Morgunblaðið - 17.11.2005, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÍSLAMSKI flokkurinn, helsti flokk-
ur súnníta í Írak, krafðist þess í gær
að fram færi alþjóðleg og óháð rann-
sókn á misþyrm-
ingum þeim, sem
fullyrt er að írask-
ir fangar hafi sætt
í fangelsi einu í
höfuðborginni,
Bagdad.
Á þriðjudag var
frá því skýrt að
um 170 fangar,
flestir súnnítar,
hefðu fundist í
byggingu einni, sem heyrir undir
innanríkisráðuneyti Íraks en því
ráða sjítar. Var fullyrt að mennirnir
hefðu sætt barsmíðum og þeir verið
sveltir. Fangarnir fundust á sunnu-
dag þegar bandarískur liðsafli réðst
inn í neðanjarðarhvelfingu í bygg-
inu, sem innanríkisráðuneytið ræður
yfir í suðurhluta Bagdad.
„Við krefjumst alþjóðlegrar rann-
sóknar,“ sagði Alaa Makki, talsmað-
ur Íslamska flokksins, í samtali við
AFP-fréttastofuna. Hann bætti við
að herstjórn Bandaríkjamanna í
landinu hlyti að hafa verið kunnugt
um misþyrmingarnar. „Svipuð til-
felli hafa komið upp áður og rann-
sóknir hafa engum niðurstöðum skil-
að,“ sagði annar talsmaður, Ayad
Samarrai.
Súnnítar, sem eru um 20% íbúa
Íraks en fóru með völdin í landinu í
tíð Saddams Husseins forseta, hafa
þráfaldlega haldið því fram að þeir
sæti misþyrmingum og harðræði af
hálfu sjíta. Þeir eru fjölmennastir
þjóðarbrota Íraks og nú ráðandi í
stjórnmálum landsins.
Talsmenn súnníta segja að fang-
arnir, sem fundust, hafi á engan veg
tengst andstöðu við erlenda innrás-
arliðið í landinu. Menn þessir hafi
verið handteknir í moskum og víðar
án nokkurrar greinanlegrar ástæðu.
Hussein Kamal, aðstoðarinnanríkis-
ráðherra Íraks, sagði í viðtali við
CNN-sjónvarpsstöðina að hann
hefði sjálfur séð nokkra fanganna,
sem fundust á sunnudag. „Ég
greindi merki um að menn hefðu
sætt grimmilegum barsmíðum. Einn
eða tveir fanganna voru lamaðir. Og
nokkrir höfðu orðið fyrir húðflett-
ingu,“ sagði hann.
Ibrahim Jaafari, forsætisráðherra
Íraks, ákvað á þriðjudag að málið
skyldi rannsakað. Krafðist hann
skýrslu innan tveggja vikna. Ekki lá
þó fyrir í gær nákvæmlega hvernig
sú rannsókn á að fara fram. Laith
Kubba, talsmaður forsætisráð-
herrans, sagði hann „öskureiðan“
sökum meintra pyntinga á föngun-
um. Slík framganga væri í engu sam-
ræmi við „gildismat“ ríkisstjórnar
Íraks.
Bandaríkjamenn hafa fagnað
þeirri ákvörðun forsætisráðherrans
að láta rannsaka málið með þeim
orðum að „öldungis ólíðandi“ sé að
fangar sæti misþyrmingum í land-
inu. Bandaríkjamenn hafa boðið
fram aðstoð við rannsóknina. Í fyrra
var upplýst að íraskir fangar hefðu
sætt margvíslegum misþyrmingum í
Abu-Ghraib-fangelsinu í Bagdad,
sem herlið Bandaríkjanna stýrir.
Krefjast rannsóknar á
pyntingum í Bagdad
Reuters
Cindy Sheehan (t.v.) sem þekkt er í Bandaríkjunum fyrir að mótmæla
Íraksstríðinu, ásamt stuðningsmönnum utan við dómshús í Washington í
gær. Sonur Sheehan féll í Írak. Hún vill að bandaríska herliðið verði þegar
kvatt heim. „Stöðvið lygarnar, stöðvið drápin!“ stendur einnig á spjaldinu.
Ibrahim Jaafari
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
Mótmælir Íraksstríðinu
Kaupmannahöfn. AFP. | Búist er við, að
stjórnarmyndun á Grænlandi geti
orðið fremur erfið eftir þingkosning-
arnar í fyrradag. Segja má, að
óvæntustu úrslitin hafi verið þau, að
Siumut, flokkur jafnaðarmanna, hélt
sínu en honum hafði verið spáð
nokkru tapi.
Siumut, sem verið hefur í stjórn
frá því Grænlendingar fengu sína
heimastjórn 1979, hélt sínum 10
mönnum af 31 á landsþinginu en það
getur orðið erfitt fyrir hann að semja
við aðra flokka vegna þess, að þeir
saka suma fyrrverandi ráðherra
hans um að hafa misfarið með op-
inbert fé.
Samstarfsflokkur Siumut í fráfar-
andi stjórn, Inuit Ataqatigiit, missti
einn mann og fékk sjö eins og Lýð-
ræðisflokkurinn, sem bætti við sig
tveimur. Fjórði flokkurinn, hinn
frjálslyndi Atassut, fékk sex menn
kjörna og missti einn.
Atassut og Siumut ræðast við
Ellen Christoffersen, frammá-
maður í Atassut, sagði í gær, að
stefnan hefði verið að fella fráfarandi
stjórn en gott gengi Siumut væri
staðreynd, sem ekki yrði horft
framhjá. Ætluðu fulltrúar Atassut
og Siumut að ræða saman í gær um
hugsanlega stjórnarmyndun.
Í kosningunum á þriðjudag voru
sjálfstæðismálin ekki efst á baugi
eins og í kosningunum 2002, heldur
félagsleg vandamál eins og mikil
áfengisneysla og langir biðlistar á
sjúkrahúsunum.
Óvissa um
stjórnarmyndun
á Grænlandi
Gautaborg. Morgunblaðið. | Sænska rík-
isstjórnin boðar nú atvinnuumsóknir
með nafnleynd til að koma í veg fyrir
mismunun á vinnumarkaði. Kannanir
hafa sýnt að fólk með útlensk nöfn á
erfiðara með að fá vinnu í Svíþjóð en
þeir sem bera sænsk nöfn og mark-
mið þessarar tillögu er að gera inn-
flytjendum auðveldara að fá vinnu, að
því er fram kemur í Svenska Dag-
bladet.
Breytingin verður hjá hinu opin-
bera en Svenska Dagbladet greinir
frá því að tíundi hver starfsmaður
hins opinbera er fæddur utan Sví-
þjóðar en hins vegar eru 17% íbúa
Svíþjóðar af erlendu bergi brotinn og
atvinnuleysi töluvert meðal þess
hóps. Ef maður heitir t.d. Hassan eða
Mohammed er ólíklegra að hann
verði boðaður í atvinnuviðtal í Svíþjóð
en ef nafnið er Svensson.
Tanja Linderborg, fyrrverandi
þingmaður Vinstriflokksins, hefur
umsjón með áætlun stjórnvalda og
mun skila tillögum í desember. Í sam-
tali við Svenska Dagbladet segir hún
að nafnlausar atvinnuumsóknir geti
verið góð leið til að auka margbreyti-
leikann á sænskum vinnumarkaði og
vel þess virði að reyna það. Hún tekur
leigubílstjóra í Stokkhólmi sem dæmi.
Margir þeirra eru fæddir utan Sví-
þjóðar og hafa fjölbreytta menntun að
baki. Þeir ættu að hennar mati að eiga
meiri möguleika á að komast í at-
vinnuviðtöl ef atvinnurekendur gætu
ekki ómeðvitað síað frá þá sem bera
erlend nöfn.
Góð reynsla í Mellerud
Þetta fyrirkomulag hefur tíðkast í
sveitarfélaginu Mellerud í Svíþjóð og
hefur gefist vel. Umsækjendur lýsa
menntun og fyrri störfum með bréfi í
einu umslagi en skrifa nafn, kyn og
aldur á eyðublað sem fer í annað um-
slag sem ekki er opnað fyrr en búið er
að ákveða hverjir umsækjenda verða
kallaðir í viðtal. Þetta kemur einnig í
veg fyrir mismunun á grundvelli ald-
urs eða kynferðis.
Fram hefur komið gagnrýni á
þessa fyrirætlun stjórnvalda og að
mati Muharrem Demirok, sem situr í
stjórn sænska Miðflokksins, er ekki
tekið á vandamálinu. Hann telur að
mismununin verði áfram til staðar en
hún komi bara fram í atvinnuviðtalinu
í staðinn. Fredrik Reinfeldt, formað-
ur Hægriflokksins, er hins vegar
nokkuð jákvæður gagnvart áformum
ríkisstjórnarinnar og telur þau at-
hyglisverð.
Nafnlausar
atvinnu-
umsóknir
í Svíþjóð
Eftir Steingerði Ólafsdóttur
steingerdur@mbl.is
Addis Ababa. AP. | Talsmaður
Alþjóðabankans varaði í gær
Eþíópíustjórn við því að alþjóð-
legri fjárhagsaðstoð við landið
yrði hætt ef ekki yrðu gerðar
umbætur á stjórnarháttum í
landinu. „Dregið verður úr að-
stoðinni. Spurningin er hversu
mikið,“ sagði Ishac Diwan,
fulltrúi bankans í Eþíópíu.
46 manns létu lífið í átökum
við lögreglu í mánuðinum en
mikil mótmæli hafa verið í Eþí-
ópíu gegn stjórn landsins. Aðr-
ir 42 dóu í júní í mótmælum
vegna nýafstaðinna þingkosn-
inga en stjórnarandstaðan sak-
ar yfirvöld um kosningasvindl.
Eþíópía
taki sig á