAÐIÐ
„Blússandi húmor...fín saga.“
Sigríður Albertsdóttir / DV
Metsö lu l i s t i
Eymundsson
Aða l l i s t i / 16. nóv
„[Steinunn] kann galdurinn við að hrífa lesandann með
sér, ýta við honum og heilla hann upp úr skónum.“
Friðrika Benónýs / MORGUNBLAÐIÐ
RÍKISSTJÓRNIN mun beita sér
fyrir því að frumvarp um atvinnu-
leysistryggingar verði flutt á Alþingi
nú á vetrarmánuðum. Þar er gert
ráð fyrir að atvinnuleysisbætur verði
í fyrsta sinn tekjutengdar og þak
sett á bæturnar. Þetta þýðir að fólk
mun halda 70% af fyrri launum sín-
um fyrstu þrjá mánuði eftir atvinnu-
missi, að undanskildu því að viðkom-
andi verður á grunnbótum fyrstu 10
dagana, sem nemi eftir hækkun með
lagabreytingu um 96 þúsundum
króna á mánuði. Þakið miðast hins
vegar við 180 þúsund krónur, sem
eru 70% af mánaðartekjum er sam-
svara um 260 þúsundum króna.
Þetta kom fram í máli Halldórs Ás-
grímssonar forsætisráðherra á
blaðamannafundi í Ráðherrabú-
staðnum í gær.
Sagði Halldór að innan tíðar
myndi hefjast samstarf ríkisvaldsins
og aðila vinnumarkaðarins um skil-
yrði þess að aðili gæti fengið örorku-
bætur, hvort sem um væri að ræða
almannatryggingakerfið eða lífeyris-
sjóðakerfið. „Það er nauðsynlegt að
mati allra aðila að samræma þessar
reglur, þannig að það sé enginn
munur þar á.“ Að sögn Halldórs mun
hann skipa nefnd til þess
að vinna að málinu á allra
næstu dögum sem ætlað
er að skila tillögum
næsta vetur. Aðspurður
sagði hann ljóst að
nefndinni væri ætlað að
samræma reglur, skýra
þær svo kerfið væri
gagnsætt og hugsanlega
herða reglur.
Verulegt fjármagn
„Á sama tíma mun rík-
isvaldið leggja fram
verulegt fjármagn til
þess að tryggja það að
lífeyrissjóðirnir geti
staðið undir skuldbindingum sínum.
Það liggur fyrir að lífeyrissjóðirnir
hafa þurft að skerða bætur þeirra
trygginga sem þeir veita á undan-
förnum árum og með þessu er verið
að létta undir með þeim í þessu mik-
ilvæga máli,“ sagði Halldór og gerði
starfsmenntun einnig að umtalsefni
á fundinum. Sagði hann að bætt yrði
við 100 milljónum á fjárlögum 2006
til starfsmenntunar, en um áætlaðan
kostnað ríkisins í heild við aðild að
samkomulagi ASÍ og SA um aðgerð-
ir á vinnumarkaði sagði Halldór
hann geta numið um tveimur millj-
örðum til 2009.
Fram kom í frétt-
um í gær að hluti
samkomulagsins fæli
í sér að lög yrðu sett
um starfsmannaleig-
ur. Á fundinum var
Halldór inntur eftir
því hvort ákvæðið um
takmörkun á aðflutn-
ingi á vinnuafli frá
nýjum ríkjum Evr-
ópusambandsins sem
hér hafa verið í gildi
en renna út í vor yrði
hugsanlega fram-
lengt. „Þetta hefur
verið rætt í tengslum
við samningana sem
voru undirritaðir í gær [þriðjudag]
og ég hef skilið aðila vinnumarkaðar-
ins þannig að þeir telji að það þjóni
ekki tilgangi við þessar aðstæður að
framlengja þessar reglur sem við
settum á sínum tíma. Aðilar vinnu-
markaðarins hafa haldið því fram að
það væri trúlega betra og auðveldara
að tryggja eðlilegan framgang þess-
ara mála án þessara reglna,“ sagði
Halldór og tók fram að allar líkur
væru því til þess að aðlögunarregl-
urnar yrðu ekki framlengdar heldur
tekið á málinu með sambærilegum
hætti og aðrir aðilar Evrópusam-
bandsins hefðu gert.
