Morgunblaðið - 17.11.2005, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Hvað finnst þér?
Kæri Kópavogsbúi
Þín skoðun skiptir máli!
Íbúaþing í Lindaskóla, laugardaginn 19. nóvember
Sjá nánar um dagskrána á www.kopavogur.is
Líttu inn milli kl. 10-16
M
IX
A
•
fí
t
•
5
0
9
8
8
EF marka má orð Albertos Fujimoris
hyggst hann freista þess að hreppa á ný
embætti forseta Perú. Framboðið er hins
vegar undirbúið við heldur óvenjulegar að-
stæður því forsetinn fyrrverandi dvelst nú í
fangaklefa í Santiago, höfuðborg nágranna-
ríkisins Chile. Undarlegheit eru á hinn bóg-
inn oftlega nærri þegar Fujimori á í hlut;
hann afrekaði m.a. að segja af sér forseta-
embætti í símbréfi frá Tókýó.
„Ég hyggst dvelja um skeið í Chile og er
það liður í áformum mínum um að snúa aftur
til Perú í því skyni að efna heit mitt gagnvart
stórum hluta þjóðarinnar, sem leitað hefur
eftir því við mig að ég gefi kost á mér í for-
setakosningunum í Perú árið 2006.“ Yfirlýs-
ing þessi barst frá Fujimori 7. þessa mán-
aðar en skömmu áður hafði einkaþota hans
lent í Santiago eftir flug frá Tókýó þar sem
forsetinn fyrrverandi hefur dvalist í sjálf-
skipaðri útlegð undanliðin fimm ár. Skömmu
eftir að Fujimori hafði sent yfirlýsinguna frá
sér var hann handtekinn á Marriot-hótelinu í
Santiago. Svo kann að fara að hann verði nú
framseldur til Perú.
Sú ákvörðun Fujimori að snúa aftur til
Rómönsku Ameríku vakti furðu enda virtist
hún við fyrstu sýn öldungis galin. En forset-
inn fyrrverandi hefur sýnilega metið stöðuna
á þann veg að honum gæfist nú tækifæri til
að láta til sín taka á ný. Það mat hans kann
að reynast rétt þótt lygileg rás atburða þurfi
að sönnu að koma til.
Alberto Fujimori, sem er 67 ára, var for-
seti Perú í tíu ár, frá 1990 og þar til hann
sagði af sér í símbréfinu fræga árið 2000.
Forsetinn naut lengi vinsælda; hann náði að
brjóta á bak aftur byltingarhreyfingu maó-
ista, Skínandi stíg („Sendero Luminoso“ ),
sem unnið hafði hroðaleg grimmdarverk í
landinu. Stjórn hans náði einnig umtals-
verðum árangri á sviði efnahagsmála og
sýndi viðleitni til að bæta kjör fátæklinga í
landinu.
En valdið gat af sér einræðislega stjórn-
arhætti, spillingu og að lokum hrein glæpa-
verk. Áður en til þess kom að hann yrði
handtekinn náði hann að flýja til hins gamla
heimalands foreldra sinna, Japan, þar sem
stjórnvöld hafa haldið yfir honum hlífiskildi
og m.a. neitað kröfum um framsal.
Ákærður fyrir spillingu
og rekstur dauðasveita
Í Perú hefur verið gefin út ákæra á hend-
ur Fujimori, sem samanstendur af 21 lið eftir
því sem næst verður komist. Þar er líkt og
vænta mátti víða komið við. Fujimori er m.a.
sakaður um fjármálaspillingu og að hafa
heimilað rekstur dauðasveita. Ræðir þar um
morð á óbreyttum borgurum í úthverfum
Líma, sem nefnast Barrios Altos, árið 1991.
Mercurio. Þekktur lögfræðingur í Perú, Jav-
ier Valle-Riestra, sagði í gær í samtali við
perúanska dagblaðið La Razón að einungis
yrði unnt að krefjast framsals með vísan til
morðanna í Barrios Altos og La Cantuta. Og
að auki þyrfti að leggja fram sannanir fyrir
ábyrgð Fujimori með slíkri beiðni. Dag-
blaðið La República birti hins vegar á forsíðu
sinni í gær svohljóðandi ákall: „Chilebúar,
nágrannar okkar, skilið okkur einræðisherr-
anum.“
Kann að vera kjörgengur
Ýmislegt fleira er undarlegt við mál Fuji-
moris. Þannig hafa til þess bær yfirvöld í
heimalandi hans úrskurðað að hann geti ekki
gegnt embætti þar fyrr en í fyrsta lagi árið
2010. Þessi úrskurður, þ.e. að maðurinn
verði kjörgengur þótt tiltekinn tími verði að
líða, liggur fyrir þrátt fyrir ákærur og fyrri
framsalskröfur gagnvart Japönum. Þarna
kann að leynast von fyrir Fujimori því sam-
kvæmt lögum í Perú getur kjörstjórn hunds-
að álit dómstóla og lýst hann hæfan til að
bjóða sig fram til embættis forseta.
