Morgunblaðið - 17.11.2005, Blaðsíða 4
Ólafur Jóhann Ólafsson
ÓLAFUR Jóhann Ólafsson, rithöf-
undur og aðstoðarforstjóri Time-
Warner-fjölmiðlasamsteypunnar,
hefur keypt 16,7% hlut í Árvakri.
Hann segist vera spenntur fyrir
því að nýta reynslu sína með
þessum hætti og segir Morgun-
blaðið hafa grunn sem byggja
megi á.
„Það er greinilegt að það sem
gerst hefur á síðustu árum í fjöl-
miðlaheiminum er að efni sem
hingað til hefur einvörðungu
birst á pappír í dagblöðum, bæði
það efni og sú umræða og í raun-
inni allt það efni sem þar er búið
til, er að rata í hendurnar á fólki
á margvíslegan hátt. Morg-
unblaðið var brautryðjandi í því á
Íslandi að færa efni sitt inn á net-
ið og mbl.is er sterkur netmiðill á
Íslandi. Ég get vel trúað því að
þar sé grunnur sem hægt er að
byggja á,“ segir hann og bætir
við að mikil reynsla búi í blaðinu
og hana megi nýta á ýmsan hátt.
Aðspurður segist hann ekki bú-
ast við því að taka sjálfur sæti í
stjórn Árvakurs, þar sem hann sé
búsettur í Bandaríkjunum, en
muni í staðinn vinna náið með
þeim sem tekur þar sæti fyrir
hans hönd.
Ólafur segir að aðdragandi
þessara kaupa sé sá að Stefán P.
Eggertsson, stjórnarformaður Ár-
vakurs, hafi haft samband við sig,
en þeir þekkist í gegnum tengda-
son hans. „Hann hafði samband
við mig og bað mig að koma að
þessu á einhvern hátt og þannig
þróaðist þetta,“ segir Ólafur.
Grunnur sem byggja má á
4 FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sagan um Jörund
hundadagakonung
og byltingu hans
á Íslandi
www.jpv.is
„… rennileg og myndræn,
vel stíluð og hárfínt jafnvægi
ríkir milli skáldskapar
og sagnfræði …
raunsæisleg og sannfærandi.“
Steinunn Inga Óttarsdóttir /
MORGUNBLAÐIÐ
„Bráðlæsileg
og spennandi“
Illugi Jökulsson / TALSTÖÐIN
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi yfirlýsing frá
Davíð Oddssyni, seðlabanka-
stjóra og fyrrverandi forsætis-
ráðherra.
„Í Morgunblaðinu 16. nóvem-
ber er eftirfarandi frásögn
vegna útgáfu bókar Einars
Kárasonar um Jón Ólafsson.
„Einar var spurður hvort hann
hefði leitað til Davíðs Oddssonar
eða Hannesar Hólmsteins Giss-
urarsonar, sem báðir hafa op-
inberlega verið harðorðir í garð
Jóns og viðskipta hans, við gerð
bókarinnar, og svaraði því á eft-
irfarandi hátt: „Það er vitnað í
Hannes. Það er líka vitnað tölu-
vert í Davíð. Ég þurfti nú til-
tölulega lítið að tala við Davíð
því hann hefur haft sínar skoð-
anir alveg kirfilega.““
Einar Kárason hefur aldrei
talað við mig um Jón Ólafsson
eða þessa bók og aldrei leitað
eftir samtali við mig. Er með
ólíkindum að hann skuli leyfa
sér að gefa annað í skyn.“
Yfirlýsing frá
Davíð Oddssyni
BREYTING hefur orðið á hluthafa-
hópi Árvakurs hf. sem gefur út
Morgunblaðið. Í fréttatilkynningu
frá Hallgrími B. Geirssyni, fram-
kvæmdastjóra Árvakurs, kemur
fram að breytingar verði á stjórn fé-
lagsins á hluthafafundi sem boðaður
hefur verið.
„Undirritaðir hafa verið samning-
ar um kaup tveggja nýrra hluthafa á
hlutum í Árvakri hf., útgáfufélagi
Morgunblaðsins. Annars vegar er
um að ræða Forsíðu ehf., félag í eigu
Ólafs Jóhanns Ólafssonar rithöfund-
ar og aðstoðarforstjóra Time-Warn-
er-fjölmiðlasamsteypunnar, og hins
vegar MGM ehf. félag, nú eftir kaup-
in í eigu Straums-Burðaráss fjár-
festingabanka hf.
Hvor hluthafi um sig hefur eignast
16,7 % af heildarhlutafé Árvakurs hf.
en seljendur þorra þess hlutafjár
sem um er að ræða eru félög í eigu
tveggja stærstu hluthafa Árvakurs
hf.
Gert er ráð fyrir að fulltrúar nýrra
hluthafa taki sæti í stjórn félagsins á
hluthafafundi sem boðað hefur verið
til.
Straumur ráðgefandi
Árvakur hf. hefur jafnframt komist
að samkomulagi við Straum-Burðar-
ás fjárfestingabanka hf. um að bank-
inn verði ráðgefandi og hafi umsjón
með frekari uppbyggingu félagsins á
grunni nýrrar stefnumótunar.