Samræma þarf regl-
ur um örorkubætur
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Halldór Ásgrímsson
GUÐMUNDUR Magnússon, leikari
og þriðji varamaður á lista
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs í Reykjavíkurkjördæmi
suður, tók sæti á Alþingi í gær í
fjarveru Ögmundar Jónassonar.
Álfheiður Ingadóttir, fyrsti vara-
maður á listanum, og Kristín
Njálsdóttir, annar varamaður, eru
forfallaðar. Guðmundur mun sitja
á Alþingi næstu tvær vikurnar.
Guðmundur hefur ekki haft
samþykkt kjörbréf varamanns á
þingi, þar sem hann er það neð-
arlega á lista Vinstri grænna. Því
gaf landskjörstjórn út kjörbréf
fyrir hann í vikunni. Arnbjörg
Sveinsdóttir, formaður kjör-
bréfanefndar Alþingis, lýsti því
svo yfir á þingfundi í gær að
nefndin hefði samþykkt kjör-
bréfið. Eftir það undirritaði Guð-
mundur drengskaparheit að
stjórnarskránni þar sem hann
hefur ekki áður tekið sæti á Al-
þingi. Forseti Alþingis, Sólveig
Pétursdóttir, bauð hann því næst
velkominn til starfa.
Guðmundur er bundinn í hjóla-
stól og á því ekki greiða leið að
ræðustól Alþingis. Þess vegna er
gert ráð fyrir því að hann tali úr
sæti sínu þegar hann heldur ræðu
á þingi.
Sólveig upplýsti á þingfund-
inum í gær að nýrri sjónvarpsvél
hefði verið komið fyrir í þingsaln-
um, sem yrði beint að þingmann-
inum, þegar hann héldi ræður.
Sólveig sagði að sama fyrir-
komulag væri í nágrannaþingum
okkar. „Þar hefur verið hugað að
endurbótum og verður einnig
gert hér.“
Morgunblaðið/Kristinn
Geir H. Haarde utanríkisráðherra heilsar Guðmundi Magnússyni, varaþingmanni Vinstri grænna í Reykjavík, sem
tók í fyrsta sinn sæti á Alþingi í gær. Þingmennirnir Þuríður Backman og Birgir Ármannsson fylgjast með.
Nýr varaþingmaður
talar úr sæti sínu
AÐ MATI Halldórs Ásgríms-
sonar forsætisráðherra eru all-
ar líkur til þess að vextir Íbúða-
lánasjóðs hækki á næstunni.
Hann sagði ljóst að vextir
hefðu hækkað á markaðnum og
að allir sem á markaðnum
störfuðu yrðu að taka tillit til
þeirra aðstæðna, hvort heldur
það væri Íbúðalánasjóður eða
aðrir.
„Ég veit til þess að það er
fyrirhugaður fundur hjá Íbúða-
lánasjóði næstu daga og ég
reikna með að það verði hlut-
verk þess fundar og stjórnar
Íbúðalánasjóðs að taka afstöðu
til þess hvort hækka eigi vexti.“
Spurður hvort honum fynd-
ist það rétt ákvörðun kæmi til
þess svaraði Halldór: „Mér
finnst það vera alveg ljóst að ef
maður er að taka lán á markaði
þar sem vextirnir hafa hækkað
þá er mjög líklegt að maður
verði að taka tillit til þess og
frammi fyrir því stendur
Íbúðalánasjóður sem og aðrar
lánastofnanir. Landsbankinn
reið á vaðið í þessu sambandi
og ég á von á að þarna verði
einhverjar breytingar. Hversu
miklar get ég ekki sagt.“
Líklegt
að Íbúða-
lánasjóður
hækki vexti
MAÐUR slasaðist nokkuð þeg-
ar bifhjól sem hann ók lenti í
árekstri við vöruflutningabíl á
Gagnheiði á Selfossi um hálf-
fimmleytið í gær.
Að sögn lögreglunnar á Sel-
fossi er ekki vitað um tildrög
slyssins. Maðurinn var fluttur
með sjúkrabíl til Reykjavíkur
og er á slysadeild Landspítala –
háskólasjúkrahúss í Fossvogi.
Hann hlaut beinbrot en er ekki
alvarlega slasaður.
Áreksturinn var nokkuð
harður en bílstjóri vöruflutn-
ingabifreiðarinnar slasaðist
ekki.
Lögreglan á Selfossi fer með
rannsókn á slysinu.
Bifhjóla-
slys á
Selfossi