Fujimori er enn innan fangelsismúra, hef-
ur tvo níu fermetra klefa til afnota en sætir
eftirliti allan sólarhringinn. Hann mun ekki
geta notað síma eða net.
Hann getur hins vegar reitt sig á umtals-
verðan stuðning í Perú og raunar á hann
einnig aðdáendur í Chile, sem skapa kann
ákveðinn vanda fyrir stjórnvöld þar. Fari svo
að framsalskröfu stjórnvalda í Perú verði
hafnað og Fujimori fái frelsi mun staða hans
gjörbreytast og forsendur kunna að skapast
fyrir pólitískum afskiptum og jafnvel fram-
boði. Ef marka má skoðanakannanir gætu
15–20% kjósenda í Perú hugsað sér að styðja
hann í kosningunum 9. apríl. Það fylgi gæti
dugað honum til að komast í síðari umferð
þar sem kosið er á milli tveggja efstu manna.
Fullyrt er að dauðasveit tengd stjórnvöldum
er nefndist „Colina“ hafi þar myrt 15 manns
á þeim forsendum að þar færu skæruliðar
Skínandi stígs. Tíu til viðbótar voru síðan
drepnir í La Cantuta-háskólanum. Mann-
réttindabrot af ýmsum toga eru og tíunduð í
ákærunni.
Líklegt er að þessi ákæruatriði verði lögð
fram í framsalskröfu stjórnvalda í Perú
gagnvart Chile. Hún þarf að koma fram inn-
an tveggja mánaða frá handtökunni sam-
kvæmt gildandi samningi á milli ríkjanna frá
árinu 1932.
Stuðningsmenn forsetans fyrrverandi
binda hins vegar vonir við að Chile hafni
framsalskröfunni. Kemur sú bjartsýni eink-
um til af því að óvenju grunnt er á því góða
með nágrannaríkjunum nú um stundir vegna
deilu um yfirráð yfir fiskimiðum í Kyrrahafi.
Aukinheldur er það svo að ráðamenn í Chile
hafa lengi varist framsalskröfum. Þannig
hefur stjórnvöldum í Perú enn ekki tekist að
fá tvo menn, sem tengjast spillingunni í tíð
Fujimoris, framselda þrátt fyrir áðurnefnd-
an samning þar um. Loks er að nefna að hluti
alþýðu manna í löndum þessum hefur um-
talsverða nautn af því að leggja fæð á ná-
grannaþjóðina.
Ótæk framsalskrafa
Óvissa ríkir um framhald málsins. Þannig
vísaði hæstiréttur Perú (ekki Chile) á bug
framsalskröfu stjórnvalda á þriðjudag.
Chileanska dagblaðið El Mercurio greindi
frá því í gær að framsalskrafan hefði verið í
19 liðum. Henni hefði verið hafnað sökum
þess að í einum lið hefði verið vísað til þess
að Fujimori hefði stungið af úr embætti for-
seta. Slíkt athæfi teldist ekki refsivert í Chile
og framsalskrafan því ekki tæk. Hins vegar
staðfesti áfrýjunarréttur í Chile að hand-
takan hefði verið lögleg, samkvæmt frétt El
Fréttaskýring | Undarlegt mál Alberto Fujimori skapar
spennu í samskiptum Perú og Chile
Framboð undirbúið
í fangaklefanum
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
Reuters
Framsals Alberto Fujimori, fyrrverandi forseta, krafist á fundi í Líma, höfuðborg Perú.