Stefnt er að því að auka verulega
umsvif útgáfufélagsins og meðal
helstu stefnumiða er að efla útgáfu
Morgunblaðsins og annarra prent-
miðla félagsins samhliða útgáfu á
nýjum vettvangi.
Ennfremur verður dreifingarkerfi
Morgunblaðsins stækkað og dreif-
ingarstarfsemi aukin á grunni þess
auk þess sem ný og fullkomin prent-
smiðja Morgunblaðsins verður stofn
að aukinni starfsemi á því sviði í
tengslum við umfangsmeiri útgáfu
og dreifingu.
Þá verður áfram lögð sérstök
áhersla á uppbyggingu mbl.is, sem
er jafnframt einn af vaxtarbroddum
útgáfufélagsins og farvegur til auk-
inna tækifæra á vettvangi ljósvaka-
miðlunar.
Árvakur hf. mun leita eftir sam-
starfi við aðila á vettvangi útgáfu,
prentunar, dreifingar og ljósvaka-
miðlunar um þessa þætti uppbygg-
ingar félagsins eins og hentugt kann
að þykja með það að markmiði að
tryggja hagkvæmni í rekstri og arð-
semi.“
Nýir hluthafar bætast í
hluthafahóp Árvakurs
!"#$%&
'
(% %
$
Morgunblaðið/Árni Sæberg
KRISTINN Björnsson, varafor-
maður stjórnar Árvakurs, segir að
með þessum kaupum hefjist ákveðið
breytingaskeið hjá Árvakri. Hann
segist hafa haft frumkvæði að því,
sem hluthafi í bæði Árvakri og
Straumi, að vekja athygli Straums á
að þar væru bréf til sölu. „Síðan er
það stjórn Árvakurs sem fær Straum
til að vinna með sér í ákveðnum um-
breytingarverkefnum, sem tengjast
bæði prentsmiðjunni, dreifingu og
hugsanlega mbl.is,“ segir Kristinn.
Aðspurður hverjar stærstu breyt-
ingarnar verða segir hann að þær
komi betur í ljós á hluthafafundi á
þriðjudaginn þar sem kosin verður
ný stjórn Árvakurs.
„En auðvitað liggur í hlutarins
eðli að hluthafar Árvakurs eru að
þessu vegna þess að menn eru að
fara í breytingar, bæði á eignarhald-
inu, sem var orðið óþarflega þröngt
og ekki nægjanlega dreift, og eins
vegna þess að útgáfufélagið þarf að
taka mið af kringumstæðum á blaða-
markaði.“
Breytingaskeið að hefjast
Kristinn Björnsson
ÞÓRÐUR Már Jóhannesson, for-
stjóri Straums-Burðaráss, segir að
bankinn líti á Árvakur sem áhuga-
vert fyrirtæki og að hann komi að
Árvakri sem umbreytingafjárfestir.
Þórður Már segist sjá ýmis sókn-
arfæri í þessum kaupum og bank-
inn vilji stuðla að frekari eflingu og
uppbyggingu Árvakurs. Þegar
hann var inntur eftir því til hve
margra ára þessi fjárfesting væri
sagði Þórður erfitt að segja til um
það, en áætlaði að um tveggja til
þriggja ára verkefni væri að ræða.
Hann segir verðið trúnaðarmál.
Áhugavert
fyrirtæki
Þórður Már Jóhannesson
ÓLAFUR Jóhann Ólafsson sendi frá
sér yfirlýsingu í gær í kjölfar kaupa
á hlutabréfum í Árvakri.
„Undanfarna áratugi hef ég verið
þátttakandi í margvíslegum breyt-
ingum á alþjóðlegu fjölmiðlaum-
hverfi. Mig hefur lengi langað til að
nýta þá reynslu á heimaslóðum og
hef því þegið boð um að gerast hlut-
hafi í Árvakri, útgáfufélagi Morg-
unblaðsins.
Ég tel að framundan séu áhuga-
verðir tímar í íslenskri fjölmiðlun
þar sem Morgunblaðið leikur veiga-
mikið hlutverk. Morgunblaðið hefur
löngum verið kallað „Blað allra
landsmanna“ og hlýtur það að vera
markmið eigenda og starfsfólks
blaðsins að standa undir því nafni.
Starfsfólk blaðsins býr yfir fjöl-
þættri reynslu og blaðið hefur sýnt
það þegar á reynir að það hefur
burði til að varpa skýru ljósi á inn-
lenda og erlenda atburði með efn-
isríkara hætti en flestir aðrir fjöl-
miðlar. Þessa orkulind verður að
nýta sem best í þágu lesenda, jafnt
þeirra sem fá blaðið til sín á morgn-
ana og hinna sem fylgjast með at-
burðum á netsíðum blaðsins allan
sólarhringinn.
Það er mér tilhlökkun að eiga
hlutdeild með þessum hætti á vett-
vangi sem lengi hefur skipt og mun
skipta flesta landsmenn nokkru
máli.“
Áhugaverðir tímar í
íslenskri fjölmiðlun