Gautaborg. Morgunblaðið. | Sænskir fjölmiðlar hafa í vik-
unni fjallað um meint fangaflug bandarísku leyniþjón-
ustunnar CIA í sænskri lofthelgi. TT-fréttastofan flutti
fyrst fréttir af þessu á mánudag og samkvæmt fréttum
hennar í gær lenti flugvél með skráningarnúmerið
N50BH í Örebro í Svíþjóð 21. júní 2002 og flaug tveimur
dögum síðar frá Örebro til Keflavíkur. Þessi flugvél hef-
ur samkvæmt bandarískum fjölmiðlum lent a.m.k. sjö
sinnum í Guantanamo þar sem Bandaríkjamenn reka
fangelsi fyrir meinta hryðjuverkamenn.
Sænskir stjórnmálamenn úr öllum flokkum krefjast
nú svara við því hvað flugvélar sem bandaríska leyni-
þjónustan CIA notaði til að flytja fanga voru að gera í
Svíþjóð fyrr í haust og fyrir þremur árum. Sænsk flug-
málayfirvöld (Luftfartsverket) munu nú rannsaka málið
samkvæmt beiðni ríkisstjórnarinnar.
TT-fréttastofan birti fréttir um það á mánudag að
flugvélar á vegum CIA hefðu lent á flugvöllunum Stu-
rup við Malmö, Arlanda við Stokkhólm og á flugvell-
inum í Örebro. Um er að ræða tvær flugvélar sem CIA
hefur áður leigt. Lars Danielsson, talsmaður sænsku
ríkisstjórnarinnar, segir að ríkisstjórnin hafi ekki vitað
um þessar flugvélar og fyrstu upplýsingarnar þar að
lútandi hafi hún fengið frá TT. Nú muni ástæðan fyrir
umræddum millilendingum verða könnuð og í fram-
haldinu tekin ákvörðun um hvernig stjórnin bregst við.
Ekki liggur fyrir hvers vegna flugvélarnar lentu í Sví-
þjóð en áður hefur komið fram að talið er að flugvélar á
vegum CIA hafi flutt fanga í leynileg fangelsi eða til
landa sem pyntingar eru jafnvel leyfðar.
Lars Ohly, formaður sænska Vinstriflokksins, brást
hart við fréttunum um bandarískar flugvélar í Svíþjóð.
Hann benti á að þetta væri staðfesting á tengingu Sví-
þjóðar og Bandaríkjanna í því stríði gegn hryðjuverk-
um sem George W. Bush forseti stæði fyrir.
Fangaflug CIA
um Svíþjóð
Vél fór frá Örebro
til Keflavíkur
Eftir Steingerði Ólafsdóttur
steingerdur@mbl.is
NOKKUR fyrirtæki í Ástralíu gera nú tilraunir með
vinnslu orku úr geysilega heitu graníti allt að fimm km
undir yfirborði jarðar. Hitinn myndast vegna þess að í
granítinu er nokkuð af jarðefnum sem hafa orðið til fyr-
ir geislavirkni og eru þau heitari en önnur jarðefni, að
því er segir á vefsíðu eins fyrirtækjanna, Geodynamics
Ltd. Óvenjuleg jarðlög valda því að mikið er um slíkt
grjót í jarðskorpunni í sunnanverðri Ástralíu. Granítið
helst heitt vegna einangrandi jarðlaga yfir því.
Rannsóknirnar hafa staðið yfir í fimm ár og er m.a.
bent á að orkan yrði algerlega mengunarlaus. Heimild-
armenn telja að orkan sem fengist gæti orðið meiri en í
allri kola- og olíuvinnslu Ástrala. Hitinn í granítinu, sem
þarf að ná minnst 220 gráðum á celsius, er nýttur með
því að dæla miklu af vatni undir gríðarlegum þrýstingi
niður í granít-lagið og hita þar vatnið með hjálp hnull-
unganna. Vatninu er síðan dælt upp og yfir í orkuver
þar sem vatnið hitar upp vökva með lágu suðumarki.
Gufan frá honum yrði notuð til að knýja hverfla og
framleiða rafmagn. Um er að ræða lokuð hringrása-
kerfi, sama vatnið stöðugt notað til að bera orkuna.
Talsmenn fyrirtækjanna telja að vinnsla gæti hafist í
fyrsta orkuverinu á næsta ári. „Svo gæti farið einhvern
daginn að reist yrðu orkuver sem framleiddu yfir 1000
megavött,“ sagði Peter Reid, aðalframkvæmdastjóri
Petratherm sem tekur þátt í tilraununum.
Sjóðheitir hnullung-
ar til orkuvinnslu
♦♦